Tíminn - 12.11.1993, Blaðsíða 6

Tíminn - 12.11.1993, Blaðsíða 6
6 Varnir Islands Þáttaskil framundan a& mati Samtaka herstöðvar- andstæðinga „Stjómvöldum væri sæmara að snúa sér í alvöru að endur- reisn atvinnulífs, sem herstöð- in gróf undan, í stað þess að fara í fleiri betliferðir vestur um haf,' segir í ályjctun miðnefnd- ar Samtaka herstöðvarand- stæðinga. En um ,aðra helgi, 20. nóvember, verður haldin landsráðstefna samtakanna. í ályktun miðnefndar kemur m.a. frafn að þáttaskil séu framundan í íslenskri stjóm- málasögu. Það sem áður klauf þjóðina í tvær andstæðar fylkingar vegna veru Banda- ríkjahers, muni brátt tilheyra sögunni. Flest bendir til að Evrópubandalagið muni taka við hlutverki Bandaríkjahers í Evrópu og utanríkisstefna Bandaríkjanna beinist í aukn- um mæli að Asíu. Miðnefndin telur einnig að hluti þess vanda sem við sé að etja vegna minnkandi umsvifa hersins á Miðnesheiði, stafi af hemámi hugarfarsins. Um of hafi verið treyst á kjötkada hersins og á meðan hafi ekkert verið gert í uppbyggingu at- vinnuh'fs á Suðumesjum. Að mati miðnefndar hlýtur að skipta sköpum fyrir efna- hag þjóðarinnar að losna við herinn sem þegar hefur vald- ið víðtækum umhverfisspjöll- um á landinu. Um aðra helgi verður haldin landsráðstefna Samtaka her- stöð varandstæðinga. Á ráð- stefnunni munu herstöðvar- andstasðingar m.a. þurfa að meta hvers virði það væri ef veruleg fækkun yrði í mannafla Bandaríkjahers og hvemig bar- áttunni fyrir afnámi herstöðva og úrsögn úr NATO verði hátt- að á breyttum tímum. -GRH Húmanistahreyfingin Heila heil- brigðisþjónustu Húmanistahreyfingin hefur hafið herferð gegn niður- skurði og gjaldtöku í heil- brigðisþjónustunni. Hreyfing- in tekur undir ályktun Félags íslenskra heimilislækna þar sem gagnrýnd er stefna stjóm- valda í heilbrigðismálum. Markmið herferðarinnar er að felld verði niður, skref fyr- ir skref, öll gjaldtaka í heil- brigðisþjónustunni. Gjaldtak- an veldur því að fólk með bágan fjárhag fer á mis við nauðsynlega heilbrigðisþjón- ustu eða dregur að leita lækn- inga, segir í tilkynningu frá hreyfingunni. Næsta skref herferðarinnar er fundur sem haldinn verður sunnudaginn 14. nóvember klukkan 14 í Lækjarbrekku. LANDNÝTINGAR- NÁMSKEIÐ FYRIR RÁÐUNAUTA Á HVANNEYRI Vaxandi áhersla hefur undan- farið verið lögð á skipulag, land- nýtingu og landgræðslu og hef- ur Bændaskólinn á Hvanneyri veitt fræðslu í þessum efnum. Skólinn mun halda námskeið í landnýtingu vikuna 15.-19. nóv. nk. sem sérstaklega er ætlað ráðunautum. Markmið- ið er að þeir fái sýn yfir mögu- leika í landnýtingu og fái þjálf- un við að skipuleggja nýtingu lands í dreifbýli. InnlenlO Fö§túidágurrI2í.1ftóVémber 1993 Hugsanlegt er að nó fram verulegri hagræðingu með því að sameina ýmsa starfs- eða fagkennslu á háskólastigi, sem nú fer fram í Háskóla Islands og 12 öðrum skólum, í einn skóla - Háskóla Reykjavikur. Æðri menntun í villum Heildstæð stefna í æðri menntun þjóðarinnar ekki til. Er „Háskóli Reykjavíkur" lausnin? „í Háskóla Reykjavíkur yrðu sameinaðir flestir skólar á háskólastigi, aðrir en Háskóli íslands. í honum yrðu strax í upphafi 2500-3000 nem- endur á meira en 20 námsbrautum,' segir Ólafur J. Proppé, aðstoðar- rektor Kennaraháskóla fslands en hann hefur sett fram hugmynd um rekstur tveggja stórra háskóla. Á íslandi starfa núna þrettán skólar á háskólastigi. Háskóli ís- lands hefur mikla sérstöðu meðal þessara skóla vegna stærðar sinn- ar og ekki síst fjárhagslega. Staða margra af minni skólunum er erf- ið og jafnvel óljóst hvort þeir til- heyri háskólastiginu eða fram- haldsskólastiginu. Þessir skólar eru stundum kallaðir „sérskólar' en það skólastig er þó ekki til í landinu samkvæmt lögum. Að mati Ólafs Proppé er þetta ástand algerlega vonlaust og get- ur einungis versnað, verði því viðhaldið. Hann hefur þvi sett fram hugmyndir um Háskóla Reykjavíkur. í honum yrðu sem flestir skólar á háskólastigi, aðrir en Háskóli íslands, sameinaðir. „Nýi háskólinn yrði nægilega stór til að veita H.í. heilbrigða sam- keppni. Um leið yrðu skapaðar aðstæður til að marka heildar- stefnu um æðri menntun í land- inu. Öll störf menntamálaráðu- neytisins sem snerta háskólastig- ið yrðu einfölduð og ná mætti fram verulegri hagræðingu,' seg- ir Ólafur Proppé. Skólamir sem Ólafur leggur til að sameinuðust í H.R. eru: Búvís- indadeildin á Hvanneyri, Fóstur- skóli íslands, íþróttakennaraskóli íslands, Kennaraháskóli íslands, Leiklistarskóli íslands, Myndlist- ar- og handíðaskóli íslands, Sam- vinnuháskólinn að Bifröst, Tón- listarskólinn í Reykjavík, Tækni- skóli íslands, Tölvuháskóli Versl- unarskólans og Þroskaþjálfaskóli íslands. „Háskóli Reykjavíkur myndi Ieggja áherslu á svið sem H.