Tíminn - 18.02.1994, Qupperneq 5

Tíminn - 18.02.1994, Qupperneq 5
Föstudagur 18. febrúar 1994 Sfwten 5 Siguröur Lárusson: Oþokkamenni, ekki flón, erlendra flestra gerir bón Eitthvaö á þessa leið byrjar gamalt ljóö sem mér flaug í hug þegar ég settist niöur til aö skrifa þennan greinarstúf. Allt frá því aö þeir Viöeyjarbræöur mynduöu ríkisstjómina og fram til dagsins í dag hefur ganga stjómarinnar verið ein hörmuleg- asta þrautaganga sem ég minnist aö nokkur ríkisstjóm hafi gengiö síðastliðin sextíu til sjötíu ár; að minnsta kosti er þaö áíit mitt. í upphafi stjómarferilsins munu margir hafa álitið aö með Davíö Oddsson sem forsætisráðherra mundi stjóm landsins vera í all- góöum höndum. Ég verö þó að segja að ég efaöist alltaf um hæfi- leika hans til aö stjóma landinu, fyrst og fremst af því aö hann var adveg óreyndur í landsmálapólit- íkinni og haföi ekki setiö á Al- þingi áöur. Enda kom fljótlega í ljós aö hann var enginn stjóm- málaleiötogi. Þótt margir hefðu mikið álit á honum sem borgar- stjóra, þá hefur ýmislegt komiö í ljós síðan hann lét af því starfi, einkum hvaö varöar fjármála- stjóm borgarinnar, ekki síst á síö- ustu ámm hans sem borgarstjóri. Þaö er honum lítið til sóma. Þar á ég einkum viö hinar gífurlegu skuldir borgarinnar. Um hinn guöfööurinn þessarar ríkisstjómar mætti margt segja. Ekki skorti hann þingmanns- reynsluna, auk þess sem hann haföi verið utanríkisráðherra um nokkuna ára skeið. En í því starfi haföi hann aö mínu áliti sýnt þaö og sannað að hann hugsaði meira um hags- muni erlendra þjóða en um hags- muni íslendinga. Stefna hans fell- ur mjögvel viö frjálshyggjustefnu íhaldsins, enda gengur hnífurinn ekki á milli þeirra fjármálaráö- herrans og reyndar fleiri ráöherra Sjálfstæöisflokksins, aö minnsta kosti í efnahagsmálunirm. Fyrir tæpum þremur árum, þeg- ar þessi ríkisstjóm komst til valda, hefðu fáir trúaö því að inn- an þriggja ára frá valdatöku hennar yröi búiö að leggja stóran hluta af atvinnulífi þjóöarinnar gjörsamlega í rúst og um tíu þús- und manns gengju atvinnulaus og aö fjöldi fólks hefði hvorki í sig né á. Það er eigi aö síöur staö- reynd nú. Meö stefnu núverandi stjómar um frjálsan og óheftan „Flokknum er ekki nóg að ráða yfir langstærsta og útbreiddasta dagblaði landsins, heldur ætlar hann með illu eða góðu að ná algerum ráðum yf- ir Ríkisútvarpinu og þar með Sjónvarpinu einnig" VETTVANGUR innflutning er til dæmis búiö aö lama og brjóta niöur íslenskan iönaö svo gjörsamlega á flestum sviöum aö hann er ekki nema svipur hjá sjón frá því sem áður var. Er til dæmis nokkur vitglóra í því aö lána peninga úr opinber- um sjóöum í stórum stíl til aö kaupa og flytja inn skip frá öðr- um löndum á sama tíma og inn- lendar skipasmíöastöövar em verkefnalausar og öll sú mikla verkkunnátta, sem þar hefur orð- iö til, gerö aö engu og viökom- andi fólk sett á atvinnuleysisbæt- ur. Sama má segja um fjöldamargt annað sem flutt er inn í landið, svo sem húsgögn, húseiningar og jafnvel heilu húsin, svo fleiri dæmi séu tekin. Væri ekki ólíkt skynsamlegra aö framleiöa þessar vörur hér á landi? Ég gæti nefnt margt fleira. Sann- leikurinn er sá aö meö þeirri