Tíminn - 24.10.1995, Blaðsíða 1
STOFNAÐUR 1917
79. árgangur Þriðjudagur 24. október 1995 199. tölublað 1995
Ráðherra
hlýtur ab
mega hafa
skoðanir
Viöskiptaraöherra og
Akureyrarrceöa hans um
lífeyrissjóöina. Finnur
Ingólfsson:
S S Tímamynd CS
Islenskur bifvelavirki hreppti titilinn Herra Skandinavía, eftir þátttöku í módelkeppni fyrir skömmu. Björn Steffen-
sen er 29 ára gamall og gaf lítib út á ab titillinn kitlabi hégómagirndina, sagbist bara brosa ab þessu. Fyrir utan smáverblaun segir Björn ab helstu notin
sem hann hafi af titlinum sé samningur vib mjög virta módelskrifstofu í Finnlandi sem hafi útibú um allan heim. Björn Sveinbjörnsson, sem hlaut titilinn
í fyrra, hefur ab sögn Björns gert þab mjög gott og vonast hann til ab svo verbi líka hjá sér. Abspurbur um háan aldur sinn mibab vib þab sem menn
eiga ab venjast íkvenlegum fyrirsœtukeppnum sagbi Björn: „Þeir eru ab leita ab meiri karlmanni en strák. Þab þýbir ekkert ab fara tvítugur." Á mynd-
inni er Björn ab skoba finnsk blöb sem fjalla um sigur hans. Þau segja ab Björn hafi sjarma. -LÓA
Tillögur VMS um sveigjanlegan vinnutíma og sömu lífeyrisréttindi allra:
Boðar nýja stefnu-
í kjaramálum
Viöskiptaráöherra, Finnur Ing-
ólfsson, sagöi í gær aö ráöherrar
hljóti, ekki síbur en abrir menn,
aö fá aö hafa skoöanir. Þab geti
varla talist ámælisvert eöa undar-
legt þótt hann hafi sem vibskipta-
ráöherra sínar skoöanir á lífeyris-
sjóbakerfinu,
umfangsmesta
peningakerfi
landsins.
Greinilega
væru menn aö
reyna ab búa
til ágreining
eba túlka
skobanir sínar
á ymsa vegu.
Finnur Ingólfsson og Halldór Ás-
grímsson, utanríkisrábherra og for-
maður Framsóknarflokksins, hittust
að máli í gærdag. Finnur sagbi að
milli þeirra tveggja væri enginn
misskilningur og þaðan af síður
ágreiningur. Finnur sagöi að á veg-
um fjármálaráðherra væri starfandi
nefnd sem ynni að stefnumótun
eins og þeirri sem kemur fram í
stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.
„Það sem ég einfaldlega sagði í
ræðu minni á Akureyri og lagði
áherslu á er sú staðreynd að það er
launafólkið sem á lífeyrissjóðina,
og það er eölilegt að fólkið hafi eitt-
hvað að segja um stjóm þeirra og
stefnumótun. Annað í ræðunni er
að finna í stefnuyfirlýsingu ríkis-
stjómarinnar. Þar er meðal annars
gert ráð fyrir því að treysta starfs-
grundvöll lífeyrissjóðakerfisins
þannig að allir landsmenn njóti
sambærilegra lífeyrisréttinda. Þar er
líka gert ráð fyrir að setja almenn
lög þannig að tryggð verði bein
áhrif sjóðsfélaga á stefnumörkun
sjóðanna og stjórn þeirra. Þá er tal-
að um að sett verði lög um stöðu og
hlutverk séreignasjóöa lífeyrisrétt-
inda. Einmitt út frá þessum megin-
atriöum í stefnuyfirlýsingunni var
ég að tala," sagði Finnur Ingólfsson
í samtali við Tímann í gær.
„Auðvitað er verið að fjalla um
vissar breytingar á núverandi fyrir-
komulagi. En það er ekki skynsam-
legt að líta svö á að lífeyrissjóða-
kerfið sé svo heilagt aö um það
megi ekki fjalla. Viöskiptaráðherra
hlýtur að geta rætt um þaö kerfi
eins og önnur," sagði Finnur. ■
Ákveðib hefur verib ab skipa
sérstaka nefnd til ab fara meb
rannsókn á umferbarslysinu
sem varb í Hrútafirbi ab kvöldi
sunnudags síbastlibins, þegar
langferbabifreib fór útaf vegin-
um meb þeim afleibingum ab
tvær konur létust.
mótun
Á vegum Vinnumálasambands-
ins, VMS, er unnib ab nýrri
stefnumótum í kjaramálum og
voru tillögur þess efnis ræddar
vib forustu Verkamannasam-
bandsins í gær. Árni Benedikts-
son stjórnarformabur VMS segir
ab inntakib í þessari stefnumót-
un sé vibleitni til ablaga kjara-
samninga ab þjóbfélagi sem er ab
breytast úr framleibsluþjóbfélagi
yfir í þjónustuþjóbfélag.
