Tíminn - 10.12.1994, Blaðsíða 15

Tíminn - 10.12.1994, Blaðsíða 15
Laugardagur 10. desember 1994 WPmtiSwí 15 Séb út í Þerney og yfir Þerneyjarsund. Húsin í forgrunni eru bœjarhúsin í Álfsnesi, miöstöb böggunarstöövar Sorpu. Og ekki hafa allir ábúendur dáiö friösœlum dauöa. Þerney, hvíldarparadís húsdýranna í Laugardal Séö yfir Leiruvog, Víöineshœliö handan vogsins. Þerney kúrir í skjóli viö Cunnunes og Álfsnes. Litli hólminn, sem vonandi greinist á myndinni, er Lundey sem aldrei hefur veriö í byggö. Um daginn var frétt um þaö í sjónvarpinu aó skepnurnar í Húsdýra- garöinum í Laugardal væru fluttar út í Þerney til ab hvíla sig frá erli borgarlífsins, þær þyrftu að taka sér orlof frá glápi þús- unda augna til ab vappa í fribi og spekt um tún og engi Þern- eyjar og safna kröftum undir komandi sýningarstarf í Laugar- dal. Merkileg eyja, Þerney. Þótt margir hafi heyrt um hana, hafa fá- ir komið þangab, og þótt flestir viti ab Þerney sé ein af eyjunum á sundunum, er eins og það vefjist fyrir mörgum hvar hún er. Enda er alls ekki svo gott ab koma auga á hana þar sem hún kúrir upp við land skammt undan bænum Álfs- nesi á Kjalarnesi. Þerney sést ekki frá Reykjavík vegna þess að Viöey skyggir á hana og ekki sést hún frá Grafarvogi, því þá lokar Geldinga- nes fyrir útsýn til hennar. Þerney sést hins vegar ef gengið er niður ab Korpúlfsstöðum eða ofan í Blikastaðakró, en þá rennur hún saman við Gunnunes sem gengur suður úr Álfsnesi, og sýnist land- föst. Álfsnes ættú menn að þekkja, því það komst í fréttimar fyrir nokkmm ámm þegar Böggunar- stöð Sorpu var sett þar niður. Til að fá yfirlit yfir Þerney er lík- lega best að aka Vesturlandsveginn að Lágafelli, upp afleggjarann aö kirkjunni og horfa þaðan yfir Leimvog, út á Álfsnes og Gunnu- nes og þá sést Þerney handan sundsins sem kennt er við eyjuna og heitir Þemeyjarsund. En jafnvel héöan er erfitt að sjá lögun eyjunn- ar, það þyrfti að ganga hærra upp í hlíðar Lágafells til að sjá að norður- hluti eyjunnar er allbreiðari en suðurendinn, svo úr lofti minnir eyjan á sleggjuhaus með stuttu skafti. En hvað er þá vitab um þessa eyju? Þegar vitneskjan er ekki fyrir hendi liggur beinast við að fletta í bókum og sjá hvað þar má finna. Fyrst liggur fyrir að fletta upp í bókinni „Landið þitt" eftir Þorstein og Steindór. Þar segir að Þerney sé „eyja í Kollafirði skammt undan landi hjá bænum Álfsnesi á Kjalar- nesi. í Þerney var búið fram á þessa öld. Kirkja var í eyjunni fyrr á öld- um. Þerneyjarsund er milli eyjar og lands. Skip sigldu á Þerneyjarsund á miðöldum og var það helsta verslunarhöfn subvestanlands áð- ur en kaupmenn tóku að sigla á Hvalfjörð." í ritinu „Landnámi Ingólfs" I, 2, bls. 136-7, getur enn- fremur að lesa: „[Þerney] Lögbýli um aldir og allt fram á þessa öld. Hjáleiga var um tíma á eynni er nefndist Landakot, en var komið úr byggð árið 1704. Hjáleigur í landi vom Víðines og Sundakot ... Nafn eyjarinnar er dregið af hinu forna nafni kríunnar, þerna. Verpti krían í eynni ásamt æðarfugli fyrr á tímum. Þemey er á Kollafiröi, skammt undan landi eða milli Gunnuness og Álfsneshöfba. Hún skiptist í Norðureyju og Subur- eyju." I lýsingu Gullbringu- og Kjósar- sýslu eftir Skúla Magnússon land- fógeta segir á þennan veg um Þern- ey: „Þerney er ein af konungsjörð- unum, er umflotin sæ, 800 faðma löng og 125-600 fabma breið. Hún greinist af mjóu sundi frá megin- landinu, en þar á hún tvær hjáleig- ur og einnig meö annarri konungs- jörö, Álfsnesi, landsvæði, sem Sveigsmýrar heitir. Þar mætti sjálf- sagt reisa byggð, annab hvort lítil bændabýli eða hjáleigur. í eynni hefur áður verib æðarvarp nokkurt, en hefur horfið vegna óvarkárlegr- ar nytjunar þess. Ekki er ey þessi, sem hefur góðan lendingarstað, heldur eins vel setin og unnt og vera ætti." Samkvæmt kirkjuskrá Páls bisk- ups í Skálholti frá því um 1200 em taldar fimm kirkjur á því svæði sem nú er höfuöborgarsvæðið. Þær vom Nes við Seltjörn, Víkurkirkja, Laugarneskirkja, Gufuneskirkja og svo kirkjan í Þerney. Kirkjunnar í Þerney er einnig getið í Vilkinsmál- daga frá 1397; sagt að þar sé Maríu- kirkja og Þorláks biskups og meðal eigna kirkjunnar eru taldar hálf Þerney, Háfaheiði hálf og Víbines. Kirkja á að helmingi selför í Stardal og svo afrétt og þess hluta fjöru er Þerney