Tíminn - 26.08.1995, Blaðsíða 14
14
Laugardagur 26. ágúst 1995
Haavrðinqaþáttur
Strandðglópur sendir þanka um pólitíkina og
stjórnmálaflokkanna sér í lagi. Þótt hann telji aö
þeir heföu betur átt heima nær úrslitum síöustu
kosninga eru kveölingar hans í fullu gildi.
Flokkafargan
Hjá íhaldi átök má greina
og óljóst hvort heldur þeir meina;
að „ísland sé falt",
eða „íslandi allt".
Affrjálshyggjufári þeir veina.
Framsókn á miðju vill móka,
til misjafhra átta kóka;
Til vinstri skal snú?
Það er varasamt nú!
Til hœgri er vissara að hróka.
Afkrötum er kjörfylgið rúið
og kvœðið um ESB búið.
jón er farinn í frí,
þjóðin fagnar á ný.
Hans eðli er afandstaeðum snúið.
Hjá allaböllum er efi
hvort atkvœði sittþeirgefi
misvitrum Grím
eða Margréti Frím.
Þar allt er í upplausn og þrefi.
í konunum heyrum við hvína.
Efklcemar þœr œtla að sýna
er óbrigðult ráð,
þótt sé annmörkum háð,
að koma sem flestum til Kína.
Að þjóð okkar vakni og vaki
er vonlaust þó fóhanna kvaki.
Hún er örlynd og óð,
fetar örðuga slóð
með auðjöfur Ágúst á baki.
Við náttúrulegan fokk fyllum
og framtak hans lofim og gyllum.
Þar er óbeislað afl,
býður œsandi tafl
Allt sofandi sálarlíftryllum.
Mál aö linni aö sinni.
Strandaglópur
Ólafur Stefánson skrifar og kveöur:
Maöur er nefndur Pétur Stefánsson og hefur átt vís-
ur í þættinum. Hann lendir í þvþblásaklaus maöur-
inn, aö vera skráöur fyrir vísu eftir mig, fátæklegri,
sem ég beindi til Búa hér í blaöinu á laugardaginn
var.
Líklega hefur honum brugöiö í brún sem von var.
Eftir þennan nafnarugling þykir mér við hæfi að
senda stjórnanda þáttarins þessa vísu:
Oddur víst er œ í önnum
svo ýmislegt fer hallt á hlið.
Hafði víxl á heiðursmönnum
og hengdi bakara fyrir smið.
Meö bestu kveðjum. Ólafur Stefánsson.
Um leið og Ólafi er þökkuð ágæt vísa og þaö um-
burðarlyndi að finna afsökun fyrir fljótfærni og
klaufaskap er rétt að sá frækorni efans í huga hans
og spyrja hvort hann er ekki að hengja smiö fyrir
bakara, eða þannig, eins og ungdómurinn segir.
Vísu um þaö, Ólafur, takk fyrir. Og þar sem þeir Búi
og Pétur eru flæktir í málið ætti þeim ekki aö verða
skotaskuld úr því að leggja rímað orð í þann belg
sem hér er fram réttur.
Botnar og vísur sendist til Tímans
Brautarholti 1
105 Reykjavík P.s. SKRIFIÐ GREINILECA
Hreinsun og meðferb
á vönduðum fatnaði
Að kaupa föt og taka sig út í þeim
reynir á smekkvísi og fjárhag, en aö
fara vel með fatnað er líka stórt at-
riði. Dýr föt eru verðmæti sem
óþarfi er að sóa og eyðileggja með
subbulegri og kæruleysislegri með-
ferð. Séu innkaup gerð af einhverju
viti úreldist fatnaður yfirleitt ekki,
en með tímanum slitnar hann og
með ógætilegri meöferö er hægt að
eyðileggja vönduðustu flíkur á
skömmum tíma.
Spurningin er hvert á að snúa sér
til að láta hreinsa vandaöan fatnað
úr góðum efnum sem ekki þola
mikið hnjask eða sterk þvottaefni?
Spurningin nær til alls venjulegs
fatnaðar bæði á karla og konur og
má spyrja hvernig á að hreinsa
karlmannabindi án þess að þau
komi öll undin og snúin og krump-
uð út úr þvottavél eða fatahreins-
un.
Svar: Algilt svar er ekki til en
varöandi bindi og viökvæman
fatnað get ég ekki bent á annað en
hvert ég fer sjálfur meb mín föt. Ég
vil meina aö fatahreinsunin Úða-
foss sinni þessu vel. Mér vitanlega
kann starfsfólkið þar alla þessa fínu
vinnu og ég hef spurnir af fleiri
fatahreinsunum sem vel er hægt ab
treysta.
