Tíminn - 05.02.1994, Síða 15
Laugardagur 5. febrúar 1994
Min
15
Katrín Einarsdóttir
Fædd 12. júní 1912
Dáin 25. janúar 1994
Himinn yfir. Huggast þú, sem
grœtur.
Stjömur tindra, geislarguös,
gegnum vetramcetur.
(Stefán frá Hvítadal)
Viö andlát vinkonu minnar,
Katrínar Einarsdóttur, leitar
hugurinn til horfinna samveru-
stunda. Það er langt síðan við
sáumst fyrst. Það var á haust-
dögum 1926 í 1. bekk Kvenna-
skólans í Reykjavík.
Hún var heimasæta í höfuö-
borginni, en ég sveitastelpa
undan Eyjafjöllum, betur lærð í
að smala fé í fjallahlíðum en
ganga settlega á borgargötum.
En fljótlega myndaðist með
okkur góður kunningsskapur,
sem varð að einlægri vináttu.
Sú vinátta hefur nú varað í
meira en 60 ár. Hvemig vinátta
verður til er erfitt að gera sér
grein fyrir; hitt veit ég að vin-
semd Kötu varð mér ómetan-
leg, þar sem ég var ókunnug í
framandi umhverfi. Hún bauð
mér inn á sitt heimili og þar
var mér vel tekið. Ég fann fljótt
að þar var vandað, gott og
hjálpsamt fólk. Faðir Katrínar
var Einar Runólfsson smiður.
Hann var ekkjumaður, en hélt
heimili fyrir börn sín með
Önnu hálfsystur sinni, sem var
myndarkona og vann heilshug-
ar að hag heimilisins og barn-
anna á Lindargötu 34. Það hús
smíðaði Einar og það stendur
enn með númerinu 56.
Þetta var myndarlegt heimili
og gestrisnin með eindæmum.
Þama gistu margir Vestur-Skaft-
fellingar, sérstaklega vor og
haust, og dvöldu þá lengur eða
skemur. Þá var oft þröng á
þingi, en öllum tekið með
rausnarskap, hjálpsemi og
hlýju. Kata fékk snemma mikla
ábyrgðartilfinningu fyrir heim-
ilinu og heimilishaldi ásamt
systkinum sínum, Einari, Ing-
ólfi og Guðlaugu, sem var
yngst og mér fannst hún alltaf
vera sólargeisli heimilisins með
sínu glaða og geislandi brosi.
Hún á það enn, þó að eldri sé
orðin.
Þama gat ég alltaf komiö og
naut þar einstakrar góðvildar,
sem ég aldrei gleymi. Seinna
var systrum mínum tekið af
sömu ljúfmennskunni.
Eftir tvo vetur í Kvennaskól-
t MINNING
anum skildu leiðir okkar Kötu
þar. Ég fór í annan skóla, en
hún lauk sínum skóla með
sóma 1929. Hún var góðum
gáfum gædd, eins og öll systk-
ini hennar.
Undarlegur og marglitur er ör-
lagavefurinn. Þær systur, Katrín
og Guðlaug, urðu báðar hús-
freyjur í Fljótshlíðinni, þeirri
sögufrægu sveit sem Gunnari
Hámundarsyni þótti svo fögur
að fjarri henni gat hann ekki
hugsað sér að vera í þrjá vetur.
Systurnar heilluðust einnig af
Fljótshlíðinni og veit ég að
sveitin var ósvikin af þeim.
Kata giftist Fljótshlíðingi.
Hann hét Sigurþór Úlfarsson.
Þau fóm aö búa í Háamúla og
byggðu þar gott hús. Heimili
þeirra bar frá upphafi vitni um
smekkvísi, snyrtimennsku og
hirðusemi. Ég var hjá þeim eitt
sumar. Þar var gott og gaman
að vera. Ungu hjónin vom svo
samhuga og verkin léku í
höndum þeirra. Kata var fín-
gerö og viðkvæm og vildi ekki
vamm sitt vita í neinu. Öll verk
vann hún af einstakri vand-
virkni og útsjónarsemi. Hún
hafði mikið yndi af saumaskap
og hannyrðum. Sigurþór var
líka einkar vel verki farinn og
vann sér létt. Hann var mikið
prúðmenni. Þau áttu vel saman
og Katrín var gæfusöm í einka-
lífi sínu.
Snemma bar á samúð hennar
og hjálpsemi við lítilmagnann.
