Tíminn - 11.05.1994, Síða 2
2
wnMll11:2.1iuTníiíul
^r'F'PFF'F vWF
Miövikudagur 11. maí 1994
Tíminn
spyr...
Hver er skobun þín á því ab
Sýn rauf útsendingu frá Al-
þingi í fyrrakvöld?
Björn Bjamason alþingismabur:
Ég er þeirrar skoöunar aö Sýn hafi
brotiö samkomulag sem sjón-
varpsstööin geröi viö Alþingi meö
því aö rjúfa útsendingu meö þeim
hætti sem gert var. En ég er hins
vegar alveg undrandi á viöbrögö-
um stómarandstööunnar vegna
málsins og öllu því moldviöri sem
hefur oröiö vegna málsins. Al-
þingi íslands var stofnaö áriö 930
og það var ekki fyrr en fyrir örfá-
um ámm sem farið var aö sjón-
varpa þingfundum og að ætla að
fresta þingfundi eins og sumir
þingmenn fóm fram á er í hæsta
máta furðuleg uppákoma.
Valgerbur Svemsdóttir
Mín skoöun er sú að þetta var
brot á samningi sem gerður var á
milli Sýnar hf. og Alþingis. Það er
alltaf slæmt þegar menn brjóta
samninga og þaö kom fram hjá
Sýn í fyrradag að Alþingi mundi
sitja fyrir samkvæmt samningi.
Svo er það útvarpsstjóri, Páll
Magnússon, sem tekur ákvöröun
um þaö ab rjúfa útsendingar frá
Alþingi og hefur hann beöist af-
sökunar á því. Þaö hefur komib til
tals aö samningnum við Sýn veröi
sagt upp en ég á síbur von á því.
Kristín Astgeirsdóttir:
Mín skoöun er sú aö Sýn hafi rof-
ib samninga við Alþingi og aö Al-
þingi hafi veriö sýnd mikil óvirð-
ing þegar rödd efsta manns á lista
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
kom yfir mynd af einum þing-
manni stjómarandstööunnar. Það
var afar sérstakt að upplifa þab aö
útsending frá Alþingi skyldi vera
rofin til þess aö koma borgarstjóra
Reykjavíkur að í auglýsingamynd.
Þetta sýnir náttúrulega svo ekki
veröur um villst aö Sjálfstæöis-
flokkurinn er að fara á taugum í
þessari kosningabaráttu og beitir
öllum brögbum til þess ab koma
áróöri sínum út á mebal þjóöar-
innar, jafnvel þótt það brjóti í
bága vib geröa samninga.
Friörik Sophusson fjármálarábherra kallar Cubna Ágústsson vindhana og asna í umrœbum á Alþingi í gœr.
Hrollvekja í skýrsluformi
Gubni Ágústsson alþingismabur gagnrýndi ríkisstjórnina harblega í rœbu
sem hann flutti í tilefni afskýrslu Þjóbhagsstofnunar um skuldastöbu
heimilanna. Hér er Gubni ab rœba málin vib Ingibjörgu Pálmadóttur al-
þingismann. Tímamynd: GS
Til harbrar umræöu kom á Al-
þingi í gær vegna skýrslu Þjób-
hagsstofnunar um skuldastöbu
heimilanna. Guöni Ágústsson
alþingismaöur gagnrýndi ríkis-
stjómina harölega í ræöu sinni.
Guöni sagöi í samtali viö Tím-
ann aö umræöan heföi gengið
svo langt ab hæstvirtur fjár-
málarábherra hefbi kaÚaö
hann vindhana og skepnu
vegna ummæla hans um
skuldastööu heimilanna.
„Hér mun verða gert upp viö
Sjálfstæöisflokkinn og ekki síður
Alþýðuflokkinn sem er „últra"
hægriflokkur og hefur slökkt öll
ljós jafnaöarstefnunar. Hvar er
ungi stjórnmálamaöurinn sem
spurði og fór byggö úr byggö á
slitnum skóm frelsarans: „Hverjir
eiga ísland?" Hvemig hefur jöfn-
uði og lífskjörum fólks verið variö
eftir aö þessi leiðtogi komst til
valda? Heyrir enginn lengur skó-
hljóö hins þreytta verkamanns?
