Tíminn - 24.11.1994, Blaðsíða 14
14
LANDBUNAÐUR
Fimmtudagur 24. nóvember 1994
Massey Ferguson hefur frá upphafi verib ein mest selda vélin hér á landi og ekki virbist vera nein breyting þar á.
MYKJUDÆLUR
Kimadan
TANKDREIFARAR
Tankdreifarar
frá 4.000 til
21.500 lítra.
Val á mismun-
andi útfærslum.
Mykjudælur
(Brunndælur)
- með rafmagnsmótor
eöa aflúttaksdrifnar
- með eða án hræru-
búnaðar
- einnig fáanlegar
galvaniseraðar.
Mykjudælur
á þrítengibeisli
- sérstaklega hentugar við
þröngar aðstæður.
VELAR&
PJ®NUSTAhf
JÁRNHÁLSI 2, 110 REYKJAVÍK. SÍMI 91-876500 91-876500
Ingvar Helgason hf.:
Markaðshlut-
deild aukist
í harðnandi
samkeppni
eir Gubjón Haukur Hauks-
son og Arngrímur Pálma-
son, sölumenn hjá véladeild
Ingvars Helgasonar, segja hlut-
deild véladeildar á landbúnaöar-
tækjamarkaðinum hér á landi
vera mjög stóra og hún hafi jafn-
vel aukist eftir að fyrirtækið tók
við þeim umbobum sem það hef-
ur í dag. Það megi ennfremur
leiða líkum ab því að Ingvar
Helgason sé nú stærsti aðili í sölu
á tækjum og búnaði til landbún-
aðarframleiðslu í dag.
Þeir segja samkeppnfna harða
í sölu þessara tækja og að nú sé
harðar tekist á um hverja sölu,
enda hafi hún dregist mjög sam-
an á undanförnum árum og enn
sjái ekki fyrir endann á þeim
samdrætti. „Bændur vita nátt-
úrulega ekki hvar þeir standa
gagnvart þeim breytingum sem
munu verða í framtíöinni, auk
þess sem margir hverjir hafa ekki
nægilegt fjármagn til að standa í
endurnýjunum," segir Guðjón
Haukur. Véladeild Ingvars Helga-
sonar byggir meginhluta sölunn-
ar á vélum frá Massey Ferguson,
PZ, Claas og Kuhn, auk þess sem
þessi fyrirtæki eru stöðugt að
kaupa önnur fyrirtæki og þar
meb eykst vöruúrval þeirra mjög.
Massey Ferguson drattarvelin
hefur um áratuga skeið átt vin-
sældum að fagna hér á landi.
Þessar vélar hafa verið í gegnum
tíðina einna mest seldar og segir
Arngrímur að sem dæmi um það
megi nefna aö alls hafa veriö
seldar um sjö þúsund vélar af
þessari gerb frá upphafi. Hins
vegar ber að líta á að heildarsala
á dráttarvélum hér á landi hefur
hrapaö á síðustu fjórum árum og
er vart nema fjóröungur í dag
miðað við þá. Guðjón Haukur
segir að á sama tíma hafi þróun-
in verið sú að bændur hafi snúið
sér æ meira að þeim dráttarvél-
um, sem meira eru seldar og snú-
ið sér frá þeim sem aðeins hafa
veriö seldar í fáeinum eintökum
og megi það fyrst og fremst rekja
til varahluta- og viðgerðarþjón-
ustu.
Hvað helstu nýjungar frá Ing-
vari Helgasyni varðar, nefna þeir
Guðjón Haukur og Arngrímur að
þar megi helst telja til Kverne-
land, rúllupökkunarvélina. Um
er að ræða barkastýrða vél, með
breibfilmubúnaði og fallborbi,
sem ekki hafi verið boðið upp á
áður. Helsti munurinn er sá að
áður fyrr var einungis boðiö upp
á tölvustýrða vél með þessum
„Hátíð úti í
Forsvarsmenn Ingvars Helga-
sonar hf. vinna nú að skipu-
lagningu þess sem þeir kalla
„Hátíð úti í heimi", sem er ferð á
Sima-landbúnaðarsýninguna í Par-
ís, sem haldin verður um mánaðar-
mótin feb-mars næstkomandi. í
sömu ferð er áætlaö að heimsækja
framleiðendur landbúnaðartækja,
sem Ingvar Helgason er umboðsað-
ili fyrir hér á landi, s.s. Massey
Ferguson, Claas og fleiri aöila í
Frakklandi. Gert er ráö fyrir að fyr-
irtækið muni standa fyrir og skipu-
leggja sambærilegar ferðir á tveggja
ára fresti í framtíðinni, en í fyrra
var í fyrsta sinn haldin „Hátíð í
bæ", þannig að annað hvert ár
verba hátíðarhöldin í húsakynnum
Ingvars Helgason og hitt árið verð-
ur land lagt undir fót.
Fyrsta „Hátíð í bæ" var haldin á
Ingvar Helgason hf.
leggur land undir fót
og gefur vibskiptavin-
um og fleirum kost á
ab slást í hópinn
síöastliönu ári og þótti takast ein-
staklega vel til, en alls komu um
fimm þúsund manns á hátíðina á
fjórum dögum. Um var að ræða
kynningu á vélum og þjónustu
þeirri sem Ingvar Helgason hf. hef-
ur upp á að bjóða tengdum land-
búnaði. í tengslum við sýninguna
voru haldnir norðlenskir héstadag-
ar í Reibhöllinni, fjölsótt skemmt-
un á Hótel íslandi auk fjölda ann-
arra atriöa. Guðjón Haukur Hauks-
son, sölumaður í véladeild, segir
ODYRT ÞAKJARN
Ódýrt þakjárn, lofta- og veggklæöningar.
Framleiðum þakjárn og fallegar lofta- og
veggklæðningar á hagstæðu verði.
Galvaniserað, rautt og hvítt.
TIMBUR OG STÁL HF.
Smiðjuvegi 11, Kópavogi.
Símar 91-45544 og 42740. Fax 45607.