Tíminn - 07.02.1995, Page 8
8
Þribjudagur 7. febrúar 1995
KRISTJAN GRIMSSON
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1.5 af 5 3 4.871.030
o 4 af 5 r Plús 3 m 358.020
3. 4 af 5 262 y 7.070
4. 3al5 8.844 480
Heildarvinningsupphæð:
21.784.610
BIRT MEÐ FVRIRVARA UM PRENTVILLUR
Vil reyna mig
með íslenska
landsliðinu
„Ég valdi IR vegna þess ab þar
fékk ég tœkifœrí til ab þjálfa, en
mörg önnur lib töldu mig ekki
geta þjálfab og spilab samtímis,"
segir john Rhodes, sem sést hér á
myndinni ásamt verbandi eigin-
konu sinni jacqueline Kay joyce.
Tímamynd C.5.
einhvern tímann þjálfað í Evr-
ópu eða jafnvel í bandarískum
háskóla og þetta tækifæri hjá ÍR
er fyrsta skrefiö að þeim draumi.
Að taka við ÍR-liðinu er líka mikil
áskorun. Þab kom upp úr 1. deild
og var hungrað í að stíga stórt
skref upp á við og reyna ab ná
góðum árangri, eins og í gamla
dag'a. Einum manni verð ég að
þakka sérstaklega fyrir ab hafa
svo mikla trú á að ég gæti þjálfað
og það er Jóhannes Sveinsson,
formaður körfuknattleiksdeildar
IR, en mörg liðanna, sem höfðu
samband við mig, sögðu að ég
réði ekki við að þjálfa og spila
samtímis." En fer það saman að
vera að spila og þjálfa um leiö?
„Þab tekur oft mikla orku að vera
leikmaður og hugsa aðeins um
það og því held ég að ég kæmist
varla af án þess að hafa aöstoðar-
þjálfarann, Gunnar Sverrisson.
Hann bindur liðib saman og veit
meira hvað strákarnir eru að
hugsa, því hann er íslenskur og
getur komið því nauðsynlega
fram á réttum augnablikum í
hita leiksins. Þannig fer það sam-
an."
Sá leikmabur, sem hefur vakib
mesta athygli í vetur í úrvals-
deildinni, er án efa Herbert Arn-
arson hjá ÍR, en mörg félög voru
VINNINGSTÖLUR
LAUGARDAGINN
4.2.1995
segir John Rhodes, þjálfari og leikmaöur ÍR, sem hefur stýrt gamla
stórveldinu til velgengni á nýjan leik
John Rhodes kom til íslands um
haustið 1991 og lék með Hauk-
um í Hafnarfirði þrjú keppnis-
tímabil. Á þeim tíma náði hann
að vinna sér sess sem einn allra-
besti erlendi leikmaðurinn sem
hingað til lands hefur komib, og
er enn jrann dag í dag sá allra-
besti. I sumar réöst hann til
starfa hjá nýliöum ÍR í úrvals-
deild sem bæði leikmaður og
þjálfari og er óhætt ab segja ab
hann hafi fundið rétta taktinn
með liðið, því ÍR hefur m.a. ekki
tapað leik á heimavelli til þessa.
En Rhodes er ekki aðeins hæfi-
leikaríkur innan vallar, því utan
hans er hann hvers manns hug-
ljúfi, sem hugsar um að reyna að
gera körfuknattleikinn vinsælari
en hann er meö því að vera fyrir-
mynd ungu körfuboltaunnend-
anna, sem virða hann fyrir getu
hans inni á vellinum.
Rhodes er 29 ára gamall, fædd-
ur í Milwaukee í Bandaríkjunum.
Fjölskylda hans býr ytra, foreldr-
ar og fimm systkini, en unnusta
hans, Jacqueline Kay Joyce, er
meb honum hér á landi og kenn-
ir þolfimi í Hafnarfiröi, en þau
hafa verið saman í 10 ár og
stefna á giftingu hér á landi í
apríl. Rhodes er meb próf í al-
mannatengslum frá háskólanum
í Ohio og hann segir þessa
menntun koma sér að notum á
hverjum degi, þegar hann hittir
mismunandi fólk. „Ég hef líka
verið lausamaðuT í blaða-
mennsku og skrifaö greinar í
blöð bæði hér heima og erlend-
is," segir Rhodes.
