Tíminn - 04.08.1995, Qupperneq 11

Tíminn - 04.08.1995, Qupperneq 11
Föstudagur 4. ágúst 1995 n Kristján Sigurösson, sviösstjóri kvenlœkningasviös Ríkisspítala, segir þar ýmsar breytingar undirbúnar: Óþarfi a 5 líta á fæöingu sem sjúklegt fyrirbrigöi Styttri sængurlega viö eblilegar aöstæöur og lokun Fæöingar- heimilisins. Rekstur sjúkrahót- els á Fæöingarheimilinu. Fækkun mæöraskoöana og sameining mæöraverndar Heilsuvendarstöövar og Kvennadeildarinnar á 1. hæö Fæöingarheimilisins. Stækkun MFS-deildar (mæöravemd/ fæöing/sængurlega) og Glasa- frjóvgunardeildar og flutning- ur þeirra innan Kvennadeildar. Aöskilnaöur dagdeildaraö- geröa og innheimta beinna greibslna frá sjúklingum fyrir þær og e.t.v. fleiri abgerbir. All- ar þessar breytingar hafa verib til umræöu á Kvennadeild Landspítalans undanfarna mánuöi, meb hagræbingu og sparnaö aö leibarljósi, ab því er fram kom í vibtali vib Kristján Sigurbsson, sviösstjóra kven- lækningasviös Ríkisspítala. Undanfarna mánuði hefur komiö í ljós að langsamlega flest- ar verðandi mæður viröast velja gömlu góðu Fæðingardeildina á sama tíma og Fæðingarheimilið hefur varla verið hálfnýtt. Var opnun þess kannski óþörf eftir allt saman? „Ég held aö eftirspurnin hafi verið minni en ýmsir höfbu áætl- að, hvaða ástæður sem liggja þar aö baki. Mér sýnast meginrök þeirra, sem haldiö hafa á lofti þörfinni fyrir Fæöingarheimiliö, hafa veriö þau aö konur ættu val- möguleika — og auövitaö er þaö æskilegt. En viö höfum líka Val- möguleika hér innan dyra í hinni nýju MFS-einingu, sem fleiri og fleiri konur velja. Og viö viljum gjarnan hlúa enn betur aö MFS-deildinni meö skipulags- breytingum hér innan dyra, þannig aö hún rúmi enn fleiri konur." Heim innan 36 stunda Fæöingarheimiliö segir Krist- ján ekki nægilega góöa rekstrar- einingu, því m.a. vegna þess aö sérstaka lækna þurfi til aö sinna vöktum þar úti. „Þaö ætti líka aö vera nægilegt rými til þess aö hafa þessar fæöingar — aö há- marki 3 á sólarhring — hér inni hjá okkur. Enda voru þær allar hér inni meöan Fæöingarheimil- iö var lokaö. Vissulega gátu myndast vissir „tappar" á álags- tímum. En þeir ættu aö veröa miklu fátíöari veröi framfylgt þeirri áætlun okkar aö stytta sængurleguna til samræmis viö þaö sem annars staöar gerist." Kristján segir stefnt aö því, aö reyna aö útskrifa konur innan 36 klukkustunda, eftir eölilegar fæö- ingar. Konur, sem valiö hafa MFS- þjónustuna, útskrifist núna innan 48 stunda, sem hafi gefist vel. Þær konur, sem fara heim innan 36 stunda, eigi kost á heimaþjónustu ljósmæðra. „Þetta er hlutur sem viö viljum gjarnan ýta undir; þ.e. að óþarft sé að líta á fæöingu sem sjúklegt fyrirbrigði, þar sem konur þurfi aö liggja sólarhringum saman inni á stofnun." Óþarflega margar mæbraskoöanir Spuröur hvort rétt sé hermt að hugmynd sé uppi um aö breyta Fæðingarheimilinu í sjúkrahótel, svaraði Kristján. „Það er hug- mynd sem rædd hefur veriö af fullri alvöru, og að sjálfsögöu get- ur þaö allt eins komið til greina. En í þessu hagræðingarverkefni okkar höfum viö einnig plön um aö sameina mæðravernd Heilsu- verndarstöövar og Kvennadeild- ar undir einn geira á 1. hæðinni á Fæöingarheimilinu." Þar yröi þá miðstöö mæðraverndar á Reykja- víkursvæðinu og í aukinni sam- vinnu við mæöravernd á heilsu- gæslustöðvum