Tíminn - 30.09.1995, Page 15

Tíminn - 30.09.1995, Page 15
Laugardagur 30. september 1995 mrnmn 15 Hagkvæmnis- hjónabandib Tracy Jean Williams lá á grúfu á ganginum framan vib íbúb sína, blóbib vætlabi úr sárum eftir hnífstungur, bæbi á brjósti og baki. Hún gat ekki hreyft sig, en reyndi af veikum mætti ab hrópa á hjálp. Hún átti þó mjög erfitt um vik, þar sem blóbstreymi í hálsinum kæfbi röddina. „Heyrbirbu hljóbið?" spurði nágranni hennar í íbúð B systur sína. „Var einhver að kalla?" Systurnar fóru fram á gang og athuguöu málið. Þar blasti Tracy Jean við þeim, að dauða komin. Ábur en hún féll í öng- vit stundi hún upp: „Einhver reyndi ab ræna mig." Þetta gerðist 23. október 1992 og það tók lögregluna u.þ.b. 5 mínútur að komast á vettvang. Hjarta Tracyar sló ekki lengur þegar að var komið. Lífgunartil- raunir í sjúkrabílnum báru eng- an árangur. Há glæpatíbni New Orleans er fjörug borg, en glæpatíðni há. Langflest morð, sem framin eru í borg- inni, fylgja svipuöu mynstri. Orsökin er almennt fíkniefni, einhver er svikinn og rændur og sökudólgnum slátrað með við- eigandi hætti. Þetta morðmál virtist þó ekki fylgja þeirri línu. John Averett, sem rannsakabi málið, ræddi við nágranna Tracyar, sem allir könnuðust ágætlega við. Hún var aölað- andi kona, sem rétt losaði þrí- tugt og hafði flust í fjölbýlishús- ið hálfu ári fyrir morðið. Hún hafði verið félagslynd og fengib rnargar heimsóknir, flestar af frænkum og frændum, en Tracy hafði unun af að leika við börn- in þeirra. Áverett rannsakaði líkib í hinsta sinn áður en farið var meb það til krufningar. Hún var aðeins klædd blússu og nærbux- um. Þegar inn var komiö, blasti við óvænt og hryllileg sýn. Það var annað lík á stofugólfinu. Vinkonur Cheryl Mallory, 33 ára, og Tracy Williams höfðu verið vin- • konur í 15 ár. Þær höfðu alltaf haldið sambandi og hist reglu- lega síöan þær voru saman í menntaskóla. Samt voru þær um margt ólíkar. Cheryl átti börn, en ekki Tracy. Cheryl var fjörleg og glysgjörn, en Tracy hlédræg. Þab sem batt þær saman var gott hjartalag og sameiginleg ást þeirra á börnum. Tvær 9 millimetra patrónur fundust við hlið Cheryl. Rannsókn leiddi í ljós að Tracy hafði verið stungin tvisv- ar, í brjóstið og bakið. Cheryl hafbi verið skotin tvisvar sinn- um með 9 mm skammbyssu, einu sinni í hnakkann og einu sinni í brjóstið. „Þab er óvanalegt að morð- ingi noti mismunandi drápsað- feröir," sagði talsmaður lögregl- unnar m.a. við fjölmibla vegna þessa. Það fundust engin merki um átök og engar læsingar eða gluggar höfbu verib brotin upp. New Orleans er fjör- ug borg, en glœpa- tíöni há. Langflest morö, sem framin eru í borginni, fylgja svipuöu mynstri. Or- sökin er almennt fíkniefni, einhver er svikinn og rœndur og sökudólgnum slátraö meö viöeigandi hœtti. Þetta morö- mál virtist þó ekki fylgja þeirri línu. sakamáT Ekkert benti til kynferöislegrar misnotkunar. Sögusagnir heyrðust að Tracy hefði átt kærasta að nafni Manuel Ortiz. Mikil leynd virt- ist ríkja yfir sambandi þeirra, engin af 3 systrum Tracyar virt- ist vita af tilvist ástmannsins dularfulla. Þegar útför Tracyar var gerð, komu allir helstu ætt- ingjar hennar og vinir, aðeins einn vantaði, meintan kærasta, Manuel Ortiz. Lögreglunni tókst að hafa uppi á aðsetri Ortiz, en hann reyndist að heiman. Vinur hans upplýsti að hann væri farinn til E1 Salvador, en þar bjó fjöl- skylda hans við mikib ríkidæmi og Ortiz heimsótti ættingja sína iðulega, þótt hann starfabi á vegum fjölskyldufyrirtækisins í New Orleans og seldi ibnaðar- vörur. Það var svipaður