Tíminn - 11.05.1994, Blaðsíða 3

Tíminn - 11.05.1994, Blaðsíða 3
Mi&vikudagur 11. maí 1994 'Sr »wwwww 3 Reykjavíkurlistinn kynnir ítarlega stefnuskrá: Baráttan vib atvinnu- leysiö sett á oddinn Frá blabamannafundi R-listans ígœr. Einar Örn Stefánsson kosningastjóri og Ingibjörg Sólrún Císladóttir borgarstjóraefni. rímamynd cs Baráttan við atvinnuleysið er for- gangsverkefni í stefnuskrá Reykj- avíkurlistans. Önnur helstu stefnumál listans eru dagvistar- og skólamál og stjórnkerfi borgar- innar. Reykjavíkurlistinn hefur gefið út ítarlega stefnuskrá þar sem markmiðum og forgangsröð listans er lýst. Atvinnumál Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir að listinn hljóti aö setja atvinnu- málin á oddinn á meðan 3.400 Reykvíkingar gangi atvinnulausir. Hún bendir á að það kosti samfé- lagið 1,5 milljón króna að einn maöur gangi atvinnulaus í eitt ár. Ef 3.400 Reykvíkingar séu at- vinnulausir að jafnaöi sé kostnað- urinn því um 5 milljarðar. „Því sjáum við aö það má kosta miklu til að vinna gegn atvinnuleys- inu," segir Ingibjörg Sólrún. í stefnuskrá Reykjavíkurlistans kemur fram að strax í sumar eigi að skapa 600-700 störf með sér- stökum átaksverkefnum. í þau störf muni þeir ganga fyrir sem lengst hafi verið atvinnulausir. Ingibjörg Sólrún leggur áherslu á að átaksverkefnin verði ekki at- vinnubótavinna heldur hafi þau innihald og tengist langtíma- stefnumörkun í atvinnumálum. Einnig er ætlunin að skapa störf fyrir fimm til sex þúsund skóla- nema í sumar. Þær leiðir sem Reykjavíkurlistinn hyggst fara til að auka atvinnu í borginni eru einkum fjórar: -Stofnim viðhalds- og endurbóta- sjóðs fasteigna sem láni nauösyn- legt fjármagn til framkvæmda. Bæði verði lánaö til viöhalds op- inberra bygginga og eigna borgar- búa sjálfra. -Framkvæmdum á vegum borgarinnar og fyrirtækja hennar verði flýtt. -Framkvæmdir borgarinnar og borgarstofnana verði skipulagöar fram í tímann svo hefjast megi handa við þær meö skömmum fyrirvara. -Efnt verði til atvinnu fyrir skóla- fólk við störf í snyrtingu og inn- hiröu borgarinnar og næsta ná- grenni hennar. Til lengri tíma lit- ið leggur Reykjavíkurlistinn Merkjasala á kjördag til eflingar Land- græöslusjóöi Landgræðslusjóður hefur á undanfömum áratugum rým- að mjög að verðgildi, auk þess sem hann hefur orðið af tekju- stofnum. Stjórn sjóðsins vinn- ur nú að því að gera hann sem virkastan til þess að geta stutt allt landbótastarf í landinu. Eitt af því sem menn hyggjast gera sjóðntun til eflingar er að selja merki hans á kjörstöðum viö sveitarstjórnarkosningamar 28. maí næstkomandi. Skóg- ræktarfélög víös vegar um land munu annast sölu merkjanna, hvert á sínu svæði. Merkiö sam- anstendur af þremur birkilauf- um á hringlaga fleti. ■ áherslu á nýsköpun og markaðs- sókn. Atvinnuþróunarsjóðiu, sem leggi fram fjármagn til aö koma álitlegum hugmyndum í fram- kvæmd, er ein leiðin til aö efla nýsköpun. Einnig er ætlunin að setja á laggimar nývirkjamiö- stöðvar þar sem fólk