Tíminn - 09.03.1994, Blaðsíða 6
..yl
WfwHwH
Mi&vikudagur 9. mars í994
UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM
Hreindýr stór-
skemma trjá-
plöntur í Skribdal
Um 300 hreindýr, sem veriö
hafa í Skriðdal undanfariö, hafa
stórskemmt trjágróöur sem
bændur hafa gróðursett viö bæi
og sumarbústaöi. Hreindýrin
hafa haldið sig niðri á láglendi
eftir aö snjóaði á heiöum efir
áramót. Að sögn eins viömæl-
enda Austra viröast dýrin ekki
hræöast menn eða hunda, þau
kippa sér aöeins til og eru kom-
in á sama staö um leiö og hætt-
an er afstaðin. Á meðan hægt
var aö notast við snjósleða til
aö reka þau bar lítiö á skemmd-
um, en eftir aö snjó tók upp
hefur veriö erfitt að stugga
þeim frá skógarreitunum. Dýr-
in virðast ekki sækja inn í þétt-
an skóg, heldur fara þar sem
gott er að liggja, s.s. í gróöur-
setta reiti og naga þar og brjóta.
Einum bóndanum finnst fjár-
hagstjóniö ekki þaö versta,
heldur aö öll sú vinna, sem
lögö hefur veriö í skógræktina
undanfarin ár, er glötuö.
Hólmaborgin
komin yfir 40
þúsund tonn
Nýlega rauf Hólmaborgin SU
40 þúsund tonna múrinn og er
langaflahæsta loðnuskipiö á
þessari vertíö. Hún var búin aö
veiða 38.500 tonn 21. febrúar
sl. Börkur NK var í fjórða sæti
með yfir 32 þúsund tonn og
Jón Kjartansson SU í fimmta
meö tæp 30.000 tonn. Þá var
búiö aö veiða 666.000 tonn og
voru liölega 400 þúsund tonn
eftir af kvótanum.
FEVKIR
1
SAUÐARKROKI
Risaskip í flota
Siglfirbinga
Þegar Siglfiröingar vöknuöu
fyrir rúmri viku lá þar viö
bryggju risaskip, það stærsta í
flotanum um þessar mundir.
Kominn var í heimahöfn Siglir,
fyrstur þriggja kanadískra tog-
ara sem hafa veriö keyptir til
landsins. Skipiö er í eigu Sigl-
firöings hf. og er tæplega 3000
rúmlestir aö stærð og áttatíu
metra langt, eöa tæplega fót-
boltavöllur á iengd. Skipiö telst
til svokallaöra fullvinnsluskipa,
veröur búið til bolfisk- og
rækjuyeiöa og einnig er mjöl-
verksmiöja og lýsistankur um
borö.
Að sögn Runólfs Birgissonar,
framkvæmdastjóra Siglfiröings,
er búiö aö opna tilboð í þær,
breytingar og lagfæringar sem
geröar veröa til aö búa skipið
sem best til togveiða. Stefnt er
að því aö skipið fari tii veiða
fyrir miðjan apríl og verður þá
haldiö til karfaveiöa á Reykja-
neshrygg. „Síðan munum viö
reyna að nýta allar þær „smug-
ur" sem finnast. Þetta skip get-
ur veriö lengi á veiðum í einu,"
sagöi Runólfur, en skipið verð-
ur gert út til úthafsveiða fyrir
utan 200 mílumar. Þaö er skráö
frá borginni Belize í Miö-Afr-
íku. Áhöfnin veröur um 35
manns og sagöi Runólfur aö
fjöldi umsókna lægi fyrir um
skipsrúm, sjálfsagt hátt í 100,
þannig aö ekki yröu vandræði
með aö manna skipiö.
Siglir er smíöaður árið 1975
og er næstyngsta skipið í flota
Siglfiröings. Aðeins Sunnan er
yngri.
Eyrugla finnst í
Hegranesi
Þegar heimilisfólkið á Hegra-
bergi í HegTanesi skyggndist til
veðurs sl. miðvikudagsmorgun,
veitti það eftirtekt ókunnugum
fugli sem var ósjálfbjarga í
hlaövarpanum. Viö eftir-
grennslan hjá Náttúrufræði-
stofnun kom í ljós aö þarna var
á ferðinni eyrugla, en komur
þeirra hingað til lands munu
vera mjög sjaldgæfar.