Heyrir enginn lengur andvarp
þess atvinnulausa. Hafa frjáls-
hyggjan, Evrópuhugsjónin og
gljáfægö gróðamusteri mamm-
onshyggjunnar svæft þennan
agnarsmáa en valdasjúka Alþýöu-
flokk Þyrnirósarsvefni," sagði
Guöni Ágústsson.
Og Guðni Ágústsson hélt áfram:
„Fólkið í landinu finnur aö það er
að tapa. Fólkið finnur aö þab er
vitlaust gefiö og rangt skammtaö.
Gjaldþrotastefnan og „Kemur
mér ekki viö stefnan" er stærsta
böl heimilanna og þaö stóö aldrei
til hjá hæstvirtum forsætisráö-
herra, þegar hann talaöi um vor í
okkar efnahagsmálum á eldhús-
degi Alþingis, að vorið yröi eign
allra þeirra sem um sárt eiga aö
binda. Heldur aöeins vor fyrir
einkavinavæðinguna. Þessi
skýrsla staöfestir þaö að fólkið í
landinu er aö tapa. Þessi skýrsla er
hrollvekja og gefur til kynna án
þess aö þaö sé sagt aö einhver
hluti af ungu fólki sé að missa
tökin á sínum málum meö þeim
hætti aö gjaldþrot blasi viö. Fé-
lagsmálastofnanir um allt land
greina frá óvenju mörgu fólki sem
er í neyð og þarfnast aðstoöar. At-
vinnuleysið og miklar kaupmátt-
arskerðingar, ekki síst vegna aö-
geröa ríkisstjómarflokkanna hér á
Alþingi sl. 3 ár, valda því að váleg-
ur gestur ber víöa aö dyrum. Þessi
vágestur er fátæktin og átta þús-
und manna atvinnuleysi. Ríkis-
stjórnin sýnir ekki nokkum vilja
eöa viöleitni til aö koma með
markveröar tillögur, enda segja
boðberar frjálshyggjunnar að viö
megum vænta þess sama og í EB.
Viö framsóknarmenn tökum
undir meö Bubba Morthens og
segjum hiklaust: „Atvinnuleysið
er komið til að fara,"„ sagði
Guðni Ágústsson meðal annars í
höröum slag á Alþingi í gær. ■
Ríkisendurskobun leggur nibur sjóbi:
Aðeins 350 íslend-
ingar að baki
hverjum sjóði
Ríkisendurskoöun lagbi niöur
137 sjóöi á síbasta ári. Samt
vom ennþá 634 sjóöir á skrá í
lok ársins, samkvæmt starfs-
skýrslu stofnunarinnar fyrir síö-
asta ár. En samkvæmt lögum
um sjóöi og stofnanir skal Ríkis-
endurskoðun halda skrá yfir
tekjur, gjöld, eignir og skuldir
allra skráöra sjóöa.
í samræmi viö sömu lög hefur
Ríkisendurskoöun markvisst unn-
iö aö því aö leggja niöur sjóði sem
eiga óverulegar eignir, þ.e. 50.000
krónur eða minna, eöa sameina
þá öömm sjóðum með svipað
hlutverk. Af þessu leiddi að 137
sjóöir vom lagðir niöur á árinu en
15 nýir sjóðir bættust viö.
Þrátt fyrir þessa „slátmn" áttu
landsmenn ennþá 634 sjóöi á skrá
um áramót. Samkvæmt þessu
hafa sjóbimir veriö 756 í ársbyrj-
un. Þaö þýöir aö einn skráöur
sjóbur hefur komið í hlut hverra
350 íslendinga, sem kynnu þar að
eiga enn eitt metiö.
Ríkisendurskoöun bámst reikn-
ingsskil frá 495 sjóöum á árinu.
Samanlagöar tekjur þeirra námu
2,3 milljöröum kr., en eigið fé
þeirra nam 6,2 milljörðum í lok
ársins. Þaö svarar til 12,5 milljóna
meöaleignar á hvem sjóð. ■
Fiskiöja Saubárkróks:
Islensk-þýsk vöru-
skipti með fisk
í vikubyrjun landaöi þýski
togarinn Europa frá Bremer-
haven 130 tonnum af ísuö-
um fiski til vinnslu hjá Fisk-
ibju Saubárkróks hf. Aflinn
var aballega þorskur, um 65
tonn, og 50 tonn af ýsu, en
hann var veiddur úr kvóta
ESB í Barentshafi. Verbiö fyr-
ir aflann mun vera svipab og
í vibskiptum hér innan-
lands.
