Tíminn - 03.08.1994, Blaðsíða 4
4
WímUw
Mi&vikudagur 3. ágúst 1994
Hmímii
STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7
Utgáfufélag: Tímamót hf.
Ritstjóri: jón Kristjánsson
Ritstjórn og auglýsingar: Stakkholti 4, 105 Reykjavík
Inngangurfrá Brautarholti.
Sími: 631600
Símbréf: 16270
Pósthólf 5210, 125 Reykjavík
Setning og umbrot: Tæknideild Tímans
Prentun: Prentsmiðja
Frjálsrar fjölmiðlunar hf.
Mánaðaráskrift 1400 kr. m/vsk. Verð í lausasölu 125 kr. m/vsk.
Uppgjöf innan
fárra daga
Forsætisráöherra hefur nú gefið þá yfirlýsingu að
innan tveggja vikna verði tilkynnt hvort boðað
verði til haustkosninga. Yfirgnæfandi líkur virðast
á því að svo verði gert, og fyrir liggur að boðað
verði til kosninga áður en þing kemur saman, ef
ákveðið verður að rjúfa þing.
Það eru góð tíðindi að það skuli runnið upp fyrir
forustumönnum stjórnarflokkanna að samstarf
þeirra geti ekki gengið lengur. Hins vegar eru til-
burðir forsætisráðherra til þess að leyna uppgjöf-
inni dálítið broslegir. Það er reynt að skýla sér á
bak við tíðarfar og óheppilegar haust- eða vetrar-
kosningar og óheppilegan tíma fyrir páskahátíð-
ina.
Staðreynd málsins er hins vegar sú að verði
haustkosningar þann 1. október, þá er sá tími val-
inn vegna þess að ríkisstjórnin hefur gefist upp við
verkefni sín. Hún treystir ekki á meirihluta þing-
manna og treystir sér ekki til þess að kalla Alþingi
saman, hvað þá meir. Með þessari tímasetningu
kemst hún hjá því að leggja fram fjárlög, eða
nokkra stefnu í efnahagsmálum sem er föst í
hendi. Þannig er hægt að byggja upp kosningabar-
áttuna á almennu tali um að kreppunni sé lokið
og stöðugleiki kominn á í efnahagsmálum, eins og
haldið hefur verið að fólki nú upp á síðkastið,
bæði af forsætisráðherra og utanríkisráðherra.
Hin raunverulega staða er sú að fyrir liggur að
leggja fram fjárlög með tugmilljarða halla. At-
vinnuleysi er spáð áfram yfir 5%. Tekjur almenn-
ings í landinu hafa hríðfallið vegna samdráttar í
þjóðfélaginu og gjaldþrotin halda áfram með
þeirri keðjuverkun sem þau valda.
Stöðugleikinn, sem forustumenn ríkisstjórnar-
innar hæla sér af, felst í hagtölum sem af sam-
drættinum leiða, jákvæðum viðskiptajöfnuði og
lítilli verðbólgu. Þetta er hins vegar svo mikið
svikalogn að ríkisstjórnin treystir sér ekki til þess
að takast á við efnahagsmál á komandi vetri,
hvorki að leggja fram fjárlög né vera við völd þeg-
ar kjarasamningar standa yfir. Þetta er ritað í ljósi
þess að yfirgnæfandi líkur eru fyrir kosningum nú
1. október.
Það er hins vegar ljóst að því fyrr sem alvöru rík-
isstjórn kemst á laggirnar hér, því betra. Vanda-
málin eru stór framundan. Þrátt fyrir góða loðnu-
vertíð, sem hefur dregið úr skellinum í sjávarút-
veginum víða um land, er mikill aflasamdráttur í
þorski, sem skapar vandamál í sjávarútveginum
sem eru óleyst. Ríkisfjármálavandinn stafar ekki
síst af því að hjól atvinnulífsins snúast ekki. At-
vinnuátaksverkefni sveitarfélaga draga úr atvinnu-
leysi á sumrin, en þau eru tímabundin og atvinnu-
lífið er jafn vanmáttugt að veita öllum vinnandi
höndum verkefni. Á þessu hefur ekki verið tekið af
nægjanlegri alvöru þau þrjú ár sem ríkisstjórn
Davíðs Oddssonar hefur setið að völdum. Sundr-
ung hefur einkennt þennan tíma og deilur um af-
stöðu til manna og málefna, og hvorugur oddviti
stjórnarflokkanna hefur til fulls megnað að fylkja
sínu liði á bak við sig. Uppgjöfin blasir nú við, og
það á aðeins eftir að innsigla hana, en það mun
væntanlega verða gert innan fárra daga.
„Timinn, hann er fugl sem flýgur hratt..."
