Tíminn - 24.06.1995, Page 8

Tíminn - 24.06.1995, Page 8
8 Laugardagur 24. júní 1995 Helga Jonsdottir borgarritari tekur viö starfi stjórn- arformanns Landsvirkjunar: „Finnst ég æbi mikib Helga Jónsdóttir, borgarrit- ari í Reykjavík frá 1. ágúst, hefur verib skipub formabur stjórnar Landsvirkjunar og tekur vib því hlutverki af Jó- hannesi Nordal, sem hefur verib stjórnarformabur frá stofnun fyrirtækisins. í sam- tali vib Tímann segir Helga, sem undanfarin þrjú ár hef- ur setib í stjórn Alþjóba- bankans og búib ásamt fjöl- skyldu sinni í Washington, ab þab leggist vel í hana ab taka vib þessum störfum. „Ég ætla samt ekki aö neita því," segir hún, „ab mér finnst ég hafa færst æbi mikiö í fang og ég geri mér grein fyrir því að ég verö aö hafa mig alla viö. Á hitt er aö líta, aö þaö hefur tíðkast hingað til aö stjórnar- formennsku í Landsvirkjun hafi verið gegnt meö fullu starfi annars staöar, starfi sem hefur nú ekki verið talið létt- vægt. En aö sjálfsögöu hafa leitað á mig spurningar um þaö hvort ég geti þetta og hvort ég sé fær um að axla alla þessa ábyrgð. Þá spyr ég á móti, hvort svo hljóti ekki aö vera aö ég valdi þessu, rétt eins og karlarnir sem hafa gert það. Það hefur líka oröiö til aö styrkja mig að tíminn hér í Washington hefur verið mikil prófraun, sem ég veit að ég hef staðist." Eiginmaður Helgu er Helgi H. Jónsson fréttamaöur og eiga þau þrjú börn: tvær dæt- ur, fjórtán og tíu ára, og son sem er sjö ára. „Viö erum að undirbúa flutninginn heim. Ég held aö flutningarnir reyni ekki mikið hafa færst í fang" Helga jónsdóttir — kemur til starfa hjá borginni og Landsvirkj- un í ágúst. á fjölskylduna, börnin eru af- skaplega jákvæö gagnvart þessu og hlakka mikið til aö koma heim." Af fjölskyldunni þaö annars aö frétta aö Helgi var að ljúka Mastersprófi í alþjóöastjórn- málum frá Johns Hopkins-há- skóla og hverfur nú aftur til sinna fyrri starfa á fréttastofu Sjónvarpsins við heimkom- una. Helga Jónsdóttir kemur til starfa í Ráðhúsinu þegar vika er af ágúst, en nýlega fór hún með Ingibjörgu Sólrúnu Gísla- dóttur borgarstjóra á höfuö- borgaráöstefnu í Stokkhólmi, auk þess sem hún var hér í Reykjavík fyrir skemmstu og átti þá fundi meö forstöðu- mönnum sviða og stofnana borgarinnar. ■ PÓSTUR OG SÍMI Utboð Pósts og síma, Selfossi Bifreiðageymsla Póst- og símamálastofnun óskar eftir tilboöum í bygg- ingu og fullnaðarfrágang á bifreibageymslu á lóð Póst- og símamálastofnunarinnar, Austurvegi 24-26, Selfossi. Húsiö er ein hæb, 103,2 m2 og 407,5 m\ Útbobsgögn verba afhent frá þriðjudeginum 27. júní á skrifstofu fasteignadeildar Pósts og síma, Pósthússtræti 5, 3. hæb, 101 Reykjavík, og á skrifstofu stöbvarstjóra Pósts og síma á Selfossi, gegn 20.000 kr. skilatryggingu. Tilbob verba opnub á fasteignadeild Pósts og síma þriöjudaginn 18. júlí kl. 11.00. Póst- og símamálastofnun Aðstaða til bleikjueldis Óska eftir jörb eöa jarbarparti til kaups eba leigu undir bleikjueldi. Sjálfrennandi vatn skilyrbi og möguleiki á jarbhita æskilegur. Fisk- eldisstöö kæmi einnig til greina. Æskilegt ab stabsetning sé ekki lengra en 150 km frá Reykjavík. Svör sendist Tímanum, merkt „Bleikjueldi", fyrir 8. júní. Tíminn Brautarholti 1 105 Reykjavík. Sími: 563-1600. Fax: 551-6270. Frá Sólborg, framtíbarabsetri Háskólans á Akureyri. A innfelldu myndinni tekur Þorsteinn Gunnarsson rektor formlega vib stabnum úr hendi Halldórs Blöndals samgöngurábherra, sem afhenti hann fyrir hönd Ólafs G. Ein- arssonar, þáverandi menntamálarábherra, 7. apríl síbastlibinn. TímamyndÞi Háskólinn á Akureyri: Brautskráði 5 2 kandídata Frá Þór&i Ingimarssyni, fréttaritara Tímans á Akureyri: Háskólinn á Akureyri lauk vorönn sinni meb brautskrán- ingu 52 kandídata síbastliöinn laugardag. Alls luku 18 kandídatar BS-prófi í hjúkrunar- fræði, 7 BS-prófi í rekstrarfræöi og gæðastjórnun og 7 BS-prófi í sjávarútvegsfræði. Þá luku 11 nemendur tveggja ára námi í rekstrarfræði og 9 nemendur tveggja ára námi í iðnrekstrar- fræöi. Er þetta stærsti hópur, sem útskrifast hefur frá Háskól- anum til þessa, og óbrigöult