Tíminn - 04.08.1995, Síða 3

Tíminn - 04.08.1995, Síða 3
Föstudagur 4. ágúst 1995 3 Sjúkraliöar undirrita kjarasamning. Kristín Á. Cuömundsdóttir: Á sömu nótum og önnur BSRB-félög Félagar í Sjúkraliðafélagi ís- lands greiöa atkvæöi um nýj- an kjarasamning í næstu viku. Samningurinn er á svipuöum nótum og samningar annarra félaga innan BSRB. Hjúkrun- arfræöingar hafa gert sam- komulag um breytingar á Húsavík - sex fjölskyldur flytja: I6na6armenn til Noregs Sex fjölskyldur iönaöar- manna á Húsavík hafa á síð- ustu misserum flust til Noregs til starfa þar. Er þetta milli 20 og 30 manna hópur. Ástand í atvinnumálum byggingamanna nyrðra hefur ekki verið of gott og því hefur fólk brugðið á þetta ráð. Heim- ildarmenn blaðsins segja að einnig sé fólk með þessu að leita og freista ævintýra. Þá hef- ur hópur iðnaðarmanna af Suö- urlandi einnig flust til starfa í Noregi. ■ kjarasamningi sínum, sem fela í sér hækkanir í takt við almennar launahækkanir á þessu ári. Samninganefnd Sjúkraliðafé- lags íslands skrifaði undir nýjan kjarasamning aðfaranótt mið- vikudags. Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélagsins, segir að nýi samningurinn feli í sér svipuð ákvæði og samningar annarra félaga innan BSRB, þ.e. 2.700 króna hækkun á launa- töflu strax og uppbót á laun innan við 84 þúsund krónur. Kristín segir að samningurinn verði borinn undir félagsfund í næstu viku og hún vonast til að hann verði samþykktur þar. Félag íslenskra hjúkrunar- fræbinga hefur gert samkomu- lag um breytingar á kjarasamn- ingi sínum, sem samþykktur var á síðasta ári. Breytingarnar eru gerðar í samræmi við ákvæði samningsins, sem kveður á um að honum skuli breytt verði samið um almennar launa- hækkanir hjá stærstu launþega- hreyfingum. Ásta Möller, for- maður Félags íslenskra hjúkrun- arfræðinga, segir að í samkomu- laginu felist 3% launahækkun á launatöflu frá 1. júlí og 1,5% launahækkun til stjórnenda, sem jafngildir einum til tveimur launaflokkum eftir stöðu. Þeir sátu eftir við gerð kjarasamn- ingsins fyrir ári, að sögn Ástu. Sjúkraliðafélagið hefur haft lausa samninga frá því um ára- mót. Samningur, sem undirrit- abur var 31. desember sl. eftir sex vikna verkfall stéttarinnar, rann út á miðnætti sama dag. í tengslum vib gerð þess samn- ings var rætt um ab lagt yrði fram frumvarp um störf sjúkra- liða á vorþingi. Það frumvarp er enn til umfjöllunar í heiibrigð- is- og trygginganefnd. Kristín segir að ekki hafi verið rætt um frumvarpið vib gerð kjarasamnings núna. „Það er í raun mál sem er óskylt gerb kjarasamnings. Hitt er annað mál að við vorum kannski lokk- uð til að láta okkur nægja það, sem var samið um þá, með lof- orði um að frumvarpið færi í gegnum þingið, sem var ekki staðið við. Ég hlýt því að líta svo á að umræða um breytingar á lögum um sjúkraliba fari aftur af stað þegar þing kemur saman í haust." ■ Unniö ab vegabótum í Út-Blönduhlíb í Skagafirbi. Tímamynd Ágúst Bj. Skagafjöröur: Vegabætur í Blönduhlíð Framkvæmdir eru nú langt komnar við endurbyggingu Siglufjarðarvegar um Út-Blöndu- hlíð í Skagafirði. Hér ræðir um tíu km vegarkafla og verður mik- il samgöngubót komin í gegn þegar framkvæmdum lýkur. Það eru starfsmenn frá verktaka- fyrirtækinu Firöi hf. á Sauðárkróki sem annast framkvæmdirnar. Að sögn Sveins Árnasonar, sem er í forsvari, em framkvæmdir nokkub á undan áætlun, en þeim á að verða lokið um komandi mánaða- mót. Þá á jafnframt að vera búib að leggja klæðingu á veginn. Það, sem gerir framkvæmdina nokkuð óvenjulega aö mati Sveins, er þó að leggja þarf 28 ræsi á vegstæðinu og er það með því mesta sem þekkist. Þá veröur reiðvegur jafnframt lagð- ur samsíða hinum almenna vegi og ekki að óþörfu, þar sem óvíða er hestamennska algengari en í Skagafirðinum. Mikil umferð er um Siglufjarðar- veg