Tíminn - 10.08.1994, Page 8
8
Miðvikudagur 10. ágúst 1994
Hisbollah-mabur íbardaga í heimahögum: tengsl vib upphaf íslams.
Ný írönsk hryðjuverkaalda?
Khameini (t.v.), einn helstu rábamanna írans: 200 á daubalista
ab þau hjálpi henni til viö að
einangra íran.
59 morö
íran hefur þegar langa reynslu
aö baki af hryðjuverkum er-
lendis. Frá íslömsku bylting-
unni þar 1979 hafa 59 íranskir
andstæðingar núverandi
íransstjórnar verið myrtir er-
lendis, að sögn Herberts
Pundik, sem fjallaði nýlega
um þetta efni í grein í danska
blaöinu Politiken. Tíu þeirra í
Frakklandi, níu í Pakistan, átta
í Tyrklandi, sjö í Þýskalandi,
sjö í Austurríki, sex í írak, þrír
í Bretlandi o.s.frv.
Flestir morbingjanna komust
undan, en þeir af þeim sem
lögregla náði voru yfirleitt
látnir lausir vegna "pólitísks
þrýstings," skrifar Pundik.
Þýska lögreglan hefur þar að
auki fundið "svartan lista" með
um 200 nöfnum írana í útlegð,
sem stjórn lands þeirra vilí
feiga. Listinn fannst í fórum
íransks sendiráðsmanns í Bonn.
Einn áðuráminnstra 59
manna var Ali Akhbar Tabata-
bai, blaðafulltrúi við íranska
sendiráðið í Washington.
Hann baðst hælis í Bandaríkj-
unum sem pólitískur flótta-
maður, en var skömmu síbar
myrtur. Maður, sem dulbúinn
var sem póstmaður, skaut
Tabatabai til bana er blaöa-
fulltrúinn fyrrverandi opnaði
dyrnar heima hjá sér fyrir
honum. Morbinginn var
starfsmaður við sendiráð Al-
sírs í Washington og hafði
íranska hagsmuni þarlendis á
sinni könnu. Hann slapp til
írans og stjórnvöld þar neita
að framselja hann, þótt hann
sé bandarískur ríkisborgari.
Bágindi í efnahagsmálum
írans fara vaxandi og óánægja
heima fyrir að sama skapi.
Það kynni að hafa leitt til þess
að ráðamenn telji sér þann
einn kost nauðugan ab sýnast
róttækir út á vib. Hófsemi
kynni af andstæðingum
þeirra, innan lands og utan,
að verða túlkuð sem veik-
leikamerki. Þar að auki er
írönsku forustunni þaö metn-
abarmál að íran teljist forustu-
ríki alþjóðlegrar íslamskrar
byltingar, eins og hún orðar
þaö. Meb því er átt við að bók-
stafssinnar, meira eða minna
hliðstæðir þeim sem ríkja í
íran, nái völdum og auknum
áhrifum sem víðast.
„Hjálpendur"
Líklegt er talið að Hizbollah í
Líbanon, eða hópar tengdir
þeim flokki, hafi framið
hryðjuverk þau gegn ísrael og
gyðingum sem hér um ræöir,
en Hizbollah hafa lengi verið í
samböndum við íran. Einhver
aðili sem lýsti einhverjum
umræddra hryöjuverka á
hendur sér nefndist Ans-
arollah. Ansar, "hjálpendur",
BAKSVIÐ
DAGUR ÞORLEIFSSON
nefndust stubningsmenn Mú-
hameðs spámanns í Medínu.
Líklega er þetta enn eitt dæm-
ið um náin tengsli íslams við
upphaf sitt.
Jafnframt þessu sjást þess
merki að breytingar séu að
verða á neti bandalaga og
samskipta ríkja í Vestur-Asíu.
Þrátt fyrir svarinn fjandskap
sín á milli eru íran og írak far-
in að þoka sér saman. Hatur
þeirra á Vesturlöndum, sér-
staklega Bandaríkjunum, er
þar sameinandi afl. Bæði ríki
eru á móti friði meb ísrael og
aröbum og bæði vilja efla heri
sína. Bæbi eiga við að stríða
erfiðleika vegna viðleitni vest-
urlandaríkja, einkum Banda-
ríkjanna, til að einangra þau.
