Tíminn - 05.08.1994, Page 8
8
ÍKlttlíllllllööL
Föstudagur 5. ágúst 1994
Frakkar
senda
Japana
áloft
París, Reuter
Forráöamenn franska eld-
flaugafyrirtækisins Arianspace
hafa undirritaö samning um aö
koma tveimur japönskum sjón-
varpshnöttum á braut um-
hverfis jöröu. Sá fyrri fer í loftiö
áriö 1997 og sá síöari 1998.
Formælandi fyrirtækisins sagöi
aö þaö heföi veriö bandaríska
fyrirtækiö Hughes Communic-
ations International, en þaö sér
um smíöi sjónvarpshnattanna,
sem fór þess á leit viö Arian-
space aö fyrirtækiö smíöaöi
flaugar til aö koma gervihnött-
unum BSAT-la og BSAT-lb upp
í himingeiminn.
Arianspace hefur gengið frá
samningum við ýmsa aöra aö-
ila um geimskot og allt í allt
hefur fyrirtækiö skuldbundiö
sig til aö koma 41 sjónvarps-
hnetti á loft. ■
Júgóslavía
slítur sam-
bandi við
Bosníu-Serba
Belgrad, Reuter
Júgóslavía, Serbía og Svartfjalla-
land, lýstu því yfir á miðviku-
dag aö þau ætluðu slíta efna-
hags- og stjórnmálasambandi
viö Bosníu-Serba eftir aö þing-
menn þeirra höfnuðu alþjóða-
friðaráætlun.
Þing Bosníu-Serba hafnaöi
áætluninni en boöaði um leið
til þjóðaratkvæöagreiðslu um
málið. Karadzic, leiðtogi Bo-
sníu-Serba, sagði aö þjóöin yrði
aö búa sig undir aö aukin harka
færöist í stríðið og enn frekari
einangrun á alþjóöavettvangi.*
Norð-
menn
hafbir
útundan
Norömönnum hefur hvaö eftir
annað veriö kastað fram á gang
á fundum Vestur-Evrópusam-
bandsins. Norömenn eru eins
og íslendingar aðeins áheyrnar-
aðilar aö sambandinu. Arbei-
derbladet greindi frá þessu í
gær.
Vestur-Evrópusambandið er
hernaðarbandalag níu Evrópu-
sambandsríkja. Aöildarríkin
hafa hingað til ekki viljað ræöa
málefni þeirra ríkja sem eru
aukaaöilar aö þeim viöstödd-
um. Sigve Brekke hjá norska ut-
anríkisráðuneytinu sagöi í viö-
tali viö Arbeiderbladet í gær aö
Norðmenn yröu aö sætta sig
viö aö fara fram á gang þegar
ýmis önnur mál væru rædd. ■
#
Söguleg brú heyrir sögunni til
í vikunni var Torgauerárbrúin sprengd í loft upp en hún komst á spjöld sögunnar viö lok seinni heimsstyrjaldarinnar. Á henni miöri
mættust herir Sovétríkjanna og Bandaríkjanna. Á miövikudaginn var síöasti stöpull brúarinnar sprengdur. Bœjarfélagiö sá sér ekki
fœrt aö punga út sem svarar 250 milljónum íslenskra króna til aö borga fyrir nauösynlegt viöhald brúarinnar. Samtök bœjarbúa
sem vildu vernda þetta sögulega mannvirki gátu ekki sýnt fram á aö þau œttu möguleika á aö standa straum af viöhaldskostnaö-
inum.
Áfengismál Norömanna fyrir EFTA- dómstólinn?
Áfengiseinkasala
Norömanna samrým-
ist ekki EES-reglum
Greta Knudsen, viöskiptaráö-
herra Noregs, lét í gær undan
þrýstingi og opinberaði bréfa-
skipti norsku stjórnarinnar og
eftirlitsnefndar EFTA um rétt-
mæti þess aö ríkiö heföi
einkarétt á áfengissölu þar í
landi. Norska blaöiö Aften-
posten greindi frá þessu í gær.
í bréfi eftirlitsstofnunarinnar
kemur skýrt fram aö norskar
reglur um sölu áfengis samræm-
ast ekki þeim lögum sem gilda á
hinu evrópska efnahagssvæði.
Málið kemur því væntanlega til
kasta EFTA- dómstólsins og hef-
ur norska ríkisstjórnin fengið
frest til 25. september til aö
koma meö frekari réttlætingar á
áfengiseinkasölunni.
í viðtali viö fréttamenn í gær
gaf viðskiptaráöherrann lítiö út
á álit eftirlitsnefndarinnar og þá
staðreynd að stjórnin hehir
reynt að halda bréfaskiptum viö
nefndina leyndum.
Hætt vib alls-
herjarverkfall
í Lagos
Lagos, Reuter
Verkalýðshreyfingin í Nígeríu
hefur aflýst 'allsherjarverkfalli
sem staðið haföi í tvo daga til
aö liðka fyrir viðræðum við
herforingjastjórnina í landinu.
Boðað var til verkfallsins til að
knýja á um lausn Moshoods
Abiola, helsta baráttumanns
stjórnarandstööunnar í Níger-
íu.
Á miövikudag iétu þrír menn
lífið í Lagos í átökum lögreglu
og verkfallsmanna. ■
Frakkar saka banda-
menn sína um
óheilindi
París, Reuter
Frakkar sökuöu í gær Breta,
Þjóöverja og Bandaríkjamenn
um aö veita íslömskum bók-
stafstrúarmönnum frá Alsír hæli
í löndum sínum.
Franska stjórnin neitar aö ræöa
möguleika á aö hófsamir ísl-
amstrúarmenn gætu komist til
valda í Alsír. Þetta kom fram í
máli Charles Pasqua, innanrík-
isráðherra Frakklands, þegar
hann ræddi moröin á fimm
frönskum stjórnarerindrekum í
Algeirsborg á miövikudag.
Ráðherrann sagði að Frakkar
gættu þess aö stemma stigu viö
athöfnum bókstafstrúarmanna
þegar þeirra yröi vart í Frakk-
landi. Yfirvöld í Bretlandi,
Þýskalandi og Bandaríkjunum
létu aftur á móti hjá líba aö
grípa til viöeigandi ráöstafana
þó aö upplýsingum væri komiö
til þeirra um ólöglega starfsemi
íslamstrúarhópa. ■
LÁTTU EKKI OF MIKINN HRAÐA A
VALDA ÞÉR SKAÐA!