Einar Otti dýralæknir var kall-
aður til og komst hann aö
þeirri niðurstööu aö nauösyn-
legt væri að aflífa fuglinn.
Hann var greinilega mikiö lask-
aöur á væng, haföi flogið á eitt-
hvað og brotið vænginn.
í bókinni Náttúra íslands er
auk branduglunnar, sem algeng
er hér, aöeins getið snæuglunn-
ar sem verpti hér fyrr á öldinni,
en flækist nú stundum hingaö
til lands. Ekkert er minnst á
eyrugluna.
Samlméa
FRÉTT ABLAÐIÐ
SELFOSSI
Stefnt ab bygg-
ingu 40 þjónustu-
íbúba fyrir aldr-
aba
Áætlanir eru uppi um aö
byggja 40 þjónustuíbúðir fyrir
aldraöa í Laugarási í Biskups-
tungum. Þetta verkefni er hluti
af þróunarverkefni í uppsveit-
um Ámessýslu, sem sex sveitar-
félög standa aö og gæti styrkt
mjög atvinnulíf og byggö á
þessu svæöi. Unnið er af krafti
aö hönnun þjónustuíbúöanna
og skipulagi svæöisins, sem þær
eiga aö rísa á, en Kristjana
Kjartansdóttir hefur veriö ráöin
framkvæmdastjóri þessa verk-
efnis.
Gert er ráö fyrir aö íbúðimar
verði byggöar í kringum þjón-
ustukjarna, þar sem ætlunin er
aö bjóða upp á ýmsa þjónustu,
s.s. snyrtingu og hárgreiöslu og
jafnvel bankaþjónustu.
ALDAN
fréttablaó
Skíbalyfta á Snæ-
fellsjökul fyrir
pásjka
„Við erum aö undirbúa aö
setja upp skíðalyftu á jöklinum
og ætlum aö staðsetja hana
þannig aö hún geti veriö í
gangi mestallan ársins hring,
svo framarlega sem jökullinn
bráönar ekki og hverfur," segir
Tryggvi í Amarbæ.
Veitingasalan og gistiheimilið
Arnarbær, sem Tryggvi rekur á
Amarstapa, gekk vel sl. sumar,
en hann tók viö rekstrinum í
fyrra. Samhliöa veitingarekstr-
inum var hann meö vélsleöa-
leigu á Snæfellsjökli. Mikill
áhugi var hjá fólki á vélsleða-
feröunum. Margir nýttu sér
sleðaferöirnar þannig aö þeir
höföu með sér skíöi og fóm af
sleöunum þegar upp var komið
og renndu sér svo niður.
Með því aö koma upp lyftu á
jöklinum ætlar Tryggvi aö
lengja hjá sér ferbaþjónustu-
tímabiliö um 4 mánuði, þannig
að þaö veröi frá mars og fram í
nóvember. „Viö eigum alveg
möguleika á að gefa fólki kost á
að renna sér á jöklinum um
helgar þegar gott er veður, þótt
kominn sé vetur," segir
Tryggvi.
Hann stefnir á aö lyftan veröi
komin upp fyrir páska. Til aö
byrja meö veröur reistur skúr
upp viö jökulinn, þar sem fólk
getur skroppib inn og drukkið
nestib sitt og haft salernisaö-
stööu. Þannig á fólk að geta
dvalib daglangt á jöklinum.
í góbu vebri er gríbarlega mikib
og fagurt útsýni af Snæfellsjökli.
Siglir vib bryggju á Sigiufírbi. Eins og sjá má, er hér um risaskip ab roeba,
enda stœrsta fískiskip í fíota íslendinga.
Frá afhendingu styrkja úr rannsóknasjóbum Krabbameinsfélagsins. Á
myndinni eru styrkþegar ásamt forsvarsmönnum rannsóknasjóbanna.
F.v. jón Þorgeir Hallgrímsson formabur Krabbameinsfélagsins, Hólmfríbur
Cunnarsdóttir, Laufey Tryggvadóttir, Sólveig Crétarsdóttir, Valgerbur Sig-
urbardóttir, Sigurbur Ingvarsson, Steinunn Thorlacius, Krístján Skúli Ás-
geirsson, Helga M. Ögmundsdóttir, Ástríbur Pálsdóttir formabur vísinda-
rábs Krabbameinsfélagsins, og Tryggvi Pálsson formabur stjórnar Rann-
sókna- og tœkjasjóbs leitarstöbvar Krabbameinsfélagsins.
