Tíminn - 12.11.1993, Page 8
8
Föstudagur 12. nóvember 1993
Hugmyndin um
veiðileyfagjald
Tilræði við hagsmuni fólksins úti á landi
„Það er augljóst að ef veiði-
leyfagjald á yfir okkur að ganga,
þá mun það þrengja kosti þess
fólks sem býr úti á landi,' segir
Kristján Ragnarsson, formaður
LÍÚ. Hann segist ekkert gefa fyr-
ir röksemdir Sighvats Bjamason-
ar, framkvaemdastjóra Vinnslu-
stöðvarinnar í Vestmannaeyjum,
og Guðjóns A. Kristjánssonar,
forseta Farmanna- og fiski-
mannasambandsins um veiði-
leyfagjald, þar sem málflutning-
ur þeirra standi í beinu sam-
hengi við persónulega hagsmuni
þeirra. Hann segist líka ekkert
gefa fyrir röksemdir og uppblást-
ur Morgunblaðsins þess efnis að
straumhvörf hafi orðið í um-
ræðu um veiðileyfagjaldið í kjöl-
fpr orða þessara tveggja manna.
Kristján segir að Sighvatur tali
um veiðileyfagjald í skötulíki
Próunarsjóðs og ætli ser að
þiggja meira en hann gefur því
hann sé með mikið af ónotuðum
húsum eftir sameiningu fyrir-
tækja í Eyjum. Það sé hinsvegar
óréttlátt að láta aðra útvegs-
menn í Eyjum greiða fyrir það
sem Sighvatur telur óhagkvæmt
í sínu fyrirtæki.
Hann undrast það að forseti
FFSÍ sé að óska eftir frekari
skattheimtu á útgerð og sjó-
menn með veiðileyfagjaldi. í
kvótakerfi sem byggi á frjálsu
framsali, muni menn halda
áfram að skiptast á veiðiheimild-
um og greiða hvor öðrum.
Kristján segir að andstaða Guð-
jóns A. við kvótakerfið einkenn-
ist af hagsmunum hans við að
koma nær kvótalausu skipi sem
hann á hlut í, Guðmundi Guð-
jónssyni, á sóknarmark.
Hann segist ennfremur ekki
finna fyrir meintum vaxandi
þunga í samfélaginu við veiði-
leyfagjald, eins og Sighvatur hélt
fram í ræðu sinni á Fiskiþingi.
Nema ef vera skyldi frá sérvitr-
ingum úr Seðlabanka, augn-
læknum og eiginkonum þeirra
frá landsfundi Sjálfstæðisflokks-
ins og 10 ára gamalli rökleysu
iðnrekenda um málið.
Á nýafstöðnu Fiskiþingi sagði
Sighvatur Bjamason að forráða-
menn í sjávarútvegi ættu að hafa
fmmkvæði að því að samþykkja
veiðileyfagjald. Að öðmm kosti
yrði það sett án samráðs við at-
vinnugreinina.
Guðjón A. Kristjánsson, forseti
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins, hefur einnig látið svo
ummælt opinberlega að vaxandi
stuðningur sé meðal sjómanna
við veiðileyfagjald. Hann segir að
sjómenn greiði þetta gjald nú
þegar með þátttöku í kvótakaup-
um útgerða og það sé betur
komið hjá ríkissjóði en í vasa út-
gerðarmanna.
-GRH
ASÍ krefst að-
gerða gegn
skattsvikurum
,Það er full ástæða til þess að brýna framkvæmdavaldið í því að
standa sig betur í innheimtu skatta. Það er heldur engin ástæða til að
ætla annað en að það geti gert betur þegar sérfræðingar eins og Þröst-
ur Ólafsson vita hvar þjófarnir eru sem stela undan skatti,' segir
Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ.
Hann segir það fáránlega
ákvörðun að það skuli vera ætl-
unin að bæta aðeins við fimm
starfsmönnum við skattaeftirlitið
þegar ráðherra segir að það þurfi
26 manns.
„Ef það er rétt hjá Þresti að það
verði stolið einum milljarði
króna undan skatti vegna breyt-
inga á matarskattinum, þá fynd-
ist mér það vel hægt að bæta
þessum 26 við sem talað er um
að þurfi til að halda þessum hlut-
um í lagi."
Benedikt segir að það muni
ekki kosta nema 80-100 milljónir
króna og þá ættu þeir eftir 900
milljónir.
í ályktun miðstjórnar ASÍ frá
því í gær er lýst yfir þungum
áhyggjum af þeim skattsvikum
sem upplýst er að viðgangist í
þjóðfélaginu. En talið er að allt
að 11 milljörðum króna sé skotið
undan skatti og 15 milljarðar
króna séu afskrifaðir af álögðum
gjöldum.
Miðstjómin krefst þess að ríkis-
stjórn og Alþingi grípi þegar til
aðgerða og sjái til þess að hið
qýja kerfi virðisaukaskatts skili
þeim árangri sem að var stefnt.