frjálshyggjustefnu, sem ríkis- stjómin hefur rekiö síöustu árin, og með þeim undirlægjuhætti, sem hún hefur haft aö leiöarljósi gagnvart erlendum þjóðum, þá stefnir hér í landflótta í stórum stíl jafnframt vaxandi fátækt. Þar má meöal annars minna á þaö óheillaspor þegar Alþingi sam- þykkti aðild íslands aö EES fyrir rúmu ári. Við erum nú aö byrja aö sjá árangurinn af þeirri samþykkt, til dæmis meö því aö hleypa Þjóö- verjum, Bretum og Belgum inn í íslensku fiskveiöilögsöguna. En þetta er aðeins byrjunin. Þessar og fleiri þjóöir EB munu á næstu árum krefjast veiðiheim- ilda í íslenskri fiskveiðilögsögu. Þennan óhappasamning tel ég hreinan landráöasamning, eöa hvaö eru þá landráö ef svo er ekki? Menn sjá líka þessa síðustu daga hvemig Frakkar haga sér I sambandi viö fiskinnflutning þangaö. Og það er hneyksli hversu íslenska ríkisstjómin tekur linlega á því máli. Þá grunar mig að ríkisstjómin, eða aö minnsta kosti sumir ráöherrar hennar, hafi pantaö nýlega skýrslu frá GATT. Þaö er mjög alvarlegt ef svo væri. En hverju getur maöur ekki trúað á þessa menn, sem hafa sýnt það oft og svo ekki verður um villst að þeir meta hagsmuni annarra þjóöa meira en hagsmuni ís- lensku þjóðarinnar. Þá má einnig minna á þaö ofur- kapp, sem Jón Baldvin og flestir aðrir kratar leggja á að leggja landbúnaöinn á Islandi í rúst. Á sama tíma berast þær fréttir frá Bandaríkjimum aö íslenskt lambakjöt og einnig nautakjöt em taldar visthæfar afurðir þar og góðar líkur em á aö þaö geti á þessu og næsta ári orðið mjög álitlegt að selja þessar afuröir þangaö. Þá kann sá draumur þess- ara manna að flytja inn mikið mengaðar kjötvömr með tilheyr- andi hormónalyfjum og öðmm álíka hollum aukaefnum og ly- fjaleifum aö rætast, svo að íslend- ingar geti fengið aö borða ódýrari erlendar niöurgreiddar kjötvörur framleiddar á stómm verksmiðju- búum meö tilheyrandi aukaefn- um, eins og tíökast á slíkum bú- um víöa erlendis. Þaö er aö mínu áliti engin tilviljun aö íslendingar séu meöal þeirra þjóöa sem ná hæstum aldri. Þar í hygg ég að hollur og góöur matur eigi ef til vill stærstan þáttinn. Ég get ekki lokiö þessari grein án þess að minnast á það fáheyrða ofríki, sem menntamálaráöherra sýndi útvarpsstjóra á síðasta ári í sambandi viö Hrafn Gunnlaugs- son og ekki síður þau gerræöis- legu vinnubrögö sem sjálfur for- sætisráöherra sýndi útvarpsstjóra í tengsliun við brottrekstur Art- húrs Björgvins Bollasonar frá Rík- isútvarpinu. Slíkt hygg ég að sé al- gert einsdæmi í sögu Ríkisút- varpsins. Og ræða sú, sem forsæt- isráðherra hélt á Alþingi mánudaginn 7. febrúar í utandag- skrámmræðunni þann dag sér til vamar, mun lengi veröa í minn- um höfð. Þar var líkast því aö þrettán ára gamall reiöur strákur væri í ræöustól á Alþingi, en ekki forsætisráöheiTa landsins. Þvílík ræða. Ég trúi ekki öðm en Davíð eigi lengi eftir aö sjá eftir þeirri fljótfæmislegu ræðu sem hann flutti þá. Það dylst engum hugsandi manni aö Sjálfstæðis- flokkurinn bíöur færis aö fá átyllu til þess aö reka útvarpsstjóra og gera einhvem þægan sjálfstæðis- mann að eftirmanni hans. Hokknum er ekki nóg aö ráöa yf- ir langstærsta og útbreiddasta dagblaði