Rannsóknasjóöir Krabbameinsfélagsins:
Flestir styrkir til
rannsókna á
brjóstakrabba
Styrkjum úr rannsóknasjóðum
Krabbameinsfélags íslands var
úthlutað nýlega. Veittir voru
tíu styrkir og var heildarupp-
hæð þeirra 8,4 milljónir króna.
Aö þessu sinni fer meirihluti
styrkjanna til rannsókna á
brjóstakrabbameini, sem er
langalgengasta krabbamein
meöal kvenna hér á landi, eins
og víöa erlendis. Brjóstakrabba-
mein er mikiö rannsakaö um
þessar mundir og þykja íslend-
ingar standa framarlega á því
sviði. Styrkirnir eru veittir úr
tveimur sjóöum. Annars vegar
úr Rannsóknasjóöi Krabba-
meinsfélagsins, en úr honum
var úthlutaö þremur styrkjum,
samtals aö upphæö 1,5 milljón
króna, og hins vegar úr Rann-
sókna- og tækjasjóöi leitarsviðs
Krabbameinsfélagsins, alls sjö
styrkjum aö fjárhæð 6,9 millj-
ónir króna. ■
Allt aö 7 0 milljónum króna variö til markaössóknar
og þróunar í sídpaiönaöi:
Aðstoð viö öflun
nýrra verkefna
Þrátt fyrir magra tíma í skipa-
iðnabi á undanförnum árum
meö tilheyrandi gjaldþrotum,
greiöslustöbvunum og um-
talsveröri fækkun starfs-
manna í atvinnugreininni, er
taliö aö töluveröir möguleik-
ar séu framundan viö öflun
nýrra verkefna í greininni og
m.a. viö þjónustu erlendra
fiskiskipa. Þaö er þó háö því
aö lögum um landanir er-
lendra fiskiskipa í íslenskum
höfnum veröi breytt og aö
mati iönaöaráöherra mun
vera mikill vilji til þess.
Til aö hjálpa fyrirtækjum í
skipaiönaöi til aö afla nýrra
verkefna hefur iðnaðarráðu-
neytiö fengiö Iöntæknistofnun
til aö sjá um framkvæmd verk-
efnis á sviði markaðssóknar og
þróunar í skipaiönaði. Auk þess
hafa verið samþykktar reglur
um jöfnunaraöstoö til aö jafna
samkeppnisstöðu skipaiönaðar-
ins á móti erlendum ríkisstyrkj-
um í greininni og hefur ráðu-
neytið fengiö Iðnlánasjóö til að
annast framkvæmd þeirrar aö-
stoðar. En eins og kunnugt er,
þá samþykkti ríkisstjómin fyrr í
vetur aö veita 40 milljónum
króna til jöfnunaraöstoöar I
skipaiðnaði.
Markaös- og þróunarverkefnið
miöar aö því aö aöstoða fyrir-
tæki viö að takast á viö ný verk-
efni á sviði markaðs- og vöm-
þróunar og verður variö um 10
milljónum króna til verkefnis-
ins. Styrkur til einstakra verk-
efna getur numiö allt aö 60% af
samþykktum kostnaöi, þó aö
hámarki 1,5 milljón króna.
Jöfnunaraöstoöin veröur hins
vegar veitt vegna stærri endur-
bóta- og viöhaldsverkefna í
skipaiðnaði og einnig vegna
smíöi búnaðar og tækja í ný
skip. í reglunum um jöfnunar-
aöstoö er miðaö við ab verkefni
þurfi aö vera a.m.k. að upphæö
10 milljónir króna eða meira til
aö fá aöstoð og því aöeins aö
innlendur smíöakostnaöur véla
og tækja sé meiri en 50%. -grh
Innbrot í
Grinda-
vík
Þrjú innbrot voru framin í
Grindavík aöfaranótt mánu-
dags. Brotist var inn í grunn-
skólann, félagsheimilið Festi og
íþróttahús bæjarins. Litlu var
stoliö í innbrotunum, en
nokkrar skemmdir unnar, mest-
ar í félagsheimilinu þar sem tíu
innihuröir vom brotnar og úti-
hurðin mikiö skemmd. Á hin-
um stöðunum var einhverjum
peningum stolið. Málið er í
rannsókn hjá lögreglunni í
Grindavík.
-GBK