Tíminn - 19.08.1995, Page 14

Tíminn - 19.08.1995, Page 14
14 ItB BLÍ V* Wfv^rrr Laugardagur 19. júlí 1995 Hagvrbingaþáttur Biliö milli hagmælsku og ljóöageröar er stundum örmjótt og skilin óglögg þar á milli. Þrasa má um hvort eftirfarandi Ijóö á heima í þætti hagyröinga eöa færi betur á öörum staö í blaöi eöa á bók. En hvaö sem því líöur birtist ljóöiö hér: Lúpínan Örfoka melar breytast í blómahaf á blásnauðum söndum myndast lifandi reitir. Hvarvetna auðninni hlýlega svipinn gaf þessi harðgjöra jurt, sem lifir veturinn af, Alaska lúpína auganu gleiði veitir. í flóru landsins er framandi í hálfa öld á fomum söndum dafnar hún gegnum árin. Hún ber sitt frœ þótt blaut sé mölin og köld, hennar björtu litir minna á himintjöld. Hún grœðir upp gömlu sárin. Hún unir sér vel þó um hana blási kalt á eymnum vaggar hún blómskrúði daga og nœtur. Landnemi er hún en breiðir blöð sín um allt hún bindur foklönd og vinnur þar þúsundfalt og margir teija, að máttugar séu hennar rœtur. Pálmi Eyjólfsson Hagyröingur hnýtti í Árna Helgason í þættinum og er nú ort á hann: Til ÓÞ lestrarhests Allar greinar lceri og les, laus við ýkjur segi frá. Ég er karl svo klár og spes, karakter sem treysta má. Þótt orðstór sért í yrkingunni um Áma í Hólmi og kannski mig, þá er eins og að mig gmni að ofmetirðu sjálfan þig. N.N. Ólafur Stefánsson sendir bréf í óbundnu máli sem bundnu og skrifar: Ég er ekki einn þeirra sem kaupi Tímann aö stað- aldri, en á laugardögum get ég ekki á mér setið og er þaö vegna Hagyrðingaþáttarins sem þá er í blað- inu. Ekki er þar allt jafn stórbrotið, hvorki hjá mér né öörum. Einhvern tíma þegar mér þótti kveðskapur- inn bragðdaufur kom þessi vísa: Sú Ijóðraena afurð sem lögð er á borð og lesendum Tímans er boðin, er lágvaxinn gróður og léttmetisorð og linlega steikt eða soðin. Eitt er það höfndarnafn sem ég sé oftast í þáttun- um, en þaö er Búi. Þó að vissulega geti það verið hið rétta nafn höfundar, þá hef ég einhvern veginn tek- iö þaö sem dulnefni. Búi er nokkuð góöur, og því væri gaman að vita deili á skáldinu: Búi er seigur og Búi er kœnn hann bragina ósínkur veitir. Má bið'jann að kynna sig, vera það vcenn svo vitum hvað maðurinn heitir? Pétur Stefánsson Á hvern hátt Búi tekur áskoruninni ræöur hann sjálfur en því er treyst aö hann svari Pétri í bundnu máli. Botnar og vísur sendist til Tímans Brautarholti 1 105 Reykjavík P.s. SKRIFIÐ GREINILEGA Föt úr gerviefnum. Pilsin úr gerviefnum og peysur úr blönduöum þrœbi. Gerviefnin fínni og betri en nokkru sinni fyrr Fyrir allmörgum árum fóru gervi- efni aö ryöja sér rúms í fataiönaöi. Fyrst voru þaö nælonsokkar, síöan nælonskyrtur og svo enn fleiri teg- undir af gerviefnum og fatnaöi. Um skeiö minnkaöi notkun gervi- efna verulega og ull, bómull og silki uröu allsráöandi á ný í iönaöi. En aftur sóttu gerviefnin á og voru og eru mikiö notuö meö náttúru- legum þræöi. Nú er spurningin sú hvort gerviefni séu ófínni eða óæskilegri í vefnaði en ull og baömull. Heiöar: Núna eru gerviefnin komin til meö að vera. Ástæðan er sú aö í micro-fiber, sem er kannski aöalheitið á nýjum efnum, er með miklu fínni þræði en manninum tókst áöur aö búa til. Það breytir öllu sem heitir gerviefni, því þegar maöur er kominn í flík, sem er með micro-fiber og öllum þeim undirheitum sem þráðunum eru gefin, að þá er maður kominn í fatnaö sem er meö íverueiginleik- um ekta efnisins gagnvart öndun frá líkamanum. Vandamálið meö gömlu gervi- efnin var að þræðirnir önduðu ekki eins og þeir sem núna eru framleiddir. í gömlu