landsins, heldur ætlar hann með illu eöa góðu aö ná al- geram ráðum yfir Ríkisútvarpinu og þar meö Sjónvarpinu einnig. Atvinnumáíastefna þessarar rík- isstjómar er nánast þjóöarfjand- samleg. Hún er nánast þannig að drepa niöur alla innlenda fram- leiðslu og flytja inn allar hugsan- legar vörur, hvort sem hægt er aö framleiöa þær eöa ekki innan- lands á viöráöanlegu veröi. Þá má einnig minna á að afurðalán til sláturleyfishafa em skorin svo viö nögl aö þeir geta ekki staðið bændum skil á andvirði inn- lagöra vara, eins og lög mæla fyr- ir um. Þar eiga bankamir stærsta sök á og bankamálaráðherrann skiptir sér ekkert af því. Á sama tíma em hinir og aörir aö gjamma um að sláturhúsin eigi að taka á sig auknar byrðar til lækkunar á kjötverði. Þessir menn vita bók- staflega ekkert um hvaö þeir em aö tala. Skrifaö 13. febrúar 1994 Höfundur er fyrrum bóndi. Indónesía um síbustu aldamót Fréttir * bokum Child of All Nations, eftir Pramoedya Ananta Toer, Morrow, $ 22,00. í ritdómi í New York Times Book Review 30. janúar 1994 sagöi: „í Child of All Nations (Allra þjóöa bam) spinnur Pramoedya Ananta Toer, leiknasti skáldsagnahöfund- ur Indónesíu, saman litauðugan vef úr þáttum í stjómmála-, menningar- og félagslífi í hol- lensku Austur-Indíum um alda- mótin 1900. Samt sem áöur standa sögupersónur hans frammi fyrir mörgum hinum sömu átaka- málum (tensions) — rétti til jarö- næöis, rétti verkafólks og rétti kvenna, — sem hrjá land hans hundrað áram síðar. „Bam allra þjóöa," sem Max Lane hefur þýtt vel, er hiö annað í fjögurra binda skáldsögu, sem Pramoedya samdi á hinni afskekktu eyju Bum, þar sem ríkisstjóm Indónesíu hafði hann í haldi sem pólitískan fanga frá 1965 til 1979. í Malasíu er stúdentum í bók- menntum áskiliö aö lesa þessa fjögurra binda skáldsögu hans, en í Indónesíu em öll verk Pramoe- dya bönnuö, vænd um marxískan áróður. Pramoedya segir John Reinventing the Future: Conversations with the Worid's Leading Sdentists, eftir Thomas A. Bass. Addison-Wesley, 272 bls.,£ 24,95. í ritdómi í New Saentist 5. febrú- ar 1994 sagöi: „Við hvem viljið þið ræða? ... Luc Montagnier um HlV-veiruna eöa Thomas Mann um baráttuna gegn alnæmi? Steinbeck vera einn eftirlætishöf- unda sinna, og er með þeim aug- ljós skyldleiki; eins og Steinbeck nemur hann söguna af ævi fólks sem yrkir jöröina og sem stigur berfætt upp í þriðja farrými í jám- brautarlestum og sem „býr viö ve- sæld sakir þess eins, aö það á ekki jaröarskika". Kvöld eftir kvöld Sarah Hardy um rannsóknir á öp- um? Richard Dawkins um upptök líffræðilegs margbreytileika? Bert Sackmann um taugaþræði í himnum fmrna?" „Bass á sér starfsskrá — aö draga fram samskipti vísinda, siöfræöi, stjómmála og breytinga, sem af uppgötvunum hljótast ... allt frá sagöi Pramoedya söguna sam- föngum sínum og skerpti þannig frásagnargáfu sína og skóp eina dýrðlegustu sögupersónu bók- mennta Indónesíu: Nyai, fylgi- konu sem þroskast upp í að veröa sjálfstæö kona og, eins og höfund- ur sinn, tekur ekki ósigri, jafnvel þótt löghelgaöur hafi veriö." líkönum Packards af mörkuðum verðbréfa til röksemda Ðawkins, fram settra af trúarlegri ákefð, gegn eölislægum tilgangi í