Tíminn - 05.08.1994, Síða 4
4
íjítuiim
Föstudagur 5. ágúst 1994
STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7
Utgáfufélag: Tímamót hf.
Ritstjóri: ]ón Kristjánsson
Ritstjórn og auglýsingar: Stakkholti 4, 105 Reykjavík
Inngangurfrá Brautarholti.
Sími: 631600
Símbréf: 16270
Pósthólf 5210, 125 Reykjavík
Setning og umbrot: Tæknideild Tímans
Prentun: Prentsmibja
Frjálsrar fjölmiblunar hf.
Mánaöaráskrift 1400 kr. m/vsk. Verð í lausasölu 125 kr. m/vsk.
Öfugþróun
Þeir, sem spyrna viö fótum gegn reykingum og
notkun vímuefna, eiga við ramman reip aö draga.
Mikið starf er unnið til að lækna fólk af fíkniefnaár-
áttu og miklar vonir hafa verið bundnar við fyrir-
byggjandi starf til að forða fólki frá að ánetjast eitur-
efnum og vímugjöfum. En nú blasir sú blákalda
staðreynd við, að kannanir meðal framhaldsskóla-
nema sýna að reykingar og vímuefnanotkun meðal
þeirra fer í vöxt fremur en hitt.
Mikið og gott starf hefur verið unnið til að upplýsa
börn og unglinga um skaðsemi eiturefnanotkunar í
þeirri von og trú að bægja hættunni frá og koma í
veg fyrir að ungmennin byrji nokkru sinni að ánetj-
ast óvananum. Áreiðanlega hefur starfið skilað góð-
um árangri og beint mörgu ungmenninu inn á heil-
næmari brautir og forðað því frá að verða reyking-
um og vímuefnanotkun að bráð. Það ber ekki að
vanmeta.
Rannsóknarstofnun uppeldis- og menntamála
gerði viðamikla rannsókn á vímuefnanotkun fram-
haldsskólanema 1992 og aftur í ár. Niðurstöðurnar
eru hrollvekjandi umhugsunarefni. Reykingar,
áfengisneysla og notkun annarra vímuefna er að
aukast meðal unga fólksins. Enginn hörgull er á
hassi, amfetamíni eða LSD á markaði og auðvelt er
að útvega önnur eiturefni, ef marka má niðurstöður
skoðanakannana. Áfengi í öllu formi er yfirfljótandi
og vandalaust að verða sér úti um það fyrir þá sem
eiga fyrir því.
Hér er aðeins um að ræða ástandið meðal unglinga
í framhaldsskólum. Engin ástæða er til að ætla að
ástandið meðal annarra hópa ungs fólks sé hótinu
skárra.
Ekki ber að skilja niðurstöðurnar svo að allur ung-
lingaskarinn sé lagstur í áfengisþamb, tóbaksneyslu
og dóp. Langt því frá. En eitthvað er að bila hjá ald-
ursflokknum, því neyslan er að aukast þrátt fyrir all-
an áróðurinn og forvarnarstarfið. Yfir helmingur
þeirra sem könnunin náði til neytir áfengis að
minnsta kosti mánaðarlega og fjórðungur hefur
svælt hass og ótrúlega hár hundraðshluti segist geta
útvegað ólögleg vímuefni. Markaðurinn er greini-
lega yfirfljótandi af vímuefnum af öllu tagi og svar-
ar kröfum aukinnar neyslu.
í öðrum Evrópulöndum er þróunin svipuð og sums
staðar mun örari en hér. Aukin menntun og fræðsla
kemur ekki í veg fyrir að ungir sem eldri fórni lík-
ama sínum og sálarfriði fyrir skammvinna eitur-
efnavímu.
Ekki dugir að leggja árar í bát þótt móti blási og
enn er þörf að herða á fræðslu og áróðri gegn vímu-
efnaneyslu. Forvarnarstarfið meðal ungmenna er
miklvægast, því gangi það upp kemur að því að
markaðurinn fyrir vímuefni hverfur með öllu.