merki um vaxandi háskólastarf á Akureyri. Alls stunduðu 385 nemendur nám við Háskólann á Akureyri á libnu skólaári og er þaö um 40% fjölgun frá árinu áður. Flestir stunduðu nám viö kennaradeild skólans, eba 136, og nokkru færri, eöa 110, viö hjúkrunardeild. Um 75 manns stunduðu nám viö rekstrardeild og 64 við sjávarútvegsdeild. Vegna takmarkaðrar húsnæðis- aöstöðu skólans var þessi fjölg- un nemenda á mörkum þess er unnt var ab taka við, og af þeim sökum ákvaö heilbrigöisdeild aö beita fjöldatakmörkunum inn á vorönn 1. árs. Lausn er nú fengin á vaxandi húsnæöisþörf skólans, en á- kveöið hefur veriö aö framtíðar- aðsetur hans veröi að Sólborg. Gengiö var frá samningum þar aö lútandi á síöastliðnum vetri og var Þorsteini Gunnarssyni rektor afhent Sólborgarsvæöið viö athöfn aö Sólborg 1. apríl síöastliðinn. Þorsteinn Gunnarsson sagöi í skólaslitaræðu sinni að Sólborg- arsvæöiö væri ákjósanlegur staður frá skipulagslegu sjónar- miði, sem sé í miðju núverandi íbúöarbyggðar á Akureyri. Nú- verandi húsnæöi aö Sólborg væri auðvelt aö nýta fyrir yfir- stjórn, þjónustu við deildir, skrifstofur kennara og vinnu- herbergi nemenda, auk þriggja kennslustofa og bókasafns. Þá muni þær nýbyggingar, sem rísa eiga á Sólborgarsvæöinu, hýsa kennslu, rannsókna- og þróunarstarfsemi auk bóka- safns, en fyrirhugað er að öll starfsemi Háskólans á Akureyri Rannsóknir og kennsla í nánu sam- starfi viö atvinnulífiö, segir Þorsteinn Gunnarsson rektor verði flutt á Sólborgarsvæðið árið 2004. Framtfóara&setrið opnar nýja mögu- leika Þorsteinn Gunnarsson sagði aö uppbygging háskólans á Sól- borgarsvæðinu opni ýmsa möguleika sem núverandi húsa- kostur geri ekki. Meö samstarfi háskólans og rannsóknastofn- ana á næstu árum veröi unnt ab byggja sérstaka atvinnudeild þar sem efnt yrði til námskeiða, er tengdust atvinnuvegum landsmanna, auk þess sem rannsóknastofnanirnar hefðu þar aöstööu fyrir starfsemi sína. I því sambandi nefndi hann Stofnun Vilhjálms Stefánsson- ar, rannsókna- og þróunarsetur í matvælafræöi, rannsóknadeild í ferðamálum, auk fleiri stofn- ana. Þorsteinn gat þess aö með stofnun Vilhjálms Stefánssonar á liönum vetri hafi skapast ný vídd í stefnumótun Háskólans á Akureyri, er taka þurfi mið af stöðu skólans sem háskóla á noröurslóð, er líti á það sem hlutverk sitt að rannsaka og fræða um lífsskilyrði, náttúru og atvinnulíf í norölægum byggðum. Starfssamningar vfó rannsóknastofnanir atvinnuveganna Þorsteinn Gunnarsson sagöi ab sérstaba Háskólans á Akur- eyri fælist meðal annars í því að skólinn hafi gert samstarfs- samninga við rannsóknastofn- anir á vegum atvinnuveganna og fleiri aöila um samvinnu við sérfræðinga sem sinna kennslu- störfum vib skólann. Þannig fari rannsóknir og kennsla há- skólakennara á Akureyri fram í nánu samstarfi viö atvinnulífib og rannsóknastofnanir atvinnu- veganna. Háskólinn á Akureyri hefur nú gert samstarfssamn- inga við fjórar rannsóknastofn- anir, en það eru: Hafrannsókna- stofnun, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Iðntæknistofn- un og síöast Rannsóknastofnun landbúnaðarins. Þorsteinn Gunnarsson rektor sagöi ab rannsóknir og kennsla háskóla- kennara á Akureyri fari þannig fram í nánu samstarfi við at- vinnulífið og rannsóknastofn- anir þess. Þróunarsetur mat- vælaframleibslu í Eyjafirði Þorsteinn Gunnarsson sagði einnig að nýlega hafi verið gengið frá skýrslu um á hvern hátt mæta megi þörf matvæla- iðnaðarins á Eyjafjarðarsvæö- inu fyrir menntaö vinnuafl og bætt rannsóknaumhverfi. Þar sé lagt til aö komið veröi á fót Mat- vælasetri í tengslum viö Háskól- ann á Akureyri og aö nám í mat- vælagreinum á framhaldsskóla- stigi verði samræmt. Þá sé gert ráð fyrir að stofnuð verði náms- braut í matvælaframleiðslu vib háskólann, er verði sérstök braut innan sjávarútvegsdeildar hans. Varðandi þessa náms- braut verði lögb áhersla á að kynna nemendum markaðs- og stjórnunarfræði, auk matvæla- fræðinnar og gæðaeftirlits. ■ Útblástur bitnnr verst á börnunum K . m|UMFERÐAR /I

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.