Tíminn - 23.10.1993, Qupperneq 10
10 Tíminn
Laugardagur 23. október 1993
ítalski boltinn 8. umlerö: tj' r. .’.Tamrzrrr - '.t: tt;—«:?■- ' :rrm
Nær Juventus toppsætinu?
Það er stórleikur á San Síró leikvanginum í Mflanó á morgun þar
sem AC Milan og Juventus leika, en bæði liðin sigruðu í Evrópu-
keppninni í knattspyrnu í vikunni, reyndar eins og önnur ítölsk lið.
í þessari viku beinum við augum okkar að ítalska getraunaseðlinum
og þeim leikjum sem á honum eru. Leikur AC Milan og Juventus er
ekki á seðlinum þar sem hann fer ekki fram fyrr en annað kvöld.
AC Milan-Juventus
AC Milan lék gegn FC Kaupmanna-
höfn í Danmörku á miðvikudaginn
og vann stórsigur, 6-0. Framherj-
amir, Jean-Pierre Papin og Marco
Simone, skoruðu tvö mörk hvor og
hin mörkin skoruðu Brian Laudrup
og Alessandro Orlando. Laudrup
kom inn í liðið fyrir Dejan Savicevic
sem hefur ekki náð sér á strik á
þessu tímabili. Alessandro Orlando á
ekki öruggt sæti í liðinu þrátt fyrir
að hafa skorað á miðvikudaginn en
hann tók þá sæti Stefano Eranio á
miðjunni.
Líklegt byijunariið: Rossi, Tassotti,
Maldini, Albertini, Costacurta, Bar-
esi, Eranio, Boban, Papin, Laudrup,
Simone.
Juventus getur komist í efsta sæti
deildarinnar ef liðið nær að leggja
meistara AC Milan á morgun. Eftir
slaka byrjun á tímabilinu hefur Ju-
ventus leikið vel að undanfömu og
unnið Tórínó og Atalanta í síðustu
leikjum. Liðinu hefur þó ekki enn
tekist að sigra á útivelli, gert tvö
jafntefli og tapað einum leik. Búast
má við að Juve geti stillt upp sínu
besta liði að undanskildum Gi-
anluca Vialli sem er tábrotinn.
Líklegt byrjunariið: Peruzzi, Torr-
icelli, Fortunato, D. Baggio, Kohler,
Julio Cesar, Di Livio, Conte, Ravan-
elli, R. Baggio, Möller.
GETRAUNASEÐILUNN
Atalanta-Foggia
Atalanta tapaði fyrir Juventus um
síðustu helgi í leik sem sýndur var
beint á Stöð tvö. Eftir að hafa unnið
Cagliari 5-2 í 1. umferð hefur liðinu
gengið mjög illa og er nú í fjórða
Sævar
Hreiðarsson
skrifar
unt ítalska
boftann
neðsta sæti. Á morgun verður liðið
að leika án framherjans Maurizio
Ganz, sem er í leikbanni vegna gulra
spjalda. Foggia hefur ekki gengið
miklu betur og ekki náð að sigra í
fimm síðustu leikjum. Um síðustu
helgi fékk liðið AC Milan í heimsókn
og varð þá fyrsta liðið til að skora hjá
Milan í þessu tímabili en leikurinn
endaði með 1-1 jafntefli. Liðinu hef-
ur gengið illa að skora og í síðustu
fimm leikjum hefur það aðeins gert
tvö mörk. Sterkasti hluti liðsins er
miðjan, þar sem Luigi Di Biagio og
Giovanni Stroppa hafa leikið mjög
vel og báðir unnið sér sæti í lands-
liðshópi ítala.
Mín spá: 1
Líkleg byrjunarlið:
Atalanta: Ferron, Pavan, Tresoldi,
Bigliardi, Alemao, Montero, Magoni,
Sauzée, Rambaudi, Perrone, Or-
lando.
Foggia: Mancini, Nicoli, Caini, Di
Biagio, Di Bari, Chamot, Klyvanov,
De Vincenzo, Cappellini, Stroppa,
Roy.