Smygl og eiturefnasala væri ekki fyrir hendi ef ekki
væri markaður fyrir varninginn. Því ber að leggja
höfuðáherslu á að uppræta neysluna. Það verður
aldrei gert nema með því að kanna á heiðarlegan
hátt og undanbragðalaust hverjar eru helstu ástæð-
ur fyrir því að ungt fólk, sem á að vita betur, gerist
þrælar vímuefnanna. Hverjir eru helstu áhrifavaldar
á lítt mótaða hugi unglinga á viðkvæmu þroska-
stigi?
Hér er kannski fyrst og fremst við siðferðileg
vandamál að kljást og úrkynjun heilbrigðra við-
horfa. í baráttunni við vímuefnanotkunina verður
að líta til fleiri átta og komast að því hvað gerir hana
svona eftirsóknarverða í augum unga fólksins. Eða
hvað veldur kæruleysinu gagnvart hættunni.
Allt eftir bókinni
Fátt kemur þjóöarsálinni svo
úr jafnvægi sem tilfærslur í
utanríkisþjónustunni. Á
fyrstu árum lýðveldisins var
meginreglan sú ab skipa upp-
gjafastjórnmálamenn í sendi-
herrastöbur. Var það almenn
skoðun að þeir væru best
fallnir til þess að verja hags-
muni landsins á erlendri
grund. Þegar fram liðu stund-
ir óx úr grasi stétt atvinnu-
fólks sem taldi sig eiga meiri
rétt á slíkum stöbum, bæði
vegna menntunar og reynslu,
og ekki síður vegna þess ab
fyrrverandi stjórnmálamenn
hefðu oft á tíðum litla hug-
mynd um þau verkefni sem
sendiráð eiga að annast. Um
hríð dró úr þessum pólitísku
veitingum í sendiherrastöður,
en þó hefur alla tíb veriö pláss
fyrir stjórnmálamenn úr rétt-
um flokki í þessar eftirsóttu
stöbur. Það er ein meginregl-
an í íslenskum stjórnmálum á
lýbveldistímanum ab fyrrver-
andi formenn Alþýbuflokks-
ins séu skipaðir í sendiherra-
stöbur, með tveimur undan-
tekningum.
Glas í hendi
og kökudiskur
Nú hefur þjóðarsálin komist
úr jafnvægi, ekki vegna þess
að fyrrverandi formaður Al-
þýðuflokksins eigi að verða
sendiherra viö hirð hennar
hátignar Elísabetar II, heldur
út af þeirri sjálfsögðu rábstöf-
un abjakob Frímann Magnús-
son skuli vera í forsvari fyrir
jakob Frímann Magnússon
sendiráðið í Lundúnum þang-
að til Kjartan kemur.
De Gaulle hafði lítib álit á
sendiherrum og utanríkis-
þjónustu yfirleitt, enda taldi
GARRI
hann að þjóðarleiðtogar ættu
að gera út ummálin sín í milli.
Sendiherrar væru í besta falli
abstoðarmenn fólks í vand-
ræðum, og þyrftu ella ekki að
kunna annaö en halda á glasi
og kökudiski í annarri hend-
inni og heilsa viðmælendum
sínum með hinni. Það þarf að
vísu styrka hönd og sterkar
taugar til þess ab ná slíkri
leikni, en meb þolinmæði og
æfingu tekst flestum það.
Góöur
menningarfulltrúi
Jakob Frímann kann vafalaust
ráð til þess að komast klakk-
laust gegnum kokkteilbob, en
hann virðist þó hafa fengist
vib ýmislegt annað, og raunar
sýnt með dugnaði sínum og
hugkvæmni að hagsmunum
landsins er ekki síður hægt að
þjóna með uppákomum og
auglýsingabrellum en eftir-
mibdagsdrykkju og blabri út í
bláinn.
Þjóðin láti nú huggast. Jakob
sér um ab kynna ísland og ís-
lenska menningu í öllum sínum
undarlega margbreytileik, og
svo kemur fyrrverandi formaður
Alþýðuflokksins eftir hinni nær
ófrávíkjanlegu reglu um stöðu-
veitingar og sér um hitt. Garri
Vegir og
Það er ef til vill að bera í bakka-
fullan lækinn að skrifa um vegi
og umferð, en þó vil ég freistast
til þess nú eftir verslunarmanna-
helgina.
