Tíminn - 13.08.1995, Blaðsíða 3
Þri&judagur 15. ágúst 1995
3
Heitt vatn finnst í Skógum undir Eyjafjöllum:
Heita vatnið
„Eyfellingar duttu í lukkupottinn þegar heitt vatn fannst í Skógum," segir
Margrét Einarsdóttir oddviti sem sést á þessari mynd. Hitaveita veröur nú
iögö um byggöina og Ijóst er aö hún eflir mjög öll búsetuskilyröi þar um
slóöir. Tímamynd: Sigurbur Bogi.
styrkir skil-
yröi til búsetu
„Fólk brosti hér allan hring-
inn um helgina, svo ánægt
er þaö meö aö heitt vatn hafi
hér fundist," sagöi Margrét
Einarsdóttir, oddviti Austur-
Eyjafjallahrepps í samtali
viö Tímann. Eftir nær
tveggja mánaöa boranir eftir
heitu vatni í Skógum undir
Eyjafjöllum var á 1.200
metra dýpi loks komiö niöur
á borholu sem gefur gnægö
af heitu vatni. Þetta geröist
þegar menn voru orönir nær
úrkula vonar um aö heitt
vatn væri aö hafa á þessum
staö.
Upp streyma nú í Skógum
fjórir lítrar á sek. af 60 gráðu
heitu vatni. Með dælum verö-
ur síöan hægt að ná upp 10 til
20 lítrum á sekúndu af vatni,
65 til 70 stiga heitu. Margrét
Einarsdóttir oddviti segir aö
þetta muni mjög styrkja alla
byggö í Skógum. Þar hafa öll
hús verið til þessa hituð upp
með svartolíu eöa rafmagni og
kostnaður vegna þess hefur
samanlagt verið um fjórar
milljónir kr. á ári. Þar af hefur
upphitun á Skógaskóla kostn-
að um tvær milljónir.
„Þaö er allt inni í myndinni
með framhaldið," segir Margr-
ét Einarsdóttir. Til greina kem-
ur til dæmis að byggja úti-
sundlaug í Skógum, en í Skóg-
um er nú innisundlaug en
hún hefur ekki verið notuð
nema í einstaka tilfellum, svo
dýrt hefur verið að kynda vatn
hennar. Áætlað er að lagning
hitaveitu í Skógurh kosti um
30 milljónir kr., en á síðari
stigum kemur allt eins til
greina að leggja hitaveitu víð-
ar um sveitina. Almennt er
ljóst að heitt vatn í Skógum
styrkir alla möguleika tii bú-
setu undir Austur-Eyjafjöllum
- ekki síst með tilliti til ferða-
þjónustu.
-sbs.
Jakinn heið-
ursgestur
Höfbaborgara
Fiskaflinn í júlí góbar fréttir og slœmar:
Samdráttur í afla en
afurbaverb fer hækkandi
Fyrrum íbúar Höföaborgar-
innar, hverfis sem þótti ekki
nema rétt í meöallagi gott til
búsetu á sínum tíma, halda
sambandi sín á milli, löngu
eftir aö þessu borgarhverfi
hefur veriö eytt.
Það var Guðmundur J. Guð-
mundsson í Dagsbrún sem
beitti sér fyrir því að Höfðaborg
var útrýmt á sínum tíma. Hann
verður heiðursgestur á sam-
komu Höfðaborgara á Hótel
Sögu 9. september næstkom-
andi. Þar verða einnig gestir
kaupmenn hverfisins á 7. ára-
tugnum, Jón Júlíusson í Nóa-
túni og Jón Þórðarson í Breið-
holtskjöri. ■
Þótt heildarafli hafi dregist
saman um 12,5% frá áramót-
um miöaö viö sama tíma í
fyrra, þá hefur aflaverömætiö
aöeins dregist saman um rúm
4%. Þaö bendir til þess aö afli
á verömætum fisktegundum
hafi dregist minna saman en
hjá þeim verðminni. Auk þess
hefur verö á fiskafurðum ver-
iö hátt og frekar veriö aö
hækka en hitt.
Þetta kemur m.a. fram í
bráðabirgðayfirliti Fiskifélags
Islands um fiskaflann í júlí sl.
Þar kemur einnig fram að
þorskafli í mánuðinum jókst
lítillega frá fyrri mánuði, eða
um 1,3%. Af einstökum útgerð-
arflokkum dróst þorskafli tog-
ara saman um 11,8% á sama
tíma og tæp 20% aukning varð
í þorskafla báta og 2,5% hjá
smábátum.