náttúr- unni. Sameindalíffræöi vekur skyndilega spumingar um starfs- hætti heilans... Faouk El-Baz tel- ur, ab bátar faraós eigi aö figgja óhreyföir í jörbu." Rætt viö vísindamenn FÖSTUDAGS- PISTILL ÁSGEIR HANNES Óhábir rába úrslitum í vor Breytt heimsmynd síðustu árin hef- ur kallab á einföldun vibfangsefna á flestum sviðum. Einkum hefur þessi þróun veriö augljós í verslun og viöskiptum á milli landa og inn- anlands. Smásalar kaupa nú vömr sínar meira beint frá framleibend- um eöa í gegnum stór innkaupa- samtök og heföbundnir heildsalar gamla tímans eiga því í vök ab verjast í dag. Einföldunin nær líka til fleiri greina vibskipta hér á landi og kemur fram í vaxandi samein- ingu fyrirtækja. Dæmi: Alþýöubanki, lönaöarbanki og Verslunarbanki keyptu Útyegs- banka og slógu saman í íslands- banka hinn síöari. Brunabótafélag- ib og Samvinnutryggingar samein- uðust í VÍS og Sjóvátryggingar og Almennar tryggingar í Sjóvá-AI- mennar. Dagblaöiö og VTsir uröu aö DV og svona mætti áfram telja. Engum manni kemur því í opna skjöldu aö þróunin haldi áfram yfir í pólitíkina og nú hillir undir sam- mna af þessu tagi, þegar fjórir stjómmálaflokkar bjóöa fram einn lista til borgarstjómar í Reykjavík. Of snemmt er ab spá um hvort listinn er vísbending um sammna á landsvísu í næstu þingkosning- um, en Ijóst er aö tilraunin eflir talsmenn sameiningar í trúnni. Hér er kominn fyrstí vísir aö tveggja flokka kerfi í landinu og Ijóst er aö íslensk stjómmál veröa aldrei söm og áöur. En þó ab víglínur skýrist meb þessum hætti, er ekki öll sagan sögö. Eftir prófkjöriö í Reykjavík em félagsmenn í Sjálfstæöisflokki um fjórtán þúsund talsins. Skráöir félagar í flokkunum fjómm á bak- viö sameiginlegt framboö em lík- lega nálægt sex þúsund manns. Samtals standa því um tuttugu þúsund Reykvíkingar aö framboös- listunum tveim eöa um 20% borg- arbúa. Stærstur hluti kjósenda er óháður flokkum og stendur þvf utan viö framboöin á kjördag. Kosningamar í vor veröa því væntanlega þær fyrstu í sögu Reykjavíkur þar sem aðeins tveir kostir em í boöi fyrir borgarbúa. Áöur hafa kjósendur valiö úr öllu pólitíska litrófinu og oftast átt fleiri valkosti meö nýjum framboöum. Pistilhöfundur er í miklum vafa um hvort forgöngumenn fram- boöanna tveggja hafa gert sér fulla grein fyrir þessum breytingum og afleiðingum þeirra. Með því aö fækka valkostum borgarbúa verða forgöngumenn listanna jafnframt aö bæta aökomuna aö framboði sínu. Aökoman veröur aö vera greiö fyrir þann mikla flölda óháöra kjósenda, sem stendur ut- an viö stjómmálaflokka og vill ekki láta kenna sig viö þá. Forgöngumenn listanna veröa aö búa breiðfylkingu óháöra kjósenda rúmgott skjól hjá framboöi sínu. Annars bjóöa óháöir fram sjálfir í Reykjavík í vor og þriöja afliö getur raskaö öllum hlutföllum í borginni. í kosningunum veröur ekki tekist á um kjósendur Alþýöubandalags, Alþýbuflokks, Framsóknar eða Kvennalista, heldur þann stóra hóp óháöra kjósenda sem kaus Sjálf- stæðisflokkinn síöast til borgar- stjómar. Búa verður í haginn fyrir óháöa kjósendur ef framboöslistamir vilja eiga erindi sem erfiöi á kjördegi.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.