Svo skemmtilega vill til að
togarar Skagfiröings hf. sigla
oft með karfa til heimahafnar
Europa og t.d. er togarinn
Skagfirðingur nýkominn úr
einni slíkri söluferð. Að mati
heimamanna er því þarna um
að ræða hálfgerö vömskipti
með fisk á milli íslands og
Þýskalands sem em hagkvæm
fyrir bába aðila. Af hálfu Fisk-
iöjunnar er vonir bundnar við
að framhald geti orðið á þess-
um viðskiptum við útgerb
þýska togarans.
Þýska útgerðin, Fischereige-
sellschaft Klaus Hartmann
Eurotrawler, mun vera eina ís-
fisktogaraútgerðin sem hefur
lifað af aflasamdrátt síðustu
ára í Þýskalandi. Togarinn Eur-
opa hefur m.a. áður landað
afla sínum í Færeyjum.
Kjararannsóknarnefnd opinberra starfsmanna:
Launamunur karla og kvenna mun meiri innan BSRB en BHMR:
Launamunur kynjanna í BHMR
1—5% fyrstu 25 starfsárin
Munur á meballaunum sem
ríkib greibir körlum og kon-
um í BHMR er á bilinu 1% til
5% — eba frá 600 til 6.000 kr.
— fyrstu 25 starfsárin. En yfir
3/4 allra BHMR-manna hjá
ríkinu hafa minna en 25 ára
starfsaldur. Hæst kemst
launamunurinn í 12,5% hjá
fólki meb 35—40 ára starfs-
aldur. Ab baki þeim saman-
burbi em hins vegar mjög fá
stöðugildi, því abeins 3%
BHMR-kvenna hjá ríkinu
hafa yfir 35 ára starfsaldur.
Þær 20—35 þúsundir króna
sem karlar hafa innfram kon-
ur í heildartekjur á mánuöi,
fá þeir því fyrst og fremst fyr-
ir meiri yfirvinnu og svoköll-
ub önnur laun.
Þessir útreikningar em gerðir
af Kjararannsóknamefnd opin-
berra starfsmanna og ná til
greiddra launa allra BHMR-
manna í starfi hjá ríkinu á síð-
asta ársfjórðungi 1993, sem þá
vom rúmlega 4.300 manns í
um 3.700 stöðugildum. Kring-
um 42% kvennanna vom í
hlutastarfi, en einungis 18%
karlanna.
Dagvinnulaun háskólamennt-
aöra karla og kvenna hjá ríkinu
em nærri þvi hnífjöfn fyrstu 5
starfsárin, um 79 þúsund krón-
ur. Mismunurinn vex smám
saman og er kominn upp í tæp-
lega 5% eftir 16—20 ár í starfi,
en flest BHMR-fólk hefur þann
starfsaldur að baki. Þá em dag-
vinnulaunin komin í 97.400 kr.
hjá konum en 102.000 kr. hjá
körlum. Heildarlaun kvenna
em 148.600 kr. en karlamir afla
hins vegar 179.100 kr. mánað-
artekna ab meðaltali, eða rúm-
lega 20% hærri, á fjórða árs-
fjórðungi 1993.
Hjá kennumm er launamunur
mjög svipabur og hjá BHMR-
fólki. En karlar jafnt og konur
(samtals um 3.900 manns í
3.200 stöðugildum) í kennara-
stétt em með nokkm lægri
meðallaun en fólk í BHMR.
Meðal kennara er hópurinn
meb 21-25 ára starfsaldur lang
fjölmennastur. Launamunur
kynjanna er hins vegar talsvert
meiri innan BSRB en hinna
samtakanna. Algengast er aö
meðallaun karla fyrir dagvinn-
una séu frá 7—12% hærri en
meðallaun kvenna í BSRB. Og í
heildartekjum fara BSRB-karlar
að meðaltali 35-40% umfram
konurnar. Algengast er að karl-
arnir hafi á bilinu 40—50 þús.
kr. hærri heildartekjur á mán-
ubi en konur innan BSRB.