Tíminn - 13.08.1995, Blaðsíða 8

Tíminn - 13.08.1995, Blaðsíða 8
8 Wtmbm Þriöjudagur 15. ágúst 1995 Er heitt vatn á Isafiröi? Kristján Þór Júlíusson bœjarstjóri: „Eg vil ab viö skobum þetta mál, bæbi hvab kostar ab gera athuganir og borun ef í hana verbur rábist," sagbi Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri á Isa- firbi í samtali vib Tímann í gær-. Taliö er að möguleikar séu á að jarðhita megi finna á fleiri stöbum á landinu en taliö hefur veriö til skamms tíma. Þar sem gnægö af köldu vatni megi finna megi einnig búast vib að heitt vatn sé á allnokkru dýpi. Grundarfjörbur, ísafjörður og Tálknafjörður eru staðir sem nefndir hafa verið í þessu sam- bandi. Mikið vatn er nú ab hafa á ísafirði eftir gerð Vestfjarða- ganganna og ekki talib ólíklegt aö á miklu dýpi sé síðan heitt vatn ab finna. Þessar upplýsing- ar komu fram eftir að mikiö af heitu vatni fannst í Skógum undir Eyjafjöllum, en þar vom menn orðnir næsta vonlitlir um að heitt vatn væri ab finna. Kristján Þór Júlíusson vill að bæjarráð ísafjaröar muni fjalla um þetta mál á næstunni og þar verði málið skoðað. Engar ákvarðanir verða þó teknar strax. Fundaö vegna undirbúnings. Frá vinstri. Hreiöar Hreiöarsson, veitinga- maöur í Vín og einn af forsvarsmönnum Lifandi lands, Petrea Hallmars- dóttir frá handverkskonum, Kristín Brynjarsdóttir frá Lifandi landi, jóhann Ólafur Halldórsson, ritstjóri Dags á Akureyri, Elín Antonsdóttir, markáös- ráögjafi hjá lönþróunarfélagi Eyjafjaröar og jóhannes Ceir Sigurgeirsson, bóndi, varaþingmaöur og forsvarsmaöur Lifandi lands. Tímamynd w. Eyjafjaröarsveit vettvangur stórsýninganna: Innflutningur hjálpar ekki íslenskum heimilum - Við höfum reynsluna af EFTA! Veljum ÍSíENSKT. Innflutningur hjálpar ekki islenskum heimilum - Við hófum reynsluna af BFTA! Athygli vekur ab Hrafnagil í Eyjafirði er aö verba vett- vangur stórra sýninga, áöur var þab Laugardalshöll. Tvær stórar sýningar verða að Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit í ágúst, annarri reyndar nýlokið, handverkssýningu listafólks víða að af landinu. Stóra sýn- ingin sem haldin verður að Hrafnagili er sýningin Ibnaður '95, sem hefst á morgun. Þar verður kynnt framleiðsla margra iðnfyrirtækja víðsvegar að af landinu auk nýjunga í iðnaði. Meb þessu sýningar- haldi hyggjast forráöamenn Lifandi lands bjóða upp á sum- arauka í Eyjafirði þegar mesti umferðartíminn er iiðinn auk þess ab kynna margvíslega starfsemi sem fram fer í land- inu. Iðnsýningin mun hefjast miðvikudaginn 16. ágúst með ávarpi Finns Ingólfssonar, iðn- aðar- og viðskiptaráðherra en Davíð Sch. Thorsteinsson, fyrr- verandi framkvæmdastjóri Sól- ar og nú starfsmaður Verslunar- ráðs íslands, verður sérstakur gestur sýningarinnar. Gert er ráb fyrir að allt að 90 aðilar taki þátt í sýningunni og kynni vör- ur og þjónustu á sýningarsvæði sem bæði verður innan og utan dyra. Á sýningunni munu flest- ar tegundir íslensks iðnabar verða kynntar; allt frá margvís- legum matvælaiðnaði til hús- bygginga og orkufreks iðnaðar. Iðntæknistofnun mun kynna starfsemi sína og margvíslegar nýjungar á sérstakri sýningu sem komið verður fyrir á Iðn- sýningunni. Efnt verður til sér- stakrar sögusýningar um ibn- aðarframleiðslu á Gleráreyrum á fyrri tímum en Jón Arnþórs- son, fyrrum starfsmaður Sam- bandsverksmiðjanna á Akur- eyri, hefur unnið mikið starf við að afla heimilda um þann iðnað. Þá má einnig geta sýn- ingar sem unnin hefur verið af starfsmönnum Lifandi lands, Minjasafnsins á Akureyri og Pe- drómyndum á Akureyri en þar gefur að líta safn ljósmynda af iðnaðarmönnum og ýmiskonar iðnaðarframleiðslu á Akureyri um og eftir 1920. Þarna er um að ræða myndir sem ekki hafa verið sýndar opinberlega áður en gefa merkilega innsýn í þann heim þegar iðnaður var að komast á legg hér á landi. Þetta er annað árib í röð sem Lifandi land stendur fýrir sýn- ingarhaldi að Hrafnagili í ágúst en á síðasta ári var efnt til viða- mikillar landbúnaðarsýningar í sama mánuði. Iðnsýningin í sumar er beint framhald af því starfi sem hrundið var af stað með landbúnaðarsýningunni og nýta sýningaraðilar sér nokkuð af því sem í boði var á síðasta ári. Má þar nefna að torgi sem komið var upp úti fyrir skólahúsinu ab Hrafnagili að nýju hefur verið komið fyrir og einnig stóu samkomutjaldi en það var einnig notað í tengslum vib Ættarmót Helga margra sem var fjölskylduhátíð á vegum Lifandi lands aö Hrafnagili um nýliðna verslun- armannahelgi. í tjaldinu verða veitingar og efnt verður til grill- veislna á hverju kvöldi meðan á iðnsýningunni stendur. Einn- ig verður efnt til ýmissa skemmtiatriða auk þess sem iðngreinar halda sína sérstöku daga meðan á sýningarhaldinu stendur. Iðnsýningunni að Hrafnagili lýkur sunnudaginn 20. ágúst. ÞI. Akureyri Innflutningur hjálpar ekki íslenskum heimilum - Við höfum reynsluna af EFTA! Veljum ÍSLENSKT.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.