Cremonese-Cagliari
Búast má við hörkuleik í Cremona
þar sem liðin hafa bæði staðið sig
ágætlega það sem af er. Liðin eru í 8.
og 9. sæti, bæði með 8 stig. Cremo-
nese lék á heimavelli um síðustu
helgi og gerði þá markalaust jafn-
tefli við hið sterka lið Parma. Liðið
hefur á að skipa skemmtilegri fram-
línu með þá Gustavo Dezotti og
Andrea Tentoni f broddi fylkingar og
má búast við að liðið reyni allt til að
fá bæði stigin á morgun. Cagliari
tapaði fyrir Napólí um síðustu helgi
en hafði gengið vel þar á undan og
unnið bæði Inter og Lazio.
Mín spá: x
Líkleg byrjunarlið:
Cremonese: Turci, Gualco, Pedroni,
Cristiani, Bassani, Verdelli, Giande-
biaggi, De Agostini, Dezotti, Ma-
spero, Tentoni.
Cagliari: Fiori, Villa, Pusceddu,
Herrera, Napoli, Firicano, Cappioli,
Bisoli, Valdes, Matteol, Allegri.
Genúa-Piacenza
Mikilvægur leikur fyrir bæði lið í
botnbaráttunni. Genúa er í stjötta
neðsta sæti með 6 stig en nýliðar Pi-
acenza í þriðja neðsta með 5 stig.
Genúa hefúr ekki náð að sigra frá í 1.
umferð og leggur því sennilega allt í
sölurnar á morgun. Piacenza tapaði
um síðustu helgi fyrir Lazio í Róm í
hörkuleik þar sem vamarmaðurinn
Settimio Lucci og þjálfarinn Luigi
Cagni fengu báðir að líta rauðá
spjaldið.
Mín spá: 1
Lfldeg byrjunarlið:
Genúa: Berti, Petrescu, Lorenzini,
Caricola, Torrente, Signorini, Ruot-
olo, Bortolazi, Ciocci, Skuhravy, Ca-
vallo.
Piacenza: Táibi, Polonia, Carann-
ante, Iacobelli, Maccoppi, Turrini,
Suppa, Papais, Ferrante, Moretti,
Piovani.
Napólí-Lecce
Napólí hefur gengið vel að undan-
fömu eftir heldur slaka byrjun á
tímabilinu. Liðið hefur unnið þrjá af
síðustu sex leikjum og má segja að
endurkoma Daniel Fonseca í liðið
hafi breytt leik liðsins mikið. Lecce
er í neðsta sæti deildarinnar með
aðeins tvö stig úr átta leikjum. Þjálf-
arinn, Nedo Sonetti, leitar nú að
nýjum leikmönnum til að styrkja
liðið og hann hefur þegar fengið
Rufo Emiliano Verga frá AC Milan
og Mohammed Gargo frá Tórínó að
láni. Markvörðurinn Giuseppe Gatta
er eini leikmaður liðsins sem hefur
þótt standa sig vel á þessu tímabili
og oft bjargað liðinu frá því að tapa
stórt.
Mín spá: 1
Lfldeg byrjunarllð:
Napólí: Taglialatela, Ferrara, Franc-
ini, Gambaro, Cannavaro, Bia, Di
Canio, Bordin, Fonseca, Buso, Pecc-
hia.
Lecce: Gatta, Biondo, Carobbi, Pa-
dalino, Verga, Ceramicola, Gazzani,
Gerson, Baldieri, Notaristefano,
Russo.
Panna - Reggiana
Parma mun leika án kólumbíska
framherjans Faustino Asprilla sem
var dæmdur í tveggja leikja bann á
miðvikudaginn fyrir að gefa leik-
manni Cremonese olnbogaskot um
síðustu helgi. Á miðvikudaginn lék
Parma í Evrópukeppni bikarhafa
gegn Maccabi Haifa í ísrael og náði
að sigra 1-0, með marki frá Tomas
Brolin tveim mínútum fyrir leiks-
lok. Á morgun leikur hann gegn
landa sínum, Johnny Ekström, sem
skoraði mark Reggiana um síðustu
helgi í 1-1 jafntefli gegn Udinese.
