Tíminn - 23.10.1993, Síða 22
22 Tíminn
Laugardagur 23. október 1993
WBM DAGBÓK
Frá vinstri: Einar Sigutjónsson fró SVFÍ, Reynir Karisson frá menntamálaráöu-
neytinu og Jóhann B. Guömundsson ogAmi Sigurjónsson frá Kiwaniskl. Vífii.
Starfsfólk sundlauga fær gjöf frá Kiwanis
Nýlega gaf Kiwanisklúbburinn Vffil), Breiðholti, öllum sundlaugum landsins vegg-
spjald með leiðbeiningum um blástursmeðferð og hjartahnoð. Gjöf þessi er liður í
átaki um öryggi á sundstöðum. Gerð veggspjaldsins var unnin í samvinnu við Slysa-
vamafélag íslands og Rauða kross fslands. Reynir Karlsson, deildarstjóri hjá mennta-
máiaráðuneytinu, tók við gjöfinni og mun menntamálaráðuneytið sjá um dreifingu
veggspjaidsins.
Félag eldri borgara
í Reykjavík og nágrenni
Sunnudag í Risinu: Bridskeppni kl. 13 f
A-sal og félagsvist kl. 14 í V- sal. Dansað í
Goðheimum kl. 20 sunnudagskvöld.
Mánudag: Opið hús í Risinu. Brids og
frjáls spilamennska. Tafl og kaffi.
Flóamarkaöur
F.E.F., Félag einstæðra foreldra, er með
flóamarkað í Skeljanesi 6 í Skerjarfirði í
dag kl. 14-17. Úrval af góðum bamafatn-
aði á spottprís, líka fatnaði á stóra fólkið,
búsáhöld, bækur o.fl.
Sameining sveitarfélaga:
Kynningarfundir á Suðurlandi
Umdæmisnefhd Samtaka sunnlenskra
sveitarfélaga hefur ákveðið að efna til al-
mennra kynningarfunda um tillögur til
sameiningar sveitaríélaga með eftirfar-
andi hætti:
Árborgarsvæði: Hótel Selfoss, mánu-
daginn 1. nóvember kl. 20.30. Uppsveitir
Árnessýslu: Flúðir, þriðjudaginn 2. nóv-
ember kl. 20.30. Eystri hluti Rangár-
vallasýslu: Hvoli, miðvikudaginn 3. nóv-
ember kl. 20.30. Vestari hluti Rangár-
vallasýslu: Hellubfói, fimmtudaginn 4.
nóvember kl. 20.30.
Listasafn íslands
Grafíkverkstæði hefur verið sett upp í
kjallara safnsins í tengslum við grafík-
sýningu Braga Ásgeirssonar.
Sunnudaginn 24. október kl. 15-17
mun Magdalena Margrét Kjartansdóttir
grafíklistamaður kynna dúkristu.
Aðgangur er ókeypis.
Það em félagar í íslenskri grafík, sem
standa fyrir þessari sýnikennslu f safninu
á hverjum sunnudegi þar til sýningu
Braga Ásgeirssonar lýkur 31. október nk.
Almanakshappdrætti
Þroskahjálpar
Hið árvissa Iistaverka- og happdrættisal-
manak Landssamtakanna Þroskahjálpar
fyrir árið 1994 er komið út Að venju er
almanakið prýtt myndum af grafíklista-
verkum þrettán íslenskra listamanna.
Samstarf Þroskahjálpar við íslenskt
myndlistarfólk hefur frá upphafi verið
heilladrjúgt, þar sem almanakið er
helsta tekjulind Þroskahjálpar og hefur
auk þess borið hróður listafólksins víða.
Almanakið hefur unnið sér fastan sess,
enda vandað og eigulegt. Jafnframt gild-
ir hvert almanak sem tólf happdrættis-
miðar og eru vinningamir þrjátíu og
tveir. Fyrst ber að nefna glæsileg grafík-
verk efúr Erró, sem dregin eru út í hverj-
um mánuði, auk þess sem eitt til tvö
önnur grafíklistaverk eru dregin út mán-
aðarlega.
Almanakið kostar kr. 1000 og er aðeins
gefið út í 18.000 eintökum og eru vinn-
ingslíkur því miklar.
