Tíminn - 28.06.1995, Page 5

Tíminn - 28.06.1995, Page 5
Miðvikudagur 28. júní 1995 5 Magnús H. Gíslason: „Þarna gerðirðu það gott, greyið" Eitt sinn þurfti Sveinn heitinn móðurafi minn að bregða sér bæjarleið, sem út af fyrir sig er ekki í frásögur færandi. í för meö afa slóst bróðursonur hans, Sveinn Bjarman, sem einnig átti erindi að reka á sama bæ og afi. Styðst ég hér eftir við frásögn Sveins af þessu ferðalagi. Þeir félagar fóru ríðandi og hafði afa verið fengin til reiðar hryssa ein, grá að lit og hinn mesti stólpagripur. Grána hafði hinsvegar þann ókost að vera ákaflega. hnotgjörn. Afa var kunnugt um þennan annmarka hryssunnar, en taldi ekki ástæðu til að setja hann fyrir sig, því hún var bæði góðgeng og viljug. Segir nú ekki af ferðum þeirra félaga um sinn og tóku þeir óð- um að nálgast áfangastaöinn. Og enn hafði þeirri gráu ekki svo mikið sem skrikað fótur. Var það með miklum ólíkindum að hún kæmist heila bæjarleið, og hana alllanga, án þess ab hnjóta. En ferðinni átti nú samt sem áður ekki að ljúka óhappalaust og skyndilega henti slysið: Gránu skrikaði fótur og það svo verk- lega að hún fór kylliflöt, en afi þeyttist fram af henni. Kom þó fyrir sig fötunum og slapp meb öllu ómeiddur. Hið sama varð því miður ekki sagt um vesalings Gránu, því hún hálsbrotnaöi við staðhæfingar skal ég ekki deila. Eg er raunar þeirrar skoðunar að aldrei hafi til fulls verið látið reyna á möguleika til myndunar „vinstri" stjórnar og tel mig hafa fyrir því rök, sem ég ætla annars ekki að tíunda hér og nú. En hvað um það. Ihaldsstjórn varð staðreynd og fyrir vikið fékk Framsókn fimm ráðherra- stóla. Er það auðvitað töluverðs virði fyrir flokk, þar sem annar hver þingmaður, eða fleiri mæna á slíka stóla, enda bjóða menn sig nú til dags frekar fram til ráðherradóms en þing- mennsku, eins og Ingvar Gísla- son sagði í útvarpinu á dögun- um. Stjórn til hinnar handar- innar hefði aftur á móti naum- ast fært Framsókn nema tvo ráöherrastóla, sem þeir hefbu þá aubvitað hlotið, Halldór útgerð- armaður og hinn gamli Möðru- vellingur, Guðmundur Bjarna- son. Páll, Finnur og Ingibjörg hefðu þá áfram orðið að skipa hinn óæðri bekk. Eru miklar lík- ur á að ráðherradraumur Páls, sem hann hefur fariö frekar vel með til þessa, væri þar með end- anlega úr sögunni. Mér sýnist Páll hinsvegar vera kominn þarna í heldur dimmleitan og drungalegan félagsskap, þar sem mér finnst hann engan veginn eiga heima. Samstjórnir íhalds „En hvað um það. íhaldsstjóm varð stað- reynd og fyrir vikið fékk Framsókn fimm ráð- herrastóla. Er það auð- vitað töluverðs virði fyrir flokk, þar sem annar hver þingmaður eða fleiri mœna á slíka stóla, enda bjóða menn sig nú til dags frekar fram til ráðherradóms en þingmennsku ..." og Framsóknar hafa sjaldan reynst þjóðinni heillavænleg „fyrirtæki". Og ég er smeykur um að svo kunni enn að reynast. Því óttast ég mjög að ráðherra- dómurinn færi Páli þau örlög ein að verða fyrir pólitísku háls- broti. Þá hefði „framinn" veriö of dýru verði keyptur. Og þó að þessháttar slys væri auðvitað vægara en það, sem veslings Grána varð fyrir, þá myndi e.t.v. einhverjum verða það á, þegar svona væri komið, að taka undir orð Sveins heitins afa. Höfundur er frv. blabamaður. VETTVANGUR fallið og lauk þar meb ævi sinni. Þegar afi sá hvernig komið var fyrir hryssunni, varð honum að orði: „Þarna gerðirðu það gott, greyið." Ég get ekki neitað því að þessi orö afa, þar sem hann stóð yfir gráu hryssunni hálsbrotinni, komu mér í hug þegar ég frétti að Páll minn Pétursson væri orb- 'inn ráðherra í ríkisstjórn þeirra félaga, Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar. Ein- Páll Pétursson og félagar. hvernveginn fannst mér að Páll ætti illa heima í þeim félagsskap. Auðvitað fékk Páll engu ráðið um þessa stjórnarmyndun, því eblilega lætur ekki útgerðarjaxl úr Höfn búhnubb úr Blöndudal segja sér fyrir verkum um pólit- ískar athafnir. Raunar er haft eft- ir Páli að Framsókn hafi ekki átt annan kost á stjórnarþátttöku, því ógerlegt væri fyrir sæmilega siðaða menn að vinna með Jóni Baldvini. Um réttmæti þeirrar Raufarhöfn. 