Parma og Reggiana skiptust á mark-
vörðum í sumar þegar Luca Bucci
gekk í raðir Parma og Claudio Táf-
farel var lánaður í staðinn til Reggi-
ana.
Mín spá: 1
Lfldeg byrjunarlið:
Parma: Bucci, Benarrivo, Di Chiara,
Minotti, Apolloni, Grun, Melli, Zor-
atto, Crippa, Zola, Brolin.
Reggiana: Taffarel, Parlato, Zanutta,
Accardi, Sgarbossa, De Agostini,
Morello, Scienza, Ekström, Picasso,
Padovano.
Róma-Lazio
Nágrannaslagur Róma og Lazio
verður sýndur í beinni útsendingu á
Stöð tvö á sunnudaginn. Búast má
við hörkuleik en flestar viðureignir
þessara liða undanfarin ár hafa end-
að með jafntefli. Róma hefur fengið
vamarmanninn Gianluca Festa að
láni frá Inter til loka tímabilsins og
var hann besti maður liðsins um
síðustu helgi þegar Róma lagði
Sampdoria í Genúa. Vöm liðsins
virtist mun ömggari í leiknum en
oft áður og má búast við að Gius-
eppe Signori og Pierluigi Casiraghi
í vikunni kom út nýtt knatt-
spymublað, BOLTINN, sem
kemur út vikulega með allar
nýjustu fréttimar úr knatt-
spymuheiminum. Upplýsinga-
og áskriftarsíminn en 985-
28606.
eigi í erfiðleikum rrteð að brjótast
fram hjá henni á morgun. Lazio
sigraði Boavista í evrópukeppninni á
miðvikudaginn, 1-0, með marki frá
Hollendingnum Aaron Winter. Liðið
leikur án vamarmannana Roberto
Cravero og Luca Luzardi sem báðir
vom reknir út af gegn Piacenza um
síðustu helgi. Luzardi fékk tveggja
leikja bann en Cravero missir aðeins
úr einn leik.
Mín spá: x
Lfldeg byijunariið:
Róma: Lorieri, Garzya, Festa, Mi-
hajlovic, Lanna, Carboni, Hassler,
Piacentini, Balbo, Giannini, Berr-
etta.
Lazio: Marchegiani, Bacci, Bergodi,
Di Mauro, Negro, Di Matteo, Fuser,
Winter, Casiraghi, Gascoigne, Sig-
nori.
Tórínó - Sampdoria
Leikur Tórínó og Sampdoria verður
sýndur í beinni útsendingu á Stöð
tvö og má búist við að hart verði
barist á Delle AIpi leikvangnum í
Tórínó. Tórínó lék á miðvikudaginn
gegn Aberdeen í Evrópukeppni bik-
arhafa og sigraði, 3-2, eftir að Aber-
deen hafði skorað tvö fyrstu mörk
David Platt hefúr leikið vel með
Sampdoría það sem af er vetrí og
gott samstarf hans við Ruud Gull-
it hefúr vakið athygli.
leiksins. Raffaele Sergio, Daniele
Fortunato og Carlos Aguilera skor-
uðu mörk liðsins. Sampdoria getur
telft fram sínu sterkasta liði á morg-
un og verður gaman að fá að sjá
samvinnu þeirra Ruud Gullit og
David Platt en þeir hafa staðið sig
mjög vel með liðinu á þessu tíma-
bili. Um síðustu helgi tapaði Samp-
doria fyrir Róma á heimavelli og
ætlar sér eflaust sigur á morgun á
útivelli.
Mín spá: 1
Lfldeg byijunarlið:
Tórínó: Galli, Mussi, Sergio,
Gregucci, Annoni, Fusi, Francesc-
oli, Fotrunato, Silenzi, Aguilera,
Venturin.
Sampdoria: Pagliuca, Mannini,
Rossi, GuIIit, Vierchowod, Sacc-
hetti, Lombardo, Jugovic, Platt,
Mancini, Evani.