fengur fyrir Averett að komast að því, sér til mikillar undrunar, að Ortiz reyndist kvæntur Tracy og fyrir gullgrafara að finna gullæð. Þau höfbu aðeins veriö gift í fimm mánuði. Af hverju hafði Tracy ekki sagt fjölskyldu sinni frá hjónabandinu? Líftryggingin Ef Averett var farinn að gruna Ortiz um græsku, stabfestist grunur hans þegar hann komst að því að Ortiz hafði líftryggt eiginkonu sína fyrir eina millj- ón dala, eba um 60 milljónir ísl. króna. Þar kom ástæðan fyrir morðinu. Ástæða þess að Ortiz hafbi tekist aö herja svo háa líftrygg- ingu út úr hinni almúgalegu Tracy, var að hann hafði þrí- Gerber. lohn Averett. tryggt ab bæturnar fengjust að- eins greiddar ef dauða Tracyar bæri að á óeðlilegan hátt. Með náttúrulegum dauðdaga hefbu engar bætur fengist. Yfirvöld í New Orleans kom- ust að því aö það var litla sam- vinnu að hafa við yfirvöld í E1 Salavdor. Ef Ortiz grunaði aö hans væri leitað, gæti hann haldið kyrru fyrir í heimaland- inu og þá væri engin leið að lög- sækja hann fyrir morðin. ' Liman Það var hér sem Sam Liman kom til sögunnar. Hann var fyrrum FBI-maður, en hafði ver- iö sagt upp vegna vafasamra at- hafna. Hann gerðist smákrimmi upp úr því og fyrir tilviljun komst lögreglan að því að Ortiz hafði beðið hann að myrða eig- inkonu sína. Liman neitaði. Hann haföi þó gefib Ortiz ábendingu um mann sem mundi mögulega taka verkið að sér. Ástæða þess að Liman gerðist svona samvinnuþýður var ab hann slapp við aö sitja af sér af- brot í staðinn. Lögreglan bjóst þó ekkert frekar við að Gerber — sá sem Liman haföi bent Ortiz á — væri sekur. En svo var. Gerber var heima þegar lög- Eina myndin sem var tekin af leynilegu brúbkaupi Ortiz og Tracyar. reglan knúði fyrst dyra hjá hon- um. Hann virtist taugaveiklaður mjög, en leyfði lögreglunni með góðu að svipast um í híbýlum sínum. Stór hnífur fannst í svefnherbergi Gerbers og þótt ótrúlegt væri, var ekki búiö aö þurrka af honum blóðiö. „Ég geröi það," var allt og sumt sem Gerber sagði þegar Averett horfði á hann í spurn. Averett beit á jaxlinn og ákvað að þolinmæði væri eina ráðið til að hafa hendur í hári Ortez. Um leið og hann grunabi að sín væri leitað myndi tæki- færið til handtöku fara í súginn. Þessi strategía borgaði sig þegar upp var stabið. Réttlætinu fullnægt 19. nóvember 1992 steig Ortiz út úr þotu á flugvellinum í New Orleans. Hann hafði komið tii borgarinnar frá E1 Salvador til að vera viðstaddur útför vinar síns. Það var kaldhæðni örlag- anna að útför vinar hans skyldi leiða til handtöku hans. Ortiz sagði aldrei sína sögu, en eftir því sem næst veröur komist borgaði hann Gerber 70.000 dollara fyrir morðið. Hann hafði lent í fjárhagslegum ógöngum, enda lifði hann hátt og var latur til vinnu. Tracy hafði gifst honum til að veita honum varanlegt landvistar- leyfi í Bandaríkjunum, en það reyndist dýrt hagkvæmnis- hjónaband. Gerber átti ekki von á ab aörir en Tracy væru heima, þegar hann lét til skarar skríða, en eft- ir að hún hafði opnað fyrir hon- um ákvað hann að vinna verkið til fulls og svipti Cheryl einnig lífi, sem haföi abeins ætlab ab gista þessa einu nótt hjá vin- konu sinni á meöan foreldrar hennar gættu barnanna. Hann notaði hljóbdeyfi tii að raska ekki ró íbúanna í húsinu. Byss- an fannst aldrei. Svo viröist sem Tracy hafi fallið í yfirlið og síð- an komist til meðvitundar og náð að vekja athygli nágranna sinna. Þaö tók kviðdóm ekki langan tíma að úrskurða um sekt Ortiz. Hann býður nú aftöku í ríkisfang- elsinu í Angola, Louisiana. ■

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.