Tíminn - 20.09.1994, Page 8
8
Þribjudagur 20. september 1994
Óvíst með heima
leiki KR-inga
Eins og staban er í dag, er óvíst
hvar KR-ingar koma til meö að
leika heimaleiki sína í 1. deild
karla í handknattleik. Fyrir-
hugaðar eru framkvæmdir í
Laugardalshöllinni vegna HM
á næsta ári og að sögn Arnar
Steinsen, formanns hand-
knattleiksdeildar KR, þá er að-
eins búið að bóka fyrstu tvo
leiki liðsins á heimavelli. Sá
fyrsti, gegn ÍH, fer fram í Laug-
ardalshöll, en sá seinni, gegn
Aftureldingu, í íþróttahúsinu
við Austurberg. Örn sagði að
það gæti orðið erfitt að finna
stað og stund fyrir heimaleiki
liðsins, enda væri ekki úr
mörgu að velja, því íþrótta-
húsin væru ekki mörg. Örn
Magnússon hjá HSÍ sagði að
líklegast væri að KR léki alla
sína leiki í Höllinni eða Aust-
urbergi, þar sem stefnan væri
með framkvæmdirnar í Laug-
ardalshöll að þær röskuðu ekki
fyrirhuguðum leikjum þar.
8 tonn af vatni fjar-
lægðafvellinum
Eftir mikið hitasumar í Dan-
mörku var eins og hellt væri úr
fötu í síðustu viku og þaö fengu
leikmenn danska liðsins Bröndby
og Tirana frá Albaníu að kynnast
rækilega síðastliöinn fimmtudag
í Danmörku, en þá mættust liöin
í Evrópukeppninni. Það þurfti
nefnilega að soga burtu hvorki
meira né minna en 8 tonn af
vatni af vellinum áöur en hann
var í leikhæfu ástandi. Bröndby
sigraöi svo 3-0 í leiknum.
Dómari í leiknum var Gylfi
Orrason; stóö hann sig vel og gaf
varaformaður dómaranefndar
UEFA honum góöa einkunn.
Gylfa til aðstoðar voru línuverö-
irnir Ari Þórðarson og Pjetur Sig-
urðsson. ■
Danir vilja
Nielsen burt
Danska landsliðið í knattspyrnu á
við mikið vandamál að stríða þessa
dagana, sem gerir það að verkum
aö það er ekki eins vinsælt og í
gamla daga. Eftir jafnteflið gegn
Makedóníu í Evrópukeppninni
hefur landsliöið verið mikið á milli
tannanna á fólki og eru háværar
kröfur á lofti um að Richard Möller
Nielsen landsliðsþjálfara verði sagt
upp störfum. Leikmenn eru einnig
mikið gagnrýndir og að mati
margra kominn tími til að byggja
upp nýtt landslið. Það, að leik-
mennirnir fóru í verkfall í ágúst og
fengu umtalsverða launahækkun
fyrir þátttöku sína í landsleikjum,
varð ekki til að bæta álit Dana á
„strákunum sínum". Evrópumeist-
ararnir eru orðnir að gömlum og
slitnum gullkálfum. ■
Molar...
... Akurnesingar hafa nú tap-
að þremur leikjum í röð,
tveimur í deild og einum í
Evrópukeppninni, en þab
hefur ekki gerst síban þeir
féllu í 2. deild árib 1990.
... KR-ingar hafa nú leikib 10
leiki í röb án þess ab bíba
ósigur, 7 í deild og þrjá í bik-
arnum. Blikar unnu þá síðast
1 -0 í Frostaskjóli 21. júlí.
... Kristinn Tómasson, Fylki,
varð markahæstur í 2. deild
með 14 mörk. Gunnar Már
Másson, Leiftri, gerði 13
mörk.
... Þórsarar hafa aðeins unn-
ib 1 leik í síðustu 9 leikjum
sínum í deildinni, gert eitt
jafntefli og tapab 7.
... Tryggvi Guðmundsson,
KR, var ekki sáttur við gula
spjaldið sem hann fékk gegn
Þór. Hann var tuðandi og
másandi vegna þess í langan
tíma á eftir og þurftu nær
flestir leikmenn KR aö hafa tal
af kappanum til að róa hann
niður.
... Gunnlaugur Einarsson og
Einar Páll Tómasson voru sér-
staklega ánægðir eftir sigur
UBK á Val, enda gamlir Vals-
arar þar á feröinni.
... Breiöabliki nægir að fá
eitt stig gegn Stjörnunni í sið-
ustu umferðinni til að senda
Þór niður í 2. deild. Ef hins
vegar Þór vinnur ÍBK og
Breiöablik tapar, heldur Þór
sér uppi. Það gerir markatal-
an.
... FH þarf að vinna Fram
með 10 marka mun, ef ÍA
tapar 1-0 fyrir ÍBV, til að
veröa íslandsmeistarar.
... Kvennaiandsliðið í knatt-
spyrnu tapaði óvænt fyrir
Pressuliðinu, sem þjálfarar 1.
deildar völdu, 2-4 og er það
áhyggjuefni fyrir komandi
landsleik gegn Hollandi á
laugardag.
... Kristján Arason og læri-
sveinar hans hjá Dormagen í
þýska handboltanum unnu
Héðin Gilsson og félaga í
Dusseldorf 20-18 í 1. umferð
deildarkeppninnar. Héðinn
meiddist, en geröi eitt mark.
... Júlíus Jónsson gerði þrjú
mörk fyrir Gummersbach,
þegar liðið gerði 25-25 jafn-
tefli við Niederwurschbach.
... Ruud Gullit gerði bæði
mörk AC Milan í 2-1 sigurleik
gegn Lazio.
... Ryan Giggs og Andrei
Kanchelskis geröu mörk
Man. Utd í 2-0 sigri á Li-
verpool.
... Stoke City sigraöi Notts
County 0-2 á útivelli í ensku
1. deildinni, en Þorvaldur Ör-
lygsson skoraöi ekki að þessu
sinni. Stoke er nú í 6. sæti
með 13 stig, en efstir eru Úlf-
arnir og Middlesboro með
17 stig.
... Guðmundur Torfason og
félagar í Doncaster í ensku 3.
deildinni unnu Hereford 3-0
og eru í 5. sæti deildarinnar.
... Þórður Guðjónsson kom
ekki við sögu í 1-3 tapleik
Bochum gegn Freiburg á
heimavelli í þýsku úrvals-
deildinni.
Viö erum
flutt!
Við höfum flutt verslun okkar í DomuS Medica, Egilsgötu 3,
niður fyrir hornið, þar sem við bjóðum ykkur velkomin í nýja
og enn glæsilegri verslun. x
SKOVERSLU