Almanakið er til sölu á skrifstofu
Þroskahjálpar að Suðurlandsbraut 22 í
Reykjavík, í bókaverslunum á höfuð-
borgarsvæðinu og hjá sölufólki á flestum
stöðum á landinu. Sölufólk Þroskahjálp-
ar mun bjóða almanakið til sölu í heima-
húsum á næstu vikum og treysta sam-
tökin á stuðning almennings nú sem
endranær.
Ýmislegt um aö
vera í Kringlunni
Eins og viðskiptavinir í Kringlunni hafa
orðið varir við síðustu laugardaga, hefur
Kringlan boðið upp á skemmtilega til-
breytingu á laugardögum, en þá hafa
komið f Kringluna gítarleikarar í
fremstu röð klassískrar gítartónlistar. í
dag verður framhald á þessari tónveislu
og mun gítarleikarinn Einar Kristján
Einarsson flytja verk frá Spáni og Suður-
Ameríku. Tónleikamir eru í tveimur
hlutum og hefst íyrri hlutinn kl. 13 og sá
síðari kl. 14 og eru þeir í göngugötu
Kringlunnar.
Á milli kl. 17 og 19 í dag verður haldin
októberhátíð fyrir ungt fólk í Kringl-
unni. Af uppákomum má nefnæ Nýja
sportlínan frá Hugo Boss og Armani
Jeans verður kynnt fyrir utan verslun
Sævars Karls kl. 17; Pizza 67 kynnir nýtt
bragð; Ölgerðin býður upp á drykki; eld-
heit sýning frá Stúdfó Ágústu og Hrafns;
ísbúðin Kringlunni kynnir heimalagað-
an ítalskan fs; flinkasti pizzubakari ís-
lands sýnir listir sfnar; happdrætti: fata-
úttekt að verðmæti kr. 35.000 frá Sævari
Karli; með hverri peysu, sem keypt er,
fylgir frí máltíð frá Pizza 67.
Verslanir Kringlunnar eru opnar frá 10-
18.30 alla virka daga, nema föstudaga,
þegar opið er til kl. 19. Laugardaga er op-
ið frá kl. 10-16.
Tónleikar í FÍH-salnum
Þriðjudaginn 26. október kl. 20.30 held-
ur Blásarakvintett Reykjavíkur tónleika í
tónleikaröð FÍH í sal félagsins við Rauða-
gerði. Gestur kvintettsins er bandaríski
píanóleikarinn Beth Levin. Efnisskrá
tónleikanna verðun
Jacques Ibert: Trois piéces breves lyrir
blásarakvintett.
Frédéric Chopin: Noctume í cis-moll
og Valse í e-moll fyrir píanó.
Finnur Torfi Stefánsson: Chaconne fyr-
ir blásarakvintetL Fmmflutningur á fs-
landi.
Francis Poulenc: Sextett fyrir pfanó og
blásarakvintett
Annar geisladiskur Blásarakvintetts
Reykjavíkur á vegum Chandos-útgáfu-
fyrirtækisins er væntanlegur á næst-
unni, en hann hefur að geyma vinsæl
frönsk verk fyrir blásarakvintett, m.a.
smálögin þrjú eftir Ibert, sem flutt verða
á tónleikunum í FÍH-salnum þann 26.
október.
-HM
ÞAÐ (j£TMR ZERtÐ, EHÉq
VfflAVZEFSAmRÞESSA
AÐfjERÐ 0<} ZERNDA FÓLKMfTT
K U B B U R
6568.
Lárétt
I) Höfuðborg. 6) Viðræðu. 10) Tími.
II) Þröng. 12) Orka. 15) Batna.
Lóðrétt
2) Veik. 3) Frysta. 4) Ekki særða. 5)
Fölna. 7) Mann. 8) Auð. 9) Lagaregl-
ur. 13) Hest. 14) Elska.
Ráöning á gátu no. 6567
Lárétt
1) Deila. 6) Leistar. 10) Ær. 11) Rá.
12) Snúðugt. 15) Barði.
Lóðrétt
2) Efi. 3) Lít. 4) Glæst. 5) Gráta. 7)
Em. 8) Séð. 9) Arg. 13) Úða. 14) Urð.