nælonskyrt- unum kom meiri svitalykt af manni og þar fram eftir götunum. Nú er hægt að fara í skyrtu úr micro-fiber og þær fara eins vel á skrokknum og silki. Blandab og óbland- ab Stórhönnuöir tískuheimsins, sem búa til vönduðustu flíkur sem völ er á, nota flestir hverjir gervi- efni í dag í föt sín, en þeir hafa ekki gert þaö áður. Þaö er af því aö þeir eru búnir aö sannprófa hina nýju þræði og vita að efnin sem of- in eru úr þeim eöa náttúruhráefni eru blönduð fínu þráöunum, eru fyrsta flokks. Ég var nýlega að skoða kvenkáp- ur, sumarkápur, sem geröar eru úr micro- fiber og þær eru jafnvel dýrari en bómullarkápurnar í dag. Framleiöslan á-efninu er dýr, plú- sinn er miklu meiri ending. Þau nýju efni sem hér er um aö ræða em mikið til notuð í heilu flíkurnar og blanda þaö þá ekki, en Spariklæbnaburinn er ab mestu úr gerviefnum. einnig eru þau ofin saman viö náttúrulegan þráö, svo sem ull og bómull. En blöndunin er oft til bóta. Tökum hör sem dæmi. Hör á aö vera kmmpuð og af því að ég held mikið upp á þaö efni er ég stund- um kallaður „krumpaði maður- inn", ég sem er aö kenna öðmm að líta vel 'út, en er kmmpaður sjálfur af því aö ég er hrifinn af hör. Nú eru vandaðir framleiöendur farnir að setja svolitla prósentu af þessum nýju efnum saman við hörina, sem gerir það aö verkum að hún stendur sig betur, veröur sterkari og krumpast síöur. Ekki hræbast gervi- efnin Um nútímalegu gerviefnin má segja aö núna eru þau að koma inn á markaðinn með verulegan plús, gera gamalþekktu efnin betri meö íblöndun og eru sjálf miklu betri aö sumu leyti, fötin veröa sterkari, fallegri, þægilegri í allir meðferö. Þetta munu yfirleitt vera efni unn- in úr olíuefnum og eru sum hver þróuö frá öömm eldri gerviefnum. Það sem heitir eöa hét þolyester heitir nú polyner, sem þýöir aö það síöarnefnda er miklu fíngerö- ara. Kaupendur eiga ekki að vera hræddir viö aö kaupa föt úr gervi- efnum. Þau eru orðin miklu betri en áöur. í betri verslunum er óhætt að spyrja afgreiðslufólkiö um efnin sem flíkurnar eru búnar til úr. Það fylgist vel meö og á aö kunna að leiðbeina viöskiptavin- unum um hvaða efni eru í fatnað- inum sem er á boðstólum og frætt væntanlega kaupendur um eigin- leika, meöferö og endingu. Yfirleit á aö vera nóg aö spyrja hvort þaö séu einhver af þessum nýju micro-fiber efnum í fötunum og þá á afgreiöslufólkiö aö vita hvað um er aö ræöa. Eftir minni reynslu veit fólk nákvæmlega hvað verið er að tala um. Aðalatriðið er aö þaö er í góöu lagi að kaupa dýrar flíkur úr gervi- efnum. Einu sinni fengu slík föt heldur ill orö á sig, en þaö er löngu liðin tíö. Gerviefnin eru ágæt og seld í gæöatískuhúsum, eins og Vöruhúsi KEA og Hagkaup og fleiri stöðum sem selja ágæta vöru. Ef ég væri aö versla þar og vildi fá aö vita nánar um efni í flíkum mundi ég biðja um deildarstjóra. Það er eki viö því aö búast aö þar sem fjöldi manns vinnur viö af- greiöslu viti allir allt um allar teg- undir. En deildarstjórarnir eru vel meðvitaöir og í mörgum verslun- um ágætlega að sér um þá vöru sem á boðstólum er. En gömlu efnin munu halda sér fullkomlega á markaðinum. Það er til að mynda alltaf nokkur hópur fólks sem alls ekki þolir gerviefni og mun því eingöngu ganga í föt- um úr bómull, ull og silki og þau efni eru svo klassísk að þau verða ávallt mikið notuö í fínan vefnaö til klæöagerðar. En samt er engin ástæöa til aö forðast gerviefnin. Síður en svo. Heiðar jónsson, snyrtir, svara spurningum lesenda Hvernig / / * u aegao vera?

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.