Tíminn - 14.01.1995, Side 12
12
wtmmtt
Laugardagur 14. janúar 1995
Fyrsti Þjóbvakafundur Jóhönnu Siguröardóttur var haldinn á Selfossi
í fyrrakvöld:
„Vanskil í húsbréfakerfi
eru ekki mér aö kenna"
„Þa& er fráleitt ab kenna mér
og húsbréfakerfinu almennt
um aukin vanskil á lánum
þess. Enginn kennir raf-
magnsveitunum um vanskil
almennings vib þær, eba segir
Póst og síma mislukkaba
stofnun af því símareikningar
fjölmargra eru í vanskilum.
Þessi vandi helgast af of lág-
um launum og fyrir hækkun
þeirra og bættum kjörum ætl-
ar Þjóbvaki svo sannarlega ab
berjast."
Þetta sagði Jóhanna Sigurbar-
dóttir alþingismabur - mebal
annars á opnum stjórnmála-
fundi sem Þjóövaki, stjórnmála-
hreyfing stuöningsmanna
hennar, gekkst fyrir á Selfossi í
fyrrakvöld. Þetta var fyrsti al-
menni stjórnmálafundurinn
sem hreyfingin gengst fyrir, en
á næstunni veröur fariö um
landið og fundir haldnir víða.
Um 100 manns voru á fundin-
um, þar af margir sem til þessa
hafa verið taldir stuðnings-
menn annara flokka.
Helsti stuöningsmaöur Jó-
hönnu Siguröardóttur á Suö-
urlandi er Þorsteinn Hjartar-
son, skólastjóri á Brautarholti
á Skeiöum. í framsögu hans
kom meðal annars fram aö
Þjóbvaki væri upphaf nýrra
tíma og hugsunar í íslenskum
stjórnmálum. Siöferöileg og
mannleg gildi yröu sett í önd-
vegi í starfi hreyfingarinnar,
sem og barátta gegn hroka,
forréttindum og spillingu.
Friösöm bylting
„Þjóðin er að snúast til bar-
áttu gegn spillingu," sagði
Þorsteinn. Má segja aö rauði
þráöurinn í máli hans og
margra annara fundarmanna
hafi veriö sá aö gera skyldi frið-
sama byltingu á íslandi. Þar
yröu forréttindi minnihluta-
hópa tekin af og kjör fólksins í
landinu jöfnuð á flestum svið-
um. Með slíku væri kominn
grundvöllur fyrir heilbrigðu
þjóðfélagi í landinu.
✓
Omótuð stefna
LETTOSTAR
þrjár tegundir á léttu nótunum
MUNDU EFTIR OSTINUM
LinSSXyn létto§tur [ W )
„Þjóðvaki er fyrsta tilraunin
í langan tíma til aö breyta
flokkakerfinu á íslandi. Tími
er kominn til aö breyta því og
íslensku þjóöfélagi almennt.
En viljiö þið óbreytt ástand
hvet ég ykkur endilega til að
kjósa fjórflokkinn," sagöi
Þjóðvakamaðurinn Ágúst Ein-
arsson, prófessor. Hann fór
mörgum orðum um stjórn-
Jóhanna Siguröardóttir sagbi húsbréfakerfib ekki ástœbu vanskila, heldur
lág laun.
Ágúst Einarsson vill ab stjórnmál snúist um fólk.
markmið hef ég ávallt haft aö
leiðarljósi í mínu stjórnmála-
starfi. Fyrir vikið segir minn
gamli flokkur mig vera ein-
sýna," sagði Jóhanna Sigurö-
ardóttir í inngangsorðum
ræðu sinnar. Hún fór vítt yfir
svið þjóðmálanna og sagði
hún, rétt eins og Þorsteinn
Hjartarson, vera þörf á al-
mennri siðbót í stjórnmálum
á íslandi. Hafði Jóhanna á
orði auðsöfnun á fárra hend-
ur, ranglátt skattakerfi, óhóf-
lega risnu og ferðakostnað
starfsmanna í ríkiskerfinu,
ranga forgangsröðun í málum
þeim er opinberir aðililar ann-
ast og fleira í þessum dúr.
