Tíminn - 04.02.1995, Qupperneq 8
8
Laugardagur 4. febrúar 1995
Haavrðinaaþáttur
Annáll 1994
30. des. s.l. fylgdi Tímanum aukablaö með ofangreindri fyr-
irsögn. Þar er á forsíöu glæstur hópur níu leiötoga, en und-
ir stendur: „Sorgmæddur fálki og sölnuð rós". Þarna er
greinilega hálfsögö sagan og tæplega þaö. Æskilegt að bæta
þar viö, skrifar Búi, og yrkir:
Sorgmœddur fálki og sölnuö rós,
Sighvatur, Össur og Veiga.
Ólafur þungbúinn, Þorsteinn til sjós,
þrautseigur Friðrik með smáauradós,
Halidór með klippumar — þau skulu ást vora eiga.
Annálsbrot samkvæmt sömu heimildum:
Hátt í skjánutn þjóðar þaut
— það mun hafa gerst í mars —
þegar Arthúr Björgvin braut
Baldurs hlekki, hugarfars.
Utanríkisráðherrann
rauk með konu sína
burt, Og síðan setti hann
sendiráð í Kína.
Flokksþinginu flýtti ncest,
fór þá mjög í vena:
Hanna fór í fýlu cest,
félagsmálaráðhena.
Þjóðin var kjósandi þetta og hitt,
þá var nú elgurinn vaðinn.
Misstu þar reykvískir Sjálfstœðið sitt,
Sólrúnu fengu í staðinn.
Jakob þola mótgang má,
mörgum fannst þó vena
að eftir strögl var strcekað á
Stuðmann sendihena.
íslenska þjóðin til Þingvalla fór,
en þá urðu stjómendur hissa
er sást hve hún var orðin óhemju stór
— en ófétis vegurinn þröngur og mjór
— og svo þurftu auðvitað allir að kúka og pissa!!
Á Norðausturlandi er lítið um kjöt,
þó landkosti vel megi nýta.
Sauöfénað vantar þar sjálfsbjargarhvöt,
sárt er það ástand að líta.
Þar eru hreinlega lömbin svo löt
að þau liggja og nenna ekki að bíta.
Orðsending frá höfundi: Framanskráðir fréttamolar eru
hirtir upp úr fyrrnefndu aukablaði af handahófi, hnoðaðir
og lagaðir til samkvæmt kröfum vísnamarkaðarins.
Svona verður feluvísan í síðasta þætti að alvöruvísu:
Hann rauk upp með suðvestanroki og
rigningarhryðjum á fóstu-
daginn. Þá kom ég í Kópavog
og keypti þar notaða tösku.
Gamall fyrripartur
Áramótaskaupið sko
skömm í hattinn þáði.
Botn
Því það hafði tíðum tvo
trítilmenn að háði.
Eða:
Edda Björgvins cesti svo,
allan landslýð þjáði.
Stefán Bjarnason
Eða:
Látum kattarþvottinn þvo
þetta kaup með láði.
Kristinn Gísli Magnússon
Nýr fyrripartur (hringhenda)
Vetrarbrautin víð og há
viðrar skautið bjarta.
Botnar og vísur sendist til Tímans
Brautarholti 1
105 Reykjavík P.s. SKRIFIÐ GREINILEGA
Uppburðarleysi og ákveðni
í síöasta spurningatíma hjá
Heiðari var rætt um kynferöis-
lega áreitni og hver séu skilin
milli þess að karl eða kona sýni
hinu kyninu vináttuhót eöa láti
í ljósi ástarhrifningu og hins
hvenær um frekjulega áreitni er
að ræða og jafnvel glæpsam-
lega.
Efnið er svo viöamikið að því
verða ekki gerð skil nema í
lengra máli en svo að rúmist í
einum þætti. Hér er því haldið
áfram þar sem frá var horfið um
kynferðislega áreitni.
Heiðar: Konur geta komið í
veg fyrir að karlar sýni þeim
óhóflega áreitni, nema að við
sjúka menn sé aö eiga sem
leggja konur í einelti eða láta sér
ekki skiljast að nei þýðir nei.
Hér var fólk aliö upp í ein-
hverju óskaplega dyggðugu
samfélagi, púrítanismi og tvö-
falt siðgæði voru hluti af upp-
eldinu og svo var öllu sleppt
lausu og með kynjabaráttunni
hættu karlar og konur að læra
að umgangast hvert annað á
eölilegan og óþvingaðan hátt.
Úr verður hræðsla og áreitni.
Karlmenn skbrtir sjálfstraust
og ég kenni að þeir hafi lítið álit
á líkamsvexti sínum hið neðra.