geti m.a. fengið aöstöðu til að þróa vinnu- ferli nýrrar vöm og búa til fmm- eintök. Aörar leiðir sem koma fram í stefnuskránni em aðstoð við að útvega litlum fyrirtækjum húsnæði, þróunarstöð matvæla, Hönnunarstöö, efling ferðaþjón- ustu o.fl. Reykjavíkurlistinn hyggst einnig koma á fót virkri vinnumiðlun á vegum borgarinnar þar sem at- vinnuráðgjafar taki fólk í einka- viðtöl til að hægt sé að veita hverjum einstaklingi þá aöstoð sem honum hentar. Lögð verði sérstök áhersla á aö útvega fólki sem komið sé yfir fimmtugt at- vinnu og gert átak í atvinnumiðl- un fatlaðra og málminnihluta- hópa. Skóla- og dagvistarmál Skólamálin verba í öndvegi hjá Reykjavíkurlistanum. í leikskóla- málum er markmiöið ab tryggja öllum bömum leikskólapláss, sein á þurfi að halda. Ingibjörg Sólrún tekur fram aö þótt nú séu um 2.300 börn á biðlistum eftir leikskólarými sé líklegt ab þörfin sé meiri. Hún leggur því áherslu á aö raunveruleg þörf fyrir leik- skólarými verði könnuð en borg- in hefur ekki staðiö fyrir slíkri könnun til þessa. Markmiöi sínu í leikskólamálum hyggst Reykjav- íkurlistinn ná í þremur áföngum: Haustið 1995 hafi öll böm á leik- skólaaldri, 3ja ára og eldri, fengiö þá þjónustu sem foreldrar þeirra óska sér. Haustið 1996 hafi sami árangur náðst fyrir öll börn 2ja ára og eldri og fyrir lok kjörtíma- bilsins fyrir öll böm frá eins árs aldri. Reykjavíkurlistinn telur jafnframt brýnt að fæðingarorlof verði lengt frá því sem nú er. Einnig verbi dagmæðrakerfið endurbætt þannig aö það þab verði ömggari kostur fyrir for- eldra en það er núna. Reykjavíkurlistinn telur að brýn- asta verkefniö í málefnum gmnn- skóla borgarinnar sé að einsetja alla gmnskóla og lengja skóladag- inn. Listinn setur sér 4-6 ára tíma- mörk til að ná einsetningunni og miðar við að á hverju ári veröi teknar í notkun 25- 30 kennslu- stofur. Einnig er ætlimin aö skóla- dagurinn verði lengdur í áföng- um, þannig ab allir nemendur geti verið 6-7 klukkustundir á dag í skólanum og eigi kost á hádegis- verði í skólanum. Félagsleg þjónusta Reykjavíkurlistinn leggur áherslu á að mótuð sé heildstæö stefna í málefnum bama og unglinga til 17 ára aldurs. Einnig að öflugt samstarf sé á milli þeirra sem sinna börnum og unglingum. í því skyni er ætlunin að skipta þjónustunni eftir hverfum og byggja upp foreldrafræöslu og fjölskylduráögjöf. Reykjavíkurl- istiim telur brýnt að endurvekja ferlinefnd fatlaðra og fela henni að gera áætlun um aðgengi fatl- aöra. Einnig að endurskoða reglur um ferðaþjónustu fatlaðra og efla starfsemina. í málefnum aldraðra leggur listinn áherslu á sjálfs- ákvörðunarrétt aldrabra og að þjónusta við þá sé margbreytileg en ekki stööluð fyrir alla. Byggja þurfi upp þjónustu viö aldraða í heimahúsum og fjölga hjúkmn- „Það gengur ekki ab kunnir þrotamenn séu verktakar hjá borg og ríki, sérstaklega þegar atvinnuástandib er eins og það er nú," segir í nýju bla&i Dags- brúnar. Dagsbrún vill að bak- gmnnur fyrirtækja og ferill for- svarsmanna