Tíminn - 07.03.1995, Page 5

Tíminn - 07.03.1995, Page 5
Þribjudagur 7. mars 1995 M/e.—t..— mmmu 5 „Þoturnar" andspœnis „Hákörlunum": atribi úr „West Side Story". úr vesturbæ Gömul saga Þjóbleikhúsib: WEST SIDE STORY. SACA UR VESTURBÆNUM. Söngleikur byggb- ur á hugmynd Jerome Robbins. Leik- texti: Arthur Laurents. Söngtextar: Stephen Sondheim. Tónlist: Leonard Bernstein. Þýbing: Karl Ágúst Úlfsson. Danshöfundur og dansstjórn: Kenn Oldfield. Tónlistarstjórn: jóhann C. jó- hannsson. Hljóbstjórn: Sveinn Kjartans- son. Lýsing: Björn Bergsteinn Gub- mundsson. Leikmynd: Finnur Arnar Arn- arsson. Búningar: María Ólafsdóttir. Ab- stobarmabur danshöfundar: Ástrós Cunnarsdóttir. Abstobarleikstjórn: Ran- dver Þorláksson. Leikstjórn: Karl Ágúst Úlfsson og Kenn Oldfield. Frumsýnt á Stóra svibinu 3. mars. Það er mikið fyrirtæki sem Þjóðleikhúsið ræðst hér í. West Side Story er ekki aðeins einn frægasti söngleikur seinni tíma, heldur mjög kröfuhart verkefni, mannmargt og dýrt, krefst í rauninni úrvalskrafta á öllum vígstöðvum, leikara, dansara, söngvara. Hvort sem maður er áhugasamur um söngleiki eða ekki, hlýtur mað- ur að viðurkenna að viðfangs- efni af þessu tagi er mikil ögr- un og prófraun á starfsliðið að sýna hvað í því býr og því verðug glíma. Annað mál er að Borgarleikhúsið hefur gert það að sérstöku viðfangsefni sínu upp á síðkastið að sýna amer- ísk músíköl og eitt slíkt er nú í gangi, Kabarett. Söngleikja- unnendur fá því sinn deildan verð vel úti látinn í leikhúsum borgarinnar um þessar mund- ir. Eg myndi að vísu alveg láta mér nægja eitt músíkal á ári í Borgarleikhúsinu, og þótt minna væri. En hins vegar skal strax fram tekið aö sýning Þjóðleikhússins á West Side Story er sómasamleg að vinnu- brögðum og um sumt raunar fram yfir það. Er þá ekki vafi á að forn frægð viðfangsefnisins muni stefna mörgum til að horfa á þessa vesturbæjarsögu næstu vikur. Flestir vita líklega að Saga úr vesturbænum er soðin upp úr Rómeó og Júlíu Shakespeares. Sagan um elskendurna ungu, sem fengu ekki notið ham- ingju sinnar vegna fjandskapar fjölskyldna þeirra, er hér flutt til gengis götustráka í New York. Þar eigast við innfæddir Ameríkanar og innflytjendur frá Puerto Rico. í fyrrnefnda LEIKHUS GUNNAR STEFÁNSSON genginu er Tóný, en María er systir foringja hins liðsins, Bernardós. Efnið skal ekki rak- ið frekar, en í sem skemmstu máli snýst þetta um hreina ást á sorphaug haturs og grimmd- ar. Árni Blandon rekur tilurð- arsögu verksins í fróðlegri grein í leikskránni og segir þar að þegar það var frumsýnt í Philadelphia hafi því verið illa tekið, „þótti grimmt og nei- kvætt". Auðvelt er að sjá að þeim, sem vanir voru sykur- sætum söngleikjum, hafi ekki hugnast hrottaskapurinn hér, en hin saklausa ástarsaga meb ljúfum lögum eins og María og í kvöld fleyttu leiknum til ver- aldargengis sem vart á sinn líka meðal söngleikja. Dans og söngur: þetta er það sem heldur West Side Story uppi. Um dansatriðin í sýn- ingu Þjóðleikhússins skal það sagt að þau virtust vel og fag- mannlega af hendi leyst. Snerpa og öryggi einkenndu þau og sýnist Kenn Oldfield hafa leyst gott starf af hendi. Það mun hafa verib ágreining- ur milli dansstjórans og leik- stjórans sem olli því