Tíminn - 11.01.1995, Page 13

Tíminn - 11.01.1995, Page 13
Miðvikudagur 11. janúar 1995 Hafnarfjörður: Skrifstofa flokksins aö Hverfisgötu 25 veröur opin á þriöjudagskvöldum frá 20.30- 22.30. Flokksmenn eru hvattir til aö mæta og ræöa málin yfir kaffibolla. Stjórnarfundir Fulltrúaráösins veröa haldnir á sama staö og tíma, fyrsta og fjóröa hvern þriöjudag. Stjórnin Aukaþing Kjördæmissam- bands framsóknarfélaganna á Vestfjörðum Kjördæmissamband Framsóknarfélaganna á Vestfjörðum boðar til aukaþings þann f 4. janúar nk. til ákvörðunar á framboðslista fyrir komandi alþingiskosningar. Þing- iö verður haldiö á Hótel ísafirði og hefst kl. 13.30. Dagskrá: Skipan framboöslista fyrir komandi alþingiskosningar. Stjórnin Fólk í fyrir- rúmi: Reykjavík Almennur stjórnmálafundur verður haldinn fimmtudaginn 12. janúar n.k. í Súlna- sal Hótel Sögu. Hefst hanh kl. 20:30. Gestir fundarins veröa Halldór Ásgrímsson, formaöur Framsóknarflokksins, og Finnur Ingólfsson alþingismaður. Fundurinn veröur nánar auglýstur siöar. Stjórn fulltrúarábs Framsóknarflokksins í Reykjavík Lausar kennarastö&ur við Búvísindadeildina á Hvanneyri Við Búvísindadeild Bændaskólans á Hvanneyri eru lausar til um- sóknar tvær kennarastöður: 1. Staða aðalkennara á landnýtingasviði. Um er að ræða nýtt námssvið við deildina. 2. Staða aðalkennara á búfjárræktarsviði. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, send- ist landbúnaðarráðuneytinu, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík, fyrir 6. febrúar. Skólastjóri Bændaskólans á Hvanneyri gefur nánari upplýsingar um stöðurnar í síma 93-70-000. Landbúnaðarráðuneytið, 6. janúar 1995. Aðsendar greinar, afmælis- og minningargreinar sem birtast eiga í blaðinu þufa aö hafa borist ritstjórn blabsins, Brautaholti 1, tveimur dögum fyrir birtingardag, á disklingum vistab í hinum ýmsu ritvinnsluforritum sem texti, eða vélritaðar. SÍMI (91)631600 BELTIN BJARGA Drew Barrymore enn og aftur í sviösljósinu: ET-stjarnan situr nakin fyrir í Playboy Einu sinni var. Drew 9 ára gömul og sakleysib þegar á undanhaldi. Drew og ET. Drew Barrymore er ein af umtöluðustu stúlkum Bandaríkjanna um þessar mundir. Hún varð heimsfræg sem barn á sínum tíma fyrir leik sinn í verðiaunamynd Spielbergs um ET og upp frá því hefur hún alloft komist í pressuna, aðallega fyrir misjafnar sakir. Nú síðast sýnir hún heimsbyggðinni að hún sé orðin fullorðin, meö því aö sitja nakin fyrir í Playboy! Það var árið 1982 sem Drew sló í gegn í myndinni um ET, þá sjö ára gömul. Síðan hefur líf hennar veriö raunasaga. Sjálf segir hún: „Eftir að ég varð fræg með mynd- inni um ET, tók líf mitt miklum breytingum. Það varð óhugnan- lega skrýtið. Einn daginn var ég óþekkt stúlka, þann næsta buðu menn mér stórfé til að fá eigin- handaráritun, mynd eða bara fyrir að snerta mig." Þessi umskipti urðu til þess að Drew firrtist veruleikann og eftir að hún sá hvílíka lukku hún gerði á næturklúbbunum í Hollywood lagðist hún í mikla óreglu. Tíu ára gömul var hún orðin alkóhólisti og 12 ára gömul fór hún að taka inn kókaín. Mamma hennar kom henni í meðferð þvert gegn vilja „ Ég hef ekkert ab fela," segir Drew. Nýjasta uppákoman. Barnastjarn- an orbin forsíbustúlka Playboy. hennar tveimur árum síðar, en það reyndist skammgóður vermir. Drew gerði svo allt vitlaust þeg- ar hún þóttist búin að upplifa nógu mörg hneyksli til að gefa út sjálfsævisögu sína, aðeins 14 ára að aldri. Bókin seldist sem heitar lummur. Drew á eitt hjónaband að baki, þrátt fyrir ungan aldur, en það varði aðeins í 29 daga. Hún ku vera laus við vímuefni seinni árin og hefur m.a leikið í myndum eins og Bad Girls og Mad Love. Myndirnar, sem birtust af henni fáidæddri í janúarhefti Playboy, eiga vísast eftir að selja blaðib drjúgt, því þab er alveg sama hvað Drew tekur sér fyrir hendur: heim- inn þyrstir alltaf í að fregna meira. •j

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.