Tíminn - 10.12.1994, Blaðsíða 8

Tíminn - 10.12.1994, Blaðsíða 8
8 Laugardagur 10. desember 1994 Páll Eyjólfsson, skipstjóri á verksmibjutogaranum Haraldi Kristjánssyni, segir ab sjómenn grœbi á ab hirba smáfiskinn, spáir mikilli ásókn í Smuguna nœsta sumar og gagnrýnir stjórnmálamenn: Sumir rábherr- amir em ekkert annab en kjafturinn „Sjómönnum á stóru togurun- um hefur oft verib legib á hálsi fyrir a& fleygja í hafib aftur gífurlega miklu magni af smáfiski. En ég vil bara segja a& þetta er hreinn þvætt- ingur. Þaö er ekkert launung- armál a& þetta var gert á&ur. Menn hentu smáfiskinum meira a& segja löngu áöur en kvótinn kom til sögunnar. En þa& er ekki gert lengur," full- yr&ir Páll Eyjólfsson, skip- stjóri á verksmiöjutogaranum Haraldi Kristjánssyni sem Sjólastö&in í Hafnarfiröi rek- ur. Þetta kemur fram í vi&tals- bókinni Þeir fiska sem róa eft- ir Jón Kr. Gunnarsson. Páll segir aö þeir hiröi allan undirmálsfisk, þaö er a& segja fisk undir 50 sentímetrum og heilfrysta hann meb haus og hala og fá ágætis verð fyrir þann afla, sem reiknast þá inn í kvót- ann sem einn þriðji af stór- þorski. „Þegar upp er staðið fá- um við jafn mikið fyrir þann fisk og stærri fiskinn flakaðan. Þab er því engum smáfiski hent lengur," segir Páll. „Ég hef oft veriö að velta því fyrir mér, til þess ab hrekja þess- ar fullyrðingar, að taka til skob- unar aflaskýrslur fyrstu frysti- togaranna fyrir um 10 árum og bera þær saman við Iöndunar- skýrslurnar í dag. Þá myndu menn sjá að fyrir 10 árum komu engir með löngu og keilu aö landi. En í dag erum vib ab landa úr hefðbundnum afla á heimaslóð öllum þessum teg- undum. Við erum stundum meö 50 til 60 númer yfir teg- undir og stærðir af fiski. Við hirðum þetta allt," segir Páll í viðtalsbókinni. Páll hefur sínar efasemdir um Smuguveiöarnar. Við séum þar í lagalegurr. rétti, en öbru máli gegni um siöferðilegan rétt til veiðanna. Páll Eyjólfsson. „Ég vil bara segja þab ab ég yrbi grimmur ef erlendar þjóðir væm að veiba þorskinn minn rétt fyrir utan landhelgina. Ég myndi ekki sætta mig við það hávaöalaust. En þab er ekki við sjómennina að sakast. Þeir eru bara að bjarga sér. Það er vandi stjórnmálamannanna að leysa hnútinn en þeir þora ekki að taka á þessu máli. Sumir ráð- herranna em ekkert nema kjaft- urinn í þessu máli en svo þegar á hólminn er komiö þá linast þeir niður," segir Páll og spáir því að margir fari á Smuguveið- ar á komandi sumri. í viðtalsbók Jóns Kr. Gunnars- sonar er rætt vib fimm aðra kunna athafna- og aflamenn, þá Konráð G. Eggertsson, skip- stjóra og hrefnuveiðimann, Þor- geir Þórarinsson, skipstjóra og útgerðarmann, Einar Jóhannes- son, vélstjóra og uppfinninga- mann, Guðjón A. Kristjánsson, forseta Farmanna- og fiski- mannasambandsins og Arthur Bogason, formann Landssam- bands smábátaeigenda. ■ ÚTBOÐ F.h. Byggingadeildar borgarverkfræbings er óskað eftir tilbo&um í jar&vinnu vegna vi&byggingar Brei&holtsskóla. Helstu magntölur eru: Uppgröftur 3.000 mJ Fylling 700 mJ Cir&ing 145 m Verkinu á a& vera lokið 6. febrúar 1995. Útbo&sgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu. Tilboðin ver&a opnu& á sama sta& mi&vikudaginn 28. desember 1994, kl. 11,00 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR (REYKJAVÍK PURCHASING CENTER) Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 FAXNUMERIÐ ER 16270 „Leggings" í flestum tilfellum klæðilegur frítímafatnabur Andúð Heiðars snyrtis á því að konur klæðist víðum og poka- legum joggingbuxum í tíma og ótíma mun ekki hafa farið fram hjá mörgum. En ýmsa langar að vita hvaða augum Heiðar lítur þá andstæðuna: hinar svokölluðu „leggings" buxur sem ekkert hylja af því sem undir er? Henta þær öll- um konum og alls staðar? Svar: Leggings — sem árangur- slítið hefur verið reynt ab þýða á alla kanta sem þvengjur, brækur og ég veit ekki hvað og hvað, en verða þó líklega alltaf leggings — þær eru yfirleitt klæðilegar. Vegna þess að kon- ur geta þá valiö sér mismun- andi síða toppa við þær, hver og ein eftir sínu vaxtarlagi. Og þessi lína hefur verið í tísku, að hafa leggings undan topp. Höfuðkosturinn vib leggings er sá, að ferköntuð lína á konu sem er svolítið þykk ofantil, þ.e. kassalaga flík, þar sem mjórri flík eða þrengri kemur svo niður undan, þá er það í rauninni grennandi ef fótlegg- ir eru sæmilega formabir. Þetta hefur einmitt verib helsti plú- sinn við leggings, að það eru ýmsar konur sem hafa þurft að fela sig dálítið með fötum, af því að þær eru of þykkar. En margar þeirra eru líka með ágæta fótleggi og þær hafa get- að nýtt sér þetta með nokkuð góðum árangri. Mistökin í sambandi við þessa leggings-tísku á íslandi tengist raunverulega jogging- göllunum að nokkru leyti. Það er vegna þess að svona toppar og leggings er hversdagsfatn- aður og kannski mögulega eft- irmiðdagsfatnaður. En þetta er ekki kvöldklæðn- abur og þar er kannski stærsta vandamálið: Leggings og háir hælar — það hefur aldrei verið gert ráð fyrir því. Leggings er nokkuð sem notað er með sléttbotnuðum skóm, látnar fara undir kuldastígvél meb ágætis árangri eða notabar með inniskóm og íþrótta- skóm. En þegar þessar elskur okkar eru að drífa sig á böllin í fínni skyrtu, leggings og á háum hælum — þá eru þær farnar að fara pínulítib yfir markið. Því þetta hefur aldrei verið mein- ingin. Eg vil meina að þetta sé frí- tímafatnaður, í flestum tilfell- um klæðilegur, en ekki til að klæðast á skrifstofum eða í bönkum eða öðrum slíkum stöðum. Ég hef verið á móti því, af því ég hef í rauninni líka verið að banna gallabuxur á opinberum vinnustöðum. Og það sama é við um legg- ings. Þær eru aubvitað hlýjar í kulda og vitaskuld allt í lagi að klæðast leggings undir pils og fara síðan úr þeim þegar kom- ið er á staðinn. Ég hef líka alltaf ráðlagt fólki að reyna ab skoða sig með annarra augum. Því þegar við horfum í spegil, á okkur sjálf, þá verbur matið alltaf svolítið skakkt, af því við horfum alltaf á eigin persónu. Þess vegna er það mjög sniðugt að byrgja allt andlitið nema augun. Setja bara yfir höfuðið brúnan bréf- poka með götum fyrir augun og horfa á útkomuna þannig; þ.e. eins og við séum ekki að horfa á okkur sjálf, heldur ein- hverja allt abra persónu. Þá Hvernig áégab vera? Heiðar Jónsson, snyrtir, svarar spurningum lesenda getum við betur metið hvort flík klæðir okkur eða ekki. Og þetta vil ég benda konum á að gera við leggings-dressið sitt. Spurning: Hefur þú ekki orðið var við að margar konur séu svolítib feimnar við leggings — sérstaklega ef þær eru eilítið þykkvaxnar? Svar: Jú, og þar kemur nefni- lega viss misskilningur. Ef fót- leggir eru grennri, ef kona er þyngri að ofanverbu en að neðan, þá eru leggings klæði- legar. Með því ab láta toppinn ná niður fyrir breiðasta hlut- ann þá er klæðilegt að vera í leggings. Málið er, og því skyidi eng- inn gleyma, að þegar við horf- um á fólk, þá tökum við alltaf fyrst eftir því hvar manneskjan er breiðust. Ef við ímyndum okkur að fólk standi inni í ósýnilegum kassa, þá er það sá líkamshluti sem stendur út úr kassanum sem við sjáum og er þá kannski helsti mínusinn í heildarmyndinni. Sé fólk t.d. mjög axlabreitt, þá tökum við fyrst eftir því. Það sama á við ef kona er mjög mjaðmabreið. Þetta þurfum við einmitt að hafa í huga varð- andi þessa legg- ingstísku — að konur þurfa að klæða af sér breiðasta hlut- ann. Fjölmargar konur eru t.d. með breiðar mjaðmir en ágætis fótleggi. Þá þurfa þær að passa vel upp á það, að toppur- inn sem þær nota yfir legg- ingsbuxurnar nái niður fyrir mjaðmir, en ekki bara niður á mjaðmir, sem er það allra versta. Það væri þó s k ö m m i n n i skárra að hann væri ofanvið breiðasta hlut- ann. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.