í. sinnir lítið eða ekki. Þar gæti t.d. verið Listasvið, Tæknisvið, Kenn- arasvið og Verslunarsvið. Mikil- vægast er að skólamir standi fyrir ólíkum þáttum og höfði saman til breiðari hóps nemenda en hver þeirra fyrir sig,' segir Ólafur J. Proppé. -GK Hafréttarsáttmálann í gildi Davíð Oddsson forsætisráðherra á þingi Norðurlandaráðs Umhverfis- og öryggismál voru ofarlega í huga Davíðs Oddssonar for- sætisráðherra í ávarpi hans á aukaþingi Norðurlandaráðs fyrr í vik- unni. í ræðu sinni kvað forsætisráðherra ísl. stjómvöld binda miklar vonir við að framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna tækist að stuðla að gildistöku Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna þannig að alþjóð- leg skipan kæmist á þennan mikilvæga málaflokk. Þá væri ekki síður mikilvægt að árangur næðist á ráðstefnu Sam- einuðu þjóðanna um úthafsveið- ar svo að skynsamleg nýting fengist á fiskistofnum sem væm hvort tveggja innan fiskveiðilög- sögu og í úthöfum. Lýsti hann ís- lensk stjómvöld reiðubúin til Stórsigur Hannesor Hlífars Hannes HJífar Stefánsson vann yf- irburðasigur á 42. helgarskákmóti tímaritsins Skák á Egilsstöðum um síðustu helgi. Hannes fékk tíu vinninga af ellefu mögulegum en Jóhann Hjartarson, sem var í öðm sæti á mótinu, fékk átta og hálfan vinning. Fjórir stórmeistarar tóku þátt í mótinu ásamt mörgum af snjöllustu skákmeisturum yngri og eldri kynslóðanna. Frammistaða Guðmundar Gíslasonar vakti sér- staka athygli en hann lenti í 3.-4. sæti ásamt Andra Áss Grétarssyni. í 5.-6. sæti lentu þeir Helgi Ólafs- son og Áskell Öm Kárason. Efstu menn í unglingaflokki vom þeir Hlíðar Þór, Bjöm Þor- finnsson og Páll Þórarinsson sem lentu í 1.- 3. sæti. samvinnu við stjómvöld allra áhugasamra ríkja þannig að á næsta fundi ráðstefnunnar mætti nást ásættanlegur árangur bæði fyrir strandríki og og þau sem stunduðu úthafsveiðar. Þá vakti forsætisráðherra aihvgli á þeirri óvissu sem skapast hefði um öryggismál í kjölfar kalda stríðsins. Það hefði leitt af sér, a.m.k. í Evrópu, að stjómvöld leituðust nú í auknum mæli við að tryggja öryggi og stöðugleika. í framhaldi af því varaði ráð- herrann við að við ríkjandi að- stæður gætu vandamálin í mörg- um tilvikum orðið svo umfangs- mikil og Dókin að einstök ríki eða þjóðemisminnihlutar leituðu eig- in úrræða á kostnað stöðugleika í Evrópu allri eins og hann komst að orði. í því sambandi benti hann á mis- jafnt gengi fyrmm kommúnista- ríkja Mið- og Austurevrópu við að koma á lýðræðislegum stjóm- arháttum og markaðshagkerfi, gífurlega etnahagsörðuleika þeirra, umdeUd landamæri og stórfellda mengun og dreifingu gereyðingarvopna. Allt þetta stuðlaði að því að viðhalda ör- yggisleysi í Mið- og Austurevr- ópu. Hann taldi að öryggi yrði fyrst og fremst tryggt með nánum tengsl- um við Vesturevrópu og Norður- ameríku. B -hlutafjárútboð Kaupfélags Árnesinga Kaupfélag Ámesinga hefur sent út bréf til félagsmanna sinna og Oeiri aðila, þar sem boðin em tU kaups B-deUdarhlutabréf í félaginu. B- hlutafjárútboð í félaginu stendur nú yfir en til sölu eru bréf fyrir sam- tals 50 milljónir króna á nafnverði. Gengi bréfanna er 1,3. Útboðinu á að Ijúka um næstu áramót. Hannes Hlifar SteFánsson „Sú tUraun sem hér er gerð er merkUeg og reynir á traust og vel- vUja fólks tU þess félags sem flest- um öðmm er Iíklegra tU þess að treysta búsetu og treysta lífskjör í sunnlenskum byggðum,' segir í bréfi sem Sigurður Kristjánsson kaupfélagsstjóri sendir til væntan- legra kaupenda hlutabréfa. TUgangurinn með þessu útboði er að styrkja stöðu félagsins, en 53,4 miUjóna kr. tap varð á rekstri þess á síðasta ári. Saman- lagðar eignir félagsins em 1,7 miUjarðar, skuldir 1,3 mUljarðar og eigið fé 436 milljónir króna. Stefnt verður að því að gera B- deUdina öfiuga fyrir rekstur fé- lagsins svo og að hlutabréfin verði eftirsóknarverður fjárfest- ingarkostur. Arður skal greiddur svo fljótt sem verða má og í bréfi kaupfélagsstjóra segir ennfremur að síðar verði sótt um skráningu hlutabréfanna hjá Verðbréfaþingi íslands. -SBS, Selfossi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.