„Tíminn, hann er fugl sem flýg-
ur hratt / hann flýgur máske úr
augsýn þér í kveld," segir skáldið
Omar Khayyam þegar hann velt-
ir fyrir sér hinu merkilega fyrir-
brigði tímanum. Hann sá tím-
ann í líki fugls, en það er í sam-
ræmi viö tímaskyn okkar vest-
rænna manna að hann hreyfist.
„Enginn stöðvar tímans þunga
nið," stendur í kvæði Davíðs.
Til eru menningarheimar
byggðir á austrænum trúar-
brögðum þar sem þessu er öfugt
farið. Tíminn er í vitundinni sem
stöðuvatn, hann stendur kyrr.
Eins og nærri má geta hefur þetta
mikil áhrif á hugsunarhátt og
breytni mannanna.
Þessar hugleiðingar komu upp
hjá Garra þegar hann las Tím-
ann, með stórum staf, á föstu-
daginn og sá þar haft eftir forsæt-
isráðherra að kjörtímabilinu væri
lokið. í vitund Daviðs er tíminn
áreiðanlega fugl sem flýgur hratt,
og sennilega í hringi þannig að
ráðherrann verður snarruglaður í
ríminu. í Tímanum eru eftirfar-
andi ummæli m.a. höfð eftir ráð-
herranum:
„í raun tel ég aö hvort sem
kosningar verði í haust eða vor
þá hafi ríkisstjórnin setið út kjör-
tímabilið. Þetta er spursmál um
þrjá, fjóra mánuði og bara spurn-
ing um hagræði í kosningum til
eða frá, en ekki hvort ríkisstjórn-
in situr í eitt, tvö ár eöa þrjú ár."
Timinn flýgur svo hratt hjá
Davíð að í hans huga skrptir
engu máli hvort um er að ræða 1.
GARRI
október 1994 eða 1. apríl 1995.
Að sönnu er tíminn fljótur að
líða, en þaö getur ýmislegt gerst á
þeim sex mánuðum sem Garra
telst að séu þarna á milli. Á þess-
um tíma átti meðal annars að
halda eitt Alþingi af þeim fjórum
sem tilheyra hverju kjörtímabili,
en svoleiðis smámunir skipta for-
sætisráðherrann ekki miklu máli.
Fleiri dæmi um mjög einkenni-
legt tímaskyn forsætisráðherra
rifjast upp í þessu sambandi.
Hann staðhæfði eitt sinn á heitu
sumri að úthlutun kvóta úr hag-
ræðingarsjóði til jöfnunar vegna
skerðingar á þorskafla færi fram,
„eftir helgina" eins og hann
sagði. Fólk með þetta venjulega
tímaskyn hélt að þetta væri eftir
næstu helgi, en að minnsta kosti
ár leið þar til látið var til skarar
skríða. Þetta er álíka og tímaskyn
Hjörleifs Guttormssonar í ræðu-
stól, þegar Steingrímur Sigfús-
son, flokksbróðir hans, lét hann
hafa miða rétt fyrir tólf á hádegi
og bað hann að tala til korter yf-
ir. Hjörleifur sendi orðsendingu
til baka, sem hljóðaði svo: „Kort-
er yfir hvað?"
Garri hefur þann djöful að
draga að vera dálítið tortrygginn
og getur ekki varist þeim grun aö
hér sé Davíð að plata og viti það
ósköp vel að það gerist sitt af
hverju á sex mánubum. Jóhanna
og þversummenn í Sjálfstæðis-
flokknum gætu farib að sprikla.
Jón Baldvin muni fara til Brussel
og segja þar einhverja vitleysu.
Fribrik gæti lagt fram fjárlög með
fimmtán milljarða króna halla,
og launafólk fari jafnvel að
heimta hærra kaup til þess að
standa straum af einhverju af
þeim álögum, sem búið er að
leggja á það á þessu kjörtímabili,
sem staöiö hefur í þrjú og hálft ár
og er búib samkvæmt tímatali
hans, sem segir ab þrjú og hálft
ár séu fjögur ár.
Hins vegar þakkar Garri sínum
sæla fyrir að Davíð er ekki undir
áhrifum austrænna trúarbragða
þar sem tíminn er í vitund
manna stööuvatn. Þá mundi
ennþá vera 1. maí 1991 í hans
huga og ekki von í ab losna við
ríkisstjórnina.
Ríkisstjórn lógaö
Það mat forsætisráðherra að
leggja stjórn sína niður þótt f jórð-
ungur sé eftir af þingstörfum
kjörtímabilsins er hárrétt. Stjórn
sem er sjálfri sér sundurlynd og
flokkar sem enga samleið eiga í
mikilvægustu málum eru aðeins
til óþurftar. Þab er því þjóðþrifa-
verk að stytta lífsstríð hennar eins
og Davíð lofar aftur og aftur og
verður merkasta embættisgjörö
hans síðan hann var dubbaður
upp til forsætisráöherra eftir að-
eins nokkurra vikna þingsetu.
