Tíminn - 23.10.1993, Qupperneq 18
18 Tíminn
Laugardagur 23. október 1993
IVIeö sínu nefi
Það hefur orðið ofan á að „Nefið" haldi áfram í óbreyttu formi í nokkrar
vikur enn, þannig að kveðjustund umsjónarmanns í síðasta þætti reynd-
ist hreint ekki tímabær. Nóg um það, en í þættinum í dag verða tvö lög
að vanda, sem eiga raunar fátt sameiginlegt annað en að nafnið Sigurð-
ur tengist þeim báðum og hvort tveggja eru þetta þjóðlög.
Fyrra lagið heitir „Það hrygga fljóð“ og er írskt þjóðlag sem Sigurður
Þórarinsson gerði Ijóð við á sínum tíma. Það var hins vegar Savannatr-
íóið sem gerði lagið landsþekkt hér á árum áður og er það m.a. í endur-
útgáfu á nýjustu plötu tríósins, „Eins og þá“.
Seinna lagið er norskt þjóðlag við ljóð Jónasar Jónassonar og heitir
það Siggi var úti. Þetta lag er gaman að syngja með bömunum, en hér
birtum við öll erindi kvæðisins, enda em þau ótrúlega fá bömin sem
vita hvemig sagan af Sigga endar.
Góða söngskemmtun!
ÞAÐ HRYGGA FUÓÐ
C G C
í London, borg með lastafans,
F G
þar lifði strákur slátrarans,
C Dm
sem hjarta mínu hleypti í bál,
G C
en hvert hans orð það reyndist tál.
X 3 2 O 1 O
Ó væri ég aftur orðin mey
en aldrei svoddan skeður, nei.
Fyrr munu háfar hlaupa á land
en heimti ég aftur jómfrúrstand.
Ó, væri bam mitt borið nú
og björt ef væri framtíð sú,
sem biði þess, mig kveldi ei kíf,
þá kveddi ég ánægð þetta líf.
Upp stigann hélt það hrygga fljóð,
„Nú hvílast vil ég, móðir góð.
En ljá mér penna og lítið blað,
mig langar til að pára á það.“
Við hvert orð féll af hvarmi tár,
í hverri línu tregi sár.
„Hve fávís var ég, Villi minn,
er vélaði mig óþokkinn."
Hann braut upp hurð og hrelldur stár,
þar hékk f snæri stúlkan nár.
í vasa hennar var eitt blað,
með versi skrifuðu á það.
„í djúpri gröf skal geymt mitt hold
og grafsteinn lagður þar á moíd,
með turtildúfu svo skal sjást
og skiljast, að ég dó af ást.“
SIGGIVAR ÚTI
C F C
Siggi var úti með ærnar í haga,
G7 C G7 C
allar stukku þær suður í mó.
C F C
Smeykur um holtin var hann að vaga,
G7 C G7 C
vissi’ hann að lágfóta dældirnar smó.
C Am Dm G7
Gagg, gagg, gagg, gaggar tófan í grjóti.:,:
C F C
Gráleitum augunum trúi ég hún gjóti.
Dm G7 C Am Dm G7 C
Greyið hann Siggi, hann þorir ekki heim.
2 1 0 0 0 3
F
4 > O
< >
4 > J >
X 3 4 2 1 1
Dm
G7
3 2 0 0 0 1
Am
4 >
4 > 4 >
X 0 2 3 1 0
Aumingja Siggi var hreint engin hetja,
hélt hann að lágfóta gerði sér mein,
inn undir bakkana sig vildi’ hann setja,
svo skreið hann lafhræddur upp undir stein.
:,: Gagg, gagg, gagg, gaggar tófan í grjóti.:,:
Umdi svo víða sá ómurinn ljóti,
æmar að stukku sem hundeltar heim.
Þá tók hann Siggi til fóta sem fljótast,
laug hann sem vindur um urðir og stall.
Tófan var alein þar eftir að skjótast,
ólukku kindin, hún þaut upp á fjall.
:,: Gagg, gagg, gagg, gaggar tófan í grjóti.:,:
TVúi’ ég af augum hans tárperlur hrjóti,
titrandi’ er kom hann á kvíamar heim.
Fiskvegur í Fnjóská I Suður-Þingeyjarsýslu.
Laxinn er lang-
hlaupari sem vill
heim!
Veiðimenn vita að laxinn er Iang-
hlaupari. íslenskur lax fer á ætis-
svæðin við Grænland og á hafsvæð-
ið langt norður og austur frá land-
inu, í námunda við Noreg, á Fær-
eyjasvæðið og víðar um norðurhöf.
Lax frá Noregi fer til Grænlands,
eins og sá íslenski. Hið sama gildir
um laxinn úr ánum í Norður-Amer-
íku, sem falla í Atlantshafið.
Þá hefur lax, merktur við Færeyjar,
veiðst á Spáni, en þar hafa fundist
elstu minjar um Iaxinn, teikningar í
hellum.
Stærstur hluti laxins, sem gengur í
ámar, á ekki afturkvæmt til sjávar og
deyr og ný kynslóð tekur við hlutverk-
inu, að viðhalda stofninum. Ævi laxins
er tiltölulega stutt, fjögur til sjö ár,
eftir stofnum og umhverfisþættir hafa
áhrif á vöxt og viðgang laxins.