fylgir í Krossvík; skóg í Skorradal; fimm kýr. Kirkjunnar er enn getið í Gíslamáldaga 1575, en aftan við máldagann hefur Oddur biskup Einarsson bætt þessu um 1600: „Nú er engin kirkja í Þemey og ekkert kúgildi." Þar með er sögu Þerneyjarkirkju lokið. Þerneyjarsund heitir milli eyjar og lands. Ólafur Lárusson segir í bók sinni „Byggð og saga" ab á síð- SAMANTEKT HAFLIÐI VILHELMSSON ari tímum hafi heitið Sund verib haft um miklu minna landsvæði en að fornu. Bæirnir við Þerneyjar- sund, Álfsnes, Glóra, Þerney, Nið- urkot eða Sundakot og Víðines vom nefndir einu nafni Sund eða Sundabæir. Ólafur telur nafngift þessa, að kenna byggðarlagið vib sund, vera komið til vegna þess hve hafskipalægi var gott inni í sundunum og þægilegt að sækja þangað til kaupstefnu, ekki aðeins úr nágrannasveitum heldur og fyr- ir menn úr sveitum fyrir norðan Svínaskarð og fyrir austan Fjall. Þaö varð því snemma mikill siglinga- staöur. í íslendingasögum er marg- sinnis getið um skipakomur í Leir- vog fyrir neðan heiði og á miðöld- um sýnist hafa verið mikill kaup- staður inni í Sundum, fyrst við Þemeyjarsund og síðar í Gufunesi. í annálum er getið um skipakomur í Þerneyjarsund árin 1391, 1411, 1419 og 1422. Ólafur Lámsson fær- ir reyndar að því rök að allt svæðið frá Seltjarnarnesi og upp á Kjalar- nes hafi verið nefnt „með Sund- um", a.m.k. á 15. og 16. öld og raunar hafi hugtakið „með Sund- um" náð lengra en byggðin við Kollafjörö. Heimildir Olafs Láms- sonar virðast sýna það, að hrepp- arnir þrír, Mosfellssveit, Seltjarnar- neshreppur og Álftaneshreppur hinn forni (nú Garðabær og Bessa- staðahreppur) hafi verið nefndir einu nafni „með Sundum". En hvernig skyldi hafa veriö að búa í Þerney? Sóknarlýsingar hafa þetta aö segja um eyjuna: „Þerney, 15 hndr. í vestur frá Álfsnesi, er snotur eyja en ekki stór. Hún er öll grasi vaxin og að vestanverðu er hún láglend og grasgefin, en að austan hálend, sendin og snögg- lend. í henni er æðarvarp og töðu- fall gott." í Jaröabók Árna og Páls er að finna mat á eynni. Það er uppskrifað árið 1704 af Páli og þar segir meðal annars: „Eigandi: kóngl. Majestat, ábúandi Kolbeinn Hendriksson, landskuld 170 álnir, betalast með fiski ef til er, ella í fríðu og þó sjaldan. Leigukúgildi 6, leigur betalast í smjöri heim til Bessastaða ebur Viðeyjar... Kvaöir: Mannslán á vertíö, hestlán til Al- þingis, dagslættir tveir til Viðeyjar og fæöir bóndinn sig sjálfur, hrís- hestar tveir og aflab í Almenning- um og kostar þriggja daga tíma. Móhestar oftast tveir... Kvikfénað- ur: 5 kýr, 3 kvígur þrevetrar, 1 tarfur veturgamall, 1 kvíga vetur- gömul, 1 kálfur, 16 ær meb lömb- um, 2 sauðir tvævetrir, 11 sauðir veturgamlir, 1 hestur, 1 hross, 1 hrosstrippi, fóðrast kunna 6 kýr naumlega. Heimilismenn 6. Torf- rista og stunga eydd í eyjunni að mestu og því sókt á fastaland og liggur þar annar helmingur þessar- ar jarðar. Eldiviðartök á fastalandi ... Fuglaveiöi lítil af lunda, eggver lítib af æð og kríu, rekavon lítil, sölvafjara nægir ekki heimamönn- um. Hrokkkelsafjara nokkur, fjöru- grös nokkur, þangtekja er stundum brúkub til eldiviöar og er þó af skorti. Kirkjuvegur langur og erfið- ur. Túnið brýtur sjór í einum stað skaðliga ..." Það virðist ekkert hafa verið of gott að búa í Þerney árið 1704, en þó ber þess að gæta að ábúendur voru ekkert of gefnir fyrir að fegra landkosti jarða sinna í eyru um- boðsmanns konungsvaldsins, nóg var víst skattþjánin fyrir. En frá því að Kolbeinn Hendriksson erjaði jörðina í Þerney, hafa margir hald- ið þar á amboðum, en upp úr alda- mótum fer byggð að raskast í eynni og verður stopul þegar líða tekur á þessa öld. Við manntal 1921 eru skráð í Þerney Þorbergur Guð- mundsson vinnumaður og kona hans Sigríður E. Hannesdóttir og börn, en árin 1922-28 er enginn skráður í eynni. Gunnlaugur Þorv. Sigurðsson bóndi og kona hans Lára Pétursdóttir eru skráð í Þerney 1928-29. Hafliði Pétursson bóndi og kona hans Steinunn Þóröardótt- ir em í Þerney 1931 til '34, en eftir það er enginn skráður sem íbúi. Þerney skipti eftir þaö oft um eig- endur. Samband íslenskra sam- vinnufélaga átti hana frá 1947, en nú er hún komin í eigu Reykjavík- urborgar og er sem áður sagði, hvíldarhæli fyrir skepnur Húsdýra- garðsins. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.