að Karl Ágúst Úlfsson hvarf frá leik- stjórn skömmu fyrir frumsýn- ingu og er ekki gott að segja hvaða áhrif það hefur haft á sýninguna. Varla hefur það styrkt leikhlið sýningarinnar, enda er hún greinilega veikust. Söngurinn verbur auðvitað framar öðru að vera í lagi. Á því sviði var Marta G. Hall- dórsdóttir stjarna kvöldsins, en hún fer með hlutverk Mar- íu. Marta syngur ágætlega, enda auðheyrilega vel skóluð söngkona. Sviðsframkoma hennar er einnig mjög eðlileg og falleg, en leikurinn fremur á yfirborði. Á móti henni leikur Felix Bergsson. Felix er þekki- legur leikari og syngur þokka- lega, reyndar ekki meir en það, og hefði vissulega verið gott að hafa yfir þjálfaðri söngvara að rába í hlutverkið. Leik hans Sog var ljótt í Sinfóníuhljómsveitin hélt afar eftir- minnilega tónleika í Hallgrímskirkju 2. mars, þar sem fyrst var fluttur fiðlukonsert nr. 5 eftir Mozart (A- dúr K.219) og síðan Sögusinfónía Jóns Leifs. Osmo Vanska stjórnaði. Einleikari á fiðluna var „hollenski fiðlusnillingurinn" Isabelle van Keu- len, sem spilaði af dæmafárri reisn og þokka. Því er jafnan haldiö fram, að tónlist Mozarts geri meiri kröfur til flutnings en flest annað, ef hún á að ná þeim guðdómlegu hæðum sem efni standa til, og það tel ég aö sannarlega hafi tekist í þetta sinn. Enda tóku allir á honum stóra sín- um undir stjórn Vanskas, og úr varð Mozart eins og hann getur háleitast- ur orðið. Jón Leifs leitaðist við að skapa norrænan eða íslenskan skóla í tón- list, sem byggðist á „hetjuanda" ís- lendingasagna og eddukvæba. Þessi heimur þykir mörgum útlending- um afar kaldranalegur, líkastur fjallstindi sveipubum hrímþoku. Enda eru margendurtekin þau orð Jóns Leifs, sem Hjálmar Ragnarsson tónskáld hefur eftir honum, að til þess að skilja verk sín þyrfti útlend- ingur fyrst ab tileinka sér íslensku fornbókmenntirnar á frummálinu, og síðan að kynnast vetrarbriminu þar sem þab svarrar við klakabrynj- uð björgin. Énda verður því ekki neitað, aö yfirbragð Sögusinfón- íunnar minnir talsvert á brimsog og bárubresti — þar voru m.a. að verki 10 slagverksleikarar sem hvergi drógu af sér. Þessu er lýst í vísunni alþekktu: Dauðinn sótti sjávardrótt, sog var Ijótt í dröngum. Ekki er rótt að eiga nótt undir Gróttutöngum. Sögusinfónían er a.m.k. að ein- hverju leyti „prógramm-tónlist", eins og fyrirsagnir þáttanna fimm og skýringar í tónleikaskránni bera með sér: Skarphébinn, Guðrún Ósvífursdóttir, Björn ab baki Kára, dröngum jón Leifs. TONLIST SIGURÐUR STEINÞÓRSSON Grettir og Glámur, Þormóður Kol- brúnarskáld. Þetta mun vera greini- legast í Gretti og Glámi, þar sem stööugur lægsti tónn flautunnar lýsir bib Grettis undir feldinum, en tröllslegt harkið á milli átökum beljakanna. í síðasta þætti eru not- aðar eftirlíkingar af fornlúðrum þeim sem Danir fundu í jörðu kringum aldamótin, og sem hinir dauðu í kirkjugarbinum á Fokstab í Vikivaka Gunnars Gunnarssonar feiltóku fyrir hinn hinsta lúður. Hér blása lúðrarnir inn orustuna ab Stiklastöðum þar sem Ólafur helgi féll meb miklu liði, og segir frá í Fóstbræðrasögu. Stefib „Hani, krummi, hundur, svín" gengur í gegnum þennan þátt. Sögusinfónían var gríðarlega til- komumikil í þessum flutningi í Hallgrímskirkju, sem tók