Tíminn - 24.06.1995, Blaðsíða 5

Tíminn - 24.06.1995, Blaðsíða 5
5 Laugardagur 24. júní 1995 Guöni Ágústsson: GATT-málin afgreidd frá Stærsta mál vorþingsins var án efa af- greiðsla GATT, hvernig íslendingar mörkuðu stefnu um innflutning á landbúnaðarvörum samkvæmt al- þjóðasamningi. Það hefur varla farið framhjá neinum að gagnvart í íslensk- um landbúnaði eru miklir breytinga- tímar upprunnir og lágu fyrir um leið og aðild að alþjóðaviðskiptastofnun- inni var staðfest. Hitt var mönnum líka ljóst að viðhorfin eru mismunandi í stjórnmálaflokkunum, hvort ætti að gefa bændum hér sama aðlögunartíma og kollegar þeirra fá í nágrannalönd- unum. Sem betur fer urðu stjórnar- skipti í vor og Alþýðuflokkurinn fór í frí, enda kom í ljós að ályktun um for- ræði og meðferð málsins skiptu nú for- mann þess flokks engu máli, þótt hann greiddi því atkvæði fyrir tæpu misseri. Ég vil við lok þessara mála undrast þá umræðu sem ýmsir aðilar, þar á meðal Neytendasamtökin og fleiri, hafa viðhaft. Það er einsog hjálpin á öllum sviðum verði að koma að utan og íslenskir framleiðendur eigi að sitja á öðru farrými. Þó liggur það fyrir að frá því GATT-umræðan hófst hér um svipað leyti og núverandi búvöru- samningur var gerður, hefur verð á innlendum landbúnaðarvörum lækk- að til neytenda urn 20%.' Þessi mikla verðlækkun treystir grundvöll inn- lendrar landbúnaðarframleiðslu í sam- keppni við þær vörur, sem heimilt er að flytja inn samkvæmt lágmarksaðgangi samningsins. Enn- fremur höfðu íslenskir bændur einir allra bænda í Evrópu fallið frá útflutningsbóta- rétti. Landbúnaðarnefnd eða meirihluti hennar kom inn í lögin mjög mikil- vægu atriði þar sem landbúnaðarráð- herra „er heimilt að banna innflutning á afurðum dýra og plantna sem gefin hafa verið vaxtaaukandi efni á fram- leiðsluskeiðinu eða kunna að fela í sér leifar lyfja og annarra aðskotaefna, umfram það sem leyft er við fram- leiðslu innan lands, sem geta verið hættuleg heilsu manna". Það er ljóst að hér á landi hafa verið boðnar heilnæmar, mengunarlausar landbúnaðarvörur og þær sömu kröfur verður að gera til innflutningsins. Má í því sambandi minna á nýútkomna skýrslu, útgefna af landlæknisembætt- inu, um dýrafóður og afurðir dýra sem nýttar eru til manneldis. Efni þessarar skýrslu er það merki- legt að kannski ætti hún að vera skyldulesning á hverju heimili. Vill fólk kjöt eða mjólkurafurðir úr pump- uðum nautgripum? Neytendasamtök- in ræða stundum um neytendavernd, sem er ekki síður í heil- næmi vörunnar held- ur en verði. Ég vona að þau leggi þeirri bar- áttu lið að haft verði strangt eftirlit með lyfjum, hormónum og sýklum í fóðri og matvælum. Við þessar aðstæður er fátt brýnna en að herða eftirlit með inn- flutningi. Það skilja altjent þeir sem lesið hafa skýrslu landlæknisembættis- ins, því löndin, sem við kunnum að eiga viðskipti við héðan í frá, eru mjög misströng í þessum efnum. Þeim, er þetta ritar, blandast ekki hugur um að GATT mun hafa mikil áhrif hér á landi og íslenskur landbún- aður á öllum sviðum verður að taka á honum stóra sínum til að mæta fram- tíðinni. Hér er að hefjast fyrsta tímabil- iö að aðlögun með frjálsari viðskipti með búvötur. Því veltur á miklu að hagræða í milliliðakostnaði með það markmið að lækka verð búvara til neytenda og bæta kjör bænda í leið- inni. Ekki bara til að verja íslenskan markað, heldur til að stækka hlut okk- ar með útflutningi á landbúnaðarvör- um, en þar eigum við mikla mögu- leika, ekki síst vegna þess að gæðin gera vöruna eftirsótta. Hagræðingin Alþingi snýr að dreifingarkóstnaði vörunnar, hvar er hægt að spara og hagræða á millistigi, og einnig í frumframleiðslu. Ég kvíði ekki framtíðinni, ef menn nú taka þessi mál föstum tökum. Þau kosta sársauka, en skila íslenskum landbúnaði framtíðarmöguleikum í landinu og í útflutningi, fyrir verð sem skilar bóndanum tekjum. GATT virkar nefnilega á báða bóga. Mestar áhyggjur hef ég reyndar af ís- lenskri garðyrkju við þessar aðstæður. Hún fór illa út úr viðauka við EES- samninginn, illu heilli. Garðyrkja fær á sig mikinn ríkjandi markaðsaðgang vegna innflutnings á viðmiðunarári, sú viðmiðun gefur ranga mynd af markaðshlutdeild garðyrkjunnar í dag. Því skoraði undirritaður á landbúnað- arráðherra við lokaafgreiðslu málsins á Alþingi að taka til sérstakrar skoðunar rekstrarskilyrði garðyrkjunnar miðað við þessar aðstæður. Ennfremur álykt- aði landbúnaðarnefnd um það og tók undir sjónarmið garðyrkjubænda. Að lokum er vert að þakka Guð- mundi Bjarnasyni landbúnaðarráð- herra fyrir hversu föstum tökum hann tók þetta mál og vonandi verður nið- urstaðan sanngjörn fyrir alla aðila. For- ræðið verður í höndum landbúnabar- ráðherra, sem var mjög mikilvægt við svo flókið mál sem snertir þennan annan aðalatvinnuveg landsmanna. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.