50 ára afmœli Raufarhafnar: Öllum íbúum Hólmavíkur sent boösbréf AUir íbúar Hólmavíkur í Strandasýslu hafa fengib per- sónulegt boðsbréf á 50 ára af- mælishátíb Raufarhafnar- hrepps, en Hólmavík er vina- bær Raufarhafnar. Afmælisins verður minnst dagana 21.-23. júlí n.k., en árið 1945 var hreppnum skipt út úr Prest- hólahreppi, samkvæmt ákvörö- un stjórnvalda en gegn vilja íbúa staðarins. í tengslum við afmælishátíöina hefur verið lögð mikil áhersla á fegrun þorpsins og m.a. var sam- þykkt sérstök umhverfisáætlun fyrir sveitarfélagið á hátíðarfundi sveitarstjórnar í ársbyrjun. Þá fékk hreppurinn hagstætt tilbob í útimálningu frá Slippfélaginu og í framhaldi af því hefur fjöldi húsa verið málaður á undanförn- um vikum eftir að það fór að hlýna. I samræmi við umhverfisáætl- unina var rábist í öflugt hreinsun- arstarf sl. vor í þorpinu og nálæg- um fjörum. Drasl hefur verið hreinsað af ióðum, skúrar rifnir og bílhræ hafa verið fjarlægð. Búist er við fjölmenni á afmæl- ishátíbina þar sem boðið verbur upp á veglega og fjölbreytta dag- skrá. Þá mun forseti íslands heim- sækja Raufarhöfn laugardaginn 22. júlí n.k. 'Framkvæmdastjóri hátíðarinnar er fjöllistamaðurinn Örn Ingi Gíslason. a Glæsilegir einsöngstónleikar Tenórsöngvaranum Ólafi Árna Bjarnasyni nánast skaut upp á stjörnuhimininn í einu vetfangi meö sýningu Söngsmiðjunnar á La Bohéme fyrir fáum árum, því áöur höföu fæstir svo mikið sem heyrt hans getið. Fimmtudaginn 22. júní hélt hann einskonar dé- but-tónleika í Háskólabíói þar sem hann söng frægar óperuaríur með Sinfóníuhljómsveit íslands undir stjóm Bandaríkjamannsins Nicola Rescigno, sem er um áttrætt. Resc- igno hefur helgaö líf sitt óperu- stjórn, og m.a. kynnt fjölda frægra listamanna fyrir • bandarískum áheyrendum, eins og það er orðaö í tónleikaskránni. Frægust er sam- vinna þeirra Maríu Callas, en meðal annarra má nefna Dom- ingo, Sutherland og Zeffirelli. Og nú hefur hann tekiö Ólaf Árna undir sinn verndarvæng og segist hafa tröllatrú á strák. Enda er greinilegt aö Ólafur Árni tekur vel tilsögn, því hans mikla og prýbi- lega náttúrurödd hefur skólast verulega. Ölafur Árni hefur raunar ekki setið á skólabekk öll þessi ár, því undanfarin fjögur ár hefur hann verið fastráðinn sem fyrsti Ólafur Árni Bjarnason. TONLIST SIGURÐUR STEINÞÓRSSON tenór við óperuhús í Þýskalandi og sungið þar ýmis stór hlutverk. Á tónleikunum söng Ólafur Árni frægar aríur úr óperum ítölsku tónskáldanna, Verdi, Pucc- ini og Donizetti, aríur sem ýmist voru „á lágu nótunum" eða þeim háu, og gerði það allt mjög vel. Þarna sýndi Ólafur Árni að hann hefur vald á hinu mikla litrófi tónlistarinnar. Eins og góöum tenórsöngvara sæmir réðst hann ótrauður til atlögu vib nokkur há- C við mikil fagnaöarlæti áheyr- enda, sem elska slíkt mest af öllu, og troöfylltu raunar bíóiö stóra, enda ríkti gríðarleg og óvenjuleg stemmning í salnum. Ólafur á sjálfsagt eftir að styrkjast í þessari íþróttagrein hins háa tóns, því litlu munaði að röddin brysti, en brast þó ekki. Hinn aldni hljómsveitarstjóri stjórnaöi af mikilli nærfærni og hófsemd, og hefur hljómsveitin sjaldan hljómað betur, og hljómar þó oftast vel. Tónleikunum lauk svo með einum fjórum aukalög- um og ógurlegum fagnaðarlátum, en á endanum varö hljómsveitar- stjórinn að biðja skjólstæðingi sínum vægöar svo hann ofgerði sér ekki alveg. Tíminn óskar Ólafi Árna Bjarnasyni til hamingju meö þessa prýbilegu og ánægjulegu tónleika. a

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.