Tíminn - 14.01.1995, Síða 15
Laugardagur 14. janúar 1995
15
Kristinn Jónsson
Einarsstöbum, Reykjadal
Kristinn fónsson (Diddi), fyrrver-
andi bóndi, fœddist á Einarsstöð-
um í Reykjadal 7. febrúar 1926.
Hann lést á sjúkrahúsinu á Akur-
eyri 8. janúar síðastliðinn. Foreldr-
ar hans voru hjónin Jón Haraldsson
frá Einarsstöðum í Reykjadal, f. 6.
september 1988, d. 18. apríl 1958,
og Þóra Sigfúsdóttir frá Höllustöð-
um í Reykjadal, f. 15. október
1889, d. 14. apríl 1979. Kristinn
var fœddur og uppalinn á Einars-
stöðum. Hann var sjöundi í röðinni
af 11 alsystkinum en að auki átti
hann einn hálfbróður, Ingimar
fónsson. Kristinn bjó félagsbúi með
brœðrum sínum, þeim Sigfúsi og
Einari, sem nú eni báðir látnir.
Kristinn var ókvœntur og barnlaus.
Útfór hans fer fram frá Einars-
staðakirkju í dag.
Því skal ei með hryggð í huga
horfa eftir sigldri skeið.
Allra bíðurefsti dagur,
enginn kýs sér far né leið.
Trú á þann, sem tendrar lífið,
tryggir sátt og frið í deyð.
(Jón Har.)
Elsku Diddi frændi. Við viljum
með örfáum orðum minnast þín.
Ofarlega í huga okkar eru góðar
minningar frá því um veturinn
1991 þegar þú dvaldir hér fyrir
sunnan og varst að bíða eftir því
að gangast undir enn eina erfiða
aðgerð. Þegar við svo kvöddum
þig, kvöldið fyrir uþpskuröinn,
t MINNING
ríkti innra með okkur gleði.
Gleði yfir því aö fá að upplifa
þessar góöu stundir með þér.
Gleði yfir því að fá tækifæri til að
ræða við þig um lífið og tilgang
þess. Við minnumst Þorrablóts-
ins hjá Alla fyrir þrem árum síð-
an. Þá sungum við mikið og átt-
um ógleymanlega kvöldstund. Á
aðfangadag fyrir tveimur árum
síðan var okkur tilkynnt það
símleiðis að þú yrðir að gangast
undir aðra aðgerð sem var þaö
erfið fyrir þig að þá vorum við
sátt viö að þinn tími væri kom-
inn. Sjálfur tókst þú því meö
miklu æðruleysi, sáttur við þín
örlög og hlutskipti í lífinu.
Elsku Diddi frændi. Þú varst
mjög greiðvikinn og góður mað-
ur, góður frændi, hjartahlýr og
hafðir meira gaman af því að
gefa en þiggja. Haföu þökk fyrir
frá okkur öllum og nú vitum við
að þér líöur vel. Guð geymi þig
elsku frændi.
Anna Þóra, Guðrún fóna og
fóhanna Bragadœtur
Ferjan hefúr festar losað.
Farþegi er einn vm borð.
Mér er Ijúft — af mcetti véikum
mœla nokkur kveðjuorð.
Þakkir fyrir hlýjan huga,
handtak þétt oggleðibrag,
þakkir fyrir þúsund hlátra,
þakkir fyrir liðinn dag.
0. Har.)
Það var undarleg tilfinning
sem hríslaðist um mann, þegar
fréttin af andláti Kristins barst
okkur. Minningarnar hrönnuð-
ust upp eins og rigningarský á
himni og fyrr en varði fór að
rigna. Diddi (eins og hann var
ævinlega kallaður) var nú loksins
dáinn. Oft var maður búinn að í-
mynda sér að það yröi mikill létt-
ir þegar við fengjum þessa fregn,
en svo var ekki. Þó var full á-
stæða til aö gleðjast, því þetta var
það eina sem Diddi þráði. Eftir
18 ára veikindi var hann orðinn
einfættur stomasjúklingur, illa
farinn vegna innvortis bruna og
langra og strangra lyfjameðferða.
Hann hafði orð á því að hann
yrði stundum svekktur þegar
herbergisfélagar hans dóu. Hon-
um fannst hann vera útundan að
fá ekki aö fara yfir móöuna
miklu og hitta bræður sína og
foreldra, sem hann saknaði sárt.
Þrátt fyrir veikindi dvaldi
Diddi langdvölum heima á Ein-
arsstöðum, nánar tiltekið í Ein-
arsstaðaskála, sem bróöir hans
Aðalsteinn léði honum til
frjálsra nota. Það var mikið
kappsmál hjá honum að geta séð
um sig sjálfur og þurfa sem
minnst aö vera upp á aðra kom-
inn. Svo til á hverju sumri heim-
sóttum við fjölskyldan hann og
dvöldum við gott yfirlæti í Skál-
anum. Diddi var einstaklega
gestrisinn og góður heim aö
sækja. Hann lét sig ekki muna
um að hafa til mat og baka stafla
af pönnukökum, ef von var á
gestum. Kjötsúpan hans var sú
besta noröan heiða. í Skálanum
var oft glatt á hjalla, mikib spjall-
að, sungið og skrafað um alla
heima og geima, allt frá hesta-
mennsku til háandlegra mála.
