Tíminn - 10.12.1993, Qupperneq 4
Föstudagur 10. desember 1993
-t
Innlent
Gera það gott með
pappírsendurvinnsluvélum
Eggjabakkar framleiddir í Garðabæ
Fyrirtaekið Silfurtún í Garðabæ
er á meðal vaxtarbroddanna í ís-
lenskum iðnaði. Starfsemi fyrir-
tækisins hófst með framleiðslu á
eggjabökkum með vél sem end-
urvinnur pappír. Núna framleið-
ir Silfurtún slíkar vélar og flytur
út um allan heim. Vélamar em
hannaðar af starfsmönnum fyrir-
tækisins og hafa verið seldar til
flestra heimshluta.
Silfurtún hóf framleiðslu eggja-
bakka árið 1984 með vél sem að
hluta tíl var smíðuð hjá fyrirtæk-
inu en aðrir hlutar hennar vom
keyptir erlendis frá. Eggjabakka-
framieiðslan er ennþá stór liður í
starfsemi fyrirtækisins. Friðrik
Jónsson, forstjóri Silfurtúns, seg-
ir að um eitt hundrað tonn af
pappír séu endumnnin hjá fyrir-
tækinu á ári. „Við .notum mest
dagblaðapappír sem við fáum frá
prentsmiðjum en stundum koma
einstaklingar með pappír til okk-
ar," segir Friðrik. Hann segir að
íslenskir eggjabændur mættu
sýna framleiðslunni meiri áhuga.
„Peir standa ennþá í þeirri trú að
erlent sé betra. Núna er um
helmingurinn af þeim eggja-
bökkum sem em á markaðnum
innfluttur af því að bændunum
líkar ekki útlit okkar bakka. Við
ætlum okkur hins vegar að brey-
ta því á næsta ári þegar við höf-
um efni á meiri vélbúnaði.'
Árið 1989 breyttust áherslur
hjá Silfurtúni því þá var hafin
framleiðsla á vélum til útflutn-
ings og eru þær mikið endur-
bættar frá fyrstu vélinni. Friðrik
á ásamt starfsmönnum sínum
heiðurinn af hönnun vélanna en
Garðasmiðjan hf. sér um smíð-
ina. „Vélarnar bleyta pappírinn
og mynda úr honum deig og síð-
an eru eggjabakkarnir mótaðir
úr deiginu. Þær geta líka fram-
leitt aðra hluti sem eru mótaðir
úr pappír," segir Friðrik. Hann
segir að reksturinn hafi gengið
mjög illa til að byija með og ekki
tekið við sér fyrr en á síðasta
ári.'Þá vorum við búnir að ná
tökum á tækninni og fram-
leiðsluaðferðunum og síðan hef-
ur þptta rokið áfram. Hjá fyrir-
tækinu er alltaf unnið sex daga
vikunnar en við höfum engan
veginn undan að anna eftir-
spum." Stærsti markaður Silfur-
túns er í Suður-Ameríku en auk
þess hafa vélar verið seldar til
Miðausturianda, Afríku, Austur-
landa fjær og Evrópu. Garða-
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Stöðupróf í
framhaldsskólum
Stöðupróf í framhaldsskólum í byrjun vorannar 1994
verða sem hér segir:
Enska
Þýska, spænska, ítalska
Norska, sænska
Franska, stærðfræði
Þriðjudaginn 4. janúar kl. 18.00
Miðvikudaginn 5. janúar kl. 18.00
Fimmtudaginn 6. janúar kl. 18.00
Föstudaginn 7. janúar kl. 18.00
Innritun fer fram á skrifstofu Menntaskólans við Flamra-
hlíð, sími: 685155.
Síðasti innritunardagur er 3. janúar. Milli jóla og nýárs er
skrifstofan opin frá kl. 10.00-14.00.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Starfslaun
handa listamönnum
Flér með eru auglýst til umsóknar starfslaun til handa
listamönnum árið 1994, í samræmi við ákvæði laga nr.
35/1991. Starfslaunin eru veitt úrljórum sjóðum, þ.e.:
1. Launasjóði rithöfunda.
2. Launasjóði myndlistarmanna.
3. Tónskáldasjóði.
4. Listasjóði.
Umsóknir skulu hafa borist Stjórn listamannalauna,
menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4,150 Reykjavík,
á þar til gerðum eyðublöðum fyrir 15. janúar 1994. Um-
sóknir skulu auðkenndar „Starfslaun listamanna“ og til-
greina þann sjóð sem sótt er um laun til. Umsóknareyðu-
blöð fást hjá menntamálaráðuneytinu.
