Tíminn - 04.02.1995, Blaðsíða 9

Tíminn - 04.02.1995, Blaðsíða 9
Laugardagur 4. febrúar 1995 9 Allar myndir úr leitinni í Súbavík voru teknar í leyfisleysi: Máttu ekki einu sinni mynda út um gluggana Fréttamenn, sem komu til Súðavíkur með varöskipinu Tý, eru ósáttir viö Ólaf Helga Kjartansson, formann al- mannavarnanefndar og sýslumann á ísafirði, og segja að hann hafi reynt að koma í veg fyrir að þeir gætu sinnt fréttaflutningi af björgunarstöfum í Súöavík. Þegar myndatökumenn og fréttamenn komu til Súðavík- ur voru þeir kyrrsettir í frysti- húsinu og meinaðar allar myndatökur, að skipun sýslu- manns. „Ég hef aldrei kynnst því í mínu starfi fyrr, að vera tekinn beinlínis í gíslingu og haldið í stofufangelsi á vettvangi," seg- ir Eggert Skúlason, fréttamað- ur á Stöð 2, en hann var einn þeirra fréttamanna sem voru kyrrsettir í Frystihúsi Frosta í Súðavík. „Vissulega hefur Ólafur Helgi Kjartansson einræöis- vald samkvæmt lögum við svona aðstæður, en fram til þessa hafa menn meðhöndlaö þetta vald af skynsemi. Þegar við komum til Súðavíkur, vor- um við settir beint inn í Frosta, læstir þar inni og mátt- um ekki einu sinni mynda út um gluggana. Miðað við þá framkomu, sem sýslumaður hafði sýnt okkur á ísafirði þeg- ar við komum þangað, var greinilegt, að ef við hefðum ekki farið að hans boöum, var næsta skref handjárnin og rimlarnir," segir Eggert. Fréttamenn og myndatöku- menn, sem fóru með varðskip- inu Tý, voru þeir fyrstu sem komu til Súöavíkur, fyrir utan fréttaritara. Þrátt fyrir að í þeirra hópi væru reyndir fag- menn, bæði á sviði mynda- töku og fréttamennsku, kom næsta lítið út úr fyrirhöfninni. Sem dæmi um þetta má nefna að einu fréttamyndirnar, sem teknar voru af björgunar- mönnum við leitarstörf, voru teknar í leyfisleysi af fréttarit- ara Stöðvar 2 á ísafirði á VHS- vídeótökuvél. Eina blaðaljós- myndin, sem var tekin og birt- ist á forsíðu Morgunblaðsins, vár ekki tekin af Ragnari Ax- elssyni Ijósmyndara, heldur af björgunarsveitarmanni sem laumaöi vél frá honum inná sig og smellti af — einnig í leyfisleysi. Fréttamennirnir segjast ekki hafa fengið skýringar á því hvers vegna þeir fengu ekki að starfa í Súðavík og hafa bent á að þeir séu fyllilega dómbærir á sín störf undir kringumstæð- um sem þessum. Þeir bera til baka að ekki hafi verið til nóg af snjóflóðaýlum. Eftirá hefur komið í ljós að til eru betri fréttamyndir frá snjóflóðinu á Neskaupstað 1974, heldur en frá Súðavík. „Við erum fullorðnir menn og tökum sjálfstæða ákvörðun um það að leggja okkur í sömu hættu og björgunarmenn," segir Eggert. „Það er jafnframt okkar fag aö leggja mat á hvað telst frétt og hvað er óviðeig- andi við þessar kringumstæð- ur. Frá Súöavík eftir flóöiö. Einu heimildarmyndirnar afleitinni eru lélegar VHS-myndir og mynd sem leitarmaöur tók í leyfisleysi. Varðandi snjóflóðaýlurnar, þá er þetta bara rangt. Sumir fréttamenn voru sjálfir með snjóflóðaýlur og þaö var nóg af snjóflóðaýlum á svæðinu, eða í það minnsta sams konar tækjabúnaði. Ólafur Helgi Kjartansson var ekki að hugsa um líf eða limi fréttamanna. Hann tók sér einfaldlega rit- stjórnarlegt vald á vettvangi og hreinlega ákvað hvað færi í fjölmiðla og hvað ekki." — En er ekki upphaf og endir málsins að sýslumaðurinn á ísa- firði og leitarmenn hafa einfald- lega ekki treyst þeim fjölmiðla- mönnum, sem komu á staðinn til þess að vinna sína vinnu? „Það er því miður málið," segir Eggert. „Ég veit ekki hvaða bíómyndir Ólafur Helgi Kjartansson hefur verið að horfa á, en ég veit það eitt að íslenskir fréttamenn eru ekki að sækjast eftir þeim hlutum sem ofbjóöa áskrifendum þeirra. Við vitum alveg hvar mörkin liggja." Guöjón Petersen, forstjóri Almannavarna, sagðist í gær lítið geta tjáð sig um málið. Hann segir að málið verði hins vegar skoðað og rætt við báða aðila. Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumabur á ísafirbi, er sakabur um óeblilega afskiptasemi af störfum fréttamanna í Súbavík á fundi blabamanna. Sýslumabur: Líf þeirra og limir voru á ábyrgb vettvangsstjóra „Mér þykir miður, ef frétta- menn kvarta undan störfum mínum. Ég skil út af fyrir sig vel að fréttamenn hafi verið óánægðir með að komast ekki út úr Frosta," sagöi Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumað- ur á ísafirði, í gær. Ólafur Helgi er sameiginlegur stjórn- andi almannavarna í héraði og stýrði aðgeröum í Súðavík. Fréttamenn kvörtuöu sáran undan meintri haröýögi sýslumanns, vettvangsstjóra hans og björgunarsveitar- manna á fundi í Blaöamanna- félaginu í fyrrakvöld, þar sem fjallaö var um atburöina í Súðavík og vinnu blaða- manna þar. „Það, sem fyrir okkur vakir, eru ákveðin öryggissjónarmið og þau gilda jafnt um frétta- menn sem aðra. Þar sem snjó- flóð hefur fallið má búast við snjóflóði aftur. Ég reikna með að við yrðum gagnrýndir harð- lega, ef mennirnir yrðu fyrir slysi á svæðinu. Fréttamennirn- ir voru, að mér var tjáð, ekki sér- lega útbúnir fyrir þetta, til dæmis ekki með snjóflóðaýlur. Það sem meira var, menn vom að skiptast á um að nota ýlurnar í björgunarsveitunum, reyndar komst ekki nema ákveðinn hópur ab í einu. Veðrið var óskaplegt og hreinlega ekki stætt, ég skil reyndar ekki hvers- konar myndum menn áttu að ná," sagði Ólafur Helgi. „Ég hef síður en svo neitt undan blaðamönnum aö kvarta, en kannski hefði félag þeirra átt ab gefa mér kost á að sitja þennan fund og skýra mín sjónarmiö. Þab hefði verið sjálf- sagt að mæta, ef veður hefði leyft," sagbi Ólafur. Ólafur sagði að hann væri heilshugar á þeirri skoðun að veita bæri fjölmiðlum réttar upplýsingar um atburði sem þann, sem varð í Súðavík; einn- ig að veita bæri blaðamönnum aðgang ab vettvangi, svo fram- arlega sem það væri hættulaust og tefbi ekki björgunaraðgerðir. Þegar búið hefði verið að kanna aðstæður, var þeim frjáls för um svæðib. „Það, sem lá fyrir milli mín og vettvangsstjóra inni í Súðavík, var fyrst og fremst öryggi frétta- mannanna sjálfra. Þeir fóru með varbskipinu inn í Súbavík á Ólafur Helgi Kjartansson. ábyrgð skipherrans, sem sá um að þeir kæmust á land. Við vor- um alls ekki í stakk búnir til að taka ábyrgð á lífi fleiri manna en þeirra, sem voru að vinna þarna við afar erfiðar aðstæð- ur," sagði Ólafur Helgi Kjartans- son. Hann ítrekaði að samvinnan við fjölmiðla hefði verið góð, að hans mati. Fjölmiblar voru bebnir að segja ekki frá snjó- flóðinu fyrr en eftir klukkan hálfellefu um morguninn. Við þab stóðu þeir. Þetta byggðist meöal annars á því að þá væru komnir inn á Súðavík utanað- komandi menn, sem gætu gefið hlutlægar upplýsingar um at- burðinn. Ólafur Helgi sagðist þó vera með í höndum fréttaskeyti frá Reuter-fréttastofunni , frá þess- um örlagaríka morgni, þar sem segir ab „tíu hafa látist og 18 annarra saknað". Þetta skeyti mun hafa farið um heims- byggðina fyrir klukkan hálfell- efu þennan morgun — og var rangt, því ekki var vitaö hversu margir höfðu látið lífið á þeim tíma. „Ég ítreka það, að ég varð ekki var við annað en prýðisfólk í þessum hópi fréttamanna, en líf þeirra og limir voru á ábyrgð vettvangsstjóra og þarafleibandi Almannavarna. En okkar hlut- verk var að bjarga þeim sem urðu fyrir snjóflóðinu, loka af svæðiö og vernda þá sem voru við björgun á svæbinu fyrir hættunni sem vofði yfir," sagöi Ólafur Helgi Kjartansson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.