Diddi hafbi alltaf frá einhverju
að segja og gat verið fyndinn í
meira lagi, enda frásagnarlist
hans á þingeyska vísu. Persóna
hans var margbrotin. Hann var
ævinlega fyrsti maður til að rétta
hjálparhönd þar sem hann gat
orðið að liði og var hann vanur
ab drífa í hlutunum. Hann hins-
vegar tranabi sér aldrei fram og
vildi helst vera lítiö áberandi.
Hestamennska hafbi verið hans
líf og yndi þar til hann veiktist.
Átti hann fjölda verðlauna því til
staðfestingar.
Það eru vandfundnar persónur
eins og Diddi. Ævinlega var hægt
ab reiöa sig á hann, ef á aðstoö
þurfti að halda. Hann þekkti ekki
hugtakið nísku, og þrátt fyrir
veikindi og erfiðleika barmaði
hann sér aldrei. Jafnvel þegar fót-
urinn var tekinn af honum æðr-
aðist hann ekki, þó tilhugsunin
hefði verið óbærileg. Þegar hann
kom í heimsókn til okkar fyrst
eftir að hann var oröinn einfætt-
ur, hafði hann orð á því aö þaö
hefði verið feill, að útvega sér
ekki lepp fyrir augað, því að þá
hefði fólk haldið að þarna væri
gamall sjóræningi á ferð. Þetta
hefur hann eflaust sagt til þess
að við værum ekki svona alvöru-
gefin yfir þessu.
Mildb lærbi mabur af Didda og
verður honum aldrei nógsam-
lega þakkaö fyrir þaö sem hann
lagði okkur í té sem förunautur
þennan stutta veg sem lífið r.
Gub blessi minningu þína, Diddi
minn, og líði þér sem best þar
sem þú dvelur núna í faðmi vina.
V. Gísli Valdemarsson
Nú er hönd að hœgum beði
hnigin eftir dagsins þrautir.
Signt er yfir sorg og gleði,
sœst við örlög. — Nýjar brautir.
Biðjum þess á blíðum tónum
berast megi þréyttur andi
endurborinn Ijóss að landi,
lofandi dag með ungum sjónum.
(J. Har.)
Elsku Diddi minn, hafbu inni-
lega þökk fyrir allar góðu stund-
irnar og allan þinn hlýhug og
velvild í minn garð og fjölskyldu
minnar. Þú varst algjör perla.
Guð blessi þig og minningu
þína.
Lilja Kristín Bragadóttir
in Stefánsson
Eyri, Mjóafiröi
Fæddur 23. janúar 1924
Dáinn 7. janúar 1995
Látinn er sveitungi minn, Eg-
ill Stefánsson. Fyrrum nemandi
minn í barnaskóla, seinna ná-
granni og samverkamaður um
málefni byggðarlagsins. Langar
mig að minnast hans hér með
örfáum orðum.
Egill fæddist á Brimnesi í Fá-
skrúðsfirði 23. janúar 1924. For-
eldrar hans voru hjónin Margr-
ét Ketilsdóttir og Stefán Eiríks-
son bóndi. Þau bjuggu næstu
sex árin á Hvalnesi við Stöðvar-
fjörð en fluttust að Krossi í
Mjóafiröi 1930 ásamt þremur
börnum, Baldri, Agli og Ragn-
heiði. Yngsti sonurinn, Jón Ás-
geir, fæddist í Mjóafirði. Systk-
inin ólust upp með foreldrum
sínum á Krossi og Minni-Dölum
þar sem þau bjuggu einnig
nokkur ár. Sterk samheldni hef-
ur veriö meb þessari fjölskyldu
alla tíb.
Árið 1950, þann 10. maí, gekk
Egill að eiga eftirlifandi konu
sína, Ólöfu Jóhannsdóttur á
Eyri í Mjóafirði. Foreldrar henn-
ar voru Jóhanna Benediktsdótt-
ir og Jóhann Stefánsson. Þau
bjuggu á Eyri til æviloka, sein-
asta áfangann í skjóli Egils og
Ólafar sem var einkadóttir
þeirra. Jóhanna lést fyrir
skömmu á 101. aldursári. Egill
og Ólöf hafa einnig búið á Eyri
allan sinn búskap, byggðu þar í
byrjun íbúö sína áfasta eldra
húsinu.
Ungur byrjaöi Egill sjósókn á
eigin vegum, fyrst í félagi með
Baldri bróður sínum, og gerðu
þeir út trillu frá Mjóafirði á
sumrin. Einnig réðst hann þá
stundum á stærri báta og tog-
ara, einkum að vetrinum.
