Tíminn - 10.08.1994, Page 4

Tíminn - 10.08.1994, Page 4
4 Miövikudagur 10. ágúst 1994 STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Utgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: Jón Kristjánsson Ritstjórn og auglýsingar: Stakkholti 4, 105 Reykjavík Inngangurfrá Brautarholti. Sími: 631600 Símbréf: 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Prentun: Prentsmibja Frjálsrar fjölmi&lunar hf. Mánaöaráskrift 1400 kr. m/vsk. Verö í lausasölu 125 kr. m/vsk. í miklum vafa Guðmundur Friðjónsson nefnir í ljóði þá, sem hafa "hugsun litla í miklum vafa". Ekki verður það sagt um forsætisráðherra lýðveldisins að hann hafi litla hugsun. Þvert á móti. Hann hugsar marg- ar stórar hugsanir um málefni þjóðarinnar. En hann er hins vegar í svo nrklum vafa að óþægilegt er orðið. Fyrir nokkrum dögum kvaðst hann vera að hugsa um láta kjósa í haust. Kjörtímabilinu sé hvort eð er svo til lokið, Norðurlandaráðsþing muni tefja alla kosningabaráttu og gera alþingi ó- starfhæft á útmánuðum og ekki sé hægt að stefna kjósendum út í páskrahretið til þess að velja sér löggjafa. í nokkra daga trúðu menn því að ráðherrann hefði tekið ákvörðun. Það er næsta óvenjulegt að sjálfur forsætisráðherra lands fari að tala um að rétt sé að kjósa til þings nema ákveðið hafi verið að það skuli gert á tilteknum degi. Sjálfstæðismenn brugðu auðvitað hart við og boðuðu prófkjör í hvelli. Þeir trúðu leiðtoganum. Stjórnarandstaðan fagnaði og Jóhanna fagnaði og fjölmiðlarnir fögn- uðu. Umhverfisráðherrann fagnaði og allir voru sammála um að þessu væri lokið. Davíð sagði að kjörtímabilinu væri eiginlega lokið, stjórnarand- staðan sagði að ævitími stjórnarinnar væri á enda, og fjölmiðlarnir fóru að taka saman eftirmælin. En utanríkisráðherra átti eftir að segja sitt. Hann blés til fundar á Akranesi og þar var ákveðið að taka ekkert mark á veðurspám forsætisráðherra. Hann gæti svo sem rofið þingið og látið kjósa þeg- ar honum sýndist, en þá væri það á hans ábyrgð og kæmi Alþýðuflokknum ekkert við. Og forsætisráðherra varð fórnarlamb efans. Stjórn- arandstaðan stóð með honum, fjölmiðlarnir þráðu kosningar til að lífga upp á haustið. Enginn hvikaði nema Jón Baldvin. Hann sagði ekkert knýja á um kosningar. Stjórnin væri góð og ætti eftir að gera enn betur. Davíð gafst upp, - í bili- og sagði að kosningar væru ólíklegri en fyrir viku. Hann vildi ekki styggja samstarfsflokkinn. Hann mundi hugsa málið. Ríkisstjórnin sem talin var af fyrir helgi er nú risin upp, að vísu fölari og þreytulegri en áður og eitt- hvað horfið af sjálfsörygginu, en reiðubúin að reyna á ný eins og hjón sem gera enn eina tilraun til að halda hjónabandinu áfram. En hvað um trúnaðartraustið, samstarfsviljann, gagnkvæma virðingu? Hvað um fjárlögin, sem eiga að gilda fyrir allt árið 1995 (og ekki bara fram að aprílkosningum)? Verða kannski Evrópumálin aðalmál kosninganna ef samningarnir við ESB verða samþykktir í þjóðaratkvæðagreiðslunum í Finnlandi, Noregi og Svíþjóð? Verður þessi væng- brotna stjórn að fást við að koma á nýjum samn- ingum við launafólk upp úr áramótunum um sama leyti og umboð hennar er að renna út? Verð- ur kannski kosið á jólaföstunni eftir allt saman? En málið snýst ekki um kosningar heldur um það, að ríkisstjórnin er ekki lengur samstæð, hún hefur gefist upp, - hvað svo sem forsætisráðherra