þeirra sem bjóði í verk hjá borg og ríki ver&i at- hugaður. Tekib verbi tillit til fyrri verka og ferils verktaka vib mat á verktilboöum. Hvort fyrirtækin skili sínu til samfé- lagsins eða hvort urn sé ab ræða menn sem skipta reglulega um kennitölu fyrirtækjanna. Blaðiö greinir m.a. frá nýlegu út- bobi á vegum Reykjavíkurborgar, sem gekk að lægsta tilboði, sem einmitt var þessarar tegundar. „Nýtt nafn — ný kennitala — hreint borð" þrátt fyrir langan gjaldþrotaslóða viökomandi. „Hinir vammlausu lenda utan- garbs," segir Dagsbrúnarblaðið og arrýmum m.a. með því ab fjölga framkvæmdum við hjúkrunar- heimili í Suður- Mjódd. Fjármál Markmiö Reykjavíkurlistans er ab stööva bruðl og vanhugsaðar skyndiákvarðanir í fjármálum borgarinnar. Listinn telur að end- urskoða þurfi rekstur og stjóm- nefnir dæmi. Reykjavíkurborg hafi fyrir nokkru bobiö út bygg- ingu sem hýsa eigi menntastofn- un. „Gamalt og fróði, byggingar- fyrirtæki í Reykjavík sem þekkt er ab heiðarleika og góðum sam- skiptum vib viðskiptavini sína, starfsmenn, stéttarfélög og opin- bera abila um áratuga skeið átti annaö lægsta tilboöið." Lægst- bjóbanda var falib verkiö. Lægstbjóðandi sé hins vegar þekktur að allt öbmm háttum. „Framkvæmdastjóri þess fyrirtæk- is og eigandi sé maður sem í ár- anna rás hafi haft talsvert mikil umsvif. Hann hefur rekib fjölda fyrirtækja undir ýmsum nöfnum og nýjum og nýjum kennitölum. Fyrirtækin hafa flest oröiö gjald- þrota og valdið viöskiptavinum, starfsmönnum og ríkissjóöi ómældu tjóni. Á ámm áður hafði maður þessi starfsmenn á launa- skrá, bæði verkamenn og iðnaðar- kerfi borgarinnar m.a. meö því að dreifa valdi og ábyrgð eins og kostur er. Aö fagleg og fjárhagsleg ábyrgð fari saman og tilraun verði gerð til að semja við borgarstofn- anir um að þær veiti ákveðna þjónustu og fái til þess umsamið fjármagn. Setja eigi skýrar reglur um framkvæmdir á vegum borg- arinnar, m.a. skuli val á verkefn- um taka mið af arösemi þeirra. ■ menn en nú em þeir orönir sára- fáir. í þeirra stað fær þessi verktaki — og aðrir sem vinna á sömu nót- um og hann — fólk til að vinna verkin sem undirverktakar. Það þýöir aö hann er óbundinn af því að standa skil á staögreiðslu skatta, launatengdum gjöldum og lífeyrissjóðsiögjöldum." Dagsbrúnarblaðib segir að sú skylda hljóti aö hvíla á opinber- um aðilum sérstaklega, að gæta þess aö taka fremur tilboðum verktaka með ömggan fjárhags- legan bakhjarl sem séu þekktir að því að hafa allan aðbúnað starfs- manna samkvæmt lögum og regl- um. Verktaka sem hafi starfs- menn sína á launaskrá og standi skil á launum, launatengdum gjöldum og opinbemm, „enda þótt verktilboð þeirra séu ein- hverjum prósentum eba pró- sentubrotum hærri en tilboðs- gjafa sem þekktir em aö öðm. ■ Dagsbrún: Nýtt nafn — ný kennitala — hreint borö — og þar meö samdi Reykjavíkurborg viö lœgstbjóöanda: „Gengur ekki ab kunn- ir þrotamenn séu verk- takar hjá borg og ríki"

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.