Tíminn - 21.04.1994, Page 6
6
\ > l
UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM
Austurland
Neskaupsta&un
Cób afkoma Síld-
arvinnslunnar
Aöalfundur Síldarvinnslunn-
ar hf. í Neskaupstaö fyrir 1993
var haldinn nýlega. Heildar-
velta félagsins á síðasta ári var
2,5 milljaröar króna, sem er
um 6% aukning frá árinu áð-
ur.
Rekstrartekjur námu 2319
milljónum króna og rekstrar-
gjöld án afskrifta 1768 milij-
ónum. Hagnaöur fyrir afskrift-
ir og fjármagnsliöi nam þann-
ig um 371 milljón króna.
Hagnaöur á reglulegri starf-
semi var 110,6 milljónir
króna, en aðeins 4 milljónir
áriö á undan. Að teknu tilliti
til gengistaps umfram al-
fnennar verölagsbreytingar og
annarra óreglulegra tekna,
nam hagnaöur félagsins á ár-
inu 50,4 milljónum króna.
Arösemi eigin fjár á árinu var
rúmlega tíu prósent og eigið
fé félagsins í árslok samkvæmt
efnahagsreikningi 480 millj-
ónir. Þess má geta aö kvóta-
eign félagsins er metin á rúm-
lega einn milljarð króna.
A fundinum var ákveöiö að
greiða 6% arö til hluthafa og
auka hlutafé félagsins um tíu
prósent með útgáfu jöfnunar-
hlutabréfa.
Eldisþorskur á
matseblum veit-
ingahúsa
Blængur NK 117, eitt af skipum Síldarvinnslunnar hf.
árinu 1936, en sundlaug var
fyrst byggö aö Laugalandi árið
1910. Aöeins er eftir aö setja
upp vatnsrennibraut, sem er
væntanleg meö vorinu, og
veröur þá laugin fyrst vígö
meö formlegum hætti.
Veibiþjófar í
Veibivötnum
Nýlega fór veiöieftirlitsmaður
frá Veiðifélagi Landmanna-
afréttar inn aö Veiðivötnum
til aö hafa þar upp á veiðiþjóf-
um, en grunur leikur á að þar
sé veitt bæöi með netum og
færum í heimildarleysi. Veiöi í
Veiöivötnum er stranglega
bönnuð yfir veiðitímann.
Veiöivörður og fylgdarliö
hans hittu fyrir fólk inn viö
vötn, en ekki er sannaö aö
fólkið hafi veriö þar viö veið-
ar. Aftur á móti sáust um-
merki um það aö hópur á
þremur til fjórum jeppum
heföi veriö viö veiðiskap.
Veiðivöröur fer nú reglulega
um vatnasvæðið til að hindra
frekari veiðiþjófnaö.
má segja aö nágrannar Skag-
firöinga hafi lagt þeim lið að
þessu sinni. í 2. sæti varð lag-
iö „Nú skal ég í Skagafjörö"
eftir Geirmund Valtýsson viö
texta Kristjáns Stefánssonar.
Jöfn í 3. sæti uröu lögin „í
ljósi dags og nætur" eftir Hörö
G. Ólafsson viö texta Erlings
Amar Péturssonar og „Meist-
araverkið" eftir Hólmar Sverr-
isson viö texta Þorleifs Kon-
ráössonar.
Akureyri:
Hátt í 90 manns í
átaksverkefnum
Nú eru samtals 88 manns í
átaksverkefnum á Akureyri, 76
á vegum Akureyrarbæjar og
12 á vegum fyrirtækja og ein-
staklinga. Verkefni þessi eru
styrkt af Atvinnuleysistrygg-
ingasjóöi. Að sögn Ármanns
Gylfasonar hjá Vinnumiölun-
arskrifstofu Akureyrarbæjar
hófust átaksverkefni 1994 í
fjórðu viku ársins og eins og í
fyrra eru þaö stofnanir Akur-
eyrarbæjar, fyrirtæki og ein-
staklingar sem fá mannskap.
Þorskur hf., sem er með
þorskeldi í tveimur kvíum í
Noröfirði, hefur sent nokkrum
veitingahúsum í Reykjavík
eldisþorsk og hafa veitinga-
menn hælt þorskinum á hvert
reipi. Fiskurinn er mjög hvítur
og nánast ormalaus og hefur
sérstakt bragð sem líkar mjög
vel. Eldisþorskur hefur einnig
veriö framreiddur í Hótel Eg-
Frá eldiskvíum Þorsks hf.
ilsbúö og hafa viðtökur verið
mjög góöar.
I janúar komu hingað starfs-
menn Hafrannsóknarstofnun-
ar og merktu fjölda fiska, fyrst
og fremst til aö mæla vaxtar-
hraöa þeira. Ljóst er aö fisk-
arnir í kvíunum þrífast mjög
vel.
