Tíminn - 24.10.1995, Blaðsíða 3

Tíminn - 24.10.1995, Blaðsíða 3
Þri&judagur 24. október 1995 fftMW 3 Stórslys i Hrútafiröi: Tveir fórust og yfir 20 slösuöust Tvær konur fórust og á þriöja tug slösubust í alvarlegu um- feröarslysi sl. sunnudagskvöld þegar rúta frá Noröurleiö fór út af viö Þóroddsstaði í Hrúta- firbi. Akstursskilyröi voru vond, mikil hálka og svipti- vindasamt. Slysið varö um kl. 22 og var allt tiltækt björgunarlið heima- manna kallaö út auk beggja þyrlna Landhelgisgæslunnar og meðlima í Flugbjörgunarsveit. Þá kom allt tiltækt lækna- og hjúkrunarfólk frá Hvamms- tanga. Það fólk sem var mest slasað var flutt í Staðaskála í Hrútafirði þar sem aðhlynning fór fram áður en farþegarnir voru sendir á spítala. Líklegt má telja aö belta- notkun hefði bjargaö miklu í rútuslysinu í Hrútafiröi í fyrrakvöld. Sem stendur er farþegum skylt aö spenna sig í belti ef þau eru fyrir hendi, en svo er ekki nema í hluta rútu- flotans. Formaöur Umferöar- ráös segir aö þess sé hvergi krafist í heiminum aö allir farþegar séu spenntir, en slíkt hljóti þó aöeins aö vera tíma- spursmál. Óli H. Þórðarson segir að ný- lega hafi verið samþykkt reglu- gerð um að í öllum innfluttum hópbifreiöum eigi að vera belti í þeim sætaröðum sem teljist hættulegastar, svk. opin sæti. Þá hafi Umferðarráð samþykkt ályktun í sumar sem send var til allra ökumanna hópbifreiða, 800-900 bréf, þar sem vikið var að beltum og hvatt til aukinnar notkunar þar sem belti væru fyrir hendi. Einnig hafi öku- menn eða eigendur hópbifreiða verið hvattir til að setja belti á Bára Guðmundsdóttir í Stað- arskála tók þátt í aðhlynningar- starfinu. „Þetta var hrikaleg lí- freynsla en mér fannst þetta slasaða fólk alveg sérstaklega ró- iegt. Þarna voru m.a. unglingar og börn sem stóðu sig eins og hetjur." Hún segir framkvæmd hafa gengið að óskum við erfið skilyrði, fólkið hafi verib mis- mikið slasað en allir mjög róleg- ir miðað við abstæður. Alls hafi þetta verið um 15 manns sem læknar og hjúkrunarfólk hlúði að í skálanum áður en fólkið var flutt til Akraness og Reykjavíkur. Aðeins einn mun vera mjög al- varlega slasaður en þó ekki í lífs- hættu. Kristján Þorbjörnsson, yfirlög- þá bíla sem væru beltislausir. Óli segir fulllangt að bíða eftir endurnýjun flotans hvað þetta varðar. „Ef vel á að vera þyrftu að vera belti í öllum sætum.í öll- um rútum, það er mín skoðun." Óli segir það segja sig sjálft að slysahætta í rútum myndi minnka til muna ef allir farþeg- ar væru spenntir. Til að mynda fari rúður stundum út í heilu lagi og fólk kastist út úr bílun- um. „Reglan er sú að ef belti er til staðar á að nota það. Það þyrfti beltaskyldu í öll sæti. Ég veit hins vegar ekki til að slíkt sé í lögum nokkurs staðar í heim- inum. Þetta tekur ákvebinn tíma en ég er sannfærður um ab eftir 10 ár þykir þetta jafn sjálf- sagður hlutur og í fólksbílum í dag." Formaður Umferðarráðs vildi að lokum hvetja alla lands- menn til að nota belti þar sem þau eru, hvort sem um ræðir hópbifreiðir eða fólksbíla. -BÞ regluþjónn á Blönduósi, sagði í gær ab rannsókn slyssins stæði yfir. Aðspurbur um dekkjabún- að rútunnar sagði hann að lög- reglan gæti ekki dæmt um það, til þyrfti sérfræðing til ab meta slit og annað slíkt. Búist er við að rannsókn geti dregist á lang- inn. „Það þarf að ræða