Tíminn - 10.12.1994, Page 11
Laugardagur 10. desember 1994
11
Reynsla — þekking — forysta
DRIFA í 1. SÆTI
Veljum Drífu Sigfúsdóttur,
forseta bœjarstjórnar Keflavíkur — Njarðvíkur — Hafna, í
1. sœti í prófkjöri Framsóknarflokksins í Reykjaneskjör-
dæmi í dag. Metum þekkingu hennar og reynslu í stjórn-
málum.
Stuðningsmenn.
þá verður að fylgjast vel
með honum.
Stofnstærð loðnu er mæld
með svokallaðri bergmálsað-
ferð, það eru notaðir sér-
hannaðir dýptarmælar og
tölvur sem mæla styrkleika
endurvarpsins. Síðan eru
tekin togsýni til að ákvarða
aldur og kynþroska og
stærðarsamsetningu. Sam-
kvæmt síðustu mælingum er
veiðistofninn ekki nema
tæp 700 þúsund tonn. Sam-
kvæmt áætlunum hefði
hann átt að vera um 1,5
milljónir tonna, sem er al-
gengt að hausti ef lítið hefur
verið veitt. En við skoðum
þetta betur í janúar," segir
dr. Hjálmar Vilhjálmsson.
Ritgerð dr. Hjálmars heitir
The Icelandic Capelin Stock,
Capelin, Mallotus villosus
(Miiller) in the Iceland-Green-
land-Jan Mayen area. And-
mælendur voru Odd Nak-
ker, fyrrum forstjóri norsku
Hafrannsóknastofnunarinn-
ar fyrir hönd Háskólans í
Björgvin, prófessor Victor
Öilstad frá Háskólanum í
Tromsö, og dr. Jakop Gjö-
sæter, prófessor viö Oslóar-
háskóla.
Lobna. Málverk á silki eftir Di Dabinett, sem býr á Nýfundnalandi.
það væri eiginlega ómögu-
legt að ekkert heillegt væri
til um þennan fisk. Fiski-
fræðingar voru þá í vaxandi
mæli farnir að vinna á fjöl-
stofna grundvelli, það er
með hliðsjón af því hver æti
hvern, og það var farið að
spyrja mann fleiri og fleiri
spurninga um loðnu, hátta-
lag hennar, hvers konar
bráð hún væri og svo fram-
vegis. Það fór sívaxandi
tími, bæði minn eigin og
annarra, í vangaveltur um
loðnuna og hlut hennar í
lífríkinu og ég gat þess utan
ekki hugsað mér að ævistarf-
ið endaði sem einhverjar
vélritaðar skýrslur niðri í
skúffu. Þetta varð til þess að
ég, í samstarfi og samráði
við stjórnendur Hafrann-
sóknastofnunar, ákvaö að
gera dæmið upp. Þetta upp-
gjör, eða doktorsritgerð sem
nú er orðin, er einfaldlega
heildarmynd þeirra rann-
sókna sem ég, ásamt vinnu-
félögum mínum, hef stund-
að frá 1966 til loka vetrar-
vertíðar 1993.
Ég hef reynt að fjalla um
hina ýmsu þætti rannsókn-
anna og vega þá og meta.
Athuga hvort við þekkjum
hlutina, hvort við þekkjum
þá vel eða illa og ekki síst
hvað við þekkjum ekki, en
þyrftum aö þekkja.
Niðurstaðan er sú að við
vitum talsvert mikið um
loðnu. Þess vegna tel ég til
dæmis aö við höfum komist
gegnum þennan veiðiskap
án þess að ganga frá loðn-
unni. Hrunið 1980 og aftur
1990 er ekki afleiðing veið-
anna. Það var að vísu veitt
grimmt í fyrra tilvikinu og
loðnan hrygndi lítið í ein
tvö ár, en þetta slapp fyrir
horn. Ég held reyndar að
það sé heppni. En engu að
síður má ráöa af þeim gögn-
um, sem til eru, að það voru
ekki veiðarnar sem ollu afla-
brestinum.