sjálf hraustlega undir og magnabi verkið enn frekar. Osmo Vanská tók verk- efni sitt sem stjórnanda sýnilega mjög alvarlega og geröi sitt ýtrasta skortir einnig nokkuö á dýpt- ina. — Þessir ástföngnu ung- lingar eru auðvitað ekkert auð- leiknir á vorum kaldhyggju- tímum, en þó .held ég hægt hefði verið að komast lengra með þau Mörtu og Felix með markvissari leikstjórn. — Þess er skylt að geta að Garðar Thór Cortes og Valgerður G. Guðna- dóttir hafa líka æft hlutverk elskendanna og fara með þau á móti þeim Felix og Mörtu. Mannlýsingar er varla um að tala í þessum söngleik, svo sér- kennalausar og grunnar eru þessar persónur sem hér stíga á sviðið. Fyrir utan elskendurna ungu er ekki ástæða til aö nefna nema örfáa úr hópnum. Hilmir Snær Guðnason leikur Riff, vin Tónýs, og bætir engu við orðstír sinn. Sama er að segja um Baltasar Kormák sem leikur Bernardó. Sérstaka at- hygli mína vakti Sigrún Waage sem leikur Anítu og syngur einkar vel. — Annars eru hlut- verkin yfirleitt þannig að frem- ur reynir á fótafimi og líkams- snerpu en sálfræðilegt innsæi og þess vegna láta þau áhorf- andann lítt snortinn. Það eru langhelst gömlu kempurnar, Rúrik Haraldsson (Doxi) og Gunnar Eyjólfsson (Schrank), sem gefa sínum persónum kar- akter. Aftur er Sigurður Sigur- jónsson eins og hann hafi villst út úr Spaugstofunni í hlutverki Krupkes. Ekki verður frekari nafna- þula uppi höfð. Ég hef enga leiksýningu West Side Story séð, aðeins kvikmyndina fyrir nokkrum áratugum, og veit því ekki hvert persónulegt framlag leikmyndarsmiðar er; kannski er þetta bara stæling, og svo sem þokkaleg sem slík. Útisviðið var vítt með skýja- kljúfa New York að baki og hin fjölmennu dansatriði fóru lið- lega á sviðinu sem fyrr sagði og samhæfingin var góð. Yfirleitt var fagvinnan við sýninguna í lagi, að því er ég fékk séð, og varla lofsvert. Texti Karls Ágústs hljómaði lipur og eðlilegur í munni leik- aranna og lagatextar féllu vel að lögum, en ósköp var þetta flatur kveðskapur. Það er lík- lega ekki sök þýðandans. En hvað um það: Saga úr vesturbænum er komin á svið- ið í Þjóðleikhúsinu. Þótt í ein- stökum atribum megi betur gera og dýpra rista í efnið, hygg ég að áhorfendur geti vel við sýninguna unað. Kann ég svo ekki þessa sögu lengri. ■ til að magna ftutninginn, og sama gerðu hljóðfæraleikarar. Þótt und- arlegt megi teljast, því tónlistin virðist vera mjög hægferbug, er feikna mikið að gera í mörgum hljóðfærum og spilverkið verulega vandasamt í þessari yfirstærðartón- list. Nú risu áheyrendur úr sætum til að fagna Sögusinfóníunni. Og hváb hefur þá breyst frá því næst- um allir voru á móti Jóni Leifs og tónlist hans? Það erum við sem höf- um breyst — og það hefur tíöarand- inn líka gert. Hins vegar skal ósagt látið á þessu stigi hvort þessi flutn- ingur, sem sagður er frumflutning- ur Sögusinfóníunnar í heild sinni, markar þau tímamót í tilveru vorri og tónlistarlífi sem sumir hafa hald- ið fram í hrifningu augnabliksins. En allt um þab sýndu þessir tónleik- ar að nú blása vindar meö Jóni Leifs, og ab tónlist hans er svo stór- brotin og sérkennileg ab sennilega er hægt að „markabssetja" hana sem íslenska menningu. ■

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.