við fjölda manns út um allt land," sagbi Kristján í gær. Hann kom sjálfur á slysstað og telur að nánast allir sem voru í rútunni hafi marist, brákast eða þaðan af verra. Kristján sagði mjög yfirvegaða og góba stjórn hafa verið á vettvangi, þeir fjöl- mörgu aðilar sem stilltu saman strengi sína hafi unnið saman af yfirvegun og björgunarstarf gengið mjög vel. „Það tókst til að mynda mjög vel ab hlúa að andlegu hliðinni hjá farþegun- um," sagði yfirlögregluþjónn- inn á Blönduósi í gær. Forráöamenn Norðurleiðar treystu sér ekki til að tjá sig við fjölmiðla um málið í gær. „Við viljum sem minnst um þetta tala í bili, menn eru gríðarlega slegnir yfir þessu," sagði starfs- maður fyrirtækisins í gær. -BÞ Tillögur Landsþings Landssambands framsók- arkvenna: Sunnudagar virkir fjöl- skyldudagar Landsþing Landssambands framsóknarkvenna hvetur þingflokk Framsóknarflokks- ins til að hafa forystu um að sunnudagar verði virkir fjöl- skyldudagar í þjóðfélaginu. Ennfremur var samþykkt til- laga þess efnis að LFK beini því til iðnaðar og viöskiptaráö- herra, Finns Ingólfssonar, að komið verbi á fót sérstökum kvennabanka. Þingið beinir því einnig til landbúnaðarráðherra að bæta hlut kvenna innan félagskerfis bænda. ■ Óli H. Þórbarson, formabur Umferbarrábs, um bíl- beltanotkun í langferbabifreibum: Þyrfti belti í allar rútur Landsþing Landssambands framsóknarkvenna: Skynsemisstefna Framsókn- ar aftur í stjórnarráði5 Sjöunda landsþing Landssam- bands framsóknarkvenna var haldið í Kópavogi um helgina og í stjórnmálaályktun sem þingiö sendi frá sér kemur fram aö framsóknarkonur fagna því aö skynsemisstefna Framsóknarflokksins er aftur kominn inn í stjórnarráðið. Framsóknarkonur minna á ályktun flokksþings Framsókn- arflokksins í nóvember á síðasta ári, þegar flokkurinn var utan stjórnar, en þar kom fram að jafnvægi í ríkisfjármálum og hallalaus fjárlög væru forsenda þess ab skapa mætti stöðugleika og uppbyggingu atvinnlífs á næstu fjómm árum. Stefna nú- verandi ríkisstjórnar er einmitt í anda þeirra ályktunar. Fram- sóknarkonur segja ennfremur að mikilvægt sé að íþyngja ekki almenningi frekar en orðið sé með auknum skattaálögum og að nauðsynlegt sé að skattakerf- ið sé vinnu- og sjálfsbjargar- hvetjandi. Tekjuskattskerfið nái ekki tilgangi sínum á meban að- eins þrír af hverjum 10 greiða tekjuskatt. LFK skorar ennfremur á Frið- rik Sophusson að taka á skatt- svikum hið fyrsta m.a. með því ab efla skattrannsóknir. Rétt sé að greddur sé skattur af fjár- magnstekjum eins og öbrum tekjum og það sé réttlætismál að hægt verði ab nýta persónuaf- slátt á milli maka að fullu. Þingið fagnar því starfi sem hafið sé undir forustu Páls Pét- urssonar, félagsmálaráðherra, í þá átt að minnka launamun kynjanna, en nú sé unnið að því að skoða hvort starfsmat geti verið leib til þess. Stjórnarskrárbrot? Er þab brot á stjórnarskránni ab karlar hafi ekki jafnan rétt og konur til fœbingarorlofs? í stjórnarskrá stendur ab allir skuli jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferbis. Enn fremur segir ab karlar og konur skuli njóta jafns réttar í hvívetna. Þegar litib er til réttar t.d. opin- berra starfsmanna og febra til fœbingarorlofs virbist vera síbrotib á stjórn- arskránni. Karlar hafa ekki sjálfstœban rétt til fœbingarorlofs, einungis