Ef þeir verða úr hófi ágengir, til
dæmis á dansleikjum, og hegða
sér við dansfélaga eins og þeir
séu með skrúfjárn í vasanum
eða eitthvað slíkt, kenni ég kon-
um aö slá þá út af laginu og
spyrja hvort þeir séu að norðan
eða eitthvað svoleiöis. Ef konan
sýnir ákveðni og öryggi, getur
hún komist hjá miklum mis-
skilningi.
Ég vil meina að það, sem oft
er kölluð kynferðisleg áreitni, sé
raunverulega kynferðislegt
skjall. Ef stráklingur er aö skjalla
eldri konu svona og hún kærir
sig ekki um meira af svo góðu,
strýkur hún á honum nefbrodd-
inn og spyr hvort hann láti líka
svona við mömmu.
Vandamálin
En „sexual harassment" er
vandamál. Ef maður á vinnu-
stað leggur konu í einelti eða
kona mann og það margendur-
tekur sig að verið er að beina
orðum að kynferöislegum at-
höfnum og káfa og strjúka viö-
komandi, þá eru alvarleg sam-
skiptavandamál uppi.
Þá erum við komin að þeim
gjörðum, sem sjálfsagt er að
klaga yfir og taka föstum tök-
um.
í svona málum, eins og mörg-
um öörum, er visst persónulegt
svæði sem hver og einn gefur
sér. Við þurfum öll visst rými
fyrir okkar persónu, sem fer svo
og svo marga sentímetra út fyrir
okkar líkama. Og fólk er með af-
skaplega mismunandi þarfir á
pláss.
Til að mynda manneskja, sem
er mikill snertari og snertir viö-
mælendur sína mikið, er með
tiltölulega lítið svæöi kringum
sig. Mörgum þykir snerting
óþægileg og snerta ekki aðra.
Þetta verðum viö aö virða, sem
kurteisi. Þegar við kynnumst
fólki, gerum við okkur nokkuð
fljótlega grein fyrir því án um-
hugsunar hvaba líkamleg frí-
svæbi viðkomandi manneskja
vill helga sér. Og þab þurfum
við að viröa.
Sá, sem verbur fyrir óþægi-
legri áreitni á vinnustað eöa af
aðilum sem hann eða hún hitt-
ir oft, er fyrsta ráðið að tala við
viðkomandi í einrúmi af fullri
vinsemd, en ákveöni, um aö
hegðunin sé óæskileg og að
Hvernig
áég að
vera?
Heiðar Jónsson, snyrtir,
svarar spurningum lesenda
nánari kynna sé ekki óskað.
Þetta hrífur, ef ekki er um þeim
mun brenglaðra fólk að ræða.
Öskur og óöagot geta bara virk-
að.öfugt.
Elskuleg
áreitni
Skemmtileg áreitni í restina:
Það var kona á fyrirlestri hjá
mér þar sem áreitni barst í tal,
en hún gerir það yfirleitt í fyrir-
lestrum þegar fólk fer að spyrja.
Hugguleg kona á miðjum
aldri kvaddi sér hljóðs í tiltölu-
lega fámennum hópi. Hún
sagðist vinna við bókhald á
nokkuð stóru vélaverkstæði og
vera eina konan á vinnustaðn-
um. Hún sagðist ekki vilja
sleppa þessari vinnu fyrir hvað
sem væri í boði. Hún átti að
mæta yndislegri kynferðislegri
áreitni af vinnufélögunum á
hverjum vinnudegi og héldi
það í sér lífinu og æskunni.
En hún tók fram, að allt væri
þetta einkar góðlátlegt og vel
meint. Menn á öllum aldri létu
óþvingað í ljósi aö þeim þætti
hún aðlaöandi kona, bæði sem
manneskja og kynvera. Hún
sagðist ekkert skilja í þessu væli
um áreitni, því hún væri alsæl
með sitt hlutskipti. ■
Borgfirbingar— Mýramenn
Ingibjörg Pálmadóttir alþingismabur og bæjarfulltrúar framsóknarmanna í Borgar-
byggb eru meb viötalstíma í Framsóknarhúsinu, Borgarnesi, þribjudaginn 14.
febrúar frá kl. 20.30-22.30.
Stjórn Framsóknarfélagsins
ÚTBOÐ
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í steypt
rör. Verkið er boðið út á E.E.S. markaði.
Magntölur eru:
1.400 mm rör u.þ.b. 480 m
1.600 mm rör u.þ.b. 770 m
Rörin skulu afhent eigi síðar en 105 dögum eftir að tilboði bjóðanda er
tekið.
Útboðsgögn verba seld á kr. 1.000,- á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjud. 28. mars 1994, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
(REYKJAVÍK PURCHASING CENTER) Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800