Raunar tengdist ævistarf Egils
t MINNING
Stefánssonar sjónum alla tíð. En
árib 1954 varö sú breyting að
hann tók að sér að annast fastar
bátsferöir til Noröfjarðar, fyrst
vikulega, seinna tvær ferðir í
viku. Veiðar stundaði hann þó
nokkuð jafnframt og hafði
einnig lengst af örlítinn stuðn-
ing af landbúskap.
Egill annaðist þessar bátsferð-
ir fulla þrjá áratugi, síðustu árin
í félagi meb eldri syni sínum, Jó-
hanni, sem síðan yfirtók útgerð-
ina. Höfðu þeir þá fyrir nokkru
fest kaup á nýjum 13 smálesta
plastbáti.
Þegar Egill tók við áætlunar-
ferðunum var Mjóifjöröur enn
vegarsambandslaus með öllu —
og er það enn stóran hluta árs.
Bátsferðir þessar eru því afar
þýðingarmiklar fyrir byggðina.
Hafa þær verib reknar af miklu
öryggi allan tímann, enda um-
hirða báts og vélar með miklum
ágætum.
Egill Stefánsson sat í hrepps-
nefnd Mjóafjarðar 1957-1978.
Hann kom til starfa á þeim vett-
vangi eftir aukakosningar þegar
fjöldi manns hafði flutt burt úr
sveitinni á fáum árum, þar með
fjórir hrepppsnefndarmenn og
jafnmargir varamenn. Fram-
undan var eins konar varnar-
barátta þeirra sem eftir voru. Er
það saga út af fyrir sig og veröur
ekki sögð hér. En víst er um það
ab „feröaþjónusta" Egils og
þeirra feöga hefur verið þýðing-
armikill þáttur vibnámsins. —
Upp úr 1960 beitti Egill sér fyrir
því að byggð var frystigeymsla
fyrir matvæli, beitu og beitta
línu og hefur komib ab góbu
gagni síðan.
Þegar leitast er við að rekja
æviferil roskins manns í fáum
orðum verður hitt fleira sem
liggur á milli lína — hjá því
verður víst ekki komist. Egill
Stefánsson var aldrei heilsu-
sterkur og síðustu árin átti hann
við að stríða erfið veikindi.
Sjúkrahúslegur uröu þó aldrei.
langar. En umhyggja eiginkonu
og aðhlynning var óhvikul og
traust.
Synir Egils og Ólafar eru tveir,
Jóhann og Sævar, báöir búsettir
á Mjóafirði. Bamabömin eru sjö
og hið fyrsta af.næstu kynslóð
hefur þegar litið dagsins ljós.
Það er margs að minnast og
margt að þakka þegar kvaddu
er vinur og samferðamaður í
sextíu ár. Og seint gleymi ég ör-
uggri forsjá Egils í nær óteljandi
sjóferðum sem ég fór með hon-
um fyrir Nípu á þrjátíu ára ferl-
inum.
Við Margrét sendum Ólöfu og
öbrum ástvinum Egils Stefáns-
sonar innilegar kvebjur og biðj-
um þeim blessunar.
Vilhjálmur Hjálmarsson
11 p HEILBRIGÐISEFTIRUT REYKJAVÍKUR
Gjöld vegna hundahalds í Reykjavík
Borgarstjórn Reykjavíkur hefur ákvebið ab gjald vegna
hundahalds 1995 verbi óbreytt kr. 9.600.
Samkvæmt ákvörbun borgarstjórnar og gjaldskrá sem
umhverfisrábuneytib stabfesti 12. janúar sl. skal gjaldib
greibast í þrennu lagi meb gjalddögum 16. janúar, 15.
febrúar og 15. mars. Eindagi er einum mánubi eftir
gjalddaga og reiknast dráttarvextir frá gjalddaga verbi
gjaldib eigi greitt í síbasta lagi á eindaga.
Heilbrigbiseftirlit Reykjavíkur.
^tWféiag HROSSABÆNDA BÆNOAHÖLLINNI HAGATOnGt Bændur Slátrun hrossa til japans kallar á góba fóbrun. Fitu- sprengt kjöt eru gæðin sem greitt er fyrir meb 10% yfir- verbi. Skráib feit hross til slátrunar hjá sláturleyfishöfum. Félag hrossabænda ||f ÚTBOÐ F.h. Byggingadeildar borgarverkfræ&ings er óskab eftir tilbo&um í upp- steypu og fullnabarfrágang vi&byggingar Brei&holtsskóla ásamt ló&. Helstu magntölur: Flatarmál húss 800 m2 Rúmmál B.055 m3 Verkinu á a& vera lokib 15. ágúst 1995. Utbobsgögn ver&a afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkiuveqi 3, Reykjavík, qeqn 15.000 kr.skilatryggingu. Tilbo&in ver&a opnub á sama sta& mi&vikudaginn 1. febrúar 1995, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR (REYKJAVÍK PURCHASING CENTER) Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800