Meðal annars er lagt til að brotin
verði upp sú festa sem er á vinnu-
tíma þannig að hann veröi sveigj-
anlegri, allir hafi sömu lífeyrisrétt-
indi, kjör sambærilegra hópa veröi
jöfnuð, freistað verði að ná sátt um
launabil og auka starfshæfni at-
Þær hétu: Kristín Halldórsdótt-
ir, Dalsgeröi l.b, Akureyri, fædd
30. mars 1935. Hún lætur eftir sig
mann og uppkomin börn. Og
Laufey Marteinsdóttir, Skúlabraut
10 Blönduósi, fædd 28. janúar
1960. Hún var einstæð og lætur
eftir sig fimm ára son. Þaö er
vinnulífs. í tillögunum er einnig
tekið mið af atvinnuþátttöku
kvenna og bættum uppeldisskil-
yrðum barna.
Stjórnarformaður VMS segist líta
svo á að viðbrögö forystu VMSÍ
hafi verið jákvæð við hugmyndum
um nýja stefnumótun í kjaramál-
um. A fundinum, þar sem VMSÍ
kynnti afstöðu sína fyrir uppsögn
kjarasamninga, var forystu VMSÍ
boöið uppá samstarf um þessa
stefnumótun með það að mark-
miði að reyna að vinna sig út úr
þeim vandamálum sem við er aö
etja með núverandi skipan kjara-
mála. Árni leggur hinsvegar
áherslu að þessar tillögur, sem eru í
sjö liðum, séu enn í vinnslu og tel-
dómsmálaráöherra sem hefur
skipað nefndina aö höfðu samráði
viö samgönguráöuneytið. Nefnd-
ina skipa þeir Magnús Einarsson,
yfirlögregluþjónn, formaður,
Brynjólfur Mogensen, yfirlæknir
og Kristján Vigfússon, deildar-
stjóri. Sjá einnig bls. 3
ur æskilegt að fá sem allra flesta
meö í þetta starf, bæði aðila á al-
mennum vinnumarkaði og hjá
hinu opinbera. Aftur á móti sé
brýnt að þessari stefnumótun veröi
lokið áður en núgildandi kjara-
samningar falla úr gildi, eða fyrir
áramótin 1996-1997, fremur en að
efna til ófriðar á vinnumarkaði í
vetur.
Á fundinum í gær með forystu
VMSÍ kom hinsvegar skýrt fram af
hálfu Vinnumálasambandsins að
það væm hvorki efnisleg né laga-
rök fyrir uppsögn kjarasamninga
um næstu áramót. Hinsvegar lýsti
VMS því yfir ab ef félög launafólks
komast ?.ó sameiginlegri niður-
stöðu um aðra skiptingu þeirra
launabreytinga sem samið hefur
verið um á árinu, þá væri Vinnu-
málasambandið reibubúib til form-
legra breytinga á kjarasamningum
í samræmi við það.
Aftur á móti telur VMS að þótt
slík samstaða náist, þá mundi hún
duga skammt. Það er vegna þess að
uppbygging launakerfa sé oröin
það flókin að þab veröi mjög erfitt
ab ná fram eölilegum breytingum á
hlutföllum milli launa og hindrar
þar að auki eölilegar þjóðfélags-
breytingar. -grh
í stab þess ab dysja umfram-
framleibsluna. Sigrún Árna-
dóttir hjá Rauba krossinum:
Dósakjöt til
sveltandi þjóöa
Raubi kross íslands hefur,
ásamt Þjóbkirkjunni og Þró-
unarstofnun Islands, lýst
áhuga á ab umframkjöt, sem
nú er fargab, verbi sobib í dós-
ir og gefib til sveltandi þjóba.
Sigrún Árnadóttir fram-
kvæmdastjóri RKÍ staðfesti í gær
ab unnið væri að koma þessu
verkefni á flot. Dagstjarnan í
Hafnarfirbi mun tilbúin til ab
sjá um niðursuðu á kjötinu.
„Við höfum lengi haft áhuga
á þessu. Reyndar er málið stutt á
veg komið. En hugmyndin er ab
gefa kjötið til neyðaraðstoðar,"
sagði Sigrún Árnadóttir í gær.
„Auðvitað er það út í hött að sjá
kjöt brennt og dysjað þegar fólk
er svangt víða um heiminn,"
sagði Sigrún. -JBP
50 ára afmœli Sameinubu
þjóbanna:
Flaggað í dag
Forsætisráðuneytið hefur
ákveðib ab flaggað skuli við all-
ar opinberar stofnanir í dag, 24.
október 1995, í tilefni af 50 ára
afmæli Sameinuðu þjóðanna,
en undanfarna daga hefur þess-
um timamótum verið fagnað í
höfuðstöðvum Sameinubu
þjóbanna í New York. ■
Nefnd rannsakar rútuslys