Ung að ámm hændi hún aö sér
böm í nágrenninu og var boðin
og búin að rétta þeim hjálpar-
hönd. Þá tók hún inn á heimil-
ið lítinn dreng, sem átti í erfið-
leikum, og hlynnti að honum á
allan hátt. A heimilinu voru
allir góðir við hann. Og hún
tók einnig böm til sín að Háa-
múla, sum til sumardvalar en
önnur lengur. Hún reyndist
þeim sem góð móðir og var sér-
staklega lagin við að hjálpa
þeim sem áttu erfitt með nám
og fleira. Kata laðaði það besta
fram hjá þeim meö lagni sinni,
festu og góðu viðmóti. Frá
þeim hefur hún líka notið virð-
ingar, væntumþykju og mikill-
ar ræktarsemi.
Þau hjón, Katrín og Sigurþór,
eignuöust efnilegan son, Einar
Þór, sem er rafvirki. Hann og
kona hans, Bryndís Jóhannes-
dóttir, eiga tvö börn, myndar-
leg og mannvænleg, Atla og
Katrínu, bæði í námi. Þau hafa
alltaf átt heima í Háamúla og
var það Kötu og þeim öllum
mikils virði.
Þessi góða fjölskylda var
hennar dýrmætasta gjöf lífsins
og reyndist henni vel í erfiðum
veikindum. Hún átti oft við
heilsuleysi að stríða og fór ekki
varhluta af erfiðleikum í lífinu.
Hún missti móður sína bam að
aldri og mann sinn langt um
aldur fram; einnig sá hún á bak
báöum bræðmm sínum og föð-
ur. Þessu öllu hefur hún tekið
með hetjuskap, rósemi og trú-
artrausti.
Yndislegt var að koma til
hennar aö dvalarheimilinu
Kirkjuhvoli á Hvolsvelli. Þar
hafði hún búiö sér fallegt og
hlýlegt heimili. Þar var hún
ánægð og hélt reisn sinni og
höfðingsskap.
Með þessum fátæklegu orðum
vil ég þakka hennar órofa
tryggð, allar góðu og skemmti-
legu samvemstundimar á Lind-
argötunni og gönguferðirnar,
langar og stuttar, og alla velvild
fyrr og síðar. Góð minning er
gulli betri.
Einari, syni hennar, og hans
fjölskyldu votta ég mínar inni-
legustu samúðarkveðjur, einnig
Guðlaugu, systur Katrínar, og
hennar fjölskyldu.
5vo hvíl nú þig, hin dygga og
hjartahreina.
Þinn himnafaðir lcetur þig ei eina.
(Matth. Joch.)
Blessuð sé minning merkrar
konu.
Sigurbjörg Guðjónsdóttir
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Auglýsing um styrki og
lán til þýðinga á erlend-
um bókmenntum
Samkvæmt lögum nr. 35/1981, reglugerð nr.
638/1982 og breytingu nr. 102/1992 um þýðing-
arsjóð, er hlutverk sjóðsins að lána útgefendum
eða styrkja þá til útgáfu vandaðra erlendra bók-
mennta á íslensku máli. Greiöslur skulu útgef-
endur nota til þýðingarlauna.
Skilyrði fyrir styrkveitingu skulu einkum vera
þessi:
1. Verkið sé þýtt úr ffummáli, ef þess er kostur.
2. Upplag sé að jafnaði eigi minna en 1000 ein-
tök.
3. Gerð og frágangur verka fullnægi almennum
gæðakröfum.
4. Eðlileg dreifing sé tryggð.
5. Útgáfudagur sé ákveðinn.
Fjárveiting til þýðingarsjóðs í fjárlögum 1993
nemur 7 milljónum króna.
Eyðublöð undir umsóknir um framlag úr sjóðn-
um fást í afgreiðslu menntamálaráðuneytisins,
Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, og skulu um-
sóknir hafa borist ráðuneytinu fýrir 15. mars nk.
Reykjavík, 2. febrúar 1994.
Menntamálaráðuneytið.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Fóstrur eða fólk með uppeldismenntun óskast til
starfa á neðangreinda leikskóla:
(fullt starf:
Fífuborg v/Fífurima, s. 684515
í hálftstarf e.h.:
Álftaborg v/Safamýri, s. 812488
Fífuborg v/Fífurima, s. 684515
Nánari upplýsingar gefa viðkomandi ieikskólastjórar.