Udinese-Inter
Udinese hefur ekki gengið vel í
deildinni í ár. Liðið er nú í fimmta
neðsta sæti með 6 stig. Liðið treyst-
ir mikið á framherja sinn, Marco
Branca, sem hefur skorað fjögur af
sex mörkum liðsins á tímbilinu. Int-
er lék gegn Apollon Limassol frá
Kýpur í evrópukeppninni í vikunni
og náði aðeins að sigra 1-0 á heima-
velli. Hollenski landsliðsmaðurinn,
Dennis Bergkamp, skoraði eina
mark liðsins og vonandi nær hann
sér á strik með liðinu á næstunni en
hann hefur valdið vonbrigðum.
Mín spá: 2
Lfldeg byrjunarlið:
Udinese: Caniato, Pellegrini, Mon-
talbano, Sensini, Calori, Desideri,
Statuto, Kozminski, Branca, Biagi-
oni, Camevale.
Inter: Zenga, Bergomi, Tramezzani,
Bianchi, A. Paganin, Battistini, Sha-
limov, Manicone, Sosa, Bergkamp,
Fontolan.
Acireale-Ascoli
Lið Acireale kom upp í 2. deild í
sumar og er nú rétt fyrir neðan
miðja deild með sjö stig. Um síðustu
helgi gerði liðið 1-1 jafntefli við Pisa
á útivelli. Ascoli er einnig með sjö
stig og hefur valdið vonbrigðum á
tímabilinu. Með liðinu leika tveir út-
lendingar, þeir Oliver Bierhoff frá
Þýskalandi og Pedro TVoglio frá Arg-
entínu.
Mín spá: 2
Ancona-Cesena
Ancona féll niður úr 1. deild síðasta
vor eftir aðeins eitt ár á meðal þeirra
bestu. Liðið hefur enn ekki tapað á
heimavelli á þessu tímabili en verð-
ur að leika án helsta markaskorara
síns, Massimo Agostini, á morgun
þar sem hann er í leikbanni. Cesena
sigraði Venezia 4-0 á útivelli um síð-
ustu helgi og komst upp að hlið Fi-
orentina á toppi deildarinnar með
12 stig. Framherjinn Lorenzo Scarf-
oni, var fenginn frá Pisa fyrir þetta
tímabil og hefur staðið sig mjög vel.
Hann hefur skorað 5 mörk og er nú
næst markahæstur í deildinni.
Mín spá: 2
Lucchese-Monza
Lucchese er taplaust á heimavelli
og hefur komið skemmtilega á óvart
með góðri frammistöðu í byrjun
tímabilsins. Liðið er nú með 9 stig
og gæti blandað sér í toppbaráttuna
með sigri á morgun. Monza hefur
gengið illa að undanfömu og fyrir
skömmu tapaði liðið 0-5 fyrir Bresc-
ia. Liðinu hefur enn ekki tekist að
sigra á útivelli og er nú í þriðja
neðsta sæti með 5 stig.
Mín spá: 1
Modena-Verona
Modena náði jafntefli um síðustu
helgi á útivelli gegn Padova og þótti
spila vel í leiknum. Liðið er nú rétt
fýrir neðan miðja deild með 7 stig.
Liðið treystir mikið á miðjumann
sinn Enrico Chiesa sem er lánsmað-
ur frá Sampdoria. Verona er með
einu stigi meira en Modena og um
síðustu helgi gerði Iiðið jafntefli á
heimavelli gegn Cosenza. í sumar
fékk liðið framherjann Filippo Inz-
aghi frá smáliðinu Leffe og hann er
nú markahæstur í 2. deild með sjö
mörk í átta Ieikjum.
Mín spá: x
Ravenna-Pisa
Ravenna kom upp úr 3. deild síðasta
vor en varð að sjá á eftir þjálfara sín-
um, Francesco Giudolin, til Atal-
anta. Með honum fór einnig besti
maður liðsins, Christian Scapolo.
Liðinu hefur gengið illa á þessu
tímabili og er nú í næst neðsta sæti
með 4 stig. Liðinu hefur enn ekki
tekist að vinna leik á útivelli. Pisa
hefur ekki náð að sigra í síðustu
fjórum leikjum og um síðustu helgi
gerði liðið jafntefli á heimavelli
gegn Acireale.
Jean Pierre Papin átti stórieik meö AC Milan þegar liðiö mætti FC Kaup-
mannahöfrí og genöi hann tvö af sex mörkum liösins.