borgarinnar. Jafn- framt, segir Kristján, að reynt yrði að hagræða í fjölda mæðra- skoðana, sem nú séu óþarflega margar þegar um eðlilega meö- göngu sé að ræða, eða allt að 12 yfir meögöngutímann. Þetta mundi spara töluvert bæöi í starfsliði og húsnæöi, sem nýttist til annars. Þessar breytingar og ýmsar aðr- ar hafa, aö sögn Kristjáns, verið ræddar undanfarna mánuði bæði innan deildarinnar og einnig við heilbrigöisráöuneytiö. Nefnd, sem skipuð var til að at- huga þessar breytingar, hafi líka litið mjög jákvætt á þær. Dagdeildaraðgerðir ekki ókeypis lengur Hagræðing á kvensjúkdóma- ganginum er enn eitt sem aö er stefnt. Frá 1 október er áætlaö að skipta honum í tvennt, þannig að allar dagdeildaraðgeröir verði á sérstakri deild, sem þá geti ver- ið Iokuð um nætur og helgar. „Reglugerö um ferliverk gefur okkur auk þess möguleika á að innheimta hjá konunum hluta kostnaöar við þessar aögeröir, eins og raunar víða er gert á sjúkrahúsum úti á landi. Ég vona að Landspítalanum veröi einnig heimilað slíkt," segir Kristján. Spurður hvort þetta mundi þá einnig eiga viö um beinar greiöslur fyrir fóstureyöingar, bendir hann á að fríar fóstureyð- ingar séu bundnar í lögum. Gjald fyrir fóstureyb- ingu? „Þaö þarf því væntanlega að breyta lögunum til þess aö leyfa okkur að innheimta gjald fyrir þær aögeröir, sem langflestar eru framkvæmdar hér hjá okkur. Á þessum nýju tímum teljum við að það sé ekkert endilega eðlilegt aö kona, sem þarf á fóstureyð- ingu aö halda, eigi að fá þá að- gerð ókeypis, fremur en önnur kona sem þarf á einhverri ann- arri aðgerð að halda." Sumum þykir þaö líka skjóta skökku viö að konur geti fariö ókeypis í fóstureyöingar, en þurfi aö greiða stórfé fyrir glasafrjóvg- anir. Að sögn Kristjáns þurfa konur nú að borga 105 þús.kr. fyrir fyrstu glasafrjóvgun. Þar eru langir biölistar. Til þess að unnt verði aö tvöfalda fjölda glasa- frjóvgana á deildinni frá því sem nú er, eins og fyrrverandi heil- brigöisráðherra kostaöi kapps um, segir Kristján nauösynlegt að stækka rými deildarinnar. Abstaba á Kvenna- deijd gjörbreytt „Viö erum með tillögur á borö- inu um þaö að flytja hana hér nibur á fyrstu hæðina. Sá flutn- ingur gerir okkur jafnframt kleift að betrumbæta rýmið fyrir MFS- þjónustuna. Þá gefst einnig kost- ur á að koma upp móttöku í and- dyri Kvennadeildar þar sem unnt verður að innheimta fyrir glasa- frjóvganir, áðurnefndar dag- deildaraðgerðir og aörar minni- háttar skoðanir á konum, sem eru aö kona hér inn af götunni í skyndiskoðanir og borga oft ekki neitt. Þannig aö þetta hangir allt saman," sagði Kristján. Komist þessar áætlanir og aör- ar til framkvæmda, segir hann aö öll aðstaða á Kvennadeildinni mundi gjörbreytast. „Jú, auðvitaö kostar þetta allt saman eitthvað. En við teljum aö því fylgi það mikiö hagræði ab sparnaðurinn veröi aö lokum mun meiri — og tekjuöflunin sömuleibis mun meiri. En þá verðum við líka að hafa í huga ab óbreytt ástand varðandi sértekjur sviöa gengur ekki upp: Þær hafa alltaf runnið beint í ríkiskassann og síðan dregist frá fjárveiting- um. Þessu verbur að breyta, þannig að viö fáum aö halda ein- hverju af þessum sértekjum eftir hér innan sviðsins, m.a. til nauð- synlegra tækjakaupa," segir Krist- ján Sigurösson. ■

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.