Vaxandi úthafsveiðar
á laxi
Það þótti mjög alvarlegt á sínum
tíma í heimalöndum laxins þegar
veiðar Færeyinga vom í fullum
gangi með um 800 lestir á línu og
Grænlendingar veiddu hátt á annað
þúsund lestir af laxi í reknet. Víst
hafa margir talið að úthafsveiðar á
laxi yrðu stundaðar um aldur og
ævi, því að þetta væri einn þáttur í
lífsbjörg Færeyinga og Grænlend-
inga. Þessar veiðar áttu sér þó ekki
langa sögu, við Færeyjar frá 1965. Á
Grænlandi höfðu aftur á móti lengi
verið stundaðar veiðar á laxi í sjó, að
vísu í óverulegum mæli. Þær höfðu
aukist gríðarlega á sjöunda og átt-
unda áratugnum, sem fyrr greinir.
En breytt viðhorf komu til sögunn-
ar á seinasta áratug í sambandi við
hafrétt og viðhorf til verndunar fisk-
stofna. Við skulum ekki gleyma því
að hér á landi hefur um langt skeið
nánast verið um ræktunarbúskap á
laxi að ræða, svo margþætt hefur
stjómun og fiskræktaraðgerðir ver-
ið á þessari auðlind. Farið var að
huga að þessum veiðum í sjó á laxi,
með þrýstingi alþjóðlegra samtaka,
eins og Efnahagsbandalagsins á sín-
um tíma og NASCO, Norður-Atl-
antshafslaxverndunarstofnunar-
innar, síðar. NASCO var sett á lagg-
irnar hér á landi árið 1982 og þá
tókst að koma kvóta á veiðamar og
draga veiðimagnið niður, við Græn-
land í 800 lestir og við Færeyjar í
300 lestir. Síðar miðaði enn betur
við Grænland, að draga úr veiði þar.
I vatnakerfi Tayárinnar I Skotlandi er þessi fiskvegur.
Myndir EH
strendur Bretlands og írlands.
Norðmenn bönnuðu á sínum tíma
allar reknetaveiðar í sjó á laxi hjá
sér. Ýmsir hér á landi óttast að í okk-
ar heimagarði sé töluvert um „arfa“,
sem þuríi að slíta upp. Ólöglegar
sjávarveiðar á laxi við strönd lands-
ins ættu að hverfa með öllu, annað
sæmi ekki forustuþjóð á sviði lax-
vemdunar. Veiðiþjófhaður er ekkert
annað en „sauðaþjófnaður" og hver
vill vera í þeim hópi?
Víðfrægur
„sendiherra“
Orri Vigfússon lætur ekki deigan
síga frekar en fyrri daginn. Hann
hefur rætt við ráðherra veiðimála á
írlandi um þessi málefni og var fyrir
nokkru kallaður til Skotlands til
þess að ræða þessi mál þar, bæði í
hópi stangaveiðimanna og sjávar-
veiðimanna, og vinnur að sam-
komulagi um breytingu til batnaðar
í þessu efni, þ.e. að reknetin hverfi
úr sjó.
Verkefni, vinnulag og árangur Orra
Vigfússonar hefúr sett hann á bekk
með þekktustu mönnum í útlönd-
um á sviði laxverndunarmála í
heiminum í dag. Víða í fjölmiðlum
erlendis hefur verið vitnað í störf
Orra og þann árangur sem náðst
hefur. Það hefur tvímælalaust orðið
íslandi til hagsbóta. Fróðlegt verður
að fylgjast með framhaldinu. Hvem-
ig þróast t.d. mál á Bretlandseyjum
og írlandi á næstunni og hvort tekst
að þurrka upp með öllu laxveiðar á
Gráa svæðinu milli íslands og Nor-
egs? En þar hafa danskir bátar undir
„sjóræningjaflaggi" haldið sig.
Einar Hannesson
Einn mikilvægasti
áfanginn
En sýnt var að þetta dugði ekki. Þá
hófst lokaþátturinn, kvótakaupin
með samningum við Færeyinga. Og
í sumar tókst Norður-Atlantshafs-
laxsjóðnum, sem er alþjóðleg stofn-
un með þátttöku aðila frá nær öllum
laxveiðiþjóðum við Atlantshaf, und-
ir forustu Orra Vigfússonar, að ná
samkomulagi um uppkaup á lax-
veiðikvóta Grænlendinga við þar-
Ienda aðila. En uppruni laxins við
Grænland er að stómm hluta í
Norður-Ameríku. Gildir samningur
þessi fyrst til tveggja ára, 1993-94,
og síðan verður samið 1995 um
1995-97. Grænlendingar eiga þó að
mega veiða um 12 lestir af laxi ár-
lega til neyslu þar í landi.
Langhlauparinn
kemst heim
Árangur sá, sem náðst hefúr til að
minnka stórlega veiðiskap á laxi í
hafinu, er ákaflega mikilvægur fyrir
heimalönd laxins. Laxinn fær núna
betra tækifæri en nokkru sinni fyrr
til að komast heim í heiðardalinn.
Þar með eykst laxgengdin í ámar.
Það er vissulega fagnaðarefni fyrir
veiðiréttareigendur og stangaveiði-
menn að horfa til þessarar þróunar,
sem hér hefur verið gerð að umtals-
efni. Hinu er þó ekki að leyna, að
enn er stunduð veruleg veiði á laxi í
sjó í reknet og önnur veiðitæki við