af- leiddan rétt. Sem þýbir ab réttur þeirra til fœbingarorlofs er hábur sam- þykki móbur. Af þessu tilefni sagbi Páll Pétursson, á blabamannafundi í gœr vegna nýkominnar jafnréttisáœtlunar Norburlandarábs, ab efgild- andi lög á íslandi hljómubu ekki saman vib stjórnarskrárákvæbi „þá verb- ur ab breyta þeim." Abspurbur um hvort ekki þurfi ab breyta lögum um rétt febra til fæbingarorlofs sagbi hann ab vœntanlega þyrfti ab endur- skoba þau. Á myndinni sjást þau Berglind Ásgeirsdóttir, rábuneytisstjóri, Elsa Þorkelsdóttir, framkvæmdastjóri jafnréttisrábs, Páll Pétursson, félags- málarábherra og Elfn R. Líndal, formabur jafnréttisrábs. Tímamynd: cs Rábherra sagbur hafa laekkab heimsmarkabsverb á áli vegna ótímabcerra yfirlýsinga. Finnur Ingólfsson um leibara Mbl.: Raunar hækka&i verbib á álinu „Þaö hefði nú verið svolítiö nær fyrir Morgunblaöið að kynna sér máliö ofurlítið betur áður en þessi leiðari var skrifaöur, og þá hvað ég í raun og veru sagði. Ég sagði aldrei að náðst hefði sam- komulag um stækkun álversins. Ég sagði að komiö væri sam- komulag milli samninganefnd- anna og á því er grundvallarmun- ur. Ég hef alltaf slegib þann fyrir- vara ab eftir væri að fjalla um málib í stjórh Alusuisse-Lonza," sagbi Finnur Ingólfsson í gær. Morgunblaðið gagnrýndi ráð- herrann í leiðara á laugardag fyr- ir „ótrúlega vanþekkingu og reynsluleysi" að gefa út yfirlýs- ingar þessar. Blaðib hefur eftir Christian Roth forstjóra ísal hf. að yfirlýsingarnar hefðu „Ieitt til verðlækkunar á álmörkuðum í fyrradag (þ.e. á föstudaginn)". „Ég var að gera ríkisstjórninni grein fyrir niðurstöbum samninga- nefndanna í því skyni að við getum hraðað sem mest undirbúningi þeg- ar og ef til þess kemur að jákvæð niöurstaða verður hjá stjórn Alusu- isse-Lonza í byrjun nóvember. Það hljóta að vera hagsmunir beggja að hægt verði að ljúka málinu í þing- legri meðferð fyrir áramót," sagði Finnur Ingólfsson. Iönaðarráðherra og forstjóri ísal hittust að máli í gærdag og ræddu málin. Finnur segir að þeir hafi átt góðan fund. Milli þeirra væri eng- inn ágreiningur, hvorki um máls- meðferð né aðra þætti málsins. „Það skemmtilega er að álverð mun hafa hækkað á föstudaginn, en ekki lækkað eins og fram kom í Morgunblaðinu og þá er ekki mikið eftir af fullyrðingum leiðarahöf- undar Morgunblaðsins," sagði Finnur Ingólfsson. -JBP ÚTBOÐ F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilbob- um i 1. áfanga á endurbótum og breytingum á leikskólanum Ásborg. Verkið felst í breytingum og endurbótum á 372m2 hús- næði. t Útbobsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu. Tilbobin verða opnub á sama stað fimmtudaginn 2. nóvember 1995, kl. 15.00 e.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR (REYKJAVÍK PURCHASING CENTER) Frikirkjuvegi 3 - Sími 5525800 ÚTBOÐ F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tiiboð- um í 1. áfanga á frágangi utanhúss við Keilusalinn í Öskjuhlíð. Verkið felst í að steypa stoðveggi, lagningu drenlagna og jarð- vinnu. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu. Tilbobin verða opnub á sama stab fimmtudaginn 2. nóvember 1995, kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR (REYKJAVÍK PURCHASING CENTER) Frikirkjuvegi 3 - Sími 5525800

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.