Tíminn - 17.11.1994, Síða 4
4
Fimmtudagur 17. nóvember 1994
STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7
Útgáfufélag: Tímamót hf.
Ritstjóri: Jón Kristjánsson
Ritstjórn og auglýsingar: Stakkholti 4, 105 Reykjavík
Inngangur frá Brautarholti.
Sími: 631600
Símbréf: 16270
Pósthólf 5210, 125 Reykjavík
Setning og umbrot: Tæknideild Tímans
Mynda-, plötugerb/prentun: ísafoldarprentsmiöja hf.
Mánaöaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verö ílausasölu 150 kr. m/vsk.
Hnakkrifist vib
láglaunafólk
„Þeir deila ekki við dómara, en hnakkrífast við sjúkraliða," er
fyrirsögn á grein eftir Steinhildi Sigurðardóttur, sem birtist í
Tímanum í gær. Höfundur er í forystusveit sjúkraliöa, sem nú
heyja harða kjarabaráttu.
Upphaf greinarinnar er þannig: „Þegar dómararnir voru
hækkaðir í launum á síöasta ári um hvorki meira né minna en
eitt hundrað þúsund krónur á mánuði, man ég ekki betur en
ráðherrar í ríkisstjórninni tækju þessu með mesta jafnaðar-
geöi og slógu jafnvel á létta strengi. Haft var eftir forsætisráð-
herranum að hann deildi ekki við dómarann, og þessar launa-
hækkanir væru komnar til að vera."
Hér minnir Steinhildur á þegar hæstaréttardómarar ákváðu
einhliða að bæta laun sín um nefnda upphæð.
Það stendur upp úr hverjum manni, sem um stjórnmál og
kjaramál fjallar, að brýna nauðsyn beri til að bæta kjör hinna
lægstlaunuðu. Þeir eigi að ganga fyrir launahækknum á
kostnað þeirra sem meira hafa.
Þessi plata er oröin svo gömul og slitin að á hana hlustar
varla nokkur maður lengur, hvað þá að mark sé tekið á þess-
um frómu varajátningum. Þjarmað er að kjörum láglauna-
fólksins og virðist enginn mannlegur máttur, hvort sem það
eru aöilar vinnumarkaðarins eða stjórnvöld, hafa bolmagn
eða raunverulegan vilja til að standa við margítrekaðar vilja-
yfirlýsingar um að taka spor í átt til launajöfnunar.
Hins vegar horfa launþegar upp á hvernig tekjur hálaun-
aðra embættismanna hækka næstum sjálfkrafa og hve blygð-
unarlaust þeir setja fram kröfur um enn meiri kjarabætur. Rík-
isvaldið og stofnanir þess eru ósínkar á laun og sporslur til
handa hátekjuaðlinum, en þegar kemur að stéttum sem
naumt eru skömmtuð lífskjörin er hnakkrifist vib þær og tal-
ið fráleitt að nokkur leið sé til þess ab koma vib neins konar
launajöfnun.
Mörg dæmi, m.a. eitt nýupplýst, eru um hvernig hátekju-
menn njóta biðlauna og starfslokasamninga, sem væntanlega
eru í einhverju samræmi við þær tekjur sem þeir hafa notið.
Þegar furðu lostinn almúginn biður um skýringar, eru svörin
einfaldlega þau ab allt sé þetta samkvæmt samningum.
Samningsaöili sjúkraliba er ríkisvaldib og er því eðlilegt ab
þeir beri sig saman við starfshópa sem eiga kjör sín undir „
sama aðila og taka launin úr sama sjóði. Skollaleikir með Fé-
lagsdóm og einhver afbrigði samningskúnsta skipta ekki máli
í þessu samhengi.
Málib er það að það er hnakkrifist við sjúkraliða og aðrar
láglaunastéttir, þegar þær gera tilraunir til að sækja sinn rétt
og krefjast mannsæmandi lífskjara, en brosab blítt við há-
launaablinum, þegar hann gengur í sjóbinn og sækir sér
hnefa. Þá á höfðingsskapur vörslumanna opinberra sjóba sér
lítil takmörk.
Sambærilegt réttlæti er ástundað á almennum vinnumark-
aði. Tekjumunurinn er gífurlegur og vibbrögðin svipuð, þegar
þeir tekjulægstu reyna að rétta sinn hlut. Marglaunaðir for-
stjórar með takmarkalítil fríðindi á kostnaö fyrirtækja og
skattheimtu hnakkrífast við láglaunalýðinn, þegar kjaramál
ber á góma.
Um áramót eru flestir kjarasamningar á almenna markaðn-
um lausir og eins og venjulega er höfubáhersla lögð á að laun-
in standi í stað, ab minnsta kosti hjá þeim breiða fjölda sem
amlar ofan af fyrir sér á taxtakaupi.
Þjóðarsátt og stöðugleiki eru forsenda heilbrigbs efnahags-
lífs og launafólkið í landinu hefur sannarlega lagt sitt af
mörkum til að koma því ástandi á og viðhalda því. Vafalítiö
mun það enn um sinn sýna þjóðhollustu og skilning á að
halda hjólum athafnalífsins gangandi.
En þá verður líka ab koma til móts við vinnandi stéttir og
skella ekki á þær hurðum hvenær sem kjarabætur ber á góma
og hnakkrífast vib tekjulágt fólk eins og sjúkraliöa.
En ef nómenklatúran ætlar ab halda áfram að hygla sjálfri
sér eins og hingað til og taka sér laun og fríöindi að geðþótta,
mun hún gjörspilla stöðugleikanum og setja gjörvallt efna-
hagslífið úr skorðum. Láglaunafólki verður ekki um kennt.
Viðeyjardúett á norskum forsíbum
Það komst á forsíöur í norskum
dagblöðum í gær að þeir Jón Bald-
vin Hannibalsson og Davíð Odds-
son væru sammála um ab norski
sjávarútvegssamningurinn við
Evrópubandalagið myndi aldrei
verða talinn duga íslendingum.
Það munu hafa verið blöb, sem
andstæð eru ESB-aðild Norð-
manna, sem slógu þessu upp,
enda hefur máliö augljóst áróö-
ursgildi fyrir þá og auðvelt að
benda á að nú eigi að bjóða Norö-
mönnum upp á eitthvað sem ís-
lendingar fúlsi vib.
Fyrir okkur Islendinga eru þetta
vissulega athyglisverð tíðindi,
ekki síst í ljósi þess að Jón Baldvin
var búinn að gefa það sterklega í
skyn á sínum tíma aö hann teldi
Norðmenn hafa náð góðum sjáv-
arútvegssamningi við ESB. Davíö
hins vegar hefur lýst vantrausti á
Jón út af þeirri yfirlýsingu og ekki
óeðlilegt að utanríkisrábherrann
hafi eitthvað dregið úr aðdáun
sinni á samningnum eftir það.
Kannski skiptir það lík
En þó málflutningur Jóns Bald-
vins gagnvart sjávarútvegssamn-
ingi Norömanna kunni ab hafa
breyst eitthvab, þá er því ekki að
leyna að þeir Viðeyjarbræður hafa
haldib ágætis leiksýningu fyrir
norræna fjölmiðla nú síðustu
daga og sýnt fram á hvernig hægt
er ab vera gjörsamlega ósammála
um grundvallaratriði, en starfa
engu að síöur saman í ríkisstjórn.
Ósamkomulag íslensku rábherr-
anna í öllu sem tengist Evrópu-
málunum hefur raunar gengið
miklu lengra en algengt er ab
komi upp meöal samherja á hin-
GARRI
um Norðurlöndunum. Þar liggur
ágreiningurinn fyrir með skýrum
og afmörkubum hætti og menn
hafa orðið sammála um að í þessu
máli gildi önnur lögmál en í öðr-
um atriðum pólitískrar stefnu-
mörkunar. Viöeyjardúettinn hef-
ur hins vegar ekkert slíkt sam-
komulag gert um Evrópumálin og
talast þess vegna við með lítt dul-
búnum svívirðingum og glósum.
„Stingur höfðinu í sandinn" er
t.d. eftirlætis samlíking, sem ut-
anríkisráðherrann grípur til þegar
hann lýsir skoðunum forsætisráð-
herrans. „Ber höfðinu við stein-
inn" er aftur á móti orðatiltæki,
sem forsætisrábherrann grípur til
þegar hann er að lýsa skoðunum
utanríkisráðherrans. Ákafinn og
heítstrengingarnar ganga meira
aö segja svo langt aö Davíð viröist
telja að séu menn jákvæbir gagn-
vart ESB-aðild, sé þaö sambæri-
legt við að vera jákvæðir á smit-
sjúkdómaprófi.
jón Baldvin sýktur
Hegðun Jóns Baldvins megi
þannig skýra sem veikindi —
hann sé sýktur. Þessi skobun Dav-
íðs kom vel fram á blaðamanna-
fundi með norrænum fjölmiðl-
um, en þar útskýrði hann veik-
indi bæði finnska og sænska for-
sætisráðherrans með því ab þjóðir
þeirra hefðu greinst jákvæðar
gagnvart ESB-aðild í atkvæða-
greiðslu.
Þegar heitstrengingarnar milli
samstarfsaðilanna í íslensku ríkis-
stjórninni eru orðnar með þess-
um hætti, er ekki nema eðlilegt
að norskir blaðamenn telji það
áhrifaríkt og merkilegt ef Viðeyj-
arbræbur eru sammála. Þess
vegna beinlínis hlaut það að
verða forsíðufrétt hjá andstæð-
ingum ESB ef norski sjávarútvegs-
samningurinn var svo lélegur að
meira að segja Jón og Davíð, sem
ekki eru sammála um nokkurn
hlut, gátu ekki' annað en verið
sammála um það. Garri
Svona á Alþýðuflokkurinn að vera
í hvert sinn sem einhverjum
smápólitíkusnum er hafnaö úr
óskasæti sínu í ólýðræðislegu
prófkjöri, rjúka fjölmiðlamenn
til og reka hljóbnema upp í nas-
ir hans og stinga upp á að hann
drífi sig í flokkinn hennar Jó-
hönnu.