á þessum slóðum. Þarna fara um allt að 500 bílar á dag yfir sum- artímann og um 200 á vetrarmán- uðum. Þá hefur gjaman verið snjó- þungt á þessum slóðum, en vegur- inn nýi er þannig lagður að snjó ætti þar síður að festa. -Ág. Bjömsson Sýning Páls Cuömundssonar í Surtshelli vekur veröskuldaöa athygli: Listamaburinn Páll Cubmundsson og rithöfundurinn Thor Vilhjálmsson ræba vib leikhússtjórann ítalska frá Flórens, sem œtlar ab gera íslenskri menningu skil á næsta ári. Tímamyndir: TÞ, Borgarnesi Thor Vilhjálmsson rithöfundur, Sigurbur Cubmundsson frá Kirkjubóli í Hvítársíbu og Páll Cubmundsson myndlistarmabur í Surtshelli. Höggmyndasýning Páls Guð- mundssonar frá Húsafelli, sem stendur yfir í íshelli í Surtshelli, hefur umtalsvert abdráttarafl. Við undirbúning sýningarinnar naut Páll að- stobar Magnúsar Inga Magn- ússonar veitingamanns í Munabarnesi, en Magnús sá um veitingar á opnunardag- inn ásamt því ab útbúa boðs- kort og plaköt til kynningar á sýningunni. Eins og komið hefur fram í Tímanum, voru um þúsund manns við opnun sýningarinn- ar um síöustu helgi. En gestun- um fjölgar dag frá degi. í vik- unni var hópur af þekktu fólki úr menningarlífinu, bæði frá ís- landi og Ítalíu, á ferð í Surtshelli og skoðaði sýningu Páls og naut hughrifanna. Meðal þeirra, sem þarna voru á ferð, voru Brynja Benedikts- dóttir og Erlingur Gíslason leik- arar, Einar Már Guðmundsson, Thor Vilhjálmsson og Guð- mundur Andri Thorsson rithöf-, undar, Þórunn Hafstein frá menntamálaráðuneytinu ásamt Sverri Guðjónssyni kontraten- ór. Sá síðastnefndi söng fyrir samkomugesti, en hann söng einnig við opnun sýningarinn- ar. Þarna voru einnig á ferð nokkrir Frakkar og þrír ítalir frá leikhúsi í Flórens, en ítalirnir eru á ferð hérlendis til að undir- búa hátíð sem haldin verður í Flórens á næsta ári og veröur til- einkuð íslenskri menningu. Thor Vilhjálmsson hefur tekið þátt í Jjví ab skipuleggja íslands- ferð Italanna, en Thor er ein- mitt mikill áhugamaður um list Páls Guðmundssonar á Húsa- felli: „Ég var svo heppinn að kom- ast hingað á laugardaginn. Þetta var þjóðarvakning þá og mikill sigur fyrir vin okkar Pál og verb- skuldaður. Þetta er gert af svo mikilli virðingu og lotningu fyr- ir náttúrunni og túlkun hans á íslenskum andlitum, geði og ör- lögum er fögur og máttug. Hann er skáld á sínu sviði." Thor orðar það svo, að farið Sverrir Gubjónsson kontratenór heillabi gesti meb söng sínum, íklæddur eins konar munkakufli sem undirstrikabi áhrifin. hafi verið með ítalina á sýning- una í Surtshelli fyrst og fremst til þess að þeir fengju að njóta sýningarinnar og söngsins, auk umhverfisins og galdra, „og ab fá að taka þátt í þessu undri með okkur." Um leikhúsfólkið ítalska segir Thor: „Þetta fólk er frá leikhúsi í Flórensborg, sem er kennt við sítrónur og kallab Límónuleik- húsið. Þau hafa hátíð árlega, sem þau tengja við einhverja heimsborg. Þau hafa tengt há- tíðina Montreal í Kanada, Búda- pest, Moskvu, Stokkhólm og núna í ár Lissabon. Næsta ár verður það heimsborgin Reykja- vík og landið okkar og okkar menning sem hátíðin mun tengjast. Þau ætla að gera því skil og flytja tvö leikrit, öðru verður stýrt af ítölskum leik- stjóra og hinu af íslenskum. Einnig munu þau leiklesa all- mörg leikrit og kynna íslenska menningu á annan hátt." Um áhrif sýningarinnar á gestina segir Thor: „Þetta er mesta ágætisfólk, skemmtilegt og gáfab. Það er mjög snortið, held ég, enda hljóta allir að vera það. Mér finnst að það hljóti bara eitthvað að vera að þeim sem verður ekki snortinn af svona undrum, þar sem er leikiö svona vel í samræmi við náttúr- una eins og Páll gerir, að leitast við að fara inn í hulibsheima náttúrunnar og sýna okkur inn fyrir." -TÞ, Borgamesi

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.