Var efins um ísland
„Ég var svolítið efins þegar um-
boðsmaðurinn minn spurði
hvort ég vildi spila á íslandi. Ég
og Jacqueline urðum okkur úti
um nokkrar bækur um ísland, en
„Það er aldrei hœgt
að breyta því sem
dómarinn hefur
dœmt. Hvíþá að vera
að eyða orkunni í að
mótmœla? Þetta er
neikvœð orka, sem á
endanum dregur liðið
niður."
þær nýjustu voru frá árinu 1965
þannig að við fengum ekki alveg
rétta mynd af landi og þjóð, því
allir voru klæddir í gömul föt og
myndirnar voru allar svarthvít-
ar!" segir Rhodes.
Lenti í erfibleikum í
Frakklandi
Rhodes fór fyrst til Evrópu
1988 til að leika í Þýskalandi eitt
tímabil, en fór svo yfir til Frakk-
lands og var þar tvö keppnis-
tímabil. Hann segir aðdragand-
ann frekar leiðinlegan af brottför
sinni frá Frakklandi. „Þetta var
félag í neðri deildunum og for-
ráðamönnum liðsins fannst ár-
angurinn ekki vera eins og þeir
áttu von á, miðað við mannskap-
inn. Þeir létu mig því róa, skiptu
algerlega um stíl og fengu til sín
skotbakvörð. Ég var vonsvikinn,
því ég taldi mig vera að gera vel
fyrir liöib. Liðinu í heild gekk
bara ekki vel og fáir leikir unn-
ust. Þab, sem er slæmt við Frakk-
land, er að þar er bara hugsað um
að sigra, en í staðinn er lítið
hugsað um árangur einstakra
leikmanna."
Fjölbreyttra hæfileika
þörf
Margir góöir
„Þaö fer mikið eftir því hvernig
liðinu gengur, þegar maður spáir
í hver sé besti erlendi leikmaður-
inn hér, og hvað hann gerir fyrir
liðið. Leroy Burns er sá besti þeg-
ar mabur hugsar um getuna út
frá stigaskorun, Jonathan Bow er
að gera frábæra hluti með Val og
hreinlega að springa út, en öðru-
vísi hlutverki en áður. Rondey
Robinson hampar nær árlega ein-
hverjum titlum með Njarðvík og
það segir sitt, og Franc Booker
hefur gert góða hluti meb
Grindavík upp á síðkastið. Þab
fer því mikið eftir því hvað mab-
ur telur góða eiginleika vera, en
allir framangreindir koma til
greina sem bestu erlendu leik-
mennirnir." Aðspurður hvar
hann myndi setja sjálfan sig á
þennan lista, sagði hann með
bros á vör: „Á topp 5 listann."
Þjálfa ytra í framtíb-
inni
Þegar Haukar ákváðu að hafa
ekki erlendan leikmann í sínum
herbúðum, heldur byggja liöib
upp á yngri leikmönnum, höfbu
Valur, KR og Keflavík, auk ÍR,
samband við hann. „Ég valdi ÍR
vegna þess að þar fékk ég tæki-
færi til að þjálfa. Það er minn
draumur í frajntíðinni að geta
Eitt af því, sem einkennir ís-
lenskan körfuknattleik, er hversu
margir erlendir leikmenn staldra
stutt við. Hvað þarf erlendur leik-
maður, sem kemur til íslands, að
hafa til að bera til að haldast hjá
liði? „Fyrir utan þab að vera
ágætur leikmaður er mikil þörf á
að viökomandi hafi fjölbreytta
hæfileika og hafi því eitthvað
meira upp á að bjóða handa lið-
inu en bara t.d. að taka mörg frá-
köst. Hann þarf að vera einn af
liðinu, ekki bara innan vallar
heldur líka utan vallar, þar sem
nauðsynlegt er ab hann sé fyrir-
mynd þeirra yngri," segir Rho-
des. Jacqueline bætir við aö allir,
sem koma á nýja staöi, þurfi að
koma með opnum huga, tilbúnir
að setja sig í ný spor og gera ráð
fyrir aö það taki smá tíma.
/ohn Rhodes í baráttunni meb IR í vetur gegn sínum gömlu félögum í
Haukum. „Þab ergott ab vera búnir ab vinna öll libin í deildinni, þvíþá
geta þau ekki farib áhyggjulaus íleikina gegn okkur," segir Rhodes.
Tímamynd C.S.