Fallistinn er voða svekktur yf-
ir því hvernig vondar klíkur í
hans eigin flokki útskúfuðu
honum, eins og hann var nú
búinn aö vinna mikið gott og
göfugt starf fyrir flokkinn sinn.
En þegar Jóhanna er nefnd, fær
hann hugljómun.
Þar er á ferð flokkur sem er á
móti flokkum og er orðinn
næstum eins stór og Framsókn í
skoðanakönnunum. Þar bíða
tækifærin fyrir þá sem aðrir
flokkar vilja ekki og þegar nánar
er skoðað — hvílík glás af laus-
um sætum á listum út um'-öll
kjördæmi.
„Það er aldrei að vita," segir
fallistinn og þurrkar óbragðib af
hljóðnemanum úr munni sér.
„Mér líst bara vel á hana Jó-
hönnu og þab getur vel komið
til greina ab ég ljái máls á því ab
taka sæti á lista hjá henni, ef eft-
ir verður leitað."
Og fyrrverandi íhald, framm-
ari, femínisti eba allaballi er óð-
ar orðinn þátttakandi í sprell-
fjörugustu sjónhverfingum
stjórnmálanna í dag.
Botninn er uppi í
Borgarfirði
Svo eru það heilu hugmynda-
fræðilegu samtökin, sem ætla
ab nota Jóhönnu sér til fram-
dráttar í kosningum. Kvenna-
listinn var kominn á hlemmi-
skeið á eftir Jóhönnu, án þess að
hafa hugmynd um hver hennar
stefnumál em, þegar stórfundur
fylkingarinnar spyrnti vib fót-
um í Varmalandi. Þar kom í ljós
að vera kynni ab karl kynni að
slæðast í flokkinn og þar meb
datt botninn úr þeirri umræðu
og er hann enn uppi í Borgar-
firði.
Þá tókst Ólafur Ragnar á flug
og baub bæði Jóhönnu og fem-
ínistum far í allaballarútunni
fram yfir kosningar. En þegar
búib var að troða Ögmundi ut-
anflokka Jónassyni inn í drossí-
una, var ekki rúm fyrir fleiri,
enda afþökkuðu dömurnar gott
boð og segjast ekki vera í sjálfs-
Á vfóavangi
morbshugleibingum.
Auk þeirra fjölmiblamanna,
sem eru svona duglegir að smala
fallistum í Jóhönnuflokk, eru
alls kyns slúíbentar og dálka-
höfundar sífellt ab planta ólík-
legasta fólki í þennan flokk, sem
ekki er til og enginn veit hvað
úr veröur. Þetta liö tyggur hvað
eftir öðru hvílík pólitísk stór-
mæli séu hér á ferö, enda sér
margur fyrir sér glæstan flokk
framboðstækifæra sem vert er
að nudda sér utan í.
Tíminn kemur
Nú er tími Jóhönnu að koma.
Hún er ekki að safna um sig tæt-
ingsliði pólitíkusa sem abrir
hafna. Hún ætlar ekki að vera
atkvæðasmali fyrir illa grundaö-
ar stórfylkingar pólitískra
lukkuriddara.
Hún ætlar aö ná sér niðri á
Jóríi Baldvini og það verður ekki
gert nema í slagtogi með kröt-
um. Einu marktæku kandídat-
arnir í hinni nýju hreyfingu
jafnaöarmanna eru eðalkratar,
flestir kynbornir. Sigurður Pét-
ursson og Ágúst Einarsson eru
vænleg þingmannsefni og Jón
Sæmundur, fyrrum þingmaöur,
lýsir yfir í Alþýöublaðinu ab sér
finnist vaxtarbroddur jafnaðar-
mannahreyfingarinnar vera í
þessum hópi. „Ég er mjög snort-
inn af því sem þarna fer fram og
ákaflega hrifinn. Mér finnst ab
svona eigi Alþýðuflokkurinn ab
vera." Svo rekur Jón Sæmundur
ömurlegt ástand í flokknum og
minnir á ab Jón Baldvin Hanni-
balsson sé skipstjóri sem ekki
fiskar.og eigi að víkja.
Mátuleg leynd hvílir yfir
flokknum hennar Jóhönnu og
ebalkrata hennar. En víst er aö í
hópinn fá ekki inngöngu nema
þeir, sem verið hafa og eru í Al-
þýðuflokknum. Aðskotadýr
með varasamar hvatir eiga
þangað ekki erindi eða neina
von um frama.
í fyllingu tímans mun karlinn
í brúnni, sem ekki fiskar, verða
settur í land og tími Jóhönnu
renna upp og hrein og klár jafn-
aöarmennskan ríkja ein.
„Innan Alþýðuflokksins eru
býsna margir að hugsa málið,"
segir annar kynborinn ebalkrati
í kratablabinu.
Jóhanna Siguröardóttir lætur
sér ekki detta í hug aö fiska ann-
ars staðar en á heimamiðum.
Hún kærir sig ekki um kvóta
annars staðar. OÓ