Dagvist barna
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277.
Aktu eins og þú vilt
að aorir aki!
ÖKUM EINS OG MENN!
UMFERÐAR
Iráo
DAGBÓK
rc^A^\A^AA^AA_AA^rC'M
Lauqardagur
5
febrúar
36. daqur ársins - 329 dagar eftir.
5. vika
Sólris kl. 9.56
sóiarlag kl. 17.29
Dagurinn lengist
um 7 mínútur
Félag eldri borgara
í Reykjavík og nágrenni
Sunnudag í Risinu: 7 daga
sveitarkeppni í brids (annar
dagur) kl. 13 og félagsvist kl.
14.
„Margt býr í þokunni" sýnt
laugardag ld. 16 og sunnudag
kl. 20.30.
Dansað í Goðheimum kl. 20
sunnudagskvöld.
Mánudagur: Opið hús í Ris-
inu. Frjáls spilamennska kl. 13-
17.
Fríkirkjan í Reykjavík
Sunnudagur: Bamaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Pavel Smid. Prest-
ur Cecil Haraldsson.
Kvikmyndasýning í
Norræna húsinu
Sunnudaginn 6. febrúar kl. 14
verður norska brúöumyndin
Bjergkabing Grand Prix sýnd í
Norræna húsinu.
I myndinni kynnumst við
hjólaviðgerða- og uppfinninga-
manninum Teodor Fælgen og
tveimur vinum hans, þeim Sof-
usi (sem allt er jákvæður) og
Ludvig (óþolandi neikvæður).
Þessir þrír kumpánar búa sam-
an uppi í fjöllum í bænum
Bjergkobing. Þeir lenda í ótrú-
legum ævintýrum saman og
smíöa m.a. hálfgeröan töfrabíl
með tveimur mótorum, radar
og eigin blóðbanka. í framhaldi
af því taka þeir svo þátt í mikl-
um kappakstri, sem endar á
mjög óvæntan hátt.
Þessi kvikmynd er ætluð allri
fjölskyldunni og er ein og hálf
Úst. að lengd.
Allir eru velkomnir og er að-
gangur ókeypis.
Ljóðleikhúsiö:
Ljóðadagskrá í Þjóðleik-
húskjallaranum
Fyrsta mánudag hvers mánað-
ar em ljóðakvöld í Þjóðleikhús-
kjallaranum á vegum hóps
ljóöskálda í samvinnu við Þjóð-
leikhúsið. Ljóðleikhúsið varð til
á síöastliðnum vetri og hlaut
svo góðar viötökur að starfsem-
inni verður haldið áfram af
fullum krafti nú í vetur.
Mánudaginn 7. febrúar nk.
verður Ljóðleikhúsiö enn á ferð
í Þjóðleikhúskjallaranum með
dagskrá um samtímaljóðlist.
Gestir Ljóðleikhússins að þessu
sinni verða skáldin Einar Már
Guðmundsson, Elías Mar, Ey-
vindur P. Eiríksson, Steinunn
Sigurðardóttir, Unnur S. Braga-
dóttir og Vigdís Grímsdóttir.
Dagskráin hefst kl. 20.30 eins
og venja er og er gestum bent á
að mæta tímanlega.
Tvær spennumyndir í
Háskólabíói og Bíóhöll-
inni á Akranesi
Háskólabíó sýnir nú nýjustu
mynd Brians De Palma, Leið
Carlitos (Carlito's Way). Aðal-
hlutverk leika óskarsverðlauna-
hafinn A1 Pacino, Sean Penn og
Penelope Miller. Myndin er
gerö eftir bókum hæstaréttar-
dómarans Edwins Torres og
byggir á reynslu hans viö að
Atríði úr Carlito's Way.
eiga við harðsvíraða glæpa-
menn.
í Bíóhöllinni á Akranesi er nú
sýnd nýjasta stórmynd Christo-
pers Lambert Undir vopnum
(Gunmen). Leikstjóri er Mario
Van Pebbles (Posse).
Bíóhöllin á Akranesi er nú
rekin af einkaaðilum í fyrsta
sinn í fimmtíu ára sögu húss-
ins. Síðasta haust tók fyrirtækiö
AK-SJÓN h/f við rekstrinum.
Bíóhöllin fagnaði nýju ári með
splunkunýju JBL hljóðkerfi,
sem er yfir 5000 vött að styrk-
leika.
i