Tíminn - 05.08.1994, Page 6
6
gPWtwH
Föstudagur S. ágúst 1994
Meb vabib
fyrir neban sig!
Þab er vissara oð fara ab öllu meb
gát þegar ekib er yfir óbrúub
vatnsföll. Þessi bílstjóri keyrbi yfir
Ábœjará ÍAusturdal í Skagafirbi
um síbustu helgi, en hcetti vib ab
fara lengra og snéri vib. Árbotninn
er stórgrýttur og getur verib vara-
samur og þess vegna þótti vissara
ab hnýta kabal yfir íannan jeppa
hinum megin vib ána, þegar farib
var yfir til baka.
Tímamynd ÁC
Ljósmyndasamkeppni
Evrópuráösins:
Áhrif mannsins á náttúruna
Evrópuráöiö hefur efnt til
ljósmyndasamkeppni í tilefni
af Náttúruverndarári Evrópu
1995. Keppnin er opin bæöi
áhugaljósmyndurum og at-
vinnuljósmyndurum og á
myndefnib ab vera náttúran
utan friblýstra svæöa.
Markmið keppninnar er aö
ljósmynda jákvæö eða neikvæð
áhrif mannsins á náttúruna, sér-
staklega á þeim svæðum sem
Evrópuráðiö hefur lagt áherslu á
í herferö sinni, þ.e. votlendi,
skóga, landbúnaðarsvæði, borg-
ir og bæi, iðnaðarsvæði, ferða-
manna- og útivistarsvæði, hern-
aðarsvæði, neðanjarðarmynd-
anir og vegakerfið. Ljósmynd-
um í keppnina ber að skila til
Evrópuráðsins, fyrir 26. septem-
ber nk. Póstfangiö er:
Council of Europe
Public Relations Service
Photography Competition
F-67075 Strasbourg-CEDEX
France
Dómnefnd, skipuð fimm at-
vinnuljósmyndurum og tveim
fulltrúum Evrópuráðsins, mun
velja bestu myndirnar í október
1994. Myndirnar verða metnar
eftir viðfangsefninu og tækni-
legri og listrænni útfærslu. Veitt
verða 33 peningaverðlaun og að
auki 16 verðlaun, sem eru fimm
Kodak filmur hver. Bestu mynd-
irnar verba notaðar í útgáfur
sem tengjast Náttúmverndarári
Evrópu 1995. Nánari upplýsing-
ar um keppnina fást hjá Um-
hverfisráðuneytinu.
Skilabob kríunnar:
Skotmenn hvattir til
þess aö skjóta ekki
gœsir fyrir 20. ágúst:
Gæsaveibi-
tímabiliö
nálgast
Þab styttist í ab þúsundir veibi-
manna axli byssur sínar og
haldi til gæsaveiba. Heimilt er
ab veiba gæsir frá og meb 20.
ágúst, en nokkur brögb hafa
alltaf verib ab því ab menn
reyni ab laumast til ab skjóta
gæs ábur en veibitímabiliö
hefst.
Samtök skotveibimanna hafa á
hverju ári varað við að drepa gæs-
ina í sárum, (þ.e. á meðan hún er
ófleyg, en gæsir fella flugfjaðrirn-
ar á hverju sumri og em ófleygar
á meðan nýjar eru að vaxa). Það
verður sjaldan of oft fyrir skot-
mönnum brýnt ab veiöimennsk-
an er ekki upp á marga fiska hjá
þeim sem stunda ab elta uppi
fugla í sárum og strádrepa til þess
að geta sagt frá mikilli veiði á eft-
ir.
Nokkur brögð hafa verið að því
undanfarin ár að skotveiðimenn
fari upp á hálendið nokkrum
dögum fyrir 20. ágúst. Sumir em
eflaust að skoða líklega veiðistaði,
en talib er að í sumum tilfellum
hafi menn byrjab veibi ábur en
þab var heimilt. Verði ferðamenn
þess varir eru þeir hvattir til ab
láta vita af því.
Þá er einnig rétt ab minna á að í
sumum tilfellum eru ungar ekki
orbnir fleygir þrátt fyrir að veibi-
tíminn sé byrjabur. Leyfilegt er
að skjóta fjórar gæsategundir hér
á landi: Grágæs, heiöargæs, hels-
ingja og blesgæs. ■
Aö þekkja og nýta náttúruna
I. Nokkuö hefur borið á svolítið rómant-
ískri og tilgerðarlegri náttúmdýrkun. Hún
felst m.a. í því aö nálgast náttúmfyrirbæri
með lotningu eins og framandi skurbgoð.