ákveð- ur.. Formaður í fjömennum flokki má ekki vera of lengi "í miklum vafa". Fýlupokaframbob jafnabarmanna Eftir aö sérframboö Jóhönnu Siguröardóttur, sem ekki er enn orðið til, fékk þriöja hvert atkvæði í skoöanakönnun DV í vikunni, hafa stjórnmálamenn farið að velta fyrir sér nýjum stíi sem kynni að vera heppi- legri en gamla pólitískusafram- koman þar sem lævísi og lip- urö, tannkremsbros og fáguð framkoma eru í hásæti. Jó- hanna hefur brosað sjaldnar en aðrir stjórnmálamenn og oftar verið sökuð um fýlupokahátt en nokkur annar úr þessari stétt á lýbveldistímanum. Sér- staklega hafa samstarfsmenn Jóhönnu úr Alþýðuflokknum og stjórnarliöinu talað um vandamál sem upp koma vegna fýlukastanna og „frekj- unnar í kerlingunni" eins og fram kom m.a. í ummælum fjármálaráöherrans núverandi og utanríkisrábherrans í einu glanstímaritanna fyrir nokkr- um misserum. Uppskera fýlunnar Uppskera fýlunnar virðist hins vegar vera meiri en nokk- urn stjórnmálamann hefbi get- að dreymt um - 30% fylgi við framboð sem ekki er búið að stofna. Það kemur því ekki á óvart þó íslenska stjórnmála- menn setji hljóða og íhugi hvort þeir eigi að fara í fýlu og freista þess að fá Jón Baldvin, Frikka Sóph., Ámunda Ámundason, Hannes Hólm- stein og Sighvat Björgvinsson upp á móti sér. Greinilegt er að Ólafur Ragnar hefur áhuga á að gerast fýlupoki meb Jóhönnu enda tala þau bæbi um að nú sé rétti tíminn fyrir mikla breiðfylkingu jafnaðarmanna sem gæti þá orðið að einu alls- GARRI herjar fýlupokaframbobi með kálfalifur sem vörumerki, en sem kunnugt er er nú komin hefð á lifrarbandalög meðal ís- lenskra jafnaðarmanna. Nafn- gift framboðsins gæti tekið mið af þeim félögum í Alþýðu- flokknum sem þegar eru fyrir hendi til að gera flokksmönn- um þar lífið leitt eins og gert var með nafngiftinni um Jafn- aðarmannafélag íslands. „Félag fýlupoka og jafnaðarmanna" myndi t.d. verða skammstafað FFJ alveg eins og félagið þeirra Sighvatar, Ámunda og Jóns Baldvins, Félag frjálslyndra jafnaðarmanna! Enn er þó langt í land meb að af fýlupokaframboði verði því Kvennalistakonur og raunar flest félagshyggjuöfl, nema Ól- afur Ragnar, virðast hafa uppi ýmsar efasemdir um að fýlu- pokaframboð sé rétti kosturinn í stöðunni. Fanginn í fýlupokanum Mikilvægasta afleiðing þessa mikla árangurs fýlupokans Jó- hönnu er þó sá aö hrekkjusvín- in sem fengu Jóhönnu upphaf- lega tii að fara í fýlu, þeir Jón Baldvin, Sighvatur og félagar í ríkisstjórninni treysta sér ómögulega til að fara í kosn- ingar strax þrátt fyrir að viður- kennt sé að stjórnarflokkarnir geti ekki lengur unnið saman af nokkru viti. Þeir hafa ein- faldlega verið fangaðir í fýlu- pokann sjálfan og nú virðist vera búið að binda fyrir opið á honum. Ríkisstjórnin getur ekki starfað af nokkru viti en það er þó skömminni skárri kostur fyrir hana - sérstaklega ALþýðuflokkinn - en að tapa öllu með því að fara í kosning- ar nú og eiga svo örlög sín und- ir duttlungum Jóhönnu fýlu- pokaforingja. Þannig hefur þessum fyrrverandi félagsmála- ráðherra og varaformanni Krata tekist að halda erkifjand- manni sínum Jóni Baldvin í gíslingu ofan í poka. Jón Bald- vin aftur er með hálstak á Dav- íð sem ekki þorir að slíta sig lausan af ótta við að vera sak- aður um að þora ekki að takast á við vandann. Eina ráðið sem stjórnarliðum gæti hugsanlega staðið opið