Tíminn - 01.09.1994, Page 11
Fimmtudagur 1. september 1994
11
Fréttir af bókum
The Reagan Administration's Secret
Strategy, eftir Peter Schweizer. Atlantic
Monthly Press, 284 bls. S 22.
Peter Schweizer er blaöa-
maöur í Washington, en
gegnir jafnframt störfum á
Hoover Institution. Snemma á
níunda áratugnum segir hann
þverbresti hafa veriö sýnilega í
hag- og stjórnkerfi Ráöstjórnar-
ríkjanna, aö segir í ritdómi í
New York Times Book Review 10.
júlí 1994: „En hann heldur því
fram, að ríkisstjórn Reagans hafi
flýtt fyrir hruni Ráðstjórnarríkj-
anna með víðfeðma stefnu-
mörkun. Efnahagslega saumaöi
hún aö stjórnvöldum í Moskvu
og hvarf frá varnarstefnu aö-
halds (defensive strategy of
containment) til storkunar við
mátt Ráöstjórnarríkjanna í Afg-
anistan, í Austur-Evrópu og
jafnvel innan Ráðstjórnarríkj-
anna sjálfra. Bók þessa vann
Schweizer upp úr viötölum viö
æöstu embættismenn Reagans,
sem aö stefnumörkun unnu
(einkum þó innan leyniþjón-
ustunnar). Þegar Reagan og ráö-
gjafar hans í öryggismálum
tóku viö stjórnartaumunum
1981, var þeim forundrun búin.
Viö vaxandi veldi Ráöstjórnar-
ríkjanna og ágangi (aggressive-
ness) hafði verið varað mestall-
an undanfarandi áratug, en rík-
isstjórn Reagans komst nú aö
Reykjavíkurfundur Reagans og Corbatsjovs var ein síbasta orusta kalda
stríbsins.
því, að að efnahag Ráöstjórnar-
ríkjanna þrengdi."
„Aö ráöi nýs forstjóra leyni-
þjónustunnar, Williams J. Cas-
ey — sem var aðalhöfundur
þeirrar stefnu sem sigur færöi,
aö sögn Schweizers, og helsti
heimildarmaöur hans — hófu
Bandaríkin leynt og ljóst efna-
hagslegan hernaö gegn Ráð-
stjórnarríkjunum. — Schweizer
segir svo frá, aö hernaöarlegri
uppbyggingu Reagans hafi ekki
einungis verið ætlað aö styrkja
bandarískan herafla, heldur líka
aö ofbjóða þröngum (limited)
efnahagslegum grundvelli Ráö-
stjórnarríkjanna. Að megin-
þætti hafði hún útvíkkun vís-
indalegs rannsóknarsviös og
smíöi hátæknivopna. Með hinu
herstjórnarlega frumkvæöi um
varnir (Strategic Defence Initi-
ative), sem í orði kveðnu var
ætlað að ónýta (neutralise) sov-
éska kjarnorkuárás, hugöust
ráögjafar Reagans í Hvíta hús-
inu heyja vopnakapphlaup á
sviði, er á segöi til bandarískrar
tækniþekkingar, ekki sovésks
mannafla."
„Bandaríkin reyndu líka aö
loka fyrir helstu gjaldeyrisupp-
sprettu Ráöstjórnarríkjanna
með því að hindra sölu þeirra á
olíu og gasi til Vestur-Evrópu
(en varö um þaö lítið ágengt,
eins og Schweizer viðurkennir),
og meö því aö fá Sádí- Arabíu til
aö þröngva niður veröi á olíu á
alþjóðlegum mörkuöum. Á tak-
inu var enn hert, aö Schweizer
segir, með því að takmarka
flæöi lánsfjár og tækni austur á
bóginn... Til að Ráöstjórnarríkin
neyddust til að verja milljörð-
um til aö slökkva bál í Póllandi
og Afganistan, fór ríkisstjórn
Reagans aö styðja Samstööu í
Póllandi og aö leggja mújahed-
ínum, íslömskum skæruliöum, í
Afganistan til fullkomnari vopn
og fyllri njósnir."
„Hvort stefna Reagans bar til-
ætlaðan árangur og réð úrslitum
í kalda stríðinu eöur ei, leggur
frásögn Schweizers mjög til
fróöleik um hástig þeirra átaka."
DAGBÓK
[u\juuuuu\juu\j\ju\
Fimmtudaqur
1
september
244. daqur ársins -121 daqar eftir.