Látið er ab því liggja að firrtur nútímamað-
urinn þurfi að sækja innri frið og ró með
því einu að skoba og skynja óhefðbundið
umhverfi sitt, utan heimilis og þéttbýlis.
Kannski kristallast svona hugmyndir vel í
fyrirlitningu á selveiði útvegsbóndans, að-
dáun á ref í glerbúri, trúnni á ab endurnýt-
ing á pappír kvitti fyrir eigin umhverf-
issóðaskap og á bílgluggafræbum.
II. Auðvitaö er ekki neinn ásakaður fyrir
hræsni eða blindu með þessum orðum.
Þab er fyllilega óhjákvæmilegt að endur-
skobun á umgengni manna við íslenska
náttúru blandist einföldunum og skyndi-
lausnum, fjarrænni dýrkun eba hreinum
viðskiptasjónarmibum. Öllu máli skiptir
að viðurkenna að leggja þurfi vinnu í ab
horfa lengra og greiða úr miklu flóknari
vef en margur heldur. Og markmiðib? Get-
ur það verið annab en að þekkja náttúruna
til þess að nýta hana og til þess að lifa betra
og lengra lífi en ella, kynslóð fram af kyn-
slóð?
III. Góðra gjalda er vert að beina íslenskum
þéttbýlisbúum út í óbyggöir eða í strjálbýl-
ið og hamra á nauðsyn þess að menn njóti
vel. En samtímis þarf ab hefjast handa vib
UM-
HVERFI
Ari Trausti
Cuömundsson
jarbeblisfræbingur
brýn verk. Mig langar að nefna þrjú þeirra.
í fyrsta lagi nefni ég heildstætt mat á um-
hverfi okkar (samandregið og á manna-
máli). Það á aö svara því (og vera í stööugri
endurvinnslu) hvernig háttar með meng-
un lofts, grunnvatns, yfirborðsvatns og
sjávar. Hvernig er förgun sorps og ýmissa
efna háttab? í hve miklum mæli eru jarð-
myndanir og landsvæði skemmd? í hve
miklum mæli em vegir, hús og línulagnir í
óbyggðum? Hve mikil er landeyðing mib-
ub við landgræbslu? Hve mikiö hafa menn
breytt votlendi, fjörum eba vatnsföllum?
Hver er staða skóga og endurnýjunar
þeirra? Umhverfisráðuneyti á að skila
svona mati innan árs til brábabirgba. Þá
kemur fram meiri kjölfesta í náttúrusókn-
ina.
IV. í öðm lagi nefni ég fræöslu. Hún fer
fram víða, en þarfnast meiri samræmingar
og á ab aukast til muna. Fjölmiðlar, skólar
og bein fræðsla á vettvangi em þrír mikil-
vægir þættir. íslendingar hafa lengi lifað
sem ábyrgöarlitlir notendur náttúmnnar
og orðib fróðir um hana sem slíkir, en ekki
sem varfærnir vörslumenn. í fjölmiðlum
þarf ab auka frambob innlends efnis (með
umröðun fjármuna og auknum framlög-
um). í skólum þarf hið minnsta að tvö-
falda náttúmtengt efni og tengja meira af
því inn í almennar námsgreinar. í aukinni
almenningsfræðslu þarf ab nýta sérfræb-
ingana og bændur og sjómenn, sem sitja
inni með gífurlega þekkingu á lifandi og
dauðri náttúm. Það starf á að launa af sam-
eignarfé okkar, líkt og í skólakerfinu. Þetta
er verk handa menntamálayfirvöldum. í
þriðja lagi nefni ég vinnu á vettvangi. Með
því að búa til störf skólafólks og fullorð-
inna og launa með tímabundnum gjöld-
um af öllum ferðalöngum á sumum ferða-
mannastöbum er hægt ab vinna gífurlegar
bæmr þar sem við á. Til viðbótar á aö ýta
undir sjálfboðalibsvinnu meö ríkisstofn-
unum, félögum og fyrirtækjum með öllum
ráðum. Öll vettvangsvinna er kennsla í
náttúmfræðum, ef vel er ab staðið. Þetta er
verkefni handa félagsmálayfirvöldum.