HELSTU BÓTAFLOKKAR:
1. október 1993. Mánaðargreiöslur
Elli/örorkulífeyrir (gmrwlífeyrir).......... 12.329
1/2 hjónalífeyrir............................11.096
Full tekjutrygging ellilífeyrisþega..........22.684
Full tekjutrygging örorkulífeyrisþega........23.320
Heimil'isuppbót..............................7.711
Sérstök heimilisuppbót........................5.304
Bamalífeyrir v/1 bams........................10.300
Meölagv/1 bams ............................ 10.300
Mæöralaun/feöralaun v/1 bams.................1.000
Mæöralaun/feöralaun v/2ja bama................5.000
Meeöralaun/feöralaun v/3ja bama eöa fleiri..10.800
Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaöa..............15.448
Ekkjubætur/ekkilsbætur 12mánaöa..............11.583
Fullur ekkjulifeyrir.........................12.329
Dánarbætur 18 ár (v/slysa)...................15.448
Fæöingarstyrkur..............................25.090
Vasapeningar vistmanna ......................10.170
Vasapeningar v/sjúkratrygginga...............10.170
Daggreiöslur
Fullir fæöingardagpeningar.................1.052.00
Sjúkradagpeningar einstaklings ..............526.20
Sjúkradagpeningar fyrir hvert bam á framfæri ...142.80
Slysadagpeningar einstaklings................665.70
Slysadagpeningar fyrir hvert bam á framfæri ....142.80
Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla apóteka í
Reykjavík frá 22. til 28. október er í Breiöholts
apóteki og Apóteki Austurbæjar. Þaö apótek sem
fyrr er nefnt annast eitt vörsluna frá kl. 22.00 aö
kvöldi til kl. 9.00 aö morgni virka daga en kl.
22.00 á sunnudögum. Upplýsingar um læknis- og
lyflaþjónustu em gefnar í síma 18888.
Neyöarvakt Tannlæknafélags íslands
er starfrækt um helgar og á stórtíátiöum. Simsvari 681041.
Hafnarfjöröun Hafnarfjaröar apótek og Noröurbæjar apó-
tek em opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skiptis
annan hvem laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag Id.
10.00-1200. Uppiýsingar I símsvara nr. 51600.
Akureyri: Akureyrar apótek og Stjömu apótek em opin
virka daga á opnunartíma búöa. Apótekin skiptast á sina
vikuna hvort aö sinna kvöid-, nætur- og helgidagavörsiu. Á
kvöldin er opiö i þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, til W.
19.00. Á helgidögum er opiö frá Id. 11.00-1200 og 20.00-
21.00. Á öömm timum er lyfjafræöingur á bakvakL Upplýs-
ingar em gefnar i sima 22445.
Apótek Kefiavikur: Opiö virka daga frá kl. 9.00-19.00.
Laugard., heigidaga og almenna frídaga kl. 10.00-1200.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl. 8.00-
18.00. Lokaö I hádeginu mili Id. 12.30-14.00.
Selfoss: Setfoss apótek er opiö til Id. 18.30. Opiö er á laug-
ardögum og sunnudögum Id. 10.00-1200.
Akranes: Apótek bæjaríns er opið virka daga til kl. 18.30. Á
laugard. Id. 10.00-13.00 og sunnud. Id. 13.0014.00.
Garöabær Apótekiö er opiö rúmhelga daga kl. 9.0018.30,
en laugardaga U. 11.00-14.00.
2Z okt 1993 kl. 10.56
Oplnb. vlöm.gengl Gengl
Kaup Sala skr.fundar
Bandarfkjadollar... ....70,76 70,94 70,85
Sterllngspund ..104,82 105,10 104,96
Kanadadollar ....53,96 54,12 54,04
Dönsk króna ..10,516 10,546 10,531
Norsk króna ....9,721 9,749 9,735
Sænsk króna ....8,790 8,814 8,802
Finnskt mark ..12,244 12,278 12,261
Franskur franki ..12,121 12,155 12,138
Belglskur franki.... ..1,9554 1,9610 1,9582
Svissneskur frankl ....48,08 48,22 48,15
Hollenskt gyllini.... ....37,71 37,81 37,76
Þýskt mark ....42,38 42,48 42,43
ftölsk líra 0,04382 0,04395 0,04388
Austurnskur sch... ....6,025 6,043 6,034
Portúg. escudo ..0,4114 0,4128 0,4121
Spðnskur pesetl.... ..0,5297 0,5313 0,5305
Japanskt yen ..0,6538 0,6556 0,6547
....99,60 99,90 99,75
Sérst drðttarr. ....98^66 96,9A 98^80
ECU-Evrópumynt.. ....80,92 81,14 81,03
Grlsk drakma ..0,2925 0,2933 0,2929