Tíminn - 01.11.1994, Blaðsíða 2
2
gHMfaWi
Þribjudagur 1. nóvember 1994
Tíminn
spyr...
Hvers vegna var þátttakan í
prófkjöri sjálfstæbismanna í
Reykjavík ekki meiri en 48%?
Björn Bjarnason
í þribja sæti í prófkjörinu:
Sighvatur Bjarnason, framkvœmdastjóri Vinnslustöövarinnar:
Jákvætt fyrir byggbariagiö
Frá Þorsteini Cunnarssyni,
Vestmannaeyjum:
Á sunnudaginn var gengiö frá
kaupum íslenskra sjávarafuröa á
30% hlut Bjarna Sighvatssonar
og fjölskyldu á Vinnslustöðinni
í Eyjum. Að sögn Sighvatar
Bjarnasonar, framkvæmdastjóra
Vinnslustöðvarinnar, er mark-
miðið meö þessari sölu auk
hlutafjáraukningar í fyrirtæk-
inu, að styrkja eiginfjárstöðu
Vinnslustöðvarinnar. Þetta sé
mjög jákvætt spor fyrir Vinnslu-
stöðina og byggðarlagið í heild,
því fyrirtækið sé komiö í þá
stöðu að geta eflst á nýjan leik í
stað þess að vera í samfelldum
niðurskurðarleik.
„Það breytist ekkert í fyrirtæk-
inu sem slíku. Það verða áfram
sömu stjórnendur. Eina breyt-
ingin er að eiginfjárhagsstaða
þess verður mun styrkari fyrir
vikið. Það er stefnt að því aö
hlutabréf fari á almennan mark-
að síöar í mánuðinum til þess að
styrkja stoöir fyrirtækisins enn
frekar," sagði Sighvatur.
Hlutur Bjarna og fjölskyldu
hefur verið til sölu í rúmt ár.
Hann segir að enginn hafi lýst
yfir áhuga fyrr en Islenskar sjáv-
araíurðir og hópur þeim tengd-
ur ákvað að fjárfesta í hlut
Bjarna. Sighvatur neitar því ekki
að þrýstingur hafi verið á fyrir-
tækið að ganga til samstarfs við
íS og fer ekki á milli mála að
hann á þar við Sölumiðstöð
hraöfrystihúsanna. „Það var
mikill þrýstingur á okkur víða
að og það má segja að ég hafi
kynnst nýrri hlið á íslensku við-
skiptalífi," segir Sighvatur sem
sjálfur á tæp 2% í Vinnslustöð-
inni. „Ég hlakka mikið til að
vinna með íslenskum sjávaraf-
urðum. Þarna er hópur ungra
manna sem hefur þurft að berj-
ast við ýmislegt í gegnum tíðina
og staðið margt af sér. Þeir hafa
haft SÍS drauginn á bakinu en
eru búnir að losa sig við hann.
SÍS er ekki til lengur og ég vænti
mikils af samstarfinu við ís-
lenskar sjávarafurðir," sagði Sig-
hvatur.
Bjarni, faðir hans, mun láta af
stjórnarformennsku í Vinnslu-
stöðinni en Sighvatur vissi ekki
hver tæki við honum. Hann
sagði það vera ákvörðun stjórn-
arinnar. Ekki hefur heldur verið
tekin ákvöröun um hvað gert
verður við hlut Vinnslustöövar-
innar í SH en Sighvatur segir að
eignahlutur í SH sé verðmæti
sem gæti borgað sig að halda.
„Markmibið er ab gera Vinnslu-
stöðina að öflugu sjávarútvegs-
fyrirtæki á svipaðan hátt og
Granda. Þetta er fyrsta skrefið í
þá átt," segir Sighvatur, sem
sjálfur á sæti í stjórn SH. Um
áramótin munu Samskip annast
nánast alla flutninga fyrir
Vinnslustöðina að undanskild-
um einhverjum ferskútflutningi
en Sighvatur segir að ávallt
verði leitaö til þeirra með flutn-
inga sem eru ódýrastir hverju
sinni, en sem kunnugt er keypti
Vinnslustöðin hlut í Samskip-
um fyrr á árinu og er talið ab
farmgjöld fyrirtækisins nemi
um 150 milljónum á ári.
Þau skipa fjögur efstu sœtin á frambobsiista Framsóknarflokksins íkomandi alþingiskosningum. Frá vinstri taiib:
Isólfur Cylfi Pálmason, Elín Einarsdóttir, Ólafía Ingólfsdóttir og Gubni Ágústsson. Ljósm: sigurburBogi
Framboöslisti Framsóknarflokksins á Suöurlandi liggur fyrir:
ísólfur Gylfi í öðru sæti
„Til þess að prófkjör sjálfstæðis-
manna í Reykjavík séu bindandi
fyrir kjörnefnd, þurfa 50%
flokksbundinna að greiöa at-
kvæði. Nú er það svo ab um 15
þúsund manns eru í flokknum og
hefur fjölgaö á undanförnum ár-
um. Þessi fjöldi félagsmanna ger-
ir þær kröfur að sífellt stærri hóp-
ur manna greiði atkvæði í próf-
kjöri til þess aö um bindandi
kosningu sé að ræða. Ég get ekki
litið á það sem neitt sérstakt
vandamál þó ab ekki hafi náðst
nema 7500 manns til að greiða
atkvæði í þessu prófkjöri. Mér
finnst það ekki umtalsefni, nema
menn séu að því til að gera lítið
úr prófkjörinu sem er með öllu
ástæðulaust."