3S. vlka
Sólris kl. 6.09
Sólarlag kl. 20.45
Dagurinn styttist
um 6 mínutur
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Bridskeppni, tvímenningur, í
Risinu kl. 13 í dag.
Fyrirhuguð sigling um sundin
meö Leifi Eiríkssyni kl. 19 föstu-
daginn 2. sept. Kaffiveitingar og
dans. Fararstjóri Pétur H. Ólafs-
son. Skrásetning í s. 28812.
Ný náttúru- og heilsuvöru-
verslun:
HRÍMGULL, Vitastíg 10
Hrímgull hefur nú opnaö nýja
náttúru- og heilsuvöruverslun
aö Vitastíg 10 í Reykjavík. Versl-
unin hefur á boöstólum nokkurt
úrval af náttúruvörum: náttúru-
lega málningu frá LlVOS-fyrir-
tækinu, en Livos er stærsti fram-
leiðandi heims á málningarvör-
um sem framleidd em úr skaö-
lausum gróðurefnum. Fyrirtækið
framleiöir einnig hreingerning-
arvörur og föndurvörur, nátt-
úrulegar snyrtivörur frá LOG-
ONA sem er þýskur framleiöandi
eins og LIVOS, almennar heilsu-
vömr og vítamín, Maharishi Ay-
urveda sem eru heilsuvömr og
byggja á ævafornri þekkingu Ay-
urveda sem talin er formóöir
allra greina heilsuverndar, einn-
ig silkivömr og metravöm í silki.
Þá er Hrímgull söluaöili fyrir
handsmíöuð norsk bjálkahús,
sem eru fáanleg í stöðluöum út-
gáfum eöa eftir sérteikningum.
Markmið Hrímgulls er aö bjóöa
vandaðar náttúmvörur á sem
flestum sviöum, ásamt þekkingu
í formi bæklinga, fyrirlestra og
námskeiöa um vistvæna og
heilsusamlega lifnaðarhætti.
Hrímgull er til húsa aö Vitastíg
10 og er opnunartími kl. 10 til
18 virka daga og kl. 10 til 14 á
laugardögum.
Háskólafyrirlestur
Dr. Jean Lancri, myndlistarmaö-
ur og prófessor í fagurfræöi við
Université de Paris í Panthéon-
Sorbonne, flytur opinberan fyr-
irlestur í boöi heimspekideildar
Háskóla íslands laugardaginn 3.
september n.k. kl. 16 í stofu 101
í Odda.
Fyrirlesturinn veröur fluttur á
ensku og nefnist „When paint-
ing questions literature".
Jean Lancri hefur fengist við aö
rannsaka tengsl bókmennta og
myndlistar, jafnt í ritum sínum
og myndverkum. í fyrirlestrin-
um verður fjallað um veggmynd
frá upphafi 14. aldar eftir Giotto,
„Fundinn viö Gullna hliðið",
sem er í Capella Scrovegni í
Padua. Einnig verður fjallaö um
ísetningu (installation) Jeans
Lancri, „K eða umbreytingaher-
bergiö", sem sýnd var í Pomp-
idou-safninu í París áriö 1984. Sú
ísetning fjallar mest um Kafka,
en tengist þó veggmynd Giottos.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Septemberdagar '94
Laugardaginn 3. september kl.
13 opnar Haukur Dór málverka-
sýningu á vinnustofu sinni í
gamla Álafosshúsinu, 4. hæö, í
Mosfellsbæ.
Opið veröur laugardaga og
sunnudaga í september kl. 13-
17. Athugið að aöeins er opið
um helgar í september, annars
eftir samkomulagi. Síminn hjá
Hauki er 668062.
Jón Hermann í Eden
Um þessar mundir stendur yfir í
Eden í Hverageröi myndlistar-
sýning Jóns Hermanns Sveins-
sonar, málara og sjómanns frá
Hnífsdal. Hann sýnir þarna 21
mynd, sem ýmist eru unnar í ol-
íu eöa með blandaðri tækni.
Myndirnar tengjast lífi sjó-
manna fyrir vestan.
Myndirnar eru allar til sölu.
Sýningunni lýkur sunnudaginn
4. sept. kl. 23.
Jóhanna Bogadóttir
sýnir í Hafnarborg
Jóhanna Bogadóttir opnar mál-
verkasýningu í Hafnarborg,
menningar- og listastofnun
Hafnarfjaröar, Strandgötu 34,
Hafnarfiröi, laugardaginn 3.
september kl. 14. Á sýningunni
veröa málverk unnin á síöast-
liönum tveimur árum og einnig
vatnslitamyndir.