Flokkarnir eru í óða önn að
koma sér fyrir í startholunum og
búa sig undir skamma en harba
rimmu um athygli og velvilja at-
kvæðanna. Vegna tímaskorts
verður tæpast hægt að koma við
prófkjörum nema þar sem þab
liggur ljóst fyrir hvernig þau
munu fara. Því mun úrvalslið
flokkanna raða á listana og hinir
verðugustu hljóta öruggu sætin.
Veröur það mikil framför fyrir aft-
urhaldið.
Stórfylking og hreinleiki
Á vinstri vængnum eru mikil
tíðindi eins og venjulega og verða
héraðsbrestir í hverjum fjórð-
ungnum af öðrum þegar Jóhanna
fer yfir og leitar uppi krata til ab
egna upp á móti Jóni Baldvin og
flokki hans.
Stórfylking Ólafs Ragnars er í
sjónmáli eins og síöustu tvo ára-
tugina eða svo og söguleg nýmæli
að bresta á. íslandslistinn kemur í
kjölfar Reykjavíkurlistans og
skýjaborgirnar sindra og glitra
handan sjóndeildarhrings. En
það er ekki öllum gefið að sjá ljós-
ið.
Kvennalistinn er staðráöinn í að
halda pólitískum meydómi sín-
um á landsvísu þótt eitthvab hafi
fallið á skæran skjöld hreinleik-
ans í solli höfuðborgarinnar. í
þeim herbúðum er slegib á útrétt-
ar hendur vonbiðlanna sem telja
sér styrk að fulltingi kvennanna í
Á víbavangi
ímyndaðri breiðfylkingu íslands-
listans.
Jafnvel eru þau skilaboö send út
ab Jóhanna með langan ráðherra-
feril ab baki sé enginn aufúsugest-
ur meðal sannra femínista.
Hún er því á fullu ab stofna jafn-
aöarmannaflokk til að fleyta sér
inn á þing og verða þá jafnaðar-
mannaflokkarnir orðnir að
minnsta kosti þrír og glæsilegt úr-
val fyrir jafnaðarmenn að velja
úr.
Framsóknarflokkurinn siglir
beggja skauta byr til kosninga og
trúir á mátt sinn og megin og er
nú orðin alþjóðlegastur allra
flokka. í boði hans verður haldin
ráðstefna frjálslyndra flokka hér á
landi og mun margt stórnúmerið
úr heimspólitíkinni lýsa sam-
stöbu sinni meö Framsókn og tala
í nafni frjálslyndra miðjuflokka.
Þar sem Framsókn er hinn eini
og sanni íslandslisti er algjör
óþarfi að hafa samflot með öðr-
um í einhverju kosningabanda-
lagi um framsóknarstefnuna. Þeir
sem aðhyllast hana kjósa einfald-
lega Framsókn án aðstoðar eða af-
skiptasemi annarra.
Skruöningar
Jón Baldvin er staðráöinn í að
láta kjósa um Evrópustefnuna en
Davíð segir hana ekki vera á dag-
skrá og ætlar að efna til kosninga
bara til ab láta kjósa og færir fram
haldlítil rök með og á móti haust-
kosningum. Veigamestu rök-
semdir hans eru aö þingið sé
óstarfhæft og að meirihlutinn
geti ekkert gert af viti undir þrýst-
ingi vorkosninga. Er helst að
heyra á landsföðurnum að þing-
haldið verði ekki annað en langur
og strangur framboðsfundur.
Svona er ástandið tæpum tveim
mánuöum fyrir haustkosningar.
Ríkisstjórnin óstarfhæf þar sem
flokkarnir sem ab henni standa
eru á öndverðum meiði í öllum
helstu málum og klofningur og
alls kyns skruðningar innan
þeirra.
Þingmeirihluti er ekki fyrir
hendi í neinu því sem máli skipt-
ir og fjárlagagerðin í slíku upp-
námi vegna hallæra af manna-
völdum aö það er borin von að
frumvarp sem viðurkennir leiðin-
legar staðreyndir um efnahag rík-
isins fáist samþykkt.
Strandkafteinarnir í stjórnarráð-
inu eru \ rauninni að biðja aðra
þab bjarga þjóbinni úr háskanum
og veröur að virða við þá að þeir
eru ekki alvitlausir.
En um hvað á að kjósa vitum vib
ekki fyrr en að kosningunum
loknum.
OÓ