Ath. Þeir, sem notið hafa starfslauna á sl. ári, skulu skila
skýrslu um störf sín, sbr. 4. gr. laganna.
Reykjavík, 9. desember 1993.
Stjórn listamannalauna.
Starfsma&ur Gar&asmi&junnar vinnur vi& pappírsendurvinnsluvél. Hver vél er allt að 18 metra löng og kostar
tugi milijóna króna. Tímamynd Árni Bjama
smiðjan getur framleitt um tólf
vélar á ári en hver þeirra kostar
tugi milljóna króna. Friðrik er
samt alls ekki á því að láta staðar
numið. „Við ætlum okkar að ná
umtalsverðri stærð á þessum
markaði. Við erum að fara inn á
markað með vélar sem framleiða
umbúðir utan um bflavarahluti
og varahluti í tölvur. Við höfum
líka verið að leita að vöruteg-
undum til sölu á innanlands-
markaði en ekki fundið heppi-
legar vörur ennþá."
-GK
Fjárlaganefnd leggur
til 681 millj. hækkun
Lagt er til að auknum fjármunum verði varið til skattaeftirlits á næsta ári
Meirihluti fjárlaganefndar Alþing-
is leggur til að útgjöld fjárlaga-
frumvarpsins verði hækkuð um
681,4 milljónir króna. Stærstu liðir
breytingartillagnanna eru hækkun
vegna sjúkratrygginga 180 millj-
ónir, auknar vegaframkvæmdir
upp á 345 milljónir og 75 milljónir
vegna þess að fallið hefur verið frá
því að færa rekstur leikskóla
sjúkrahúsanna til sveitarfélag-
anna.
Önnur umræða um fjárlagafrum-
varpið fór fram í gær. Breytingar-
tillögur meirihluta fjárlaganefndar
sem varða útgjaldalið frumvarps-
ins taka ekki á stórum útgjaldalið-
um s.s. kostnaði við rekstur
sjúkrahúsanna í Reykjavík, en þar
vantar mikla fjármuni ef mögulegt
á að verða að reka spítalana með
óbreyttum hætti á næsta ári. Tekið
verður á þessu við þriðju umræðu
um frumvarpið og þá verða einnig
afgreiddar breytingar á tekjuhlið.
Meðal athyglisverðra tillagna
fjárlaganefndar má nefna að fyrir-
hugað er að setja 30 miUjóna við-
bótarframlag í skattaeftirlit þannig
að 63,5 milljónir fari til þessara
mála. Að auki er ætlunin að verja
10 milljónum til viðbótar til að
mæta kostnaði við upptöku tvegg-
ja þrepa virðisaukaskatts. Þá er
framlag til skattrannsóknarstjóra
hækkað um 12 miUjónir.
Lagt er til að 20 milljónum verði
varið aukalega til endurbóta á
Þjóðskjalasafninu. 36 milljónir
eiga að fara í aðstoð við Palestínu-
menn í ísrael. Þá er lagt til að fallið
verði frá álagningu 10 milljóna
þjónustugjalds sem Veðurstofan
átti að innheimta af innanlands-
fluginu. -EÓ
Fiskvinnslu-
fólk af
launaskrá
Vegna yfirvofandi verkfalls sjó-
manna á fiskiskipaflotanum frá
og með áramótum hafa Samtök
fiskvinnslustöðva ráðlagt vinnsl-
unum að tilkynna vinnslustöðv-
un með fjögurra vikna fyrirvara.
Það þýðir að fastráðið fisk-
vinnslufólk mun þá falla út af
launaskrá, eða 4-6 þúsund
manns.
Athygli vekur að Samtök fisk-
vinnslustöðva senda þessar leið-
beiningar til félagsmanna sinna
þrátt fyrir að fiskvinnslum sé
heimilt samkvæmt lögum að
fella fólk af launaskrá komi til
hráefnisleysis vegna verkfalla
sjómanna.
Komi til verkfalls á fiskiskipa-
flotanum munu fjölmörg fyrir-
tæki sem þegar hafa tilkynnt
vinnslustöðvun um hátíðarnar
vegna hráefnisleysis, ekki hefja
vinnslu eftir áramótin. -GRH
Ég óska eftir að taka áskriftartilboði Tímans.
Áskriftargjald er 1400- kr. á mánuði, en ég
fæ mánuð númer tvö frían.
Nafn---------------------------------------
Heimili____________________________________
Póstfang___________________________________
Simi_______________________________________
Kennitala _________________________________
Færið upphæðina á greiðslu- — ___
kortareikning minn: |__| VISA | | EURO
Kortnúmer
1 11 lltl 1 11 lil I 11 lil 1 I 1
Gildir út
Undirskrift