Jóhanna hefur sýnt verk sín
víöa um heim. Hún hefur tekiö
þátt í samsýningum og haldiö
fjölda einkasýninga í söfnum og
sýningarsölum í ýmsum borg-
um. A þessu ári átti hún myndir
á samsýningu þriggja íslenskra
listamanna í boði Noröurlanda-
hússins í Færeyjum. í maí hélt
hún einkasýningu í Vestmanna-
eyjum, heimabæ sínum. Einnig
var sýning á verkum hennar s.l.
vor í boði American-Scandinavi-
an Society í New York.
Sýningin í Hafnarborg stendur
til mánudagsins 19. september
og veröur opin alla daga frá kl.
12-18, nema þriðjudaga.
Kór Langholtskirkju ab
hefja vetrarstarfib
Um þessar mundir er Kór Lang-
holtskirkju aö hefja vetrarstarfið.
Kórinn byrjar starfsárið með því
aö halda upp á 10 ára vígsluaf-
mæli Langholtskirkju, kirkju
Guðbrands biskups Þorláksson-
ar, viö messu hinn 11. septem-
ber n.k., en þess verður jafn-
framt minnst að í ár eru 400 ár
liöin frá útkomu Graduale eöa
„Grallara" Guðbrands. Öll tón-
list í messunni veröur sam-
kvæmt Grallaranum.
Þá mun kórinn taka þátt í
styrktartónleikum Orgelsjóðs
Langholtskirkju í byrjun októ-
ber. Á þeim tónleikum veröur
slegið á léttari strengi, en auk
kórsins kemur fram karlakórinn
Fóstbræöur undir stjórn Árna
Harðarsonar, Gunnar Kvaran
sellóleikari og Gísli Magnússon
píanóleikari. Þá munu „The
Boys", íslensku bræöurnir sem
gert hafa garöinn frægan í Nor-
egi og víöar, koma fram.
I nóvember mun kórinn halda
tónleika með nýstárlegu sniði.
Mun þar margt koma á óvart,
sem ekki veröur látiö uppi aö
þessu sinni.
Síðustu helgi fyrir jól verða svo
hinir árlegu „Jólasöngvar Kórs
Langholtskirkju", en þeir tón-
leikar eru ómissandi þáttur í
jólahaldi fjölmargra.
í dymbilvikunni verður flutt Jó-
hannesarpassían eftir Bach og er
fyrirhugab aö láta gamlan
draum rætast með aö sviösetja
verkið. Ef tekst að fjármagna
það, gæti þessi flutningur flokk-
ast undir heimsviðburð.
Allir tónleikar Kórs Langholts-
kirkju eru að sjálfsögðu haldnir í
Langholtskirkju, sem er eitt
besta tónleikahús landsins.
í júní hefur kórnum veriö bob-
ið að taka þátt í fyrstu „Norbur-
Atlantshafs kórahátíðinni", sem
haldin veröur í Færeyjum með
völdum kórum frá Norður-Nor-
egi, Skotlandi, Færeyjum og ís-
landi, einum frá hverju landi.
Þar yrbi aðalverkefnið flutningur
þessara kóra á Requiem (Sálu-
messu) eftir Verdi undir stjórn
Militiadis Carridis. Ekki er enn
ljóst hvort af þátttöku Kórs
Langholtskirkju getur orðið, en
þab kemur væntanlega í ljós
meö haustdögunum.
Hægt er að bæta viö söngfólki í
allar raddir. Góð rödd er aðalat-
riöið, en þeir sem hafa einhverja
tónlistarmenntun ganga aö öbru
jöfnu fyrir. Þeir, sem áhuga
kynnu aö hafa, láti vita í Lang-
holtskirkju, síma 35750 alla
virka daga á skrifstofutíma.
APÓTEK
Kvöld-, nætur- og helgldagavarsla apóteka I
Reykjavlk (rá 26. ágúst tll 1. september er I
Árbæjarapótekl og Lauganesapótekl. Þaö apótek
sem fyrr er nefnt annast eltt vörsluna trá kl. 22.00
að kvöldl tll kl. 9.00 aó morgnl vlrka daga en kl.
22.00 á sunnudögum. Upplýslngar um læknls- og
lyfjaþjónustu eru gefnar f sfma 18888.
Neyóarvakt Tannlæknatélags Islands
er starfrækt um helgar og á stórhátíöum. Símsvari 681041.
Hatnarfjöróur: Hafnartjaróar apótek og Noróurbæjar apó-
tek eru opln á vlrkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og tll skiptis
annan hvem laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl.