Nú hefur margt skýrst
varöandi það hvar við
stöndum, hvort við þekkj-
um hlutina vel, sæmilega
eða alls ekki. Nú er hægt að
stilla sér upp við markið aft-
ur og taka þá fyrir þætti sem
maður veit ekki nægilega
mikið um. Og það er alveg
ljóst að það er eftir margra
ára vinna.
Félagslyndur
fiskur
„Loðnan er laxfiskur og
ber þess augljós merki, er til
dæmis með veiðiugga og
drepst við hrygningu. Það
eru tvö aðaleinkennin. Svo
er hún fjarskyld síldfiskum.
Hún er afar félagslynd, þó
mismikið, eins og kemur
fram í því að ekki hefur ver-
ið hægt að veiða hana á
haustin og veturna undan-
farin ár. Það var hinsvegar
algengt á þeim tima áður
fyrr, að veiðin væri góð á
þeim árstíma. En af því að
loðnan er félagslynd og auð-
veidd síðustu vikur fyrir
hrygningu, þá er ekki nokk-
ur vandi að hreinsa stofninn
upp þegar magnið er tak-
markað. Ef menn ætla að
nýta loðnustofninn af viti,
Útboð
Tilboð óskast í byggingu tveggja útstöðva (símstöðva). Önn-
ur byggingin verður reist á lóð við Starengi í Reykjavík, en
hin á lóð við Smárann í Kópavogi.
Verkið nær til fullnaðarfrágangs tveggja húsa. Hvort húsib
verbur 71 m2/255 m3 að stærð.
Útboðsgögn verða afhent frá og með þriðjudeginum 13.
desember 1994, hjá fasteignadeild Pósts og síma, Pósthús-
stræti 5, gegn 10.000,- króna skilatryggingu. Tilboð verða
opnub fimmtudaginn 5. janúar 1995 kl. 11:00.
Reykjavík, 8. desember 1994,
Póst- og símamálastofnunin.
Útboð
Tilbob óskast í breytingar á póst- og símahúsinu, Aust-
urvegi 24-26, á Selfossi.
í verkinu felst að endurnýja hluta hússins að innan, reisa
veggi, klæða loft, koma fyrir raf- og hitalögnum, leggja
gólfefni, mála húsið að innan, koma fyrir nýjum glugg-
um, stiga o.fl.
Útboðsgögn verða afhent frá og með þriðjudeginum
13. desember 1994, hjá fasteignadeild Pósts og síma,
Pósthússtræti 5, 101 Reykjavík, og á skrifstofu stöðvar-
stjóra Pósts og síma á Selfossi gegn 20.000,- króna skila-
tryggingu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu fasteigna-
deildar þann 5. janúar 1995, kl. 14:00.
Reykjavík, 8. desember 1994,
Póst- og símamálastofnunin.
Laust lyfsöluleyfi,
sem forseti íslands
veitir
Laust er til umsóknar lyfsöluleyfi á Patreksfirði (Patreks Apó-
tek).
Fráfarandi lyfsali gerir kröfu til þess, í samræmi við 11. gr.
laga um lyfjadreifingu nr. 76/1982 og bráöabirgbalög nr.
112/1994 um breytingu á lyfjalögum nr. 93/1994, að vib-
takandi lyfsöluleyfishafi kaupi vörubirgbir, búnab og innrétt-
ingar lyfjabúðarinnar. Ennfremur kaupi viðtakandi leyfishafi
húseign þá er lyfjabúðin ásamt íbúb fráfarandi lyfsala er í.
Væntanlegur lyfsali skal hefja rekstur frá og með 1. mars
1995.
Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um lyfjafræbi-
menntun og lyfjafræbistörf, skal senda ráðuneytinu fyrir 1.
janúar 1994.
Heilbrigðis- og tryggingamálarábuneytib,
6. desember 1994.