Tíminn - 04.02.1995, Blaðsíða 14
14
Laugardagur 4. febrúar 1995
Mjólkurbíll og jeppi stórskemmdust:
Harður árekstur við Kljáfoss
Matvörur sem lcekkuöu vegna breytinga á viröis-
aukaskatti fyrir ári síöan:
Hafa hækkað í
verði um 2%
Mjög harbur árekstur varb
vib svokallaba Kljáfossbrú
yfir Hvítá í Borgarfirbi í vik-
unni. Þar skullu saman
mjólkurbíll og stór amerísk-
ur jeppi af gerbinni Subur-
ban.
Mikil hálka var á veginum
og dimmvibri. Mjólkurbíllinn
var rétt nýkominn yfir brúna.
Ökumaður jeppans sá mjólk-
urbílinn ekki í tæka tíð og
vegna hálkunnar fór jeppinn
þversum á veginum, þegar
ökumaðurinn reyndi að
stöðva bílinn.
Bílarnir skullu saman af
töluverðu afli og eru báðir bíl-
arnir mikið skemmdir eftir
áreksturinn, en mennina sak-
aði ekki að ráði. ■
Matvörur, sem lækkubu um
síbustu áramót vegna lækkun-
ar virbisaukaskatts úr 24,5% í
14%, hafa hækkab nokkub á
því rúma ári sem libib er frá
verblagsbreytingunni. Hækk-
unina má ab miklu leyti rekja
til erlendra hækanna.
í nóvember 1993 skráði Sam-
keppnisstofnun — í samvinnu
við ASÍ, BSRB og Neytendasam-
tökin — verð á 130-150 vöru-
tegundum í rúmlega 100 mat-
vöruverslunum víðs vegar á
landinu. Ástæðan var lækkun
virðisaukaskatts á matvörur,
sem náði til flestra annarra mat-
vara en landbúnaðarvara, en
þær báru þegar 14% virðisauka-
skatt. Sambærileg könnun í
upphafi árs leiddi í ljós að lækk-
un virðisaukaskattsins hefði
skilað sér í að meðaltali 6,7%
lægra vöruverði.
I október og nóvember 1994
var verð á sömu vörum kannað
á nýjan leik og liggja nú fyrir
niðurstöður úr 99 verslunum
um allt land. Miðað við niður-
stöðurnar í ársbyrjun 1994 hafa
vörurnar hækkað að meðaltali
um 2%, ef kaffi og sykur er und-
anskilið, en heimsmarkaðsverð
á kaffi og sykri hækkaði mikið á
sl. ári. Samkeppnisstofnun telur
að hækkunin sé eðlileg og hana
megi rekja til hækkunar á hrá-
efni á heimsmarkaði.
Meðalverðbreytingar í versl-
unum á höfuðborgarsvæðinu og
utan þess eru svipaðar, en það
staðfestir enn frekar að hækkan-
ir á matvöruverðinu megi rekja
til hækkana erlendis. ■
Stangaveiöin 1994
komin út:
Skammdegis-
lesning veibi-
mannsins
Bókin Stangaveibin 1994 kom
út fyrir nokkru. Þetta er ítar-
legasta yfirlitsrit, sem gefib er
út um veibina í íslensku ánum
hvert ár fyrir sig.
Þessi árbók stangaveiðimanna
hefur fest sig í sessi undanfarin
ár, en hún er full af myndum,
frásögnum og upplýsingum um
veiðina á síðasta sumri og án efa
kærkomin lesning mörgum
veiðimanninum, sem getur lítið
gert á þessum árstíma til þess að
sinna ástríðunni.
Stangaveiöin 1994 skiptist í
fjóra meginkafla. Þeir eru:
Veiðisumarið 1994, Veiðin í ís-
lensku ánum, Nokkrar veiðisög-
ur og Silungsveiðin. Höfundar
eru Gunnar Bender og Guð-
mundur Gubjónsson. ■
10- f£Z
Skilafrestur skattframtal s
rennur út 10. febrúar
Leiðbeiningabæklingur með skattframtali
hefur að geyma nauðsynlegar upplýsingar
varðandi framtalsgerðina. Kynntu þér
bæklinginn vel - og útfylling framtalsins
verður auðveldari en þig grunar.
Rétt útfyllt skattframtal tryggir þér
rétta skattlagningu.
Eyðublöð liggja frammi hjá skattstjórum
og umboðsmönnum þeirra, og í Reykjavík
í bönkum, bankaútibúum og sparisjóðum.
Þá er minnt á mikilvægi þess að
varðveita launaseðla. Ef þörf
krefur eru þeir sönnun fyrir því
að staðgreiðsla hafi verið dregin
af launum.
Skattframtalinu á að skila til skattstjóra í
viðkomandi umdæmi og mundu að taka
afrit af framtalinu áður en því er
skilað.
Skilaðu tímanlega
og forðastu álag!
RSK
RÍKISSKATTSTJ ÓRI