10.00-12.00. Upplýsingar I simsvara nr. 51600.
Akureyrl: Akureyrar apótek og Stjörnu apótek eru opin
virka daga á opnunartíma búða. Apótekin skiptast á sina
vikuna hvort aó sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á
kvöldin er opió i því apóteki sem sér um þessa vörslu, til kl.
19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00-12.00 og 20.00-
21.00. Á öórum timum er lyfjafræóingur á bakvakt. Upptýs-
ingar eru gefnar í stma 22445.
Apótek Keflavfkur: Opió virka daga frá kl. 9.00-19.00.
laugard., helgidaga og almenna fridaga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl. 8.00-
18.00. Lokaó í hádeginu milli kl. 12.30-14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opiðtil kl. 18.30. Opió er á laug-
ardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opió virka daga til kl. 18.30.
Á laugard. kl. 10.00-13.00 og sunnud. kl. 13.00-14.00.
Garóabær: Apótekió er opið rúmhelga daga kl. 9.00-
18.30, enlaugardagakl. 11.00-14.00.
ALMANNATRYGGINGAR
HELSTU BÓTAFLOKKAR:
1.ágúst1994.
Mánaóargrelóslur
Elli/örorkullfeyrir (grunnlífeyrir)......... 12.329
1/2 hjónalífeyrir.......................... 11.096
Full tekjutrygging ellilífeyrisþega..........27,221
Full tekjutrygging örorkulífeyrisþega........27,984
Heimilisuppbót................................9,253
Sérstök heimilisuppbót........................6,365
Bamalífeyrir v/1 bams........................10.300
Meólagv/1 barns..............................10.300
Mæðralaun/feóralaun v/1 bams..................1.000
Mæðralaun/feóralaun v/2ja bama................5.000
Mæðralaun/feóralaun v/3ja bama eða fleiri..10.800
Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaða .............15.448
Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaða.............11.583
Fullur ekkjulffeyrir.........................12.329
Dánarbætur í 8 ár (v/slysa)..................15.448
Fæðingarstyrkur............................. 25.090
Vasapeningar vistmanna ......................10.170
Vasapeningar v/sjúkratrygginga...............10.170
Daggrelðslur
Fullir fæðingardagpeningar.................1.052.00
Sjúkradagpeningar einstaklings...............526.20
Sjúkradagpeningar fyrir hvert barn á framfæri ...142.80
Slysadagpeningar einstaklings................665.70
Slysadagpeningar fyrir hvert barn á framfæri ....142.80
i ágúst er greiddur 20% tekjutryggingarauki (orfofsuppbót)
á tekjutryggingu, heimilisuppbót og sérstaka heimiliSLpp-
bót. T ekjutryggingaraukinn er reiknaóur inn í tekjutrygging-
una, heimilisuppbótinaog sérstöku heimilisuppbótina í júlí
var greiddur 44.8% tekjutryggingaraugi. Bastur eru því
hefdur lægri nú en f júli
GENGISSKRÁNING
31. ágúst 1994 kl. 10,54 Opfnb. Kaup vlðm.gengl Sala Gengl skr.fundar
Bandarfkjadollar 68,83 69,01 68,92
Sterlingspund ...105,63 105,91 105,77
Kanadadollar 50,18 50,34 50,2«
Dðnsk króna ...11,041 11,075 11,058
Norsk króna ....9,935 9,965 9,950
Sænsk króna .....8,877 6,905 8,891
Flnnskt mark ...13,462 13,502 13,482
Franskur frankl ...12,713 12,751 12,732
Belgfskur frankl ...2,1163 2,1231 2,1197
Svlssneskurfrankl.. .....51,66 5132 51,74
Hollenskt gytllnl 38,82 38,94 38,88
Þýsktmark 43,56 43,68 43,62
Hölsklfra .0,04330 0,04344 0,04337
Austurrfskur sch .....6,191 6311 6301
Portúg. escudo ...0,4274 0,4290 0,4282
Spánskur pesetl ...0,5241 0,5259 0,5250
Japansktyen ...0,6877 0,6895 0,6886
frskt pund ...104,09 104,43 104,26
Sérst. dráttarr 99,70 100,00 99,85
ECU-Evrópumynt —83,12 83,38 83,25
Grfsk drakma ...0,2871 0,2881 0,2876
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í
KRINGUM LANDIÐ
MUNIÐ ÓDÝRU
HELGARPAKKANA
OKKAR
REYKJAVtK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar