Tíminn - 12.05.1994, Blaðsíða 7

Tíminn - 12.05.1994, Blaðsíða 7
Fimmjydagur 12. maí 1994 7 Tímamynd: CS Verölaunahafar Ragnar Freyr Pálsson, fram- reiðslunemi í Átthagasal Hótel Sögu (t.v.), og Brynja Guöna- dóttir, framreiöslunemi í Grill- inu á Hótel Sögu, sigruðu í Nor- rænni nemakeppni sem fram fór í Svíþjóð fyrir skömmu. Við mótslok var sérstaklega tekið fram hversu góð samvinna og skipulögð vinnubrögð hefðu verið á milli matreiðslu- og framreiðslunema íslenska liðs- ins meðan á keppni stóð. Mat- reiðslunemarnir em f.v. Hákon Már Örvarsson, nemi á Fiðlar- anum á þakinu, og Einar B. Guðmundsson, nemi á Hótel Óðinsvéum. ■ Samstarfsaðilar Lýðveldishlaupsins. Talið frá vinstrí: Sigrún Stefánsdóttir frá samtökunum íþróttir fyrir alla, Anna Margrét lóhannesdóttir verkefnisstjórí Lýðveldishlaupsins, Þórír jónsson formaður UMFÍ, Sigrún Gunnarsdóttir frá Heilsueflingu, og Elín Þorsteinsdóttir frá íslenskum sjávarafurðum. Lýöveldishlaup UMFÍ hefst formlega sunnudaginn 15. maí. Opnunarhátíöin veröur viö íþróttamiöstöö Fjölnis í C rafarvogi: Veldur lýður hlaupi? í tilefni 50 ára afmælis íslenska lýðveldisins hefur UMFÍ ákveðið að efna til sérstaks átaks í hreyf- ingu og útivist fyrir alla aldurs- hópa og mun verkefnið standa yfir frá 15. maí til 21. ágúst. Þetta átaksverkefni hefur verið kallað „Lýðveldishlaup UMFÍ 1994". Lýðveldishlaupið verður fram- kvæmt í samvinnu við Heilsuefl- ingu og samtökin íþróttir fyrir alla. Styrktaraðili Lýðveldis- hlaupsins er íslenskar sjávaraf- uröir hf. Markmiö Lýöveldishlaupsins er að fá sem flesta til að taka þátt í hollri hreyfingu og minnast um leið afmælis lýðveldisins. Fyrirkomulag hlaupsins Fyrirkomulag hlaupsins minnir nokkub á norrænu sundkeppn- ina forðum (200 metra sundið), nema nú veröur gengið, hlaupið eöa skokkað þrjá kílómetra. Ætl- unin er ab koma upp þátttöku- stööum við sundlaugar, íþrótta- velli, íþróttamiðstöðvar og á fleiri abgengilegum stöbum. Á þátt- tökustööum fær fólk afhentar sérstakar skráningarbækur, þar sem hvert hlaup er stabfest með stimpli. Heilbrigð ver&laun Verðlaun verða veitt bæði fé- lögum og einstaklingum. Félög fá peningaverölaun, en einstak- lingar fá verðlaunapeninga. Þeir einstaklingar sem hlaupa 30 sinnum fá bronspening, þeir sem hlaupa 40 sinnum fá silfur- pening, og þeir sem ná að hlaupa 60 sinnum eða oftar fá gullpening auk þess sem nöfn þeirra verða dregin úr potti þar sem vinningurinn er ferð til Bandaríkjanna. Þar verða heim- sóttar aðalstöðvar Iceland Sea- food, dótturfyrirtækis íslenskra sjávarafurða. En rúsínan í pylsuendanum og trompvinningurinn er að sjálf- sögðu aukin heilbrigði og vel- líðan allra þeirra sem taka munu þátt í hlaupinu sjálfum sér til heilsubótar. Lýðveldis- hlaupið hentar öllum meðlim- um fjölskyldunnar, ungum sem öldnum, og er þetta upplagt tækifæri til ab stunda útivist og holla hreyfingu á ári fjölskyld- unnar. Verkefnisstjóri Lýðveldis- hlaupsins er Anna Margrét Jó- hannesdóttir. Gulltoppur frá Þverá varð efstur í flokki 5 vetra, einstaklega litfagur. TfFhamynd CTK Vorsýning stóöhesta- stöövarinnar 1994 Hin árlega sýning Stóð- hestastöövar ríkisins í Gunnarsholti var haldin laugardaginn 7. maí. Þar voru sýndir þeir hestar sem aldir hafa verið upp á stöbinni. Er þar um að ræða 4ra og 5 vetra hesta. Þegar hestarnir hafa náð 5 vetra aldri eru þeir útskrifaðir af stöðinni og skilað til eigenda eftir sumarnotkun. Stöðvarhestarnir, sem nú fengu dóm, voru: Gulltoppur, rauðblesóttur og glófextur frá Þverá í Skíðadal með einkunn 7.93 fyrir byggingu og 8.00 fyrir hæfileika, aðaleinkunn 8.00. Gulltoppur, sem er mjög litfagur hestur, er undan Gassa frá Vorsabæ og Glóblesu frá Þverá. Hann stób efstur af 5 v. hestunum. Teigur, gráskjóttur