„Þjóðfélagið er að leysast upp
í stríöandi fylkingar vegna
misskiptingar sem þarf að
uppræta," sagði Jóhanna.
Þorsteinn Hjartarson segir þjóbina
vera ab snúast gegn spillingu.
Tímamyndir SBS
kerfi fiskveiöa, en núverandi
fyrirkomulag segir hann rang-
látt. í orði og á borði eigi fisk-
urinn í sjónum að vera þjóð-
areign og arður af fiskveibum
verði að koma öllum lands-
mönnum til góða, andstætt
því sem nú er. Því sé fráleitt að
fámennur hópur geti veðsett
þessa sameiginlegu eign þjóð-
arinnar. Ennfremur segir Ág-
úst að allur fiskur eigi að fara
um fiskmarkað, enda geti það
eitt tryggt frjálsa og eðlilega
verbmyndum.
T rúnaöarbrestur
þjóbar og þing-
manna
„Stjórnmál eiga að snúast
um tilfinningar fólks," sagði
Ágúst Einarsson. „Og það er
sagt að hver þjóð fái þá stjórn-
málamenn sem hún á skilið.
Það hefur orðið trúnaðarbrest-
ur milli þjóðar og þingmanna,
sem er alvarleg staðreynd.
Þess vegna finnst mér þið eiga
skilið betri stjórnmál og
stjórnmálainenn en nú er.
Viljiö þið hinsvegar óbreytt
ástand hvet ég ykkur endilega
til að kjósa fjórflokkinn,"
sagði Ágúst.
„Þjóövakinn ætlar ab standa
við það sem hann lofar. Það
Á-Þjóðvakafundinum á Sel-
fossi kom aldrei skýrt fram
með hvaða hætti Þjóövakinn
og Jóhann hygðust ná fram
markmiðum og stefnumálum
sínum. Þó var frá því greint að
málefnahópar væru í gangi
sem ynnu að mótun stefnu-
skrár og verða áherslurnar þá
væntanlega á þeim nótum
sem að framan greinir.
í máli nefndra framsögu-
manna á Selfossfundinum
kom fram að; „... Þjóðvakinn
ætlar ekki að gera allt fyrir
alla," eins og komist var að
orði. Samandregið má segja
að stefna hans virðist eiga að
vera uppræting klíkuveldis,
samtryggingar, ábyrgðarleysis
og forréttinda. Kjör þeirra er
höllum fæti standa — ekki aö-
eins fjárhagslega — verði bætt
og þannig verði skapað þjóð-
félag jafnaðar og réttlætis.
Bjartsýn á gengi á
Suöurlandi
Jóhanna Sigurðardóttir
kvaðst vera bjartsýn á gengi
Þjóðvakans í kosningunum í
apríl næstkomandi. Máli sínu
til stuðnings vitnaði hún í
skoðanakönnun frá í nóvem-
ber sl. þar sem framboðið
mældist meb 17 til 18% fylgi.
Það er jafnmikið fylgi og Al-
þýðuflokkur, Alþýðubandalag
og Kvennalisti á Suburlandi
mældust með samanlagt þá og
Framsóknarflokkurinn í kjör-
dæminu var þá á svipuðu róli.
"Eftir kosningar í vor verður
sprettur milli Framsóknar-
flokks og Alþýðubandalags
um hvor flokkurinn verbur á
undan til Davíðs," sagði Jó-
hanna. Meira fjölyrti hún ekki
um hugsanlegt stjórnar-
mynstur að loknum kosning-
um eða um hugsanlega ríkis-
stjórnarþátttöku Þjóðvaka.
-SBS, Selfossi.
Skatthlutíall bama
í staðgreiðslu 1995
Skatthlutfall barna sem fædd eru 1980 eða síðar er
6% í staðgreiðslu á árinu 1995.
Launatekjur barna undir kr. 77.940 hjá sama
launagreiðanda eru undanþegnar staðgreiðslu
frá 1. janúar 1995.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI