Tíminn - 10.12.1993, Side 5
Föstudagur 10. desember 1993
5
Sendiherrann í NewYork
leitar upplýsinga
íslensk stjórnvöld hafa áhyggjur af áformum risaveldanna að beina kjarnaflaugum sínum að Norður-íshafinu
Jón Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra hefur falið sendi-
herra íslands í New York að
kanna sannleiksgildi frétta er-
lendra fjölmiðla um að bandarísk
stjórnvöld áformi að beina
kjarnavopnum sínum í átt að
Norður-íshafinu í stað þess að
beina þeim að Rússlandi.
Utanríkisráðherra sagði þetta í
svari við fyrirspum frá Kristínu
Ástgeirsdóttur, alþingismanni
Kvennalistans.
Fjölmiðlar hafa eftir nafn-
greindum herforingja í Banda-
ríkjaher að fyrirhugað sé að
Verð á matvörum
lækkaði um nærri
2 % milli mánaða
Verð lækkaði á flestum flokkum
matvæla milli nóvember og des-
ember. Verðlækkunin varð um
1,8% að meðaltali. Þessi lækkun
átti drýgsta þáttinn í því að
lækka framfærslukostnað um
0,5% milli mánaða. Framfærslu-
vísitala desembermánaðar er
169,9 stig eins og hún var í sept-
ember s.l., en hún er hins vegar
5,6% hærri heldur en í desem-
ber í fyrra.
Mest lækkaði verðið á græn-
meti og ávöxtum, um rúmlega
10% að meðaltali. Verð á feit-
meti lækkaði um rúmlega 8% að
meðaltali og verð á sykri um
tæplega 5%. Verð lækkaði einn-
ig nokkuð á fiski, kjötvörum,
komvörum og kaffi. Verðhækk-
un kom aðeins fram á kartöflum
og mjólkurvörum.
Verð á gosdrykkjum og léttöli
hækkaði sömuleiðis um nærri
1% að meðaltali milli mánaða
og hafa þessar drykkjarvörur þá
hækkað um hátt í 6% á s.l. hálfu
ári.
Fjölmargir aðrir liðir vísitöl-
unnar lækkuðu lítillega í verði,
m.a. húsnæðiskostnaður, hús-
gögn, raftæki, bílakostnaður,
símakostnaður bækur og blöð.
Verð á fatnaði hefur á hinn
bóginn hækkað um 0,5%, raf-
magn og hiti um 0,6%, búsáhöld
um nærri 2% og gjafavörur um
0,8 %.-HEI
Jólasteixmming í
Hlaðvarpanum
Listmarkaður Hlaðvarpans býður
upp á mikið úrval af jólavörum
um þessar mundir. Listmarkað-
urinn er stærsti markaður lands-
ins með íslenskan listvaming. í ■
Hlaðvarpanum er líka jólabóka-
markaður, þar sem fást bækur
frá bók;aútgáfunum Bjarti,
Smekkleysu, örlaginu, Birtingi,
Rauða húsinu, Skýjum og Goð-
orði auk bóka eftir Elísabetu
Jökulsdóttur, Önnu S. Björns-
dóttur, Eyvind Eiríksson, Hrafn
Jökulsson og fleiri. Kaffistofa er
rekin í kjallara Hlaðvarpans þar
sem boðið er upp á léttan mat í
hádeginu og heimabakað góð-
gæti með kaffinu. Á laugardög-
um í desember verður í boði lítið
jólahlaðborð á kvöldin fyrir 950
krónur. í porti Hlaðvarpans eru
seld jólatré, greinar og jólatrés-
fætur.
beina kjamaeldflaugum Banda-
ríkjanna að Norður-íshafinu, en
fram að þessu hefur þeim verið
beint að Rússlandi. Jafnframt er
haft eftir herforingjanum að
Rússar hafi uppi svipuð áform,
þ.e. að beina sínum kjamavopn-
um í átt að Norður- íshafinu í
stað þess að beina þeim að
Bandaríkjunum. Ef kjarnaflaug
færi á loft vegna mistaka myndi
hún þannig lenda í Norður-ís-
hafinu en ekki í Bandaríkjunum
eða Rússlandi.
Jón Baldvin sagði að sendiherra
íslands hefði verið falið að leita
eftir upplýsingum hjá bandariska
utanríkisráðuneytinu um þetta
mál. Hann hefði fengið þau svör
að engin ákvörðun hefði verið
tekin í þessu máli. Jón Baldvin
sagðist hafa falið sendiherranum
að leita eftir frekari upplýsingum
um málið vestan hafs. Hann
sagði að ekki væri að vænta við-
bragða af hálfu íslenskra stjóm-
valda fyrr en þær upplýsingar
hefðu borist. Jón Baldvin sagði
sjálfsagt að fela sendiherra ís-
lands í Moskvu að leita upplýs-
inga úr rússnesku stjómkerfi um
þetta mál.
Kristín sagði að ef þessar fréttir
erlendra fjölmiðla væru réttar
hlyti það að kalla á hörð við-
brögð íslenskra stjómvalda. Að-
eins umræðan um að kjarna-
vopnum væri beint að Norður-
íshafinu gæti skaðað hagsmuni
íslands. -EÓ
Ársþing Hestaíþrótta-
sambands fslands
4. ársþing Hestaíþróttasambands
íslands var haldið í Verkmennta-
skólanum á Akureyri í boði
íþróttadeildar Léttis dagana 19.
og 20. nóvember sl. 87 fulltrúar
víðsvegar af landinu áttu rétt til
þingsetu frá 24 héraðssambönd-
um og íþróttabandalögum. For-
maður sl. 8 ár, Pétur Jökull Há-
konarson, gaf nú ekki kost á sér
til endurkjörs og var Jón Albert
Sigurbjörnsson frá íþróttadeild
Fáks kosinn formaður í hans
stað. Aðrir í stjóm HÍS em: Einar
Ragnarsson, Sigrún Ólafsdóttir,
Magnús Lárusson og Bergur
Jónsson. Þingið samþykkti
veigamiklar breytingar á lögum
og keppnisreglum í hestaíþrótt-
um. Fráfarandi formanni, Pétri
Jökli Hákonarsyni, var sérstak-
lega þakkað fórnfúst og árang-
ursríkt starf í þágu hestaíþrótt-
anna. Núna í fyrsta skipti var
veitt gullmerki Hestaíþróttasam-
bands íslands og hlaut það Sig-
urður Magnússon, fram-
kvæmdastjóri íþróttasambands
íslands, fyrir frábært starf í þágu
Nýkjörin stjórn HÍS með formanninn Jón Albert Sigurbjörnsson sitjandi
fyrir miðju.
hestaíþróttarinnar og það að hestaíþrótta innan íþróttahreyf-
vera sífellt virkur talsmaður ingarinnar. -GTK
1KAIRÓ - Yitzhak Rabin,
forsætisráðherra ísraels,
og Yasser Arafat, leiðtogi
PLO, hittast í Kairó á sunnudag-
inn. Þar munu þeir reyna að finna
lausn á þeim óleystu málum sem
geta komið í veg fyrir að tak-
mörkuð sjálfsstjórn Palestínu
verði að veruleika í næstu viku
eins og gert er ráð fyrir.
VESTUR-BAKKANUM
Gyðingar skutu araba til
bana þar sem hann var við
vinnu á landi sínu á Vestur-Bakk-
anum í gær, fjómm dögum áður
en samkomulag ísraela og PLO
um sjálfstjóm Palestínu á að taka
gildi.
3SPÁNI - Simon Peres, ut-
anríkisráðherra ísraels,
sagði eftir viðræður við
Yasser Arafat að hann vonaðist til
að báðir aðilar hæfu framkvæmd
sjálfsstjórnarsamningsins á um-
sömdum tíma á mánudaginn
kemur. Hann sagði einnig að Bill
Clinton, forseti Bandaríkjanna,
mundi hitta forseta Sýrlands, Haf-
ez al-Assad, í Genf í janúar næst-
komandi til að ræða hvemig hægt
sé að ræða friðarsamninginn um
Miðausturlönd.
DAMASCUS - Leiðtogar
Sýrlands og Líbanons
munu taka upp friðarvið-
ræður við ísraela að nýju í lok
janúar eða byrjun febrúar, segir
Warren Christopher, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna.
5BRUSSEL - Manfred Wo-
erner, framkvæmdastjóri
Atlantshafsbandalagsins,
segir að bandalagið muni fyrr eða
síðar samþykkja þátttöku nýrra
ríkja, þrátt fyrir áskomn Borisar
Jeltsin Rússlandsforseta um að
ríki Austur- Evrópu fái ekki aðild
að bandalaginu.
6GENF - Forsvarsmenn
Evrópubandalagsins gera
ráð fyrir að 15-20 ríki sem
samanlagt eru ábyrg fyrir um
90% af heimsviðskiptum mimi ná
samkomulagi um aðgang að
mörkuðum í GATT viðræðunum
fyrir 15. desember.
BELGRAD - Alþóðlegir
sáttasemjarar hafa tekið
upp viðræður við forseta
Serbíu og leiðtoga Bosmu-Serba í
framhaldi af friðarviðræðunum í
Genf.
8LUZERN - Forseti alþjóð-
legu ólympíunefndarinnar
ætlar að heimsækja
ólympíuborgina Sarajevó á með-
an vetrarólympíuleikamir verða í
Lillehammer á næsta ári.
BRUSSEL - Boris Jeltsin,
forseti Rússlands, undirrit-
aði pólitíska yfirlýsingu
með Evrópubandalaginu í gær.
Báðir aðilar sögðu að yfirlýsingin
markaði tímamót í samskiptum
þeirra.
BAGHDAD
Saddam Hussein,
forseti íraks, lét
sleppa þremur Bretum úr haldi í
gær. Þeir höfðu verið handteknir
fyrir að fara ólöglega inn í landið.
ABIDJAN Staða
nýs forseta Fíla-
beinsstrandarinnar,
Henris Konans Bedies, styrktist
þegar keppinautur hans, Alassane
Quattara forsætisráðherra, sagði
af sér í gær.
MOGADISHU -
Bandarískir her-
menn í Sómalíu
höfðu það náðugt í gær, einu ári
eftir að þeir komu til landsins.
FLÓRIDA
Bandarískir geim-
farar luku erfiðri
fimm daga viðgerð á geimsjón-
auka í gær. Verðmæti sjónaukans
er jafnvirði 210 milljarða íslenskra
króna. Honum verður komið fyrir
á braut umhverfis jörðu að nýju á
föstudaginn.