frá Húsatóftum, Ám., einkunn 8.18 fyrir byggingu, 7.81 fyrir hæfileika, aðaleinkunn 7.99. Faðir Gáski frá Hofstöðurn, móðir Dáð frá Húsatóftum. Funi, raubur frá Stóra-Hofi, bygging 7.95, hæfileikar 7.84 aðaleinkunn 7.90. Faðir Kjar- val frá Sauðárkróki, móðir Nótt frá Kröggólfsstöðum. Há- varður, brúnn frá Hávarðar- koti, Rang., bygging 7.50, hæfileikar 8.10. Fabir Kjarval Sauðárkróki, móðir Sandra frá Hala. Þessir hestar hlutu fulln- aðardóm, en tveir hestar voru aðeins byggingardæmdir: A) Þorri, brúnn frá Þúfu, Rang., með 8.33 fyrir byggingu sem var næst efsta byggingarein- kunn stöbvarhesta á þessu vori. Faðir Orri frá Þúfu, móðir Hviða frá Þúfu. Þorri meiddist er hann var að leik úti í gerði nokkrum vikum fyrir sýningu. B) Taktur, svartstjörnóttur frá Ámagerði, Rang., með 8.05 fyrir byggingu. Faðir Hrafn frá Holtsmúla, móðir Snerra frá Árnagerði. Taktur var svo illa múkkaður að ekki var hægt að sýna hann í reið. Þannig var það líka meb þennan hest í sýningu í fyrra. Útkoman á 5 vetra hópnum er heldur slök, en taka verður tillit til þess að Þorri, sem fyrir- fram var talinn myndu standa efstur í þessum flokki með góða einkunn fyrir hæfileika, var úr leik. Hann stóð efstur 4ra vetra hestanna í fyrra og er talinn mikill gæðingur. Einnig var slæmt að missa Takt úr leik og að ekki skuli fást á hann HEJTA- MOT KARI ARNORS- SON fullnaðardómur. Það er von- andi að þessir hestar nái sér á strik fyrir forskoðun til lands- móts og ef heppnin er meb, má vænta þess að fjórir hestar í þessum aldursflokki nái inn á mótið og er það viðunandi út- koma. Hjörvar frá Arnarstöðum varð efstur í 4ra vetra flokki og efstur fyrír byggingu. Tímamynd CTK • blesóttur) frá Hrepphólum, Ám., bygging 8.00, hæfileikar 7.59, aðaleinkunn 7.79. Faðir Stígandi frá Sauðárkróki, móð- ir Von frá Hrepphólum. Báðir þessir hestar vom skeiblausir, þ.e. sýndir sem klárhestar. Þeir em báðir und- an hestum frá Sveini Guð- mundssyni. Þriðji hesturinn er Sveipur, moldótmr frá Skáney, Borg., bygging 7.88, hæfileikar 7.70, aðaleinkunn 7.79. Faðir Léttir frá Sauðárkróki (Sveins- línan), móðir Svala frá Skáney. Líklegt er að þessir þrir hestar fari inn á landsmótiö, en inn- tökuskilyrði fyrir þennan flokk þar er aðaleinkunn 7.80. Aðrir hestar í þessum flokki vom Kliður frá Ytra-Vallholti, Skag., og Stormur frá Varma- hlíð, Skag., en þeir nábu hvor- ugur einkunn til framhalds- vera á Stóðhestastöðinni. Mikill fjöldi fólks var saman kominn í Gunnarsholti til að fylgjast meb sýningunni og virðist því fjölga ár frá ári. Skipti sá hópur nú orðib þús- undum. Á máli manna mátti heyra að þeim þótm fjögurra vetra folarnir mest spennandi af Stöðvarhestunum, einkiun tveir þeir efstu. Auk þeina hesta, sem hér hafa verið taldir, vom sýndir hestar sem verið hafa í vetur í tamningu og þjálfun á Stöð- inni. Einnig var komið meb allmarga hesta til dóms vegna landsmóts. í báðum þessum hópum vom snillingar á ferð og verður gerð grein fyrir þeim í næsm grein síðar í vikunni. Nýjar stjörnur í 4ra vetra hópnum komu 5 hestar til dóms og í þeim hópi kom fram hestur meö mjög háa byggingareinkunn eða 8.45. Ef mig misminnir ekki, þá er þetta önnur hæsta ein- kunn fyrir byggingu hjá stöðv- arhesti, en Toppur frá Eyjólfs- stöbum var á sínum tíma hærri. Hjörvar brúnn frá Arn- arstöbum, Árn., bygging 8.45, hæfileikar 7,86 aðaleinkimn 8.15. Faðir Omr frá Saubár- króki, móðir Hrafntinna frá Amarstöðum. Hjörvar, sem er dóttursonur Hrafns frá Holts- múla, er með langhæsta bygg- ingardóm af afkvæmum sem sýnd hafa verið undan Otri. Sá, sem varð annar í röð- inni, er líka dóttursonur Hrafns, en það er Hrynjandi, rauður, tvístjömóttiu: (slitm-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.