Tíminn - 23.10.1993, Side 3
Laugardagur 23. október 1993
Tíminn 3
Alls verða 184 kandídatar
brautskráðir frá Háskóla ís-
lands í dag, laugardag. Flestir
þeirra útskrifast úr Heim-
spekideild eða 62. Af einstök-
um hópum útskrifast flestir
með kandídatspróf í viðskipta-
fræði, eða 31 að tölu.
Þetta kemur fram í frétt frá Há-
skóla íslands. Af þeim, sem ljúka
prófi úr Heimspekideild, ljúka
flestir prófi í sagnfræði eða 14
talsins.
Jafn margir útskrifast úr Félags-
vísindadeild og Viðskipta- og hag-
fræðideild, eða 34 úr hvorri deild.
Þeir, sem ljúka prófi í stjórnmála-
fræði, eru fjölmennastir útskrift-
amema í Félagsvísindadeild, eða
11 talsins.
Kandídatar úr Raunvísindadeild
eru alls 21 og 8 ljúka prófi í Verk-
fræðideild.
Tiltölulega fáir útskrifast úr
Læknadeild. Þaðan útskrifast 5
læknar, 6 lyfjafræðingar, 4 hjúkr-
unarfræðingar, en aðeins einn lýk-
ur prófi í sjúkraþjálfun.
Ur Guðfræðideild útskrifast 4
með embættispróf í guðfræði og
einn með BA-próf í sömu grein.
Fyrir utan þennan hóp standa 32
nemendur sem ljúka viðbótar-
námi í Félagsvísindadeild, en þar
ljúka 12 þeirra námi í hagnýtri
fjölmiðlun, 13 í kennslufræði til
kennsluréttinda og 7 nemendur
ljúka viðbótamámi í námsráðgjöf.
—HÞ
Korpúlfsstaöir.
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn ætla ekki að taka ákvörðun um endurbyggingu Korpúlfsstaða
fyrr en kostnaðaráætlanir liggja fyrir:
1. áfangi Korpúlfsstaða
kostar 385 milljónir
Fulltrúar Kvennalista og Fram-
sóknarflokks í borgarstjóm
Reykjavíkur leggja til að öllum
framkvæmdum við endurbygg-
ingu Korpúlfsstaða verði frest-
að þar til hagur borgarsjóðs fer
að vænkast. Borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokks segja að engar
ákvarðanir verði teknar í málinu
fyrr en endanlegar kostnaðar-
áætlanir liggi fyrir.
Tillaga Korpúlfsstaðanefndar um
endurbyggingu Korpúlfsstaða var
lögð fyrir borgarráð í fyrradag. Eins
og Tíminn hefur þegar greint frá,
leggur nefndin til að Korpúlfsstaðir
verði rifnir og síðan endurbyggðir
frá gmnni.
Áfram rukkað fyrir
bílastæði á vellinum
Yfirvöld á Keflavíkurflugvelli hafa
ákveðið að framlengja til áramóta
samning, sem kveður á um rekst-
ur og umsjón með bifreiðastæðum
við Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Þetta kemur fram í frétt frá yfir-
völdum vallarins. Samningurinn
um gjaldskyldu fyrir bflastæði átti
að renna út um næstu mánaðamót,
en byrjað var að taka gjald fyrir af-
not á langtímastæði þann 1. apríl
s.l.
Þessi stæði eru norðan og vestan
við flugstöðina og er gjald fyrir
hvem byrjaðan sólarhring 220 kr.
Á afmörkuðum ókeypis stæðum
fyrir framan aðalanddyri flugstöðv-
arinnar er óheimilt að leggja bif-
reiðum lengur en 3 klukkustundir
samfleytL
„Við hönnun hefur komið fram að
hagkvæmast sé að endurbyggja
Korpúlfsstaði í heild. Með tilliti til
þess að það er meginmarkmið að
varðveita ytri mynd Korpúlfsstaða í
borgarlandinu, Ieggur nefndin til
við borgarráð að farið verði að til-
lögum verkefnisstjóra og hönnuða
um aðferð við endurbygginguna.
Jafnframt leggur nefndin til að þar
til bærir aðilar fari vandlega yfir
bygginguna eins og hún er í dag,
með það fyrir augum að athuga
hvaða hluti sé hægt að varðveita og
sýna í endurbyggingunni," segir
orðrétt í tillögu nefndarinnar.
Gert er ráð fyrir að í fyrsta áfanga
endurbyggingar Korpúlfsstaða verði
útveggir og burðarvirki steypt og
þak smíðað. Áætlað er að þetta verk
kosti 385 milljónir og taki þrjú ár.
Ólína Þorvarðardóttir, borgarfull-
trúi Nýs vettvangs, lagði til að bor-
inn verði saman kostnaður við að
endurbyggja Korpúlfsstaði frá
gmnni eða að nýta 5-10% útveggja.
Við mat á þessum tveimur leiðum
verði tekið tillit til tveggja sjónar-
miða. Annars vegar að húsið verði
notað sem safn undir listaverk Errós
og hins vegar að það verði nýtt sem
menningar- og félagsmiðstöð íyrir
hverfið eða sem landbúnaðarsafn.
Guðrún Ögmundsdóttir, fulltrúi
Kvennalistans, og Sigrún Magnús-
dóttir, fulltrúi Framsóknarflokks,
létu bóka á fundi borgarráðs í gær
að uppbyggingu Korpúlfsstaða verði
frestað þar til hagur borgarsjóðs hafi
skánað. í bókun borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokks segir að áætlanir
um endurreisn Korpúlfsstaða hafi
ávallt miðað við að þar verði alhliða
menningar- og listamiðstöð, en að-
eins hluti af húsinu verði nýttur fyr-
ir Errósafnið. Þar segir ennfremur
að ákvarðanir um framhaldið verði
ekki teknar fyrr en kostnaðaráætl-
anir Iiggi fyrir. -EÓ
Þetta gamla góða... enn betra
Nú fáanlegt með
þykkari sinkhúð
en áður þ.e. 350 gr.
ístað 275 gr. pr/m2
Sígilt útlit - Varanleg lausn.
Iðnaðarmaðurinn þekkir efnið
Við bætum um betur.
DORGARNES
BÁRUSTÁL OG KANTSTÁL
Vírnet hf. Borgarnesi - S:93-71000 - Umboðsmenn um allt land
Brautskráning
kandídata frá HÍ
í dag:
skipta-
fræðing-
ar fjöl-
mennir
sem fyrr
HÖGUM AKSTRI EFTIR AÐSTÆÐUM
NOTUM GRÓFMUNSTRUÐ VETRARDEKK
GATNAMÁLASTJÓRI