Finnur Ingólfsson,
þingmabur Framsóknarflokks í
Reykjavík:
„Flokksbundnir sjálfstæðismenn
í Reykjavík eru ab lýsa óánægju
sinni með störf flokksins. Svikin
loforð frá síðustu kosningum,
svo sem í skattamálum, sem fólk
fólk gleymir ekki heídur fyrir
kosningarnar í vor. Sú spurning
vaknar hvort opin prófkjör séu
ekki gengin sér til húðar. Að
fjöldi fólks sem skrábur er í Sjálf-
stæðisflokkinn ætli sér alls ekki
að kjósa hann."
Ingi Björn Albertsson,
þingmabur Sjálfstæbisflokks í
Reykjavík:
„Meginástæðan er sú að þab er
mikil óánægja grasserandi í Sjálf-
stæöisflokknum og hún birtist í
þeirri þátttöku sem raun ber
vitni."
Aöalfundur Vinnslu-
stöövarinnar hf. í Eyjum
veröur n.k. laugaraag:
Kaupin styrkja
starfsemi ÍS
„Fyrir íslenskum sjávarafurbum
vakir þab fyrst og fremst ab
styrkja sitt starf, enda fáum vib
þarna stóran og öflugan fram-
leibanda," segir Benedikt Sveins-
son, framkvæmdastjóri íslenskra
sjávarafurba hf., sem hafa haft
forystu um kaup á 30% eignar-
hlut Bjarna Sighvatssonar og fjöl-
skyldu í Vinnslustöbinni hf. í
Vestmannaeyjum.
Nafnviröi hlutabréfa fjölskyld-
unnar er um 85,5 milljónir króna
en ekki fæst uppgefið hvert sölu-
gengi þeirra hefur verið. Aðalfund-
ur Vinnslustöbvarinnar hf. verður
haldinn n.k. laugardag, 5. nóvem-
ber og þá munu íslenskar sjávaraf-
urðir koma formlega ab fyrirtæk-
inu, en skrifab var undir kaup-
samninginn um sl. helgi.
Benedikt segir þab vera mjög
spennandi að taka þátt í ab byggja
upp Vestmannaeyjar á ný sem öfl-
ugan sjávarútvegsstab, sem ab
sumra áliti hefur verib í dálítilli
lægb síbustu misseri. Hann segir ab
sömu menn muni stjórna fyrirtæk-
inu og ábur meb fullum stubningi
ÍS. Auk þess séu engar breytingar
fyrirhugabar á starfsmannahaldi
f>TÍrtækisins. Benedikt segir ab
hlutafé fyrirtækisins verbi aukib,
jafnframt sem þab muni fara út á
hlutabréfamarkabinn. ■
ísólfur Gylfi Pálmason,
sveitarstjóri á Hvolsvelli,
mun skipa annað sætið á
framboöslista Framsóknar-
flokksins í Suðurlandskjör-
dæmi í komandi alþingis-
kosningum. Þetta var niður-
staðan í forvali á þingi
flokksins í kjördæminu sem
haldið var um helgina.
Serri vænta mátti var vilji
flokksmanna sá að Guðni Ág-
ústsson skipaði efsta sæti list-
ans og færist hann upp um
sæti — eftir að Jón Helgason
ákvað að hætta beinum stjórn-
málaafskiptum. Guðni fékk
140 atkvæði í fyrsta sætið.
ísólfur Gylfi Pálmason, sveit-
arstjóri á Hvolsvelli, fékk 150
atkvæði í 1. og 2. sætiö, Ólafía
Ingólfsdóttir, húsfreyja í
Vorsabæ í Flóa, 85 atkvæði í
1.-3. sæti, Elín Einarsdóttir í
Sólheimahjáleigu í Mýrdal
132 atkvæði í 1.-4. sæti, Agúst
Sigurðsson, bóndi í Birtingar-
holti í Hrunamannahreppi,
120 atkvæði í 1.-5. sæti og
Skæringur Georgsson, fram-
kvæmdastjóri í Vestmannaeyj-
um, fékk 177 atkvæði í 1.-6.
sætið. Þær Ólafía og Elín börð-
ust um þriðja sætið og í raun
munaði ekki nema tveimur at-
kvæðum þar.
Þuríður Bernódusdóttir, fisk-
verkandi í Vestmannaeyjum
sem stefndi á þriðja sætið og
skipaði það fyrir síðustu kosn-
ingar, dró framboð sitt til
baka.
Í stjórnmálaályktun þingsins
segir að í kosningum að vori
verði kosið um hvort Fram-
sóknarflokkurinn leiði næstu
ríkisstjórn eða hvort þjóbin
búi áfram við stjórnafar síö-
ustu ára. Flokkurinn þurfi að
fylkja mörgum undir merki
sitt svo megi með farsælum
hætti leysa þau mörgu erfiöu
verkfni sem framundan séu.
Þar er nefnt að ná þurfi efna-
hagslífinu úr öldudal kyrr-
stöðu og samdræáttar, sem og
að bæta kjör þeirra er verst
standa. Sömuleiðis þurfi að
fara inn á nýjar brautir við
nýtingu náttúruaublinda og
þar gefi góð menntun og
kunnátta þjóðarinnar marg-
víslega möguleika. -sbs, Seifossi