Vinátta írans og Sýrlands
virðist í rénun, vegna þess að
nokkrar horfur eru á að Assad
Sýrlandsforseti, sem vill kom-
ast í fulla náð hjá Vesturlönd-
um (Sýrland er enn á lista
Bandaríkjastjórnar yfir ríki
sem hún telur styðja hryðju-
verkamenn), gangi í spor
þeirra Arafats og Hússeins
Jórdaníukonungs og geri frið
viö ísrael. Hinsvegar hefur
batnað á milli írans annars-
vegar og Saúdi-Arabíu og ann-
arra olíufurstadæma við
Persaflóa hinsvegar. Ástæður
til þess gætu verib margar, en
benda má á að bæbi íran og
Saúdi-Arabía eru bókstafssinn-
uð, þótt með nokkuð ólíku
móti sé. Þau hafa til þessa
keppt um forustuna í bók-
stafsíslam, en undir vissum
kringumstæöum gæti sú
stefna innan íslams oröið
grundvöllur bandalags með
þeim. ■
Horfur á aö
íran, írak og
Saúdi-Arabía
þoki sér saman
Hryðjuverkahrinan ný-
verið gegn ísraelskum
og gyðverskum aðilum
í Argentínu, Panama og Bret-
landi er ásamt með öðru ó-
þægileg ábending um að Vest-
urlönd/Ameríka séu næsta
berskjölduö fyrir slíkum atlög-
um. Margra mál er aö hryðju-
verk þessi hafi leitt í ljós að á
bak við þau standi velskipu-
lagt kerfi hryöjuverkahópa
sem nái víösvegar um heim.
Þetta kerfi hafi möguleika til
að gera atlögur af því tagi, sem
hér um ræðir, að raunveruleg-
um eða meintum andstæðing-
um svo að segja hvar sem er í
heiminum án þess að þeim
sem fyrir verða gefist ráðrúm
til að koma vörn fyrir sig.
Hvort slíkar árásir haldi áfram
sé aðallega komið undir póli-
tískum hentugleikum hryðju-
verkamannanna eða þeirra
sem á bak við þá standa.
Víbtækt
skipulagsnet
í Vesturlöndum og í
Rómönsku Ameríku eru víöast
litlar hömlur á feröum fólks
og búferlaflutningi milli
landa. Það auðveldar hryðju-
verkamönnum að þenja út
skipulagsnet sín, efla þau og
halda þeim við. Ætla má ab ís-
lamskir hryðjuverkamenn eigi
víba fremur auðvelt með ab
fela sig innan um íslamska
minnihluta, sem eru fjöl-
mennir í flestum löndum
vestanverðrar Evrópu og í
mörgum Ameríkulöndum.
Meðal þessara minnihluta
eiga þeir sér stuðningsmenn
og aðrir af þeim hópum sem
ekki eru á þeirra bandi eru
kannski hikandi við að segja
yfirvöldum til þeirra, annað-
hvort af samúð með þeim að
vissu marki eða ótta við
hefnd.
Grunurinn, eftir umrædd
hryðjuverk gegn gybingum,
beinist ekki síst ab Iran og ab-
ilum í Líbanon. Sumir frétta-
skýrendur, meb heimildar-
menn í leyniþjónustum og
stjórnmálum að baki, telja lík-
legt að við samræmdar að-
gerbir sem þessar njóti
hryðjuverkamenn stuðnings
sendiráða og konsúlata.
Standi klerkastjórn írans fyr-
ir þessu mundi tilgangur
hennar vera að leggja áherslu
á andstöðu sína við ísrael og
friöargerð milli þess og araba.
Annað, sem íransklerkar
kunna ab hafa í huga meb
þessu er að sýna þegnum sín-
um og múslímum yfirleitt
fram á að Vesturlönd standi
rábalaus gagnvart þeim og séu
kjarklaus og beggja blands í
andstöðunni við Iran og bók-
stafssinna. Þetta er í fullu sam-
ræmi við þá kenningu
íransklerka að vestræn menn-
ing sé úrkynjuð og í upplausn.
í því sambandi er bent á að
hvað sem líður andúð vestur-
landaríkja á núverandi ráða-
mönnum írans keppa þau um
að ná sem mestum og hag-
stæbustum verslunarviðskipt-
um við íran. Þetta á einkum
vib um Vestur-Evrópu, en
Bandaríkin einnig. Þessvegna
láta Vestur-Evrópuríki sér fátt
um finnast er Bandaríkja-
stjórn mælist til þess af þeim