eins og málin standa er að nota veturinn til að fara sjálfir í fýlu og vita hvort þeir geta ekki náð hylli þjóðarinnar sem er orðin svo þreytt á endalausri mælgi og yfirborðsmennsku að henni finnst sjarmi yfir fýlupoka- stjórnmálum. Garri Um bækur og menn Fréttir berast af því að bókaút- gáfa á landinu muni dragast saman í haust. Við þessu var reyndar búist. Bókaforlög fengu nokkurn skell í fyrra, bæbi vegna þess að þau tóku á sig viröisaukaskattinn svo ekki kæmi til hækkun á verði bóka, og minnkandi sölu vegna efna- hagsástandsins í landinu. ís- lendingar hafa lengi kallað sig bókaþjóð, með réttu eða röngu. Bókaútgáfa hér er mikil sé miðað við fámenni þjóðar- innar, og á mörgum heimilum er allgóður bókakostur. Þótt margt merkilegra bóka komi út á ári hverju er ekki hægt ab líta framhjá þeirri staðreynd að þær bækur sem mest seljast fyrir hver jól eru margar hverjar ómerkilegt rabb við eba um fólk sem af ýmsum ástæðum er áberandi á hverri tíð. Þetta fólk er merkilegt í sjálfu sér og allt gott um það að segja, en því miður eru flest þau rit um þetta góða fólk síst til þess falin að auka hróður þess. Undirritaður hefur nokkrum sinnum hætt við að lesa bækur um fólk sem hann er örlítið kunnugur eða hefur sérstakt álit vegna þess ab hin- ar prentuðu segulbandsupp- tökur sem eiga að greina frá persónulegu lífi og hugsunum þess eru þannig að ekki er til að auka veg þess nema síður sé. Vandinn a& skrifa Það er vandi ab skrifa, ekki síst Ascill Á víbavangi um sjálfan sig, og að skrifa um aðra krefst gífurlegrar vinnu, rannsókna og ígrundunar. Flest erum við þannig að líf okkar og hugsun er annað hvort svo hversdagslegt að þab er í engu frábrugðið Iífi og hugsun þús- unda annarra. Og í öllum þess- um ritum er í raun alltaf þagað um það sem hverjum og ein- um er dýrmætast, viðkvæmast og frásagnarverðast um per- sónuna. Hver einasta persóna er merkileg, einstæb, og líf hennar stórkostlegt, en það er vandi að skrifa um líf einstak- lingsins svo vel sé. Þessar minningabækur hafa vissulega ákveðiö sögulegt gildi, en bæta litlu viö bók- menntir í landinu. Rithöfundar og uppreisnarmenn Þessa dagana er sá er þetta ritar að lesa bók eftir bandarískan rithöfund. Bókin er saga um frægan rithöfund. Hann getur ekki lokið við söguna sem hann er að skrifa og veltir fyrir sér starfi rithöfundarins. Ábur voru sagnahöfundar uppreisn- armenn, hermdarverkamenn kallar hann þá, menn sem sprengdu upp hugmyndakerfi og hugsunarhátt, bentu á nýjar leiðir, gegnumlýstu þjóðfélagib og mannssálina, skópu óróa og öryggisleysi og gáfu lesendum sínum tilveru sem var eins sönn og raunveruleikinn. En hinn frægi rithöfundur seg- ir ab nú sé sjónvarpið komið í staðinn og flytji fólki ógnir og hörmungar mannlífsins í sí- bylju. Stríb og hungur, ofbeldi og morð séu komin í staðinn fyrir sögur á bókum, og sljó- leikinn tekur við, áhugaleysið gagnvart ógninni, þreyta gagn- vart ofbeldinu, hugsunarleysi gagnvart þjáningunni. Spurningarnar vakna. Hamlar skáldsagan, frásögnin, orðsins list, ekkert gegn þessu? Á rit- höfundurinn ekkert erindi lengur í heimi sem er orðinn ab einu þorpi? Hér á landi eru merkilegir rit- höfundar og skáld. Þeir vinna gott verk. Eru þeir ef til vill í annari og erfiðari varnarstöbu en þeir gera sér grein fyrir? HÓ

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.