Umferð þá var ekki meiri en
um venjulega sumarhelgi. Sann-
leikurinn er sá að umferð er allt
sumarið mjög þung um helgar,
einkum í nágrenni höfuðborgar-
innar. Batnandi vegir og mikil
sumarhúsaeign eiga þarna með-
al annars hlut ab máli. Algengt
er ab bílaröðin sé lítt rofin aust-
ur fyrir fjall og á Vesturlandsveg-
inum og á sumrin er umferð
innlendra og erlendra öku-
manna mikil um land allt.
Batnandi vegakerfi
Nú fer að fækka þeim köflum á
hringveginum frá Reykjavík til
Akureyrar og Hafnar í Horna-
firði sem eru með malarslitlag.
Hins vegar eru langir kaflar á
sama vegi á Noröausturlandi og
einkum á Austurlandi sem enn
eru með malarslitlagi. Þessir
kaflar verða því hættulegri sem
aðrir vegir verða betri. Þar að
auki er fjöldi malarvega í öllum
landshlutum utan hringvegar-
ins sem bera mikla umferb.
Það er afar brýnt ab gera enn
mikib átak í ab ljúka þessum
vegarköflum og leggja þá
bundnu slitlagi. Munurinn á
þeim og vegum sem byggðir
hafa verið upp á síðustu árum er
svo mikill og viðbrigðin fyrir
ökumenn veröa því meiri sem
þeir em vanari þeim góöu veg-
um.
Nýuppbyggðir vegir eru hæð-
armældir og réttir af með einni
akrein í hvora átt og miðlína
merkt. Á malarvegunum er
ekkert slíkt fyrir hendi og akst-
ur á þeim krefst sérstakrar þjálf-
unar.
umferð
Slitlagsáætlun
Af þessum sökum þolir það
enga bið að gert sé átak í að
ljúka slitlagsframkvæmdum á
malarvegum og rétt væri að gera
sérstaka áætlun í því efni og fjár-
magna hana sérstaklega. Hætt-
Á víbavangi
an á slysum vex mjög með svo
misjöfnu ástandi vega á land-
inu. Umferðarhraðinn vex á
góðu vegunum og einnig á mal-
arvegunum, einkum þegar
skiptir yfir á þá og oft hefur það
valdið slysum.
Ég ætla ekki að leiða neinum
getum að því hvað olli rútuslys-
inu fyrir norðan um verslunar-
mannahelgina. Þar voru vanir
bílstjórar á ferb. Sú er hins vegar
staðreyndin að það gerist á
vondum malarkafla efst í Ból-
staðarhlíðarbrekkunni sem ég
þekki mjög vel en heyrir nú
brátt sögunni til. Fjölmörg slys á
malarvegunum eru áskorun um
átak í slitlagsframkvæmdum.
Umferöarhra&inn
Hins vegar fylgir slitlagi á veg-
um hröð umferð, og satt ab
segja er furðulegt hvab margir
eru stressabiT í umferbinni.
Dæmi um þab sá ég á dögunum
er ég var á ferðinni fyrir ofan
Borgarnes á leið til Reykjavíkur
og ók fram á umferðarhnút
vegna stórslyss skammt frá
Borgarnesi. Ég ók yfir gömlu
Hvítarbrúna, en það stóð heima
þegar ég var kominn út undir
Hafnarfjall þá kom bílaröðin frá
Borgarnesi og sá ekki fyrir end-
ann á henni þegar hún rann í
átt til Melasveitar á hámarks-
hraða eða rétt þar undir. Þrátt
fyrir þetta voru ávallt nokkrir
bílar á vinstri akrein þar sem
menn voru að reyna að fara
fram úr tveimur til þremur bíl-
um í einu ef glufa fannst í röð-
inni. Meðan svona ökumenn
eru á ferðinni er ekki von á
góðu. Ef ökumenn aka á hæfi-
legum hraba í bílalestum, ekki
of hægt og ekki of hratt er allt í
lagi.
fón Kr.