Af einstökum fisktegundum
dróst ýsuaflinn saman um rúm
18% og í ufsa nemur samdrátt-
ur í afla tæpum 9%. Sýnu mest-
ur er aflasamdrátturinn í hum-
arveiðum, eða sem nemur tæp-
um 56% miðað við vertíöina í
fyrra. Þá veiddist mun minna af
úthafskarfa í júlí miðað við
sama tíma í fyrra, eða um rúm
61%, en frá áramótum hefur
úthafskarfaaflinn minnkað um
tæp 63%. í tonnum talið hefur
aflinn minnkað úr 46.306
tonnum í 17.239 tonn. Sömu-
leiðis hefur rækjuafli minnkað
en í sl. mánuði veiddust aðeins
5.559 tonn á móti rúmum 7
þúsund tonnum í júlí í fyrra. 1
heild hefur rækjuafli því dregist
saman um tæp 8% frá áramót-
um miðað við sama tíma í
fyrra.
Þá veiddust aðeins rúm 82
þúsund tonn af loðnu í júlí á
móti rúmum 143 þúsund tonn-
um á sama tíma í fyrra. Hins-
vegar varð mikil aukning í veið-
um á Íslandssíld og nam aflinn í
maí og júní alls 172.300 tonn-
um á móti rúmum 21 þúsund
tonnum í fyrra. ■
í fótspor
Önnu
vinnu-
konu
Fyrir rúmri öld var Anna Þor-
steinsdóttir, 46 ára, vinnu-
kona hjá Þóri tómthúsmanni
og Sigríði konu hans í Lækjar-
götu í Reykjavík, allfjöl-
mennu heimili. Mebal verk-
efna hennar var aö flytja
þvott fjölskyldumar í Þvotta-
laugarnar í Laugardal, þriggja
kílómetra leið. Vísast hefur
þetta verib þung byröi, bali,
fata, klapp, þvottabretti, sápa
og sódi, kaffikanna, bolli og
matarpakki — ab ógleymdum
þvöttinum.
Árbæjarsafn býöur annað
kvöld upp á göngu þar sem fet-
að verður í fótspor Önnu vinnu-
konu og fjölda annarra reykv-
ískra alþýðukvenna á síðustu
öld. Margrét Guðmundsdóttir
sagnfræðingur verður farar-
stjóri. Lagt upp frá Lækjartorgi
kl. 19.30 og um aö gera að vera
vel búinn til fótanna. ■
Forstjóri ÁTVR er undrandi á framkvcemdastjóra Verslunarráös
vegna kœru ráösins til Eftirlitsstofnunar EFTA:
„Viö fáum þetta ekki
til aö ríma saman"
„Vib botnum eiginlega ekki í
Vilhjálmi Egilssyni og Versl-
unarráöinu. Samt sem áöur
kemur fátt okkur á óvart al-
mennt séb," sagði Höskuldur
Jónsson forstjóri ÁTVR í sam-
tali viö Tímann í gær.
Fyrr í þessari viku sendi Versl-
unarráö íslands erindi til Eftir-
litsstofnunar EFTA í Bmssel þar
sem óskaö er álits stofnunarinn-
ar á nýlegum lögum um áfeng-
issölu hér á landi. Þar eru ýmis
atriði gagnrýnd svo sem ríkkis-
stuöningur og ríkisábyrgð á
rekstri ÁTVR. Einnig er nefnt í
erindinu til EFTA að skilja þurfi
skýrt á milli heild- og smásölu í
rekstri ÁTVR, leyfa þurfi auglýs-
ingar á áfengi í íslenskum fjöl-
miðlum og að almennt séu
áfengismál hér á landi ekki í
samræmi við ákvæði EES samn-
ingsins.
„Það síðasta sem geröist í mál-
efnum Áfengis- og tóbaksversl-
unar ríkisins var nú í vor þegar
formaður efnahags- og við-
skiptanefndar, Vilhjálmur Egils-
son, talaði fyrir tillögu um að
skipta skyldi rekstri fyrirtækis-
ins upp í tvær deildir. Eina sem
annaðist sem smásölu en hina
sem skyldi fara meö heildsöluna
— hvort sem hagur er af því fyr-
ir fyrirtækiö eða þjóðfélagið.
Lög um þetta voru samþykkt á
vorþingi og nú nýlega að birt-
ast. En nú um svipað leyti skrif-
ar Verslunarráö, sú stofnun sem
Vilhjálmur er í forsvari fyrir,
þetta erindi til EFTA og óskar
álits á lögunum sem Vilhjálmur
var flutningsmaður að. Þetta
mál er allt ofvaxið okkar skiln-
ingi og við fáum þetta ekki til að
ríma saman," sagöi Höskuldur
Jónsson. ■