Mistökin
Þau mistök sem fólk gerir með
fíneríið sitt þegar það fer með föt í
hreinsun, er að koma með stóran
bunka, skella honum á afgreiöslu-
borðið og biðja um ab allt sé það
sett í þvottavélina. Þegar eitthvað
fer úrskeiðis verður það óánægt og
skilur ekki hvers vegna silkib er
ekki lengur slétt og mjúkt.
Maður þarf að halda svolítinn
fund við afgreiðsluborðiö og ræða
við fólkiö. Starfsfólk í rótgrónum
hreinsunum kann þessa hluti en
oft þarf að bibja sérstaklega um sér-
hæfða merðferð á til dæmis háls-
taui og öðru slíku.
Fólk verður sjálft að vera mebvit-
að um þau efni sem eru í flíkunum
og biðja um hreinsimeðferð eftir
því sem við á hverju sinni.
Benda má á að í Garöabæ er fata-
hreinsun sem jafnframt er með
leigu á selskapsklæðnaði og fíneríi.
Eftir hverja notkun þarf að hreinsa
fötin og maður hlýtur að gefa sér
að þarna kann fólkið vel til verka.
í erlendum stórborgum, og nú
erum viö í stórborg hérna, eru fata-
hreinsanir sem eru þó nokkuð dýr-
ari en almennt gerist. Þær eru með
hærri taxta og taka aðeins að sér
hreinsun á vöndubum viðkvæm-
um fatnaði. Satt best að segja er
þetta nokkuð sem mér hefur alltaf
þótt vanta hér. Væri ágætt ef góðar
efnalaugar hefðu sérstakan af-
greiðslukrók til að taka við við-
kvæmum efnum og vandmeðförn-
um.
sem skipta um skyrtu og slík föt
daglega ab setja þau í þvottákerfi
sem notub voru þegar fólk gekk í
flíkinni í viku. Fyrir venjulegar
skyrtur er alveg nóg að láta þær
rúlla á 30-40. Svo má vel gera eins
dags skyrtuna að tveggja daga
skyrtu á milli þvotta með því að
menn fara úr skyrtunni þegar kom-
iö er heim úr vinnu og fari í aðra
eba eitthvaö annað í staðinn. Það
Pressun mikilvæg
Þá er spurningin um hve oft og
mikið á að þvo og hreinsa föt.
Þvottur og hreinsun slítur fötum
vissulega. Þegar fatnabur er nýr er
viss steining í honum, sem er dálít-
iö atribi þegar um er ab ræða jakka-
föt og dragtir og yfirhafnir og því-
umlíkt. Steiningarefnin sem gera
fötin sléttari og fallegri hverfa
smám saman vegna hreinsunar:
Ekki þarf alltaf kemíska hreinsun
eða mikiö sull til ab þrífa föt. Vel er
hægt að taka flík úr náttúruefni,
svo sem ull, og gufupressa hana vel
og hengja út og síðan pressa yfir
aftur, þá verður flíkin algjörlega
hrein.
Það er helst þegar maður slettir á
sig sósunni eða dembir einhverju
ofan á sig, að fara þarf með föt í
hreinsun. Það er ekki þar með sagt
að hætta eigi að fara með föt í efna-
laug, en það má spara ferðirnar
þangað með því að hreinsa og
pressa heima og viðra vel.
Eins dags skyrta í
tvo daga
Skyrtur eru náttúrlega þvegnar
oft og margir eru þeir karlmenn
sem aldrei eru í skyrtunni nema
einn dag og þá fer hún í þvottavél-
ina. En það er ágætis regla fyrir þá
er yfirleitt góður siður að skipta um
föt eftir vinnu eða þegar fólk skipt-
ir um vettvang.
Um föt yfirleitt er óhætt að gefa
þau ráð að pressa oftar en hreinsa
sjaldnar. Þeir sem ekki kunna eba
nenna að pressa heima hjá sér geta
sem best látið gufupressa í fata-
hreinsunum, því þær taka það að
sér þótt fötin séu ekki hreinsuð
líka.
Það er allt að vinna að fara vel
með fötin sín. Þá endast þau betur,
eru fallegri og klæðilegri og það
sem er mikilvægast, manni líður
betur í vönduðum fatnaði sem nýt-
ur góbrar meðferðar en í krumpuðu
og skítugu.
Heiöar
Jónsson,
snyrtir,
svara
spurningum
lesenda
Hvernig
aegao
vera?