Suméeuóka
FRÉTTABLAÐIÐ
SELFOSSI
Ný suhdlaug á
Laugalandi
Nú er tilbúin ný og glæsileg
sundlaug aö Laugalandi í
Holta- og Landsveit. Hún leys-
ir af hólmi gamla sundlaug frá
AKUREYRI
Húnvetningur
skaut skagfirsku
sveiflukóngunum
ref fyrir rass
Veglegt skemmtikvöld var
nýlega haldið í Bifröst á Sælu-
viku Skagfiröinga. Þar voru
dans- og tískusýningar og 10
lög kepptu til úrslita í dægur-
lagakeppni, sem undirbún-
ingsnefnd Sumarsæluviku
Skagfiröinga stóö fyrir. Úrslit-
in komu nokkuð á óvart, því
sveiflukóngarnir Geirmundur
og Höröur G. uröu að láta í
minni pokann fyrir Birni
Hannessyni á Laugarbakka.
Dómnefnd valdi lagið „Skag-
firska mannlífið" eftir Hún-
vetninginn Bjöm Hannesson í
1. sæti. Eyfiröingurinn Ingvar
Grétarsson söng lagiö og því
Húsavík:
Lögreglan klippir
Fyrir rúmri viku klippti lög-
reglan á Húsavík númer af 20
bílum á einum degi. Herferö
stendur yfir gegn bifreiðaeig-
endum um land allt, sem hafa
vanrækt að greiða áfallin gjöld
af bílum sínum, og fór átakið
ekki framhjá íbúum Húsavik-
ur.
Quðurnesja
Ly fréttir
Ný sundlaug
Grindvíkinga
Grindvíkingar tóku nýlega í
notkun nýja útisundlaug.
Hún er 25x12,5 og einnig em
tveir pottar og bamalaug með
skemmtilegum gosbrunni.
Sundkonan frækna Sigrún
Huld Hrafnsdóttir vígöi laug-
ina að viöstöddu fjölmenni og
síöan skelltu krakkar úr 7.
bekk sér í laugina.
Fimmtudagur 21. apríl 1994
Jóhann Hjartarson afhendir Gubjóni verölaunin.
Alls 207 grunnskólanemar kepptu í hraöskákmótinu
Leitinni oð Bobby Fischer í Háskólabíói:
Guöjón H. Valgarðs-
son, 9 ára, óvæntur
sigurvegari
Mjög óvænt úrslit uröu í
hraöskákmótinu „JLeitinni aö
Bobby Fischer" í Háskólabíói
um helgina. Því sigurvegari
varö hinn tæplega 9 ára
gamli Guöjón H. Valgarösson
úr Hólabrekkuskóla. Guöjón
vann í flokki 9-10 ára (meö 6
vinningum af 6). í úrslitun-
um lagöi hann síban Davíö
Kjartansson 11 ára ab velli,
en Davíb haföi áöur sigraö
Amar E. Gunnarsson 15 ára í
undanúrslitunum. Gríöarleg
þátttaka var í mótinu, því
keppendur voru 207 samtals.
Taflfélag Reykjavíkur og Há-
skólabíó stóöu fyrir þessu móti
grunnskólanema í tilefni af
frumsýningu myndarinnar
„Leitin að Bobby Fischer", sem
byggö er á sögu ungs banda-
rísks skákmanns, Josh Waitzk-
in, sem þótti svo mikið undra-
barn í skák að menn þóttust sjá
í honum nýjan Bobby Fischer.
Waitzkin hefur hins vegar ekki
staðið allskostar undir vænting-
unum.
Jóhann Hjartarson stórmeist-
ari setti mótið og sagöi m.a. frá
einvígi Fischers og Spasskys í
Reykjavík 1972. Skákborðið,
sem þeir tefldu á, er til sýnis í
Háskólabíói meðan á sýningu
myndarinnar stendur. Allir
keppendurnir, 207, fengu
ókeypis miða á myndina. Keppt
var í fjórum flokkum og í lokin
kepptu síöan sigurvegarar í
flokkunum innbyröis um aöal-
verölaun mótsins.
Úrslit í flokki 8 ára og yngri:
1. Magnús Már Magnússon 6
vinn.
2. William Kristjánsson 5 vinn.
3. Sveinn Sk. Höskuldsson 4
vinn.
Úrslit í flokki 9-10 ára:
1. Guðjón H. Valgarösson 6 v
2. Gunnar D. Sveinbjörnss. 5 v.
3. ívar Halldórsson 5 v.
Úrslit í flokki 11-12 ára:
1. Davíö Kjartansson 6 v.
2. Stefán Ö. Guðmundsson 5 v.
3. Hrafn Haröarson 4 v.
Úrslit í flokki 13-16 ára:
1. Arnar E. Gunnarsson 7 v.
2. Jón Viktor Gunnarsson 6 v.
3. Bergsteinn Einarsson 5 vinn.
í undanúrslitum vann Guöjón
H. Valgarðsson Magnús Má
Magnússon og Davíð Kjartans-
son vann Amar E. Gunnarsson.
Guðjón vann síðan Davíð í úr-
slitaskák. - HEI
Aðalfundur
Skagstrendings hf.
verður haldinn laugardaginn 30. apríl 1994 í Fells-
borg, Skagaströnd og hefst kl. 13.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 11. gr. félagsins.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum sem bera á ffarn á aðalfundi,
skulu vera komnar í hendur stjómarinnar eigi síðar en 7
dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá og reikningar félagsins munu liggja frammi á
skrifstofu félagsins 7 dögum fyrir aðalfund.
Stjóm Skagstrendings hf.
QCeðiCegt sumar
EL
LANDSVIRKJUN