Tíminn - 12.11.1993, Blaðsíða 22
22
\>f‘ i •I3finriv.-'in £J -
Föstudagur 12. nóvember 1993
VIÐ MINNUM Á AÐ
FJÖLDAMARGIR FORELDRAR
LOKA AUGUNUM FYRIR ÞVl
AÐ BÖRNIN LÍÐA FYRIR
ÁFENGISNEYSLU ÞEIRRA.
AfengisvarnarAð
■ FÉLAGASAMTÖKIN VERND
■ HEILBRIGÐIS- OG
■ tryggingamAlarAðuneytið
• HVlTABANDlÐ
■ ISLENSKA BINDINDISFÉLAGIÐ
■ ISLENSKIR UNGTEMPLARAR
• LANDSSAMBANDIÐ GEGN
Afengisböunu
LIONSKLÚBBURINN LIUUR
■ PRESTAFÉLAG Islands
• RAUÐA KROSS HÚSIÐ
■ SAMTÖK SKÖLAMANNA
UM BINDINDISFRÆÐSLU
■ STÓRSTÚKA ISLANDS I.O.G.T.
■ TEMPLARAHÖLLIN
- umferðarrAð
• VlMULAUS ÆSKA
- FORELDRASAMTÖK
• ÞÖRSBAKARl
• ÞJÓÐKIRKJAN
■ KIWANISKLÚBBURINN HARPA
■ KVENNAATHVARFIÐ
• FÉLAG ELDRI BORGARA
SÆLUVÍMA HJÁ ÞÉR
GETUR ÞÝTT SVARTNÆTTI
HJÁ BARNINU ÞÍNU
ER VIMAN ÞESS VIRÐI ?
atak
TILÆYRGÐAR
RITSTJÓRN 91-618303
AUGLÝSINGAR 91-618321
Ónýtar
siðareglur
Pétur Pétursson, heilsugæslu-
læknir á Akureyri, segir að í nýj-
um leiðbeiningum Læknafélags
íslands um ýmis hagsmuna-
tengsl læknastéttarinnar, sé allt
heimilt og ekkert takmarkað.
Hann telur þessar siðareglur það
máttlitlar að þær séu í raun
óþarfar.
í grein Péturs Péturssonar, í
nýjasta tölublaði Læknablaðsins,
kemur fram að Læknafélag ís-
lands hafi haustið 1990 skipað
nefnd til þess að vinna að gerð
leiðbeininga fyrir lækna til þess
að fara eftir í samskiptum sínum
við lyfjafyrirtæki. f þessari nefnd
sátu, ásamt Pétri, Sigmundur
Sigfússon og Magnús Ólafsson,
sem var formaður nefndarinnar.
Nefndin útbjó drög að siðaregl-
um, sem síðan voru birtar í maí-
hefti Fréttabréfs lækna 1991.
Stjóm Læknafélags íslands tók
ekki tillögur nefndarinnar fyrir
einar og sér heldur skipaði á að-
alfundi nýja nefnd „viturra
manna og góðgjamra'", eins og
Pétur kemst að orði í grein sixmi
og fékk hún útvíkkað hlutverk
fyrri nefndarinnar. Seinni
nefndin starfaði undir forsæti
Sigmundar Sigfússonar og átti til
viðbótar að fjalla um ýmis önn-
ur hagsmunaleg tengsl lækna-
stéttarinnar en hin fyrri. Nefnd-
in starfaði í eitt ár og afrakstur-
inn er tillögur sem stjórn
Læknafélags íslands samþykkti
síðastliðið sumar.
í greininni í nýútkomnu nóv-
emberhefti Læknablaðsins, ber
Pétur Pétursson tilögur nefnd-
anna tveggja saman. Þar segir
hann: „...ársvinna seinni nefnd-
arinnar hefur aðallega verið
fólgin í því að fella niður setn-
ingar úr tillögum fyrri nefndar-
innar, sem að öðru leyti hafa
verið teknar upp orðréttar.'
Engu hafi verið bætt við, nema
að nú taki leiðbeiningarnar
einnig til samskipta við fram-
leiðendur og seljendur lækn-
ingatækja.
Meðal atriða sem nefndin felldi
niður úr fyrri tillögum að siðar-
reglum, var að gera þyrfti þá
kröfu til aðila sem kynntu lyf
fyrir læknum, að þeir kynntu
efnin á hlutlægan hátt og kynnu
á þeim góð skil. Þá er fellt út, að
læknum sé ekki heimilt að
þiggja matarveislur og vínveit-
ingar á fræðslu- og kynningar-
fundum. í kafla um stuðning við
endurmenntun og viðhalds-
menntun lækna er m.a. strikað
út, að ekki sé við hæfi að læknar
þiggi fjárstuðning til skemmtim-
ar eða nauðsynjalausrar risnu.
Sömuleiðis, að risna og greiðslur
til ferðafélaga lækna teljist ekki
efla starfsheiður læknastéttar-
innar. Fleiri atriði eru tínd til, en
Pétur endar grein sína á þeim
orðum, að honum sé, „...alger-
lega óskiljanlegt, hvaða þörf var
á því að setja leiðbeiningar, þar
sem allt er heimilt en ekkert
takmarkað." -ÁG