Bent er á fuUyrðingar ráðherra
og æðstu embættismanna í
stjómkerfinu að innheimtu virð-
Endurvinnsla sorps er besta lausnin. Þá er sorpi breytt í úrvals gróðurmold.
Jcirðgerð úr sorpi
- Týndur hlekkur í landgræðslustarfi, segir Björn Guðbrandur
Jónsson umhverfisfræðingur
isaukaskatts sé verulega ábóta-
vant, auk þess sem þeir telja að
það stefni í algjört öngþveiti í
innheimtunni um áramótin þeg-
ar lækka á skatt á matvælum.
Minnt er á að þáverandi fjár-
málaráðherra og núverandi ut-
anríkisráðherra lýsti því yfir að
hið nýja skattkerfi mundi auka
skilvirkni innheimtuskattsins auk
þess sem allt eftirlit yrði einfalt
og sjálfvirkt. Annað hefur komið
á daginn eins og tölur um um-
fang skattsvika bera með sér.
-GRH
Mikið magn af lífrænum úr-
gangi fellur til á íslandi ár hvert.
Á sama tíma háir skortur á jarð-
vegi flestum bæjarfélögum lands-
ins. Með aðferð sem nefnd hefur
verið jarðgerð má vinna bug á
báðum þessum vandamálum í
einu.
Bjöm Guðbrandur Jónsson um-
hverfisfræðingur hefur undan-
farið kynnt jarðgerð víðsvegar
um land. Með henni má vinna
lífrænan úrgang frá sláturhúsum,
fiskvinnslu og rækjuvinnslu auk
þess sem til fellur frá heimilum
og stofnunum. Hann segir að
Rekstrar- og iðnrekstrarfræðingar hafa stofnað sameiginlegt
fagfélog en að undanförnu hafa á sjötta hundrað nemendur útskrifast
hér á landi. Hér má sjá fyrstu stjórn félagsins.
ýmsir hafi sýnt málinu áhuga og
spáir því að mörg bæjarfélög fari
að nýta sér jarðgerðina á næstu
árum.
Jarðgerð felst í því að h'frænum
úrgangi er safnað saman í massa
í réttum hlutföllum við önnur
efni eins og pappír og tijákurl. í
massanum myndast hiti sem
verður til þess að allir sýklar
drepast. Auk þess em myndaðar
kjöraðstæður fyrir örverur sem
sjá um niðurbrot úrgangsins. Af-
urðin er fyrirtaks gróðurmold
sem selja má sem pottablóma-
mold eða nota við landgræðslu.
Bjöm segir að íslendinga vanti
tilfinnanlega jarðveg enda sé sá
jarðvegur sem náttúran myndar
hér oft rýr og lélegur. „Þessi að-
ferð verður í framtíðinni ein
uppistaðan í öllu landgræðslu-
starfi á íslandi,' segir Bjöm.
Meiriháttar afglöp
á Vestfjörðum
Bjöm segir að jarðgerð sé ekki
dýr kostur miðað við þann að
brenna sorpið. „Við íslenskar að-
stæður er jarðgerð mun vænni
kostur en brennsla og ódýrari að
auki. Það eru í uppsiglingu
meiriháttar afglöp á Vestfjörðum.
ísfirðingar em í vandræðum með
jarðveg en þeir ætla samt að
brenna allt það hráefni sem þeir
gætu unnið hann úr. Bæði er
það dýrt og auk þess getur sorp-
brennsla spillt ímynd þeirra sem
matvælaframleiðenda. Ég hef
ekki séð nein rök sem mæla með
því að þeir brenni sorpið en þeir
vilja ekki bakka með ákvörðun
sína. Fyrir vikið hafa allir aðrir
en ísfirðingar dregið sig út úr
sorpsamlagi Vestfjarða.'
Einstaklingsframtak
Jarðgerð er einnig hægt að
vinna í smærri stíl en þeim sem
Björn lýsir. Guðrún Jakobsson
hefur um skeið endurunnið alla
matarafganga sem til falla á
heimilinu. Til þess þarf sérstök
einangruð ílát sem afgangarnir
em settir í. Þau eru geymd í 12-
14 vikur og eftir þær hefur fæð-
an umbreyst í gróðurmold. flátin
má geyma hvort sem er inni eða
úti á meðan á niðurbrotinu
stendur. Guðrún segir að endu-
runna moldin sé sérstaklega góð
sem hún sjái best á plöntunum
sínum.
-GK
Vió sorpbrennslu
myndast eiturefni
sem eru hættuleg
lífríkinu.
Brennsla á sorpi
er einnig sóun á
verðmætum.
ENDURVINNSLA
ER BESTA LAUSNIh
Allt að 80% af
heildarsorpmagni er
að endurnýta.
jttuleg efni sem
ndast eru t.d. díoxin-
ij, brennisteínsoxið.
is kolvetnissamböna.
, geta valdið krabba